Morgunblaðið - 15.11.1995, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 15.11.1995, Blaðsíða 14
1 14 MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ F VIÐSKIPTI Bílaumboðin segja viðtökur á útsölum framar björtustu vonum Um 500 notaðir bílar seldust á einni viku STÓRU bílaumboðin seldu hátt í 500 notaða bíla í síðustu viku á útsölum fyrirtækjanna, eftir því sem næst verður komist. Forráðamenn umboð- anna segja viðtökur almennings við tilboðum þeirra framar björtustu vonum og markaðurinn hafí tekið mjög vel við sér eftir nokkra deyfð í október. Kaupendur hafi í miklum mæli nýtt sér bílalán tryggingarfé- laga og eignarleiga til að fjármagna kaupin. Toyota-umboðið reið á vaðið í Kolaportinu í hádeginu á mánudag í síðustu viku en útsölunni lauk á föstudagskvöld. „Við seldum 151 bfl í beinni sölu,“ sagði Skúli Skúlason, sölustjóri. „Hér eru allir mjög ánægðir, því við höfum ekki átt færri notaða bíla síðan árið 1991. Vonandi eru viðskiptavinir okkar einnig ánægðir því ég held að lang- flestir þeirra hafi gert mjög góð kaup. Það voru dæmi um að bílar væru seldir með 250-300 þúsund króna afslætti.“ Skúli sagðist telja að viðbrögðin við útsölunni sýndu að verð á notuð- um bflum væri of hátt. Víða í Evrópu eru afskriftir af bflum mun meiri en hér á landi, jafnvel á nýlegum bílum." Hekla hf. fylgdi í kjölfar Toyota- umboðsins og hóf sína útsölu sl. miðvikudag, en hafði reyndar haft hana í undirbúningi um skeið. Sigfús Sigfússon, forstjóri, segir að alls hafi selst 156 bílar á útsölunni, en fyrirtækið hafi átt fyrir 260 notaða bfla. Meðalverðið á þeim bílum sem hafi verið seldir hafi verið um 800 þúsund krónur. „Við erum hæst- ánægð,“ sagði Sigfús. Júlíus Vífill Ingvarsson, fram- kvæmdastjóri Ingvars Helgasonar hf., segir útsölu fyrirtækisins á not- uðum bílum hafa gengið mjög vel. Þannig hafi selst um 130 bílar á örfáum dögum og hafi kaupendur fengið allt að 300 þúsund króna afslátt. „Við ákváðum að svara út- sölum annarra umboða um miðja síðustu viku, þrátt fyrir að sala not- aðra bíla hefði gengið vel hjá okkur fram að því,“ sagði hann. Egill Jóhannsson, framkvæmda- stjóri hjá Brimborg segir fyrirtækið einnig hafa ákveðið að bregðast við útsölum annarra umboða og bjóða notaða bíla með allt að 250 þúsund króna afslætti. Selst hafi um 30 bíl- ar af þeim 120 bílum sem fyrirtæk- ið átti fyrir. Önnur bílaumboð munu hafa notið góðs af þeirri hreyfingu sem komst á bílamarkaðinn nú í nóvember og salan tekið kipp eftir deyfð frá því um miðjan október. „Sprenging í sölu nýrra bíla“ Þá hefur sala nýrra bfla tekið mikinn kipp nú í nóvember, sérstak- lega síðustu tvær vikur. Þannig seld- ust um 15% fleiri bílar í 42. viku ársins, þ.e. í lok októbeiTnánaðar, en á sama Jtíma í fyrra. í fyrstu viku nóvembermánaðar, 44. viku ársins, jókst salan hins vegar um 68% frá því í sömu viku í fyrra og'í 45. viku jókst salan um 45%. Egill kvaðst telja að þessa sölu- sprengingu mætti rekja til ákvörð- unar um stækkun álversins. „Nóv- embermánuður hefur aldrei verið jafngóður hjá okkur," sagði Egill. Spáir hann því að sala nýrra bíla í nóvember verði um 40-50% meiri en á sama tíma í fyrra. Frankfurt. Reuter. ÞÝZKA sportfatnaðarfyrirtækið Adidas virðist öruggt um að ná því marki að afla tveggja millj- arða marka með útgáfu nýrra hlutabréfa. Adidas segir að nýju hlutabréf- in verði seld á 68 mörk þegar viðskipti með þau hefjast á föstu- dag í Frankfurt. Áður hafði ver- ið sagt að verðið yrði á bilinu 59 til 68 mörk. Adidas-bréfin hækkuðu hins vegar í um 76 mörk á mánudag í óopinberum viðskiptum á „gráum“ markaði og þar með eykst hagnaður franska kaup- Adidas á skotskónum Sýslumannsins Roberts Louis- Dreyfus og annarra fjárfesta undir forystu hans, sem hafa hleypt nýju lífi í fyrirtækið. Sérfræðingur Sal. Oppenheim í Köln sagði að sala hlutabréf- anna mundi takast nokkuð vel. Aðrir sérfræðingar óttast að Adidas muni ekki hagnast á söl- unni. Þeir gagnrýndu einnig fjár- mögnunarráðstafanir, sem voru gerðar skömmu áður en hluta- bréfin voru boðin til sölu. Þær urðu til þess að sumir sérfræð- ingar spáðu því að bréfin yrðu boðin á um 85 mörk. Louis-Dreyfus hefur reynt að róa hluthafa og sagt að hann verði aðalframkvæmdastjóri fram á mitt ár 1997 og hafi sam- þykkt að selja ekki það sem eftir sé af hlutabréfum sínum í eitt ár. Að sögn fyrirtækisins bárust . tilboð í 340 milljónir fimm marka hlutabréfa, en aðeins 27.3 millj- ónir voru gefnar út. Landssamband hestamannafélaga, Hestaíþróttasamband íslands og Félag hrossabænda boð^til hinnar árlegu UPPSKERUHATIÐAR HESTAMANNA á Hótel Sögu, Súlnasal, FÖSTUDAGINIV 17. NÓVEMBER 1995 Hátíðin hefst með fordrykk kl. 19.30, Það verður horðað, drukkið, sungið, hlegið, dansað og prangað. Útnefndir verða: Hestaíþróttamaður ársins og ræktunarmaður ársins. Fráhær skemmtiatriði s.s. Heiðar Jónsson, snyrtir lætur gamminn geysa. Blásaratríó leikur létt lög undir stjórn Lárusar Sveinssonar. Hennann Árnason, eftirherma með glænýtt efni samið sérstaklega fyrir hátíðina. Hinn frábæri skagfirski stórsöngvari, Einar Halldórsson, syngur við undirleik Stefáns Gíslasonar. Fjöldasiingur undir stjórn Jóns Sigurbjörnssonar, leikara og söngvara. Ra'ðumaður kvöldsms verður Jón Baldvin Hannibalsson, alþingismaður. Veislustjóri: Kristinn Hugason. Hljómsveitin SAGA KLASS heldur uppi fjörinu fram eftir nóttu. Spariklæðnaður. Verð fyrir fordrykk, þriggja rétta kvöldverð, skemmtiatriði og dansleik aðeins kr. 3.900. Ath. nýtt kortatímahil verður hafið. Húsið opnað öðrum cn matargestum kl. 23.30. Vcrð á danslcik kr. 1.000. Sérkjör á gistingu fyrir gesti uppskeruhátíðarinnar á Hótel Sögu. Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstol'u L.H. í síina 552 9899. VfWJ <-f Félag 'soUF Hrossabaenda þín saga! Heildarvelta % i versiunargremum janúar til ágúst 1994 og 1995 (í millj.kr., án vsk., á verðlagi hvers árs) jan.-ágúst jan.-ágúst Veltu- Heildsöludreifing áfengis 1994 1995 breyting og tóbaks, smásala áfengis 6.596,8 6.649,4 | 0,8% Heildsölu- og smásöludreifing á bensíni og olíum 15.339,6 15.305,8 -0,2% Byggingavöruverslun 6.518,0 6.463,5 | -0,8% - Sala á bílum og bílavörum 9.680,4 11.410,0 1 17,9%H f Önnur heildverslun 43.474,6 53.943,6 Heildverslun samtals: 81.609,4 93.772,2 jjl4J5%]. . Fiskverslun 449,4 537,2 i 19,5% 11 Kjöt- og nýlenduvöruverslun, mjólkur- og brauðsala 18.988,4 19.671,0 3,6% Sala tóbaks, sælgætis og gosdrykkja 5.441,5 5.631,0 13,5% Blómaverslun 958,2 985,8 E 2,9% Sala vefnaðar- og fatavöru 3.136,4 3.377,3 7,7% Skófatnaður 503,0 472,3 9-6,1% . Bækur og ritföng 1.771,1 1.798,6 11,6% I Lyf og hjúkrunarvara 2.448,0 2.700,3 !SÍ10-3% I Búsáhöld, heimilis- | tæki, húsgögn 5.251,7 5.867,9 991.7% l Úr, skartgripir, Ijós- myndavörur, sjóntæki 712,9 695,0 |-2,5 | Snyrti- og hreinlætisvörur 327,1 361,1 | 10,4% I Önnur sérverslun, s.s. sportvörur, £ leikföng, minjagripir, fnmerki o. fl. 2.329,6 2.474,4 9 6,2% 1 Blönduð verslun 20.272,9 20.779,8 | 2,5% Smásöluverslun samtals: 62.590,2 65.351,7 i 4,4% SAMTALS: 144.199,6 159.123,9 9|10,3% Velta í verslun jókstum 10% LIÐLEGA 10% aukning varð á veltu í verslun fyrstu átta mánuði ársins frá sama tíma í fyrra. Þann- ig nam samanlögð velta í heild- og smásöluverslun alls um 159,1 milljarði króna án virðisaukaskatts á þessu tímabili í ár en var 144,2 milljarðar í fyrra. Eru þessar tölur á verðlagi hvers árs. Eins og sést á meðfylgjandi yfirliti Þjóðhagsstofnunar yfir veltu í verslun er þróunin ákaflega mismunandi í einstökum greinum. Sala áfengis og tóbaks í heildsölu er nær því hin sama og í fyrra svo og velta í byggingarvöruverslun og dreifingu á bensíni og olíu. Stóraukin bílasala Aftur á móti hefur velta í bíla- og bflavöruverslun stóraukist eins \ \ E L L L ! L og margoft hefur komið fram og sömu sögu er að segja um bland- aða heildverslun. Þegar litið er á einstakar grein- ar smásöluverslunar vekur athygli góð aukning í sölu búsáhalda, heimilistækja, fatnaðar, fisks o.fl. liða. Raunar eykst velta í fiskversl- un um nær fimmtung, ef marka má yfirlitið. Sömuleiðis er áfram- haldandi góð veltuauking í sölu á lyfjum og hjúkrunarvörum. I: f í Á það ber þó að líta að tölumar eru fengnar úr virðisaukaskatts- skýrslum og geta sveiflur á milli ára því skýrst af einhveijum til- færslum milli flokka. Þá fellur stór hluti smásöluveltunnar eða um 20 milljarðar undir liðinn „blönduð verslun“. f I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.