Morgunblaðið - 15.11.1995, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 1995 17
Símii S M OH 7H
Aukin harka færist í baráttu bandarískra repúblíkana vegna forsetakosnmga
Ekki vitað hverjir
voru að verki í til-
.MBSIAHOÍ*'
Alinnréttingar
Hönnum og smíðum eftir
þínum hugmyndum
t.d. skápa, afgreiðsluborð,
skilti, auglýsingastanda,
sýningarklefa o.mfl.
Faxafeni 12. Sími 553 8000
UNGIR menn frá Austur-Timor á lóð japanska
sendiráðsins í Jakarta.
Reuter
Austur-Tímorar í sendiráði 1 Jakarta
Líklega memað
um hæli í Japan
Tókýó. Reuter.
20 UNGIR Austur-Tímorar klifr-
uðu í gær inn á lóð japanska
sendiráðsins í Jakarta og óskuðu
eftir hæli sem pólitískir flótta-
menn í Japan og fleiri löndum.
Hiroshi Hashimoto, talsmaður
japanska utanríkisráðuneytisins
sagði ólíklegt að mennirnir fengju
hæli í Japan.
Hashimoto sagði að Japanir
gætu ekki tekið við mönnunum
þar sem þeir myndu ekki njóta
lagalegrar verndar í Japan.
„Lagakerfið í Japan gerir okkur
ekki kleift að taka við fólki sem
óskar eftir hæli sem pólitískir
flóttamenn hér,“ sagði hann.Hás-
himoto kvaðst telja að Japanir
hefðu aldrei tekið við fólki, sem
hefði óskað eftir hæli sem póli-
tískir flóttamenn í sendiráðum
erlendis.
Forseti Indónesíu sagði í gær
að mennirnir gætu farið úr landi.
Þeir sem flúið hafa Austur-Tímor
hafa flestir fengið hæli í Portúgal.
Athygli vakin á A-Tímor
Þetta er í þriðja sinn á tveimur
mánuðum sem brotist er inn í
sendiráð í Jakarta, höfuðborg In-
dónesíu, í þessu skyni. Talið er
að markmið hópsins hafi verið að
vekja athygli umheimsins á
ástandinu í Austur-Tímor, sem
var portúgölsk nýlenda til ársins
1975. Marxísk þjóðfrelsishreyf-
ing, Fretilin, lýsti yfir sjálfstæði
Austur-Tímor sama ár en Indó-
nesar réðust inn í landið og inn-
limuðu það með heivaldi árið
1976.
Sameinuðu þjóðirnar hafa ekki
viðurkennt innlimunina og Fret-
ilin hefur háð vopnaða baráttu
gegn yfirráðum Indónesa.
ræðinu í Riyadh
Dubai, Bagdad. Reuter.
DAGBLÓÐ í Saudi-Arabíu sögðu í
gær að ekki væri vitað hveijir hefðu
staðið fyrir sprengjutilræðinu í Riy-
adh á mánudag, sem varð sex
manns að bana, auk þess sem 60
særðust. Þau sögðu þó að landinu
stafaði ekki mikil hætta af hermd-
arverkamönnum.
„Þetta er ekki land varanlegs
auðs, heldur land varanlegs örygg-
is,“ sagði í forystugrein dagblaðsins
Al-Riyadh.
Fimm Bandaríkjamenn í þjónustu
hersins biðu bana í tilræðinu, sem
er hið mannskæðasta sem Banda-
ríkjamenn hafa orðið fyrir í Mið-
austurlöndum frá sprengjutilræðinu
í Beirút árið 1983 sem varð 241
bandarískum hermanni að bana.
Tvenn samtök
lýsa ábyrgð
Tvær óþekktar hreyfingar lýstu
verknaðinum í Riyadh á hendur sér
- Flóatígrarnir og Hreyfing íslam-
skrar breytingar. Kúveiski blaða-
maðurinn Fouad al-Hashem sagði
yfírlýsingar hreyfinganna ómark-
tækar. „Flóa-tígrarnir svokölluðu
eru ekki til. Það er öruggt að þetta
illvirki er verk Geita íraks og eink-
um írösku leyniþjónustunnar, sem
er skipuð mennskum leðurblökum
undir stjórn stóru vampírunnar
Saddams Husseins."
Yfirlýsingar vefengdar
Dagblaðið al-Iktisadyia sagði
einnig að ekkert væri að marka
yfirlýsingar hreyfinganna tveggja
og gaf í skyn að útlendingar hefðu
verið að verki. „Það er furðulegt
að slíkur glæpur skuli hafa verið
framinn í Saudi-Arabíu, landi sem
múslimar og arabar flykkjast til í
von um sómasamleg lífskjör og
varanlegt öryggi.“
Málgögn stjórnarinnar í írak
lögðu forsíðurnar undir fréttir um
sprengjutilræðið og eitt þeirra sagði
það aðeins forsmekkinn af enn al-
varlegri atburðum í Saudi-Arabíu.
Blaðið hafði eftir íröskum stjómar-
erindrekum að tilræðið væri
„hættuleg skilaboð frá saudi-arab-
ísku þjóðinni til Bandaríkjanna og
heimsbyggðarinnar". Saudi-arab-
íska þjóðin væri að sýna hug sinn
til „heiðnu hersveitanna" í landi
hennar og hernaðaraðgerðanna
gegn írak undir forystu Bandaríkj-
anna árið 1991.
><
•SSstí-*
Leeson
verður
fram-
seldur
Frankfurt. Reuter.
LÍKLEGT er að Nick Leeson,
breski bankamaðurinn sem
sagður er bera ábyrgð á
gjaldþroti Barings-banka í
Singapore, verði afhentur
fulltrúum yfirvalda í Singap-
ore á flugvellinum í Frank-
furt í næstu viku.
Þýska stjórnin lagði form-
lega blessun sína í gær yfir
framsal Leesons til Singap-
ore, að því er sagði í tilkynn-
ingu dómsmálaráðuneytisins
í Bonn. Þýskur dómstóll úr-
skurðaði í síðasta mánuði að
hann skyldi afhentur yfir-
völdum í Singapore vegna
rannsóknar á hruni Barings-
banka.
Leeson var tekinn fastur
á flugvellinum í Frankfurt í
mars er hann reyndi að kom-
ast heim til Bretlands. Hann
fór huldu höfði eftir að bank-
inn varð gjaldþrota í febrúar.
Hefur hann barist gegn
framsali sínu en snerist ný-
verið hugur og hefur heitið
fullri samvinnu við yfirvöld
við rannsókn bankahruns-
ins.
Honum er gefið að sök að
vera valdur að hruni bankans
með misheppnuðum áhættu-
viðskiptum með svonefndar
afleiður.
Siiiinmhiúa - fimnitiula^ii
t’níUl. 12.00 - 01.00
fíiHtiulaúii oj> Imiúnrtlaúa _ V
frá lil. 12.00 * 03.00 -A
'IIAMH
\thupd tjölhrmtan
lcíhhiissmatscAil
Bj<H)tini upp á scrlc^a
tjiilbrcyttan nuttscðil
nlhiii daginn ásanit
scrstökiiiu tilhoðs-
■natscðli í liádcginu.
og á kvöldin. I.áttn
Krinj'lnkránna konta
8r á óvart tncð
IbrcMtnin inatscðli
öðu vcrðj.
ít gótfri stimd
Dole segir Phil Gramm
minna sig á lífseiga pöddu
Washington. Reuter.
AUKIN harka er hlaupin í keppni þeirra sem
sækjast eftir útnefningu Repúblíkanaflokksins
bandaríska vegna forsetakosninganna á næsta
ári. Bob Dole, leiðtogi flokksins í öldungadeild
þingsins, lýsti því þannig yfír í viðtali að einn
helsti keppinautur hans, Phil Gramm, væri sem
„padda sem heldur áfram að skríða um þrátt
fyrir að búið sé að kremja hana.“
Dole, sem þykir sigurstranglegastur í keppni
repúblíkana um útnefninguna lét þessi orð
falla í viðtali við tímaritið Time sem út kom á
mánudag.
Hann kvaðst hafa rætt við Gramm, sem er
öldungadeildarþingmaður frá Texas, og tjáð
honum að ærið starf biði þeirra á þingi og því
færi best á því að þeir gættu hófs í orðavali
sínu í kosningabaráttunni.
Bob Dole gat þess hins vegar að Gramm
væri ævinlega að reyna að skyggja á hann á
þingi. „Hann hættir ekki. Hann er óþreytandi.
Hann sýnir algjört ábyrgðarleysi. Hann er eins
og padda sem heldur áfram að skríða um þrátt
fyrir að á hana sé stigið af fullum þunga.“
Aðstoðarmenn Gramm hentu ummælin á
lofti og sendu þau fyrir tilstilli bréfsíma til
fréttamanna og áhugamanna um stjórnmál
víðs vegar um Bandaríkin. Talsmaður Dole
sagði að í þeim herbúðum væri ekki dregið í
efa að rétt hefði verið haft eftir öldungadeildar-
þingmanninum.
Dole þykir uppstökkur og kímnigáfa hans
er talin lítt við alþýðuskap. Hann bauð sig fram
í prófkjörum Repúblíkanaflokksins 1980 og
1988 og lenti í bæði skiptin í vandræðum sök-
um skapsmuna sinna.
Mikilvæg könnun
í Orlando
Um næstu helgi fer fram könnun á fylgi
frambjóðenda repúblíkana í Orlando í Florída-
ríki, sem talin er sérlega mikilvæg þótt niður-
stöður hennar verði á engan hátt bindandi.
Almennt er litið svo á að í könnun þessari, sem
rúmlega 3.000 repúblíkanar taka þátt í, muni
glögglega koma í Ijós hversu öflugar kosninga-
vélar einstakra frambjóðenda eru. Þeir Dole
og Gramm hafa stundað atkvæðaveiðar af
mikilli elju en nú á allra síðustu dögum hafa
þeir gripið til þess ráðs að freista þess að
ófrægja andstæðinginn.
Undirsátar Dole hafa hringt í repúblíkana í
Orlando og m.a. tjáð þeim að enginn þingmað-
ur í öldungadeildinni hafí verið jafn oft fjarver-
andi og Phil Gramm. Hann hafí af þeim sökum
ekki getað tekið þátt í 22 skipti er greidd voru
atkvæði um mikilvæg þingmál repúblíkana.
Stuðningsmenn Gramm brugðust við þessu
með því að birta auglýsingu þar sem hæðst
var að Dole fyrir að hafa gefíð kjósendum
súkkulaði og baðsápu. Raunar átti þessi aug-
lýsing við nokkur rök að styðjast því starfs-
menn Dole dreifðu súkkulaði og snyrtivörum
á meðal kvenna sem sóttu ráðstefnu repúblík-
ana í Florída fyrir skemmstu.
„Staðreyndin er sú -að Dole, sem hefur for-
ystuna, hefur ekkert fram að færa nema súkk-
ulaði og neyðist því til að hefja persónulegar
árásir," sagði talsmaður Phils Gramm.
Talsmaður Dole sagði hins vegar að ábyrgð-
in lægi hjá Gramm og félögum. Þeir hefðu
fyrir mörgum mánuðum hafíð persónulegar
árásir og m.a. látið að því liggja að Dole væri
ekki réttnefndur íhaldsmaður heldur „stoltur
miðjumaður" en slík lýsing lætur illa í eyrum
virkra repúblíkana. „Gramm er að gerast ör-
væntingarfullur, það er greinilegt á því skítk-
asti sem hann hefur nú hafið og beinist gegn
Dole.“