Morgunblaðið - 10.11.1995, Side 60
JtewU&t
-setur brag á sérhvern dag!
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85
FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1995
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Formaður LÍÚ
Endumýj-
un fiski-
"'skipa verði
gefin frjáls
KRISTJÁN Ragnarsson, formaður
LÍÚ, lagði til á aðalfundi samtakanna
í gær að endumýjun fískiskipaflotans
yrði gefín fijáls. Hann segir að núver-
andi reglur sé þröskuldur í vegi nauð-
synlegrar endumýjunar og nægilegt
sé að hvert skip hafí ákveðnar afla-
heimildir. Ekki skipti máli hvemig
skip sé notað til að ná þeim.
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráð-
herra segir að hann sé tilbúinn til
viðræðna um breytingar af þessu tagi.
Endumýjun fískiskipa er nú háð þeirri
reglu að ekki megi stærra skip koma
í stað gamals, nema fleiri en eitt skip
sé úrelt á móti hinu nýja.
„Ég hef alltaf litið svo á að það
væri spurning um aðlögunartíma og
álitaefnið hafí verið hvenær núver-
andi reglur yrðu lagðar niður, fremur
en hvort svo yrði. Menn verða að
meta það hvenær rétti tíminn er kom-
inn. Ég ætla ekki að gera það á þessu
stigi, en er tilbúinn til viðræðna um
_það,“ segir Þorsteinn Pálsson.
Þröskuldur í vegi eðlilegrar
endurnýjunar
„Reglur um úreldingu þegar físki-
skip eru endumýjuð em þröskuldur í
vegi eðlilegrar endurnýjunar," sagði
Kristján á fundinum. „Nauðsyn bar
til að hafa slíkar reglur, sem takmörk-
uðu stærð fiskiskipaflotans, meðan
aflamarkskerfíð var að festast í sessi
og óvissunni væri eytt um að sóknar-
mark tæki við.
Nokkrir félagar okkar, einkum á
Vestíjörðum, hafa verið ósamstiga
okkur hinum um áherzlur við stjómun
fískveiða. Nú, þegar þeir hafa fylkt
liði með okkur, eins og ég skildi á
aðlfundi Útvegsmannafélags Vest-
— fjarða í haust, tel ég enga ástæðu til
að veijast þurfí lengur þeirri hug-
mynd, að sóknarmark verði notað við
veiðistjómun. Þar með er engin
ástæða til að hafa takmarkandi regl-
ur um hvemig skip hver og einn not-
ar til að veiða þann afla, sem heimilt
er á hveijum tíma.“
■ Auðlindaskattur veikir stöðu/16
Jórdönsk breiðþota lenti á Keflavíkurflugvelli vegna sprengjuhótunar
Þrír grunaðir farþegar í
vélinni voru handteknir
TVÆR konur og karlmaður voru handtekin eftir
að jórdönsk breiðþota, sem þau vom farþegar í,
lenti á Keflavíkurflugvelli kl. 18.25 í gær, en
flugstjóri vélarinnar hafði fengið leyfi til lending-
ar vegna sprengjuhótunar um borð. Mikill viðbún-
aður var á flugvellinum og sjúkralið og björgunar-
sveitir voru í viðbragðsstöðu þar og á Reykjavík-
ursvæðinu þar til farþegar vélarinnar voru komn-
ir frá borði kl. 18.40. Engin sprengja fannst um
borð í flugvélinni við fyrstu leit á meðan verið
var að koma farþegunum, 224 talsins, frá borði.
Vélin stóð síðan mannlaus á flugbrautinni þar til
í nótt er sprengjusérfræðingar leituðu í henni.
Flugvélin sem um ræðir er af gerðinni Tri-
Star og er hún í eigu flugfélagsins Royal Jord-
anian Airlines. Að sögn Péturs Guðmundssonar,
flugvallarstjóra á Keflavíkurflugvelli, lagði hún
af stað frá Amsterdam kl. 15.18 í gær áleiðis
til Chicago, en þar átti hún að lenda kl. 23.32
að íslenskum tíma.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins barst
flugstjóra jórdönsku flugvélarinnar tilkynning frá
Chicago um að þekkt hryðjuverkakona væri um
borð í vélinni og hætta talin á því að hún hefði
sprengju meðferðis. Flugstjórinn óskaði þá eftir
leyfi til að lenda á Keflavíkurflugvelli, en til-
kynnti farþegum að það þyrfti hann að gera
vegna bilunar í mótor.
Flugstjórn gerði Almannavörnum ríkisins þeg-
ar viðvart og tíu mínútum síðar voru lögregla,
sjúkralið og björgunarsveitir á Reykjavíkursvæð-
inu og á Suðumesjum komnar í viðbragðsstöðu
sem aflétt var er farþegarnir voru komnir í Flug-
stöð Leifs Eiríkssonar.
■ Besta lending/4
Sjónvarpið/Viðar Oddgeirsson
FARÞEGAR breiðþotunnar voru aðstoðair frá borði um neyðarútganga og neyðarrennur.
Blindrafélagið um útgáfu 2.000 kr. seðils
Skýlaust brot á
jafnræðisreglu
BLINDRAFÉLAGIÐ telur útgáfu
2.000 kr. seðilsins sem Seðlabanki
íslands gefur út brjóta blað í út-
Geysi spillt
með bor-
holum?
ÁSTA Ragnheiður Jóhannesdóttir,
þingmaður Þjóðvaka, sagði á Alþingi
í gær að hverasvæðinu við Geysi í
Haukadal hefði hugsanlega verið
spillt með því að bora um tug bor-
hola í nágrenni hversins á und-
anfömum árum til að fá heitt vatn
til heimabrúks handa bændum í
sveitinni.
gáfustefnu bankans þar sem tekin
hafi verið um það sérstök og með-
vituð ákvörðun að blindir eigi ekki
að geta aðgreint peningaseðla eftir
stærð. Ennfremur að gera skuli
sjónskertum örðugt að aðgreina
seðlana eftir lit.
Að því er fram kemur í fréttatil-
kynningu Blindrafélagsins telur það
þessa stefnubreytingu Seðlabank-
ans vera skýlaust brot á þeirri jafn-
ræðisreglu sem opinberri þjónustu-
stofnun á borð við Seðalbankann
sé skylt að gæta. Það sé óskiljan-
legt með öllu eftir þá viðleitni sem
bankinn hafi áður sýnt í útgáfu
sinni að hann skuli nú ákveða að
vama blindum og sjónskertum þátt-
töku í almennri verslun og viðskipt-
um í landinu.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
FARÞEGAR Royal Jordanian Airlines biðu rólegir eftir því að
sprengjuleit lyki svo vélin gæti haldið ferð sinni áfram til Chicago.
*
Islending-
ar eyðslu-
samastir
ENGIR ferðamenn á Bretlandi
eyða jafn miklu fé að meðal-
tali á dag og íslendingar sam-
kvæmt tölum bresku hagstof-
unnar.
í frétt, sem birtist í breska
dagblaðinu The Daily Te-
legraph í morgun, sagði að ís-
lendingar hefðu meira að segja
skotið Japönum og Bandaríkja-
mönnum aftur fyrir sig.
íslenskir ferðamenn á Bret-
landi eyddu að meðaltali 116
sterlingspundum (11.830 krón-
um) á dag. Japanar eyddu hins
vegar aðeins 82 pundum (8.364
krónum) og Bandaríkjamenn
62.30 pundum (6.350 krónum).
Nýsjálendingar reyndust sýna
mesta aðhaldssemi í fjármálum
og eyddu aðeins 29,4 pundum
(3.000 krónum) að meðaltali á
dag.