Morgunblaðið - 15.11.1995, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
SS lækkar verð •■»*■**■ á nautakjöti 1 f > rn • §K Smásölupakkning Lsm •' ''
. Verðið gær, 1 kg Verðið ídag, 1 kg Breyting
Búrfells piparsteik 1.599 1.359 -15,0%
Búrfells snitsel 1.299 1.099 -15,4%
Búrfells gúllas 1.248 1.069 -14,3%
Búrfells nautahakk 828 699 -15,6%
New Yorkers laushakkað ungneytakjöt 898 769 -14,4%
New Yorkers mínútusteik 2.197 1.869 -14,9%
New Yorkers piparsteik 2.248 1.919 -14,6%
Sláturfélag Suðurlands
Nautakjöt lækkar
um allt að 15,6%
SLÁTURFÉLAG Suðurlands hefur
ákveðið að lækka verð á nautakjöti
um allt að 15,6% vegna aukins fram-
boðs. Allt ferskt nautakjöt í smásölu-
pökkum lækkar um 15%.
í frétt frá Sláturfélagi Suður-
lands segir að lækkunin muni taka
gildi í dag, 15. nóvember. Þá segir
að lækkunin sé ekki á kostnað
bænda og að Sláturfélagið muni
eftir sem áður greiða þeim skráð
verð.
Jafnframt hafi verið ákveðið að
selja nýju áönsku pylsumar á kynn-
ingarverði um tfma, eða 498 krónur
kílóið í smásölu.
Finni fyrir norrænu ráðherranefndinni
Styrkja stöðu ís-
lenzku og finnsku
FINNLAND, sem tekur við for-
mennsku í norrænu ráðherranefnd-
inni um áramót, mun á formennsku-
ári sínu leggja áherzlu á aukinn
málskilning á Norðurlöndunum og
vinna að því að styrkja stöðu ís-
lenzku og fínnsku í norrænu sam-
starfi. Þetta kom. fram. í stefnu-
ræðu, sem Ole Norrback, sam-
starfsráðherra Norðurlanda í
finnsku ríkisstjóminni, hélt á Norð-
urlandaráðsþinginu, sem lauk í
Kuopio í Finniandi í gær.
Norrback sagði í ræðu sínni að
Finnland myndi gera tillögur um
aðgerðir, sem auðvelduðu Norður-
landabúum, sérstaklega Finnum og
íslendingum, að taka þátt í norrænu
samstarfí á jafnréttisgrundvelli,
óháð því hvert væri móðurmál
þeirra.
Spurning um viðhorf
„Þetta er ekki aðeins spuming
um að úthluta nauðsynlegum fjár-
munum í þessu skyni. Að miklu
leyti snýst málið einnig um viðhorf
á Norðurlöndum,“ sagði Norrback.
Vinnuhópur um málsamfélag
Norðurlanda mun gera tillögur um
aðgerðir til lengri tíma í því skyni
að auka málskilning milli Norður-
lándabúa. Þá mun hópurinn standa
fyrir herferðum til skemmri tíma.
Starfsmenn ríkis og Reykjavíkurborgar
Heildarlaun í júní 135
þús. kr. að meðaltali
KAUPMÁTTUR greiddra dag-
vinnulauna opinberra starfsmanna
hjá ríki og Reykjavíkurborg hélst
að mestu leyti óbreyttur á fyrri
helmingi þessa árs samanborið við
seinasta ár. Meðaldagvinnulaun
opinberra starfsmanna á síðara
helmingi þessa árs voru 88.650 á
mánuði og heildarlaunin námu að
meðaltali 135.139 kr., skv. nýju
fréttariti Kjararannsóknamefndar
opinberra starfsmanna.
í fréttaritinu er kaupmáttur
reiknaður út frá öllum launum frá
launaskrifstofu og yfírvinna með-
talin. Em öll laun sem tilheyra dag-
vinnu reiknuð sem dagvinnulaun.
Kjararannsóknamefnd bendir á að
meðaldagvinnulaun flestra starfs-
mannafélaga lækki yfír sumarmán-
uðina, vegna þess, að sumarafleys-
ingafólk komi inn í lægstu starfs-
aldursþrepin. Þá má benda á að á
þessum tíma höfðu mörg félög opin-
berra starfsmanna ekki lokið gerð
kjarasamninga.
Heildarlaun á bilinu 98 til 374
þúsund að meðaltali
Sé litið á meðallaun nokkurra
hópa og starfsmannafélaga skv.
fréttabréfínu kemur í ljós að leik-
skólakennarar vom með 87.056 kr.
í greidd dagvinnulaun í júní og
105.656 kr. að meðaltali í heildar-
laun, þ.e. að meðtalinni yfírvinnu
og öðmm launum. Félagar í Lands-
sambandi lögreglumanna fengu að
meðaltali greiddar 86.480 kr. í dag-
vinnulaun í júní og heildarlaun
þeirra námu að meðaltali 168.432
kr. í mánuðinum.
Meðaldagvinnulaun félagsmanna
í Starfsmannafélagi ríkisstofnana í
júní vom 79.160 kr. og heildarlaun
124.137 kr.
Háskólakennarar í BHMR vom
að meðaltali með 109.373 kr. í
greidd dagvinnulaun og heildarlaun
vom að meðaltali 149.595 kr.
Meðaldagvinnulaun gmnnskóla-
kennara í KÍ vom 91.468 kr. í júní
og heildarlaun 94.737. Heildarlaun
þeirra í maí vom 136.717 kr. en
þá stóð kennsla enn yfir.
Flugumferðarstjórar vom með
170.988 kr. í greidd dagvinnulaun
og heildarlaun þeirra námu að með-
altali 374.350 kr. í júní. Sjúkrahúss-
læknar höfðu 162.391 kr. í dag-
vinnulaun í júm' að meðaltali og
274.825 kr. í heildarlaun.
Meðaldagvinnulaun hjá Starfs-
mannafélagi Reykjavíkurborgar
vom 71.678 kr. í júní og heildar-
launin námu að meðaltali 98.857 kr.
Morgunblaðið/Kristinn
Minningartónleikar í Háskólabíói
HÁSKÓLABÍÓ var þétt setið á minningartón- íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, var meðal
leikum sem Önfirðingafélagið hélt í gærkvöldi viðstaddra gesta. Fjöldi tónlistarmanna kom
vegna náttúruhamfaranna á Flateyri. Forseti fram og ávörp voru flutt.
STYTTA af Leifi Eiríkssyni sem stendur
á einni af stærstu breiðgötum borgarinn-
ar Boston í Bandaríkjunum er nú orðin
að skotspæni annars af stærstu blöðum
borgarinnar. í síðustu viku lagði Scot
Lehigh, dálkahöfundur dagblaðsins The
Boston Globe, til að hún yrði fjarlægð og
í stað hennar kæmi minnisvarði, sem
stæði borginni nær.
„Við vonum að Boston geti losað sig
við ryðgaðar menjar, sem endurspegla
lítið annað en duttlunga, sérvisku eða
tilviljanir . . . og reist styttur, sem
heiðra sannlega athyglisverða seinni tíma
menn,“ segir Lehigh í dálki sinum, sem
er skrifaður í gamansömum tón eins og
bréf úr framtíðinni til borgarstjóra Bos-
ton frá sérstakri „andlitslyftingamefnd“
borgarinnar.
Kom aldrei til Boston
Lehigh nefnir sérstaklega fjórar stytt-
ur til sögunnar og tilgreinir fyrst stytt-
una af Leifi: „Fyrsta stóra styttan [á
Commonwealth Avenue] er af Leifí Ei-
ríkssyni, sem stendur á súlu í víkinga-
brynju með brjóstskjöld. Við fáum ekki
betur séð en að eina ástæðan fyrir því
að Leifur er þarna sé sú að Evan Horse-
ford lyfjaframleiðandi hafi talið að Leifur
hafi tekið land í Cambridge árið 1000 og
því reist styttu honum tii heiðurs árið
1887.
Fátt bendir hins vegar til þess að Leif-
ur hafi nokkru sinni hingað komið, kæri
borgarsljóri, og hafí hann gert það er
öldungis víst að hann var ekki um kyrrt.
Og hvi ætti þá styttan af honum að festa
hér rætur?“
Lehigh Ieggur til að styttan af Leifí,
Leif heppna
burt frá
Boston
Morgunblaðið/Þorgeir K. Þorgeirsson
sem I myndatexta er sagður hafa verið
norskur, verði gefin Cambridge, sem er
næsti bær við Boston, og í stað hennar
verði reist stytta af Thomas P. („Tip“)
O’NeiIl, stjórnmálamanni frá Massa-
chusetts, sem sat á þingi í áratugi og var
forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings
frá 1977 til 1988.
Á skrifstofu Toms Menninos, borgar-
stjóra Boston, fengust þær upplýsingar
að ólíklegt yrði að styttan af Leifí yrði
fjarlægð á næstunni. „Mál af þessu tagi
þarf að fara fyrir þijár eða fjórar nefnd-
ir og tæki langan tíma,“ sagði John Dors-
ey, aðstoðarmaður í upplýsingaskrifstofu
borgarsljóra.
Lehigh sagði í samtali við Morgunblað-
ið í gær að hann hefði unnið á blaði
skammt frá styttunni af Leifi og daglega
hefði hann gengið fram hjá styttunum á
Commonwealth Avenue. „í hvert skipti
spurði ég sjálfan mig hvers vegna svona
margir minnisvarðar í Boston væru borg-
inni óviðkomandi,” sagði Lehigh.
Styttan frá sérsinna efnafræðingi
Evan Horseford var efnafræðingur og
framleiddi lyf undir einkaleyfi. í heim-
ildarítum er hann einnig sagður hafa
verið mannvinur og velgjörðarmaður.
Hann var ennfremur sannfærður um að
Leifur hefði numið land í Boston. Lehigh
benti á að Leifi hefði sennilega ekki ver-
ið sérlega vel tekið þegar Horseford fór
á stúfana fyrir rúmum hundrað árum.
Hann hefði viljað reisa styttuna á Póst-
hústorgi I miðri Boston, en þrautalend-
ingin hefði verið að setja hana þar sem
hún er nú.
Lehigh vildi taka fram að styttan af
Leifi, sem er eftir myndhöggvarann Anne
Whitney, væri ekki sú versta, sem stæði
i Boston.
Vilja láta
lækka hol-
ræsagjöld
BORGARRÁÐ hefur samþykkt að
fara þess á leit við félagsmálaráð-
herra, að flutt verði frumvarp um
breytingu á vatnalögum þannig að
sveitarstjómum verði heimilt að
lækka eða fella niður holræsagjald,
sem tekjulitlum elli- eða örorkulíf-
eyrisþegum er gert að greiða.
í umsögn borgarlögmanns, sem
samþykkt hefur verið í borgarráði,
segir að holræsareglugerðin byggist
á vatnalögum og að þar sé ekki að
finna heimild til að mismuna greiðend-
um og hafí gjald verið innheimt af
öllum eigendum fasteigna í borginni.
Jafnræðisregla
Jafnframt segir að almenna regl-
an sé sú að skattar og þjónustugjöld
skuli lögð á borgarana samkvæmt
jafnræðisreglu og að svigrúm opin-
berra aðila til að mismuna þegnun-
um sé mjög takmarkað. Bent er á
að nauðsynlegt hafi verið talið að
hafa sérstakt ákvæði í lögum um
tekjustofna sveitarfélaga, sem heim-
ili þeim að lækka eða fella niður
fasteignaskatt, sem tekjulitlum elli-
og lífeyrisþegum sé gert að greiða.
Fram kemur að umsögnin sé sam-
in í samráði við fórmann Sambands
íslenskra sveitarfélaga.