Morgunblaðið - 15.11.1995, Blaðsíða 48
ysmmk:--
alltaf á
Miövikudögum
MORGUNBLADIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVtK, StMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTR UM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
MIÐVIKUDAGUR15. NÓVEMBER 1995
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Umsóknir um lán til bygginga 700 félagslegra íbúða
Helmingi færri
íbúðir en 1994
UMSÓKNIR hafa borist til Hús-
næðisstofnunar ríkisins um lán til
byggingar á um 700 félagslegum
íbúðum. Langflestar eru umsókn-
irnar frá sveitarfélögunum á suð-
vesturhorni landsins og félagasam-
tökum. Lánsumsóknum hefur
fækkað mjög á síðustu árum. Fyr-
ir árið 1994 bárust 1.408 umsókn-
ir og þær hafa verið að jafnaði á
-'•'-b.ilinu 1.500-1.600 á ári síðustu
árin.
Gísli Gíslason, deildarstjóri fé-
lagsíbúðadeildar Húsnæðisstofnun-
ar, segir að fyrir árið 1995 hafi
verið sótt um lán til byggingar 887
íbúða og 1.408 íbúða fyrir árið
1994. „Þetta er töluverður sam-
dráttur í fjölda íbúða. Þó ber þess
að geta að hér á árum áður sóttu
sveitarfélögin svolítið riflega um
lán, jafnvel til bygginga á 2-300
íbúðum þó vitað væri að ekki yrðu
- V'ggðar nema 50-60 íbúðir. Það
hefur hins vegar borið minna á
þessu en áður. Þetta skýrir sam-
Samdrátturinn
nær allur á lands-
byggðinni
dráttinn kannski að hluta til en
samt sem áður ekki að öllu leyti,“
segir Gísli.
Umsækjendum fækkað um 28
Umsækjendur um lánin eru nú
32 talsins, þar af 17 sveitarfélög
og 15 félagasamtök. í fyrra voru
umsækjendur 60 talsins og svipað-
ur fjöldi í hitteðfyrra. Gísli segir
að litlir hreppar á landinu hafi fall-
ið út sem umsækjendur og fáar
umsóknir hafi borist frá Vestfjörð-
um.
„Umsóknirnar koma aðallega frá
þessum stóru sveitarfélögum á suð-
vesturhorninu og félagasamtökum,
eins og Öryrkjabandalaginu og
nemendafélögum," sagði Gísli.
Stærsti einstaki umsækjandinn
er Reykjavflcurborg sem sækir um
lán til byggingar 180 íbúða. Einnig
eru margar umsóknir frá Kópa-
vogi, Hafnarfirði og Akureyri.
Húsnæðisstofnun gerir ráð fyrir
að meðallán til byggingar hverrar
íbúðar sé um 5,6 milljónir kr. Þarna
er því um að ræða lánsumsóknir
sem samtals nema 3.920 milljónum
króna. Húsnæðisstofnun lánar
þessa fjárhæð sem framkvæmdalán
en þegar byggingarkostnaður ligg-
ur fyrir er framkvæmdalánið gert
upp með langtímaláni sem veitt er
væntanlegum kaupanda, sem getur
verið einstaklingur eða sveitarfé-
lagið sjálft ef ætlunin er að leigja
íbúðirnar út. Lán til kaupa á félags-
legu húsnæði til einstaklinga bera
2,4% vexti en 1% ef húsnæðið er í
útleigu hjá sveitarfélögunum. Láns-
hlutfall er allt upp í 90%. Húsnæðis-
málastjóm mun íjalla um umsókn-
irnar en ekki er búist við að afstaða
til þeirra verði tekin fyrr en á næsta
ári.
mmm
íslensk villibráð í
japanska veislu
RJÚPA, lundi, svartfugl, villigæs
og hreindýrakjöt frá íslandi verða
á borðum japanskra sælkera eftir
fjóra daga. Þeir munu svo meta
hvort ástæða er til að panta meiri
'villibráð frá íslandi og selja hana
til dýrari veitingahúsa í Japan.
Pétur Pétursson, kaupmaður í
Kjötbúri Péturs, flytur villibráð-
ina út. Hann vonast til að fá í dag
leyfi til að flytja inn hreindýrakjöt
frá Grænlandi, en auk þess að
selja það hér á landi kveðst hann
geta selt það áfram til útlanda og
jafnvel þurrkað það og selt Græn-
lendingum aftur.
Pétur sendi í gær villibráð til
Japan og ætla DHL hraðflutning-
ar að koma kjötinu þangað á fjór-
um dögum. „Ég er í sambandi við
japanskt fyrirtæki, sem kaupir inn
hráefni fyrir betri veitingahús
Japans,“ segir Pétur. „Ég sendi
■+'út ferskt hráefni og Japanir ætla
svo að halda veislu þar sem þeir
geta metið hráefnið. Ef þeim líkar
vel þá getur að sjálfsögðu orðið
framhald á þessum útflutningi."
Pétur hefur sótt um leyfi til að
flytja inn hreindýrakjöt frá Græn-
landi. „Ég er búinn að leggja inn
umsókn hjá landbúnaðarráðuneyt-
inu og henni fylgir vottorð frá slát-
urhúsinu í Grænlandi, sem hefur
viðurkenningu ESB. Nú er beðið
eftir umsögn yfirdýralæknis, en
mér sýnast menn vinna nokkuð
hratt úr þessu máli og ég vænti
þvi svara á miðvikudag [í dag]. Það
er ekki til neinn tollkvóti fyrir
hreindýrakjöt, þar sem ekki var
búist við að flylja þyrfti það inn
til að anna eftirspum, en ég get
auðveidlega selt töluvert magn.
Ég gæti líka selt kjötið áfram til
Japans og ég hef einnig kannað
möguleika á að þurrka kjötið og
selja það aftur til Grænlendinga.
Þetta skýrist allt þegar ráðuneytið
hefur svarað umsókn minni.“
Eimskíp fjölgar
áætlunarfer ðum
ÁÆTLUNARSIGLINGUM Eimskips
verður senn fjölgað um 50% eða úr
fiórum ferðum í sex. Þetta er m.a.
•*»5ert vegna aukinna flutninga fyrir
Islenska álfélagið hf. vegna stækk-
unar álversins í Straumsvík, en nú
verða vikulegar afskipanir á áli til
kaupenda víðs vegar.
Einnig mun breyting á siglinga-
áætlun bæta þjónustu við álfélagið
varðandi innflutning á rekstrar- og
byggingavörum. Hagkvæmni í
rekstri Eimskips eykst þar sem félag-
ið nýtir betur skip sín, en áður var
sérstakt skip í þessum flutningum
eingöngu. Hörður Sigurgestsson,
forstjóri félagsins, sagði í gær, að
þegar væri búið að semja um flutn-
ing á viðbótarframleiðslu ÍSAL sem
er alls um 60 þúsund tonn og einnig
um flutning á nýrri álbræðslu til
landsins, en þeir flutningar nema um
30 þúsund tonnum.
■ Þjónusta við þéttbýlisstaði/6
• •
Ortröð á útsölum bílaumboðanna
Hátt í fimmhundruð
bílar seldust
STÓRU bílaumboðin seldu hátt í 500
notaða bila í síðustu viku á útsölum
sinum, samkvæmt samantekt Morg-
unblaðsins. Forráðamenn umboð-
anna segja viðtökur almennings við
tilboðum þeirra framar björtustu
vonum og markaðurinn hafi tekið
mjög vel við sér eftir nokkra deyfð
í október.
Þá hefur sala nýrra bíla einnig
tekið mikinn kipp nú í nóvember,
sérstaklega síðustu tvær vikur.
Þannig seldust um 15% fleiri bílar í
síðustu heilu viku októbermánaðar
en á sama tíma í fyrra. í fyrstu viku
nóvembermánaðar jókst salan hins
vegar um 68% frá sömu viku í fyrra
og í síðustu viku jókst salan um 45%.
Egill Jóhannsson, framkvæmda-
stjóri hjá Brimborg telur að þessa
söluaukningu megi rekja til ákvörð-
unar um stækkun álversins. „Nóv-
embermánuður hefur aldrei verið
jafngóður hjá okkur,“ sagði Egill.
Spáir hann því að sala nýrra bíla í
nóvember verði um 40-50% meiri en
í sama mánuði í fyrra.
■ Kringum/14
Morgunblaðið/RAX
Bryggju-
smíði í
Reykjavík-
urhöfn
HAFNARSTARFSMENN vinna
nú við það að endursmíða svo-
kallaðar Verbúðabryggjur í
Vesturhöfninni í Reykjavík. Á
myndinni, sem tekin var í gær-
kvöldi, sést hvar verið er að reka
niður bryggjustaura. Þegar
staurarnir eru komnir niður á
fast er sagað ofan af þeim.
Bryggjan, sem verið er að end-
urnýja, stendur við hús Slysa-
varnafélagsins.
Tilboð í jarðvegsvínnu kerskála ISAL opnuð í gær
Öll tilboðin í verkið
undir kostnaðaráætlun
TILBOÐ í fyrsta áfanga stækkunar
álversins í Straumsvík voru opnuð í
gær. Alls hafði sjö verktökum verið
heimilað að bjóða í verkið í forvali
og skiluðu 6 þeirra inn tilboðum.
Það vekur athygli að öll tilboðin eru
nokkuð undir kostnaðaráætlun, sem
hljóðaði upp á 127 milljónir króna.
Völur hf. átti lægsta tilboðið, en
það hljóðaði upp á 77,2 milljónir
króna eða sem nemur 61% af kostn-
aðaráætlun. Næst á eftir komu Há-
fell hf. með 79,7 milljónir, JVJ hf.
með 83,9 milljónir og ístak hf. með
89,3 milljónir. Tvö hæstu tilboðin
áttu hins vegar Sveinbjörn Runólfs-
son, en tilboð hans hljóðaði upp á
106,1 milljón króna og Ármannsfell
hf., sem bauð 108,8 milljónir í verk-
ið. Þessi tilboð eru eigi að síður nokk-
uð undir kostnaðaráætlun.
Framkvæmdir ættu að hefjast
innan tveggja vikna
Að sögn Rannveigar Rist, upplýs-
ingafulltrúa ÍSAL, er gert ráð fyrir
því að það muni skýrast innan viku
til 10 daga hvaða tilboði verði tekið.
Hún segir að meðal þeirra þátta sem
þurfi að skoða sé á hversu skömmum
tíma verktakarnir treysti sér til þess
að ljúka verkinu. Að því loknu verði
gengið til samninga við þann verk-
taka sem fyrir valinu verður og
reiknar Rannveig með því að fram-
kvæmdir geti hafist strax í kjölfarið.
Rannveig segir að næsta skref sé
síðan útboð á framkvæmdum við
kerskálann sjálfan og lagerhúsnæði
sem á aðTeisa. „Við munum stækka
lagerhúsnæði það sem fyrir er á
svæðinu og er það gert nú m.a. til
að nýta megi það undir geymslu á
efni vegna stækkunarframkvæmd-
anna,“ segir Rannveig. „Við reiknum
með því að senda frá okkur útboðs-
gögn vegna þessara framkvæmda á
næstu dögum.“
Rannveig segir ekki liggja fyrir á
þessari stundu hvaða verktakar
muni taka þátt í þessu útboði og
ekki hafi heldur verið gengið endan-
lega frá því hvenær tilboðsfrestur
renni út.