Morgunblaðið - 15.11.1995, Síða 12
12 MIÐVIKUD'AGUR 15. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Vissirþú
II
aó
þína jafnvel
getur margfaldaö
penmgana
þusundfalt
eóa
tiuþusundfalt?
líigiSSff
AKUREYRI
Eimskip hefur
millilandasigling-
ar frá Akureyri
EIMSKIPAFELAG Islands hefur
aukið starfsemi sína á Akureyri og
hefur vægi skrifstofu félagsins þar
aukist. Þar er veitt öll sama þjónusta
og á skrifstofum þess víða um heim
þar sem millilandaskip félagsins hafa
viðkomu.
Beinar siglingar til meginlands
Evrópu heijast frá Akureyri í janúar
næstkomandi og munu tvö skip,
Reykjafoss og Skógafoss annast
þær. Eimskip hefur siglt til Akur-
eyrar frá árinu 1915.
Eimskip hefur um 14 þúsund fer-
metra svæði til umráða á vöruhafn-
arsvæðinu við Oddeyrarbryggju og
hafa þegar óskað eftir í kjölfar auk-
inna umsvifa að fá 7 þúsund fer-
metra til viðbótar eins fljótt og kost-
ur er og aðra 7 þúsund fermetra til
að eiga tryggt land vegna mögulegr-
ar stækkunar síðar.
Félagið hefur samið við Sölumið-
stöð hraðfrystihúsanna um lagerhald
og dreifíngu og var því nýlega ráðist
í umfangsmiklar breytingar á hús-
næði félagsins í Oddeyrarskála.
Framkvæmdir kosta um 40 milljónir
króna og verður fyrsta áfanga lokið
um næstu mánaðamót, en áætlað er
að ljúka breytingum við skálann í
vor að fullu. Starfsemi landflutninga-
fyrirtækisins Dreka, sem Eimskip á
meirihluta í verður flutt í Oddeyrar-
skála.
Þrír starfsmenn Slippstöðvarinnar
Odda hafa að undanförnu séð um
gámaviðgerðir fyrir Eimskip og sagði
Hörður Sigurgestsson forstjóri að svo
yrði áfram. Þá sagði hann að félagið
hefði athugað kosti þess að taka eitt-
hvað af skipum félagsins í flotkví
Akureyrarhafnar þegar þau þyrftu á
botnhreinsun að halda.
Morgunblaðið/Kristján
Skautavertíðin hafin
SKAUTASVELLIÐ á Akureyri
hefur verið opnað fyrir bæði
keppnisfólk og almenning.
Skautaáhugafólk getur því farið
að dusta rykið af skautunum sín-
um því segja má að skautavertíð-
in sé hafin fyrir alvöru. Þegar
ljósmyndari Morgunblaðsins kom
við á svellinum í vikunni var hóp-
ur ungmenna á listhlaupsæfingu
undir stjóm Sigurðar Magnússon-
Morgunblaðið/Svavar B. Magnússon
Skjóta skjólshúsi yfír andahópinn
VETURINN er óumdeilanlega
sestur að í Ólafsfirði þegar full-
trúar Andavinafélagsins á staðn-
um taka fuglana á hús því þá er
kominn vetur í bænum. Anda-
vinafélagsmenn hafa um nokk-
urra ára skeið haldið m.a. endur
á tjörninni í hjarta bæjarins en
félagsskapurinn samanstendur
af áhugafólki um fugla og aukið
líf á og við tjörnina. Það hefur
glatt bæði heimamenn og ferða-
langa. Andavinir vilja forða fugl-
um sínum frá hinum snjóþungn
vetrum og skjóta því yfir þá
skjólshúsi yfir hörðustu vetrar-
mánuðina. Þeir voru einmitt á
ferðinni i vikunni, ráku hópinn á
undan sér eftir aðalgötunni og í
skúr sem þeir hafa til afnota
vestur í bænum.
Hita- og vatnsveita Akureyrar
Umhverfisvænn jarð-
bor tekinn í notkun
ur var frá fyrirtækinu Merkúr í
Reykjavík, kostaði um hálfa milljón
króna en hann var fluttur inn frá
Hollandi.
„Svona verkfæri getur sparað
sveitarfélögum óhemju pening.
Þetta er mjög umhverfisvænt tæki
því ekki þarf lengur að grafa skurði
fyrir öllum lögnum. Einnig er hægt
að nota borinn t.d. til að taka jarð-
vegssýni og bora fyrir girðingar-
staurum. Borinn kemst í gegnum
allan jarðveg nema harða klöpp
og fer um hálfan metra á mínútu
í mjúkum jarðvegi," sagði Snæ-
laugur.
Starfsmenn Hita- og vatnsveitu
voru að gera við kaldavatnslögn í
Eyrarlandsvegi í gær og í stað
þess að grafa um 50 m langan
skurð í húsagörðunum, þurfti að-
eins að grafa fjórar holur svo
hægt væri að athafna sig með
borinn. Á myndinni er Rafn Her-
bertsson verkstjóri að stilla borinn
af.
HITA- og vatnsveita Akureyrar
hefur fjárfest í loftdrifnum jarð-
bor, sem notaður er við að leggja
lagnir í jörð. Með bornum, sem
kallaður er Moldvarpan, er hægt
að bora í gegnum jarðveg, t.d. í
görðum, undir umferðargötur og
mannvirki. Áður þurfti að rífa upp
götur og garða sem var bæði sein-
legt og kostnaðarsamt.
Borinn er 10 cm í þvermál og
hann dregur með sér 70 mm svert
plaströr sem verður eftir í jarðveg-
inum og svo eru pípur lagðar í
plaströrið. Það er svo hægt að
nota aftur ef lagnir í því verða
fyrir skemmdum.
Verður fljótur
að borga sig upp
Snælaugur Stefánsson, yfir-
verkstjóri hjá Hita- og vatns-
veitunni, segir að borinn sé hið
mesta þarfaþing og hann verði
fljótur að borga sig ppp. Borinn
og búnaður með honum sem keypt-
Morgunblaðið/Kristján
Kvöldvaka
á fæðingar-
degi skálds
í TILEFNI af 150 ára ártíð
Öxndælingsins Jónasar Hall-
grímssonar gangast áhuga-
menn fyrir kvöldvöku í Þela-
merkurskóla á fæðingardegi
skáldsins, annað kvöld, fimmtu-
dagskvöldið 16. nóvember.
Efni kvöldvökunnar er upp-
lestur Þráins Karlssonar úr
verkum skáldsins og úr verkum
annarra höfunda um Jónas.
Einnig munu nemendur Þela-
merkur flytja nokkur ljóð
skáldsins og Bjami E. Guðleifs-
son fjalla um Jónas sem náttúru-
fræðing. Ingunn Aradóttir syng-
ur eitt lag við ljóð skáldsins og
einnig ætlar Þórarinn Hjartar-
son að syngja nokkur ljóð hans.
Kvöldvakan hefst kl. 20.30 og
er öllum opin, aðgangur er
ókeypis, en að lokinni dagskrá
selja nemendur skólans kaffí.
Þijú formleg tilboð bárust í
loðnuverksmiðju Krossaness
ÞRJÚ formleg tilboð hafa borist í hlutabréf
Akureyrarbæjar í loðnuverksmiðjuna Krossa-
nes, en frestur til að gera tilboð í bréf bæjarins
rann út kl. 16 í gærdag. Þeim sem sýnt höfðu
verksmiðjunni áhuga var gefinn kostur á að
skila inn tilboðum í verksmiðjuna. Tilboðin
verða opnuð í dag og væntanlega kynnt á fundi
bæjarráðs á morgun, fímmtudag.
Þeir sem gerðu tilboð eru fóðurverksmiðjan
Laxá hf., Þórarinn Kristjánsson framkvæmda-
stjóri Gúmmívinnslunnar, sem fer fyrir hópi
fjárfesta, og Oddur H. Helgason framkvæmda-
stjóri Blikkrásar, sem einnig er í forsvari fyrir
hóp manna sem áhuga hafa á að eignast verk-
smiðjuna.
Þijú skilyrði fyrir sölu
Þijú skilyrði hafa verið sett fyrir sölu á hluta-
bréfum bæjarins í verksmiðjunni, að fyrir þau
fengist eðlilegt verð, að tryggt sé að starfsem-
Morgunblaðið/Kristján
in yrði áfram í bænum og að hægt verði að
losa bæinn undan ábyrgðum sem á fyrirtækinu
hvíla, en þær eru hátt í 300 milljónir króna.
Þórarinn Kristjánsson, Jóhann Pétur Anders-
en frámkvæmdastjóri Krossaness og Sjóvá-
Almennar tóku síðsumars þátt í hlutafjáraukn-
ingu fyrirtækisins upp á 25 milljónir króna og
eiga nú tæplega 20% hlut í félaginu á móti
Akureyrarbæ. Þórarinn vildi ekki upplýsa hveij-
ir stæðu með honum að tilboðinu, en sagði um
stóran hóp að ræða.
Akureyrarbær á um 30% í fóðurverksmiðj-
unni Laxá, sem er næsti nágranni Krossanes-
verksmiðjunnar og hefur verið rætt m.a. í
bæjarstjórn að hagkvæmni muni aukast mjög
við það að sameina rekstur fyrirtækjanna.
Oddur Halldórsson sagðist hafa lagt fram
raunhæft tilboð og á þeim nótum sem hans
hópur treystir sér til að reka verksmiðjuna.
Hann sagðist bíða spenntur eftir að heyra hver
niðurstaðan yrði, en vildi ekki frekar en aðrir
sem buðu upplýsa upp á hvað tilboðið hljóðaði.
Krossanesverksmiðjan var endurbyggð frá
grunni eftir bruna sem þar varð fyrir fáum
árum. Framleiðslugetan er liðlega 500 tonn á
sólarhring og veltan á bilinu 400 til 500 milljón-
ir króna.