Morgunblaðið - 15.11.1995, Side 16

Morgunblaðið - 15.11.1995, Side 16
16 MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR: EVRÓPA Fundur V estur-E vrópusambandsins Deilt um tengsl VES við ESB VARNARMÁLA- og utanríkisráð- herrar tíu ríkja Vestur-Evrópusam- bandsins (VES), átta Vestur-Evrópu- ríkja, sem eiga auka- eða áheyma- raðild að sambandinu og níu Austur- Evrópuríkja sem einnig eiga seturétt á fundum þess, komu saman á fundi í Madríd á Spáni í gær. Deiiur um tengsl VES við Evrópusambandið settu svip á fundinn, en Bretar leggj- ast gegn því að þau verði aukin á nokkum hátt. ísland tekur svipaða afstöðu. Aðildarríki VES og auka- og áheyrnaraðilarnir átta, þar á meðal ísland, ræddu á fundi í gærmorgun skýrslu, sem verður framlag þeirra til ríkjaráðstefnu Evrópusambands- ins á næsta ári. Sum ríki, til dæmis Þýzkaland, vilja að VES verði innlim- að að fullu í ÉSB og verði varnar- málaarmur þess. Bretar leggjast hins vegar algerlega gegn sameiningu samtakanna. Flest ríkin vilja fara bil beggja og ræða um sameiningu í nokkrum þrepum. Bretar ósveigjanlegir Á fundinum í gær reyndist afstaða Bretlands ósveigjanleg og Susanna Agnelli, utanríkisráðherra Italíu, sagði hana „öfgakennda". Bretar vilja ekki auka stofnanaieg tengsl ESB og VES á nokkurn hátt. Þeir leggja hins vegar tii að samtökin haldi leiðtogafundi á sama tíma. Þá leggja þeir til að VES setji upp eigin stjórnstöð og komi sér upp einhvers konar hraðliði, sem nota megi við friðargæzlu og neyðaraðstoð, en að hvort tveggja verði algerlega undir stjóm Atlantshafsbandalagsins. Bretar fengu stuðning frá NATO- ríkjunum íslandi, Noregi og Tyrk- landi, sem eru aukaaðilar að VES, og ESB-ríkjum utan NATO, sem eru áheymaraðilar; Svíþjóð, Finnlandi, írlandi, Danmörku og Austurríki. Áherzla á að VES verði sjálfstæð stofnun Halldór Ásgrímsson utanríkisráð- herra sat fundinn fyrir íslands hönd. Hann sagði í samtali við Morgunblað- ið að hann hefði lagt mikla áherzlu á að sitja fundinn til að koma sjónar- miðum íslands á framfæri, þar sem ríkjaráðstefna ESB myndi fljótlega taka við sem umræðuvettvangur um framtíð VES. Utanríkisráðherra ís- lands hefði ekki áður mætt á ráð- herrafund VES. Halldór sagðist hafa tekið undir sjónarmið Breta á fundinum. „Við lögðum áherzlu á að við vildum sjá VES sem sjálfstæða stofnun, sem legði einkum áherzlu á að byggja upp Evrópustoð Atlantshafsbanda- lagsins og styrkja samvinnuna yfir hafíð. Það er ljóst að við höfum hall- azt mjög að sömu skoðun og Bret- ar,“ sagði Halldór. Hann gat þess að fulltrúar Breta hefðu þakkað íslendingum sérstak- lega fyrir stuðninginn eftir fundinn. „Eg hef á tiifínningunni að það verði tekið mikið tillit til þessara sjónar- miða á ríkjaráðstefnunni," sagði Halldór. Reuter JACQUES Santer og Ritt Bjerregaard, sem fer með umhverfis- mál í framkvæmdastjóm ESB, skoða heimasíðu EEA á alnetinu. Santer setur um- hverfismál á oddinn Kaupmannahöfn. Morgunbiaðid. JACQUES Santer, formaður fram- kvæmdastjómar Evrópusambands- ins, hikar ekki við að segja að um- hverfismál séu meginviðfangsefni ESB. Hann leggur einnig til að hvert land haldi svokallað grænt bókhald um umhverfisáhrif. Þetta sagði hann á fundi, sem haldinn var í Evrópsku umhverfisstofnuninni (EEA) í Kaup- mannahöfn í gær í tilefni af tveggja ára afmæli stofnunarinnar. Við sama tækifæri var kynnt skýrsla um um- hverfið í Evrópu, þar sem kemur fram að bílaumferð er einn versti umhverfisspillir álfunnar. í ávarpinu hrósaði Santer stofn- uninni fyrir skýrslur hennar, sem væru ekki aðeins gott upplýsinga- safn, heldur vel læsilegar. Hann kvað enga spumingu um að rétt væri að miða alla stefnumótun við þarfir umhverfisins. Jafnframt lagði hann áherslu á að vanda þyrfti til tillögu- gerðar, svo nýjar aðgerðir krefðust ekki meiri ríkisafskipta, því þau væra ekki vinsæ! lengur. Vinna þyrfti að umhverfissjónarmiðum á hveijum stað og nefndi í því sam- bandi að grænt bókhald gæti komið að góðum notum. Nú þegar unnið væri að því að undirbúa ríkjaráð- stefnuna 1996 þyrfti sérstaklega að huga að umhverfísmálum og hvernig best væri að vefa umhverfíssjónar- mið inn í starf ESB. Heimasíðan íslensk hönnun Umhverfísstofnunin hefur nú fengið heimasíðu, sem Santer tók í notkun -í gær. Slóðin er: http://www.eea.dk/. Það er Sigfús Bjamason, sem sér um gagnabanka stofnunarinnar og hefur haft umsjón með síðunni. Sigfús er nýtekinn til starfa þama, en hann var áður for- stöðumaður norræna genabankans, sem er í Svíþjóð. Framkvæmdastjóri stofnunarinnar er Spánverjinn Dom- ingo Jinménez-Beltrán. íslendingar eiga fulltrúa í stjóm Evrópsku um- hverfísstofnunarinnar. Fulltrúi Ís- lands er Hugi Ólafsson deildarstjóri í umhverfisráðuneytinu. ERLENT Reuter LÍK japanskra og nepalskra fjallgöngumanna sem biðu bana í snjóflóði nálægt Everest um helgina. Mannskæð snjóflóð o g stórhríð í fjöllum Nepals 49 manns fórust og hundraða enn leitað Kathmandu. Reuter. TALIÐ er að a.m.k. 49 manns, þar af 20 útlendingar, hafi farist af völd- um snjóflóða og stórhríðar í Nepal um helgina og sex lík fundust í gær. Björgunarsveitir héldu áfram að leita að hundraðum erlendra fjall- göngumanna sem lentu í þrengingum vegna fannfergis og kafhríðar. Lík fjögurra Nepala og þriggja Japana fundust í gær nálægt Kanc- henjunga, þriðja hæsta fjallstindi heims, um 500 km austur af Kath- mandu, höfuðborg Nepals. Áður höfðu borist fregnir um að 42 menn, þar af 17 útlendingar, hefðu látið lífíð í snjóflóðum um helg- ina vegna gífurlegrar snjókomu. 25 manns, þeirra á meðal 13 Japanar, fórust nálægt Everest, hæsta fjallst- indi heims. 17 til viðbótar, þeirra á meðal fjórir Vesturlandabúar, létu lífið þegar flóð féll á 17 hús, þar af sjö ferðamannaskýli, í Manang-hér- aði. Þriggja útlendinga, Kanada- manns, Þjóðveija og Breta, er sakn- að, en bakpokar þeirra fundust á fjalli í héraðinu. 477 manns bjargað Þyrlur höfðu flutt 477 íjallgöngu- menn, þar af 178 útlendinga, af fjöll- unum í gær, aðallega frá Everest- svæðinu, þar sem ástandið var verst. „Þetta er í fyrsta sinn sem svo stórt fjallgöngusvæði verður fyrir slíki: n náttúrahamförum," sagði talsmaður stjómar Nepals, Prach- anda Man Shestha. Embagttismenn töldu að hundrað og jafnveT þúsundir útlendinga hefðu farið í fjallgöngur víða í Nepal áður en óveðrið skall á. Ekki er vitað hversu margir þeirra lentu í þrenging- um vegna snjóflóða eða óveðursins. Nóvember er mesti ferðamanna- mánuðurinn í Nepal og síðustu þijár vikur höfðu um 9.000 manns skráð sig í fjallgöngur á sjö stöðum. Um 2.700 þeirra hugðust fara á Everest- svæðið, 3.200 til Annapuma og 300 til Kanchenjunga. Grískir sósíalistar áhyggjufullir vegna eiginkonu forsætisráðherrans Vilja burt Aþenu. Reuter. DEILUR mnan gríska sósíalista- flokksins hafa magnast um allan helming að undanfömu eftir að nektarmyndir af Dmitru Liani- Papandreou, eiginkonu Andreas Papandreou forsætisráðherra, tóku að birtast í blöðum. Margir sósíalistar óttast að myndirnar og afskiptasemi forsætisráðherrafrú- arinnar muni ríða flokknum að fullu. Allt ætlaði vitlaust -að verða er Dmitra Liani, sem er fertug, birt- ist ásamt eiginmanni sínum á þingflokksfundi sósíalista á mánudag. Frúin, sem er skrif- stofustjóri eiginmannsins og stjómar öllu starfi hans og fund- um, hefur aldrei verið kjörin til setu á þingi en krefst þess að fá að fylgja hinum 76 ára gamla Papandreou hvert fótmál. „Neyðarumræðu" krafist Einn viðstaddra þingmanna vildi að öll mál fundarins yrðu lögð til hliðar og að þess í stað yrði efnt til “neyðarumræðu" um pólitísk afskipti Dmitru Liani. Ekki varð af þessu en á fundi með fréttamönnum síðar sagði þessi þingmaður að Sósíalista- flokkurinn (PASOK) þyrfti að líða fyrir það slæma orð sem færi af þingmannahópnum og Dmitru Liani. Dmitra Liani hef- ur löngum verið frægust grískra kvenna eða allt frá því hún kom fram sem ástkona Pap- andreous árið 1988. Áður starfaði hún sem flugfreyja hjá gríska flugfélaginu Olympic Airways og haft er fyrir að satt að kynni þeirra hafi hafist í háloftunum á 800 km. hraða. Að undanfömu hefur athygli manna í Grikklandi beinst í auknum mæli að eigin- konu forsætisráðherrans eftir að gamlar nektarmyndir birtust af henni í grískum blöðum. Útgef- andi dagblaðsins Avriani, sem í eina tíð var dyggur stuðningsmað- ur Papandreou, hefur heitið því að binda enda á feril Liani og koma í veg fyrir frekari þátttöku hennar í grísku stjórnmálalífi með því að birta myndir þessar og aðrar upplýsingar sem gefi til kynna að frúin hafi hrasað á hin- um þrönga vegi dyggðarinnar. I einni myndskreyttri forsíðufrétt var frú Papandreou kölluð „Mimi“ sem mun vera gælunafn hennar og í fyrirsögn sagði: „Losið ykkur strax við Mimi! PA- SOK verður annars ekki bjargað!“ Ótti við ættarveldi Það er ekki síst óttinn við að Pap- andreou hyggist koma upp einhvers konar ættarveldi í Grikklandi sem gert hefur að verkum að frú Liani-Pap- andreou hefur komist í kastljósið. Sýnt þykir að forsætisráðherrann hafi í hyggju að leggja grunn að pólitískum ferli fyrir eiginkonuna og sérstaka athygli vakti er hún kom fram í sjónvarpsviðtali í fyrri viku og hagaði sér líkt og hún væri í framboði í stað þess að tala um gagnrýni þá sem fram hefði komið á einkalíf hennar. Samkvæmt nýjum skoðana- könnunum er PASOK-flokkur- inn, sem Papandreou stofnaði 1974, nú fimm prósentustigum á eftir helsta stjórnarandstöðu- flokknum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.