Morgunblaðið - 15.11.1995, Síða 36

Morgunblaðið - 15.11.1995, Síða 36
36 MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ Tommi og Jenni Ljóska Ferdinand SHARK5 MY TOOTH FILLIN65 CONTAIN . MERCURV 'UJHAT PO YOU > MEAN,VOU‘RE NOT 60IN6 TO SCMOOL? U/HAT‘5 VOUR l EXCU5E ? / Smáfólk Það er kvikasilfur i tannfyllingunum í mér. HVAÐ áttu við með að segjast ekki fara í skólann? Hvaða af- sðkun hefurðu? BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reykjavík # Sími 5691100 # Símbréf 569 1329 Lækkun lögaldurs til góðs Frá Kristjáni Ragnari Ásgeirssyni: ÁSTÆÐA mín fyrir þessu bréfi er frumvarp um lækkun áfengislög- aldurs niður í 18 aldursár. Ég er fylgjandi þessu frumvarpi og langar mig til að telja upp nokkrar stað- reyndir varðandi unglingadrykkju og drykkjuvenjur íslendinga al- mennt íslenskir unglinar eru mjög mis- munandi. Það er ekki hægt að setja okkur undir einn.og sama hattinn og kalla okkur vandræðapakk. Fyrst verður að athuga hvað veldur þessari óreglu. Diykkjuvenjur ungl- inga eru eftirfarandi: Fá einhvem til að kaupa fyrir sig, ef ekki hægt, finna landasala. Fara niður í bæ (með flöskuna), detta í það úti á götu. Af hveiju úti á götu? Jú, af því að skemmtistaðirnir heimila ekki unglingum innan 20 ára að- gang. Ég tel, að með Iækkun lögaldurs megi draga úr fjöldanum í miðbæn- um um helgar á tvo vegu. Annars vegar fara 18 ára og eldri meira inn á staðina, og þegar það gerist minnkar fjöldinn. Þegar fjöldinn minnkar sjá þeir sem eru yngri en 18 ára enga sérstaka skemmtun í því að vera svo til einir á ferli og sækja því minna í miðbæinn. Til að gera langa ræðu stutta eru hér nokkrir punktar sem ég tel að myndu verða afleiðingar lækkunar- innar: • Landasala minnkar stórlega. • Unglingum fækkar í miðbænum. • Drykkjuvenjur myndu breytast. • Engin aukning á unglinga- drykkju. (Hún mvndi bara breyt- ast). Ég er utan af íandi og sæki skóla hér í borginni. Dvöl mín héma í Reykjavík hefur verið, vægast sagt, dálítið leiðinleg. Ég á fáa vini og fer ekki mikið út um helgar. Áður en ég fluttist hingað var ég alltaf á sveitaböllum, alltaf í vinahópi, alltaf ánægður. Hérna fer ég mjög sjaldan út að skemmta mér. Flestir mínir vinir að heiman, búandi héma, em eldri en ég svo að ég fer ekki mikið með þeim. Og mér, satt best að segja, leiðist meira en eðli- legt verður að teljast. Ég fer oft út með vinum mínum á kaffihús, en eftir kl. 21 em 18 ára og yngri ekki æskilegir'þar. Hvers eigum við að gjalda? Hvað höfum við gert af okkur? Á Spáni og Portúgal er aldurs- takmarkið 16 ár. í Hollandi er ekk- ert takmark. Þar bera foreldrar ábyrgðina. í þessari deilu er tekið mið af Bandaríkjunum, þar sem u.þ.b. 220 milljónir manna ganga um með byssur eða önnur morð- vopn. Er ekki allt í lagi? Hvemig í ósköpunum er hægt að gera slíkan vitleysu samanburð? Mér blöskrar stórlega við að heyra menn láta út úr _sér þvílíkt mgl. Ég tel að fólk ætti að hugsa til baka um nokkur ár og setja sig í spor okkar, áður en það fordæmir fmmvarpið. Það er ekkert nema blinda að sjá ekki jákvæðu hliðam- ar á málinu. KRISTJÁN RAGNAR ÁSGEIRSSON, Hléskógum 7, Reykjavík. Afallahjálp Frá Ásgerði Halldórsdóttur o.fl.:' VEGNA þátta Eiríks Jónssonar á Stöð 2 viljum við koma á fram- færi eftirfarandi athugasemdum. Okkur er öllum löngu ljóst að Eiríkur fer ósjaldan yfir velsæmis- mörk í þáttum sínum og án þess að blikna virðist hann geta spurt ótrúlegustu spuminga hvort sem þær móðga viðkomandi viðmæl- anda eða áhorfendur. Dropinn sem fyllti mælinn var viðtal hans við prest nokkum. Fyrir það fyrsta; hvemig datt Eiríki í hug að fá þennan tiltekna prest til að sitja fyrir svöram þegar jaftimikilvæg málefni bar á góma og raun bar vitni? Spurt var fyrir hönd bam- anna hvemig Guð gæti verið svona vondur að láta fólk deyja í snjóflóð- um. Það var nokkuð ljóst að prest- urinn var ekki í stakk búinn að veita þau svör, sem þurft hefði i tilvikum sem þessum og beint eða óbeint gaf hann það í skyn að þeir sem ekki biðja bænir og trúa á Guð eigi ekki eins sjálfsagðan rétt á að lifa og hinir. I öðra lagi var Einkur klæddur eins og prest- ur og var það dæmigert fyrir hæðni hans og blygðunarleysi. Eiríkur Jónsson fékk nákvæm- lega það, sem hann vildi fá fram í þessum tiltekna þætti, því hann smjattaði fram og aftur á tilsvömm viðmæidanda síns af sinni ein- skæm snilld. í staðinn fyrir að hjálpa fólkinu fyrir vestan, sem enn er í sáram vegna hörmunganna þar, ýfir Eiríkur þau upp með til- litsleysi sínu ogbjánaskap. Ef hann heldur að þetta sé áfallahjálp, þá má hann biðja Guð að hjálpa sér. Nokkur orð til Eiríks beint: „Ei- ríkur, svona vinnubrögð líðast hreinlega ekki og þetta er ekki í fyrsta sinn, sem þú misbýður áhorfendum með tillitslausum fyr- irspumum og athugasemdum. Ef þú ert svona einfaldur að þú gerir þér enga grein fyrir hvað þú ert óforskammaður vonum við að yfír- menn þinir sjái að sér og leggi þátt þinn niður.“ Óánægðir áhorfendur Stöðvar 2: ÁSGERÐUR HALLDÓRSDÓTTIR, Bollagörðum 1, Seltjamarnesi, RANNVEIG GUÐMUNDSDÓTTIR, Keilugranda 6, Reykjavík, INGVELDUR VIGGOSDÓTTIR, Fomuströnd 16, Seltjamamesi, SÓLRÚN HEÐIN SDÓTTIR, SIGRÚN ANDRADÓTTIR, GRÉTA BJÖRG ÓLAFSDÓTTIR, SIGURVEIG ALEXANDERSDÓTTIR. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt f upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það- an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.