Morgunblaðið - 15.11.1995, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 1995 31
+ Friðrik
son, vélstjóri, á
ísafirði, fæddist í
Bolungavík 20.
október 1921. Hann
lést á heimili sínu á
Seltjarnarnesi 6.
nóvember síðastlið-
inn, 74 ára að aldri.
Foreldrar hans
voru Ottó Guðjóns-
son, f. 1. nóvember
1900, bakari á Pat-
reksfirði, og Júlí-
ana Kristjánsdóttir,
f. 2. júlí 1900 í Bol-
ungavík. __ Friðrik
ólst upp á ísafirði hjá afa sínum
og ömmu, Guðjóni Magnússyni
og Sigríði Halldórsdóttur.
Hinn 19. maí 1944 kvæntist
Friðrik eftirlifandi eiginkonu
sinni, Elínborgu Sigurðardótt-
ur, f. 19. júní 1923 á ísafirði.
Þau eignuðust eina dóttur,
Hjörnýju, f. 2. ágúst 1941.
Hjörný giftist Jóni Hilmari
Björnssyni, vélstjóra, árið 1961
og þau voru barnlaus, en hún
lést 21. febrúar 1989.
Hálfsystini Friðriks sam-
mæðra eru: Eggert, Kristín,
Ester, Ólöf og Kristinn Krist-
insbörn. Hálfbræður hans
eru:
Valdimar Bernód-
us og Hafliði.
Friðrik vann í
æsku ýmis störf á
ísafirði, m.a. hjá
íshúsfélagi ísfirð-
inga. Friðrik var
vélstjóri að mennt
og vann sem slíkur
á strandferðaskip-
um Ríkisskips í
fjöldamörg ár. Vél-
stjórnarþekking
hans naut sín afar
vel í störfúm hans
hjá Almenna bygg-
ingafélaginu hf., þar sem hann
vann í mörg ár og þjá Heild-
versluninni Heklu, Caterpillar
vélaumboðinu, en þár vann
hann í mörg ár eða þar til hann
lét af störfum vegna aldurs.
Friðrik var í eðli sínu félags-
Iyndur maður, var virkur fé-
lagi í _ knattspyrnufélaginu
Herði á ísafirði, formaður ís-
firðingafélagsins í Reykjavík
um nokkurra ára skeið og um
tíma í stjóm Kiwanisklúbbsins
Heklu.
Útför Friðriks fer fram frá
Fossvogskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
FRIÐRIK
OTTÓSSON
Ottós-
samfeðra
MÉR ER bæði ljúft og skylt að
minnast með nokkrum orðum svila
míns, Friðriks Ottóssonar vélstjóra,
sem er látinn. Kona hans, Elínborg
Sigurðardóttir, er systir Guðrúnar
konu undirritaðs. Friðrik ólst upp
á ísafirði hjá föðurafa sínum, Guð-
jóni Magnússyni, pósti og konu
hans, Sigríði Halldórsdóttur.
Á Ísafírði æskuáranna var knatt-
spyma stunduð af kappi. Vom þar
hæg heimatökin hjá Friðriki þar
eð hann átti heima rétt við íþrótta-
völlinn. Þar man ég fýrst eftir hon-
um. Við vomm báðir í knattspymu-
félaginu Herði og stunduðum
knattspymu af kappi undir stjóm
Halldórs Sigurgeirssonar knatt-
spyrnuþjálfara.
Á uppvaxtaráranx okkar á ísa-
fírði var atvinnuástand erfitt sök-
um heimskreppunnar 1930-40. All-
ar tekjur til heimilisins vom vel
þegnar hversu Iitlar sem þær vom.
Við vomm báðir svo heppnir þá
13 og 14 ára að komast að sem
sendisveinar hjá verzlunum í bæn-
um. Þó launin væm ekki há mun-
aði um það í heimilishaldinu, sem
við gátum af hendi látið.
Hinn 19. maí 1944 ganga þau
Elínborg og Friðrik í hjónaband.
Þau höfðu þá áður, 2. ágúst 1941,
eignast Hjörnýju er þau síðar
misstu langt um aldur fram aðeins
48 ára að aldri.
Þegar þau flytja til Reylqavíkur
fer hann til starfa hjá Ríkisskip,
var m.a. á Esju í júní 1945 í fyrstu
ferð íslensks farþegaskips til Norð-
urlanda að sækja íslendinga er
höfðu dvalist erlendis á meðan á
stríðinu stóð. Eftir nokkur ár hjá
Ríkisskip tók hann poka sinn þar
og fer að vinna í landi eins og sagt
er. í fyrstu hjá Almenna bygg-
ingarfélaginu, undir stjórn Gústafs
A. Pálssonar. Þegar þeir hættu
byggingarstarfsemi fór hann til
starfa hjá Heklu hf., Caterpillar-
umboðinu. Eftir 25 ára starf þar
er honum fært gullúr að gjöf sem
viðurkenningu fyrir frábært starf
í þágu fyrirtækisins. Síðar eða við
30 ára starfslok málverk með árit-
uðum silfurskildi. Eftir yfír 60 ára
viðkynningu við hann er ég sann-
færður um að hann var vel að þess-
um viðurkenningum kominn.
Friðrik og þau hjón bæði hafa
ævinlega verið frábærlega gestris-
in. í um 30 ára skeið eða frá því
þau fluttu á Unnarbraut 4 hafa þau
haft boð inni fyrir íjölskyldu okk-
ar, böm og bamaböm annan dag
jóla. Þama máttu oft margir sáttir
þröngt sitja. Þarna og þá var Frið-
rik í essinu sínu og hrókur alls
fagnaðar, sinnandi bömum sem
fullorðnum, gerandi öllum til hæfis.
Maður fann vel að góður hugur
fylgdi málum. Skemmtilegheitin og
gleðin vom í hávegum höfð. Böm
og bamaböm okkar og annarra
skyldmenna hlökkuðu til annars
jóladags hveiju sinni, enda há-
punktur jólahátíðarinnar. Ég veit
að fyrir þetta þökkum við öll af
heilum hug.
Friðrik var formaður ísfirðinga-
félagsins í Reykjavík í mörg ár.
Einnig var hann félagi í Kiwanis-
klúbbnum Heklu í Reykjavík um
margra ára skeið. Hann innti þar
af höndum margvísleg störf í þágu
klúbbsins á þessum áram.
í lok þessarar minningargreinar
um svila minn, Friðrik Ottósson,
langar mig að birta innan gæsa-
lappa frásögn sem birtist í Alþýðu-
blaðinu 1938 um hreystiverk sem
snarráður sendisveinn vann við að
bjarga sex ára gömlum dreng frá
dmkknum:
„Þegar es. Dettifoss var á
Isafirði 1. september sl. vildi það
slys til, þegar skipið var rétt búið
til brottferðar, að 6 ára drengur
að nafni Siguijón Hrólfsson, féll í
sjóinn.
Rétt um það leyti, sem þetta
gerðist, var Friðrik Ottósson, sendi-
sveinn, 15 ára, á leið fram bryggj-
una og ætlaði um borð í Dettifoss
og hafði hann veitt því athygli, að
nokkrir smádrengir vom á hlaupum
á þilfari skipsins og upp landgang-
inn. Sá hann þá einn drengjanna
falla niður milli skips og bryggju.
Friðrik hljóp til og sá hvar drengur-
inn var í sjónum. Skip vora beggja
megin við bryggjuna, svo ekki var
annað fyrir Friðrik að gera, ef
björgun ætti að takast, en að
stingja sér niður milli Dettifoss og
bryggjunnar, gerði hann það og
kom upp rétt hjá drengnum. Frið-
rik nær strax í hann og drengurinn
grípur dauuðahaldi í Friðrik. Frið-
rik synti síðan með drenginn að
staur í bryggjunni og hélt sér þar
með annarri hendi, en með hinni
hendinni hélt hann Siguijóni litla
uppi.
Þá vom festar Dettifoss losaðar
og skipinu vikið frá biyggjunni, til
þess að hægara væri að ná í þá
félaga, Siguijón-og Friðrik. Var
síðan settur út kaðalstigi á Detti-
fossi, og fór einn skipveijinn niður
í stigann, en Friðrik synti með Sig-
uijón að stiganum og lyfti honum
til skipveijans. Eftir það synti Frið-
GUÐSTEINN
ÓMAR GUNNARSSON
rik atur að bryggjunni og var dreg-
inn þar upp.
Drengjunum leið báðum prýði-
lega, eftir að þeir vom komnir úr
sjónum.
Þessa atburðar hefir Iítið verið
getið, en virðist þó full ástæða til
að á það sé minnst, sem vel er
gert, og sýnir þetta einn einu sinni,
hversu nauðsynleg sundkunnátta
er.
Friðrik lærði bringusund, bak-
sund og björgunarstund í Reykja-
nesi við ísafjarðardjúp.“
(Alþýðublaðið 16. janúar 1938.)
Þessi frásögn lýsir Friðriki ákaf-
lega vel. Snarræðið og kjarkurinn
með ólíkindum.
Kæra mágkona, ég og systir þín
sendum þér innilegar samúðar-
kveðju. Guð gefi þér styrk í mikilli
sorg þinni.
Guðrún og
Ólafur J. Einarsson.
Nú hefur sórgin knúið dyra á
Unnarbraut 4.
Við skyndilegt fráfall okkar
hjartkæra Frissa, eram við enn
minnt á það, sem svo oft gleymist
í erli lífsins, jú, þá staðreynd að við
eigum aðeins daginn í dag.
Við höfðum svo sannarlega óskað
að njóta samveru við Frissa svo
miklu miklu lengur og við emm
alltaf jafn óundirbúin og höggdofa
er okkur er tjáð að ástvinur sé horf-
inn frá okkur í þessari jarðvist.
Við stöldmm við og minningam-
ar streyma um hugann, dýrmætar
perlur eftir meira en þijátíu ára
samleið. Við vitum það vel eftir
allar okkar samvemstundir jafnt í
gleði sem raunum, að Frissi var
þannig manngerð, að hann hefði
ekki kært sig um að íjölyrt yrði um
hans miklu mannkosti. Við viljum
virða það. Um leið er ekki hægt
að láta ósagt að hann var afar
vænn og vandaður maður. Hann
unni lífinu, listum, var mjög fróður
og vel heima á flestum sviðum
mannlífsins.
' Hann og elsku Ella frænka lifðu
lifinu lifandi, ferðuðust um landið
sitt kæra og einnig fóra þau oft
um erlendar slóðir, vora afar sam-
hent og alltaf jafn gaman að heyra
ferðasögur þeirra. Frissa þótti mjög
gaman að renna fyrir fisk og var
jafii glaður hvort sem fengurinn var
stór eða smár.
í okkar augum vom þau hjónin
máttarstólpar í lífi okkar, ákaflega
gestrisin og alltaf veisluborð er
mætti okkur á heimili þeirra. Okkur
skortir orð að lýsa þeirri fjölskyldu-
rækni er þau viðhéldu, en allir er
þess nutu vita hversu vel var tekið
á móti öllum.
Við eram líka þakklát að yngsti
meðlimur fjölskyldu okkar, Kristján
Bjami, fékk að njóta þess hve ein-
staklega barnelskur maður Frissi
var.
Við þökkum af alhug samvemna
við horfínn ástvin og leitum hugg-
unar í öllum minningunum um þann
trausta góða mann er okkur þótti
svo vænt um.
Elsku Ella frænka, missir þinn
er mikill og sár.
Við biðjum algóðan Guð að
styrkja þig og vemda í sorg þinni.
Hve sæl, ó hve sæl er hver leikandi lund
en lofaðu engan dag fyrir sólarlagsstund.
(M. Joch.)
Sigrún Arnbjamardóttir,
Arna Victoría og Ásgeir
ísak.
Sérfræðingar
í blómaskrcytinguin
við »11 Grkifii'ri
Bblómaverkstæði
INNA^
Skólavörðustíg 12,
á horni Bergstaðastrætis,
sími 19090
+ Guðsteinn Ómar Gunnars-
son fæddist í Reykjavík 30.
mars 1970. Hann lést í Dan-
mörku 21. október síðastliðinn
og fór útför hans fram frá
Seljakirkju 30. október.
ÞEGAR við heyrðum um lát Ómars
okkar snerti það viðkvæma strengi
í hjörtum okkar.
Svo ungur að áram hefur hann
nú kvatt okkur hin og vitum við að
í mörgu hjarta ríkir nú mikil sorg
og söknuður.
Við vinkonumar vildum minnast
þess allra brosmildasta stráks, sem
við þekktum, með fáeinum orðum.
Þegar við vinkonumar vomm á
okkar skellinöðraskeiði þá gat hann
Ómar alltaf lagað það sem úrskeið-
is fór. Hann átti alltaf gott ráð í
pokahominu fyrir okkur hvort sem
það var skellinaðran eða lífið sjálft
en sumu réðum við fram úr í sam-
einingu þar sem við voram svo oft
saman komin í herberginu hans að
ræða máiin. Okkur fannst lífið að
mörgu leyti ein stór fiækja, sem
flæktist bara enn meira á unglings-
ámnum og oft féllu tár, en stutt
var í brosið.
Óteljandi vora þær gleðistundir
sem við áttum saman í góðra vina
hópi og munu þær ávallt búa í hjört-
um okkar.
Við viljum votta foreldram,
systkinum og öðrum aðstandendum
okkar dýpstu samúð með þessum
fallegu ljóðlínum.
Nóttin er góð og blíð
draumar hennar betri en dagurinn
Nóttin gefur manni aftur
fjarstadda ástvini
hressa og glaða
Nóttin er hliðið
sem syrgjandinn bíður við daglangt
(Steinunn Eyjólfsd.)
Anna Þóra, Anna Dís,
Guðrún og Gerður.
Mig langar að skrifa örfá orð til
að minnast vinar míns. Hann Ómar
var mér góður vinur og félagi, allt
frá því ég kynntist honum. Mörg
ævintýri höfum við upplifað saman
og margt hefur verið brallað.
Ein minning af mörgum er mér
efst í huga, þegar við voram í veiði-
túr, tólf ára gamlir í Staðardal við
Steingrimsfjörð. Þar slettist aðeins
upp á vinskap okkar. Hann pakkaði
saman öllum sínum pjönkum, æddi
upp á veg og ætlaði sér að sníkjs**.
far í bæinn. En þegar hann var
búinn að bíða í þrjá klukkutíma kom
hann til baka með þeim orðum að
hann ætlaði að bíða með ferðina til
morguns, því enginn bfll keyrði
framhjá. Morguninn eftir þegar
hann var búinn að hugsa málið, var
hann tilbúinn að sættast. Þannig
var hann alltaf fastur á sínu, en
harður af sér og mikill atorkumað-
ur. Svo harður var hann að eitt sinn
stökk hann út í Krossána, ber að
ofan, og kafaði í djúpa kalda jökul-
ána til að festa taug í vagninn minn
sem stóð þar fastur. Þannig mun
ég og þeir sem hann þekktu minn-
ast hjálpsams, glaðværs og
skemmtilegs drengs sem átti marga
vini sem horfa nú á eftir honum
með söknuði.
Megi þér famast vel á öðra til-
verastigi, Ómar minn, og Guð veri
með þér.
Ég vfl votta Sigurdísi, Gunnari,
Ólöfu, Óskari og öðram aðstand-
endum mína dýpstu samúð. Minn-
ingin um góðan dreng lifir.
Sveinn Hrafnsson,
Lúxemborg.
Handrit afmælis- og minningargrcina
skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æski-
legt, að disklingur fylgi útprentuninni.
Auðveldust er móttaka svokallaðra
ASCII-skráa, öðru nafni DOS-tcxta-
skrár. Ritvinnslukerfin Word og Word-
perfect eru einnig auðveld í úrvinnslu.
t
Kaerar þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð
og vinarhug við andlát og útför
GUÐMUNDAR GUÐNASONAR
frá Súðavík.
Guð blessi ykkur öll.
Þórunn Friðriksdóttir,
Bjarnveig Guðmundsdóttir
og fjölskyldur.
t
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför eigin-
manns míns, stjúpföður okkar, tengda-
föður, afa, bróður og mágs,
ÞÓRÐAR JÚLÍUSSONAR,
Hjallavegi 6,
Flateyri.
Sérstakar þakkir færum við öllum þeim
fjölmörgu, sem aðstoðuðu við leit og
björgunarstörf eftir hörmungarnar á
Flateyri.
Ragnheiður Erla Hauksdóttir,
Jóhanna O. Björnsdóttir, Sigurður T. Sigurðsson,
Elín Bjarnadóttir,
íris Elva Haraldsdóttir,
Óli G. Guðmundsson,
Guðbjörg Guðjónsdóttir,
Sigurður Kr. Björnsson,
Örn Björnsson,
Kristjana Björnsdóttir,
Björn Björnsson,
Ingibjörg B. Þórðardóttir, Friðgeir Bjarkason
og afabörn,
Jón Júliusson, Oddný Sigurðardóttir,
Guðmundur Júlíusson, Katrín Briem,
Hrefna Júliusdóttir,
Þuriður Júlíusdóttir, Grétar Hinriksson
og fjölskyldur.
Lokað
verður frá kl. 12.00-16.00 í dag vegna jarðarfarar
FRIÐRIKS OTTÓSSONAR.
Hagprent hf.,
Grensásvegi8.