Morgunblaðið - 15.11.1995, Síða 39

Morgunblaðið - 15.11.1995, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ MTÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 1995 39 Arnað heilla yrjÁRA afmæli. í dag, 4 vfmiðvikudaginn 15. nóvember, er Björg^vin Jónsson útgerðarmaður, Hlíðarvegi 2, Kópavogi, sjötugur. Kona hans er Olína Þorleifsdóttir. Þau hjónin eru að heiman. 60 ÁRA afmæli. í dag, miðvikudaginn 15. nóvember, er sextugur Jón Helgi Jónsson, Vestur- bergi 54, Reykjavík. Eig- inkona hans er Kolbrún Sigurlaugsdóttir. Þau eru að heiman. LEIÐRÉTT Formaður íþrótta- sambands fatlaðra í MORGUNBLAÐINU síðasta föstudag var sagt að íþróttafélag fatlaðra og Hans Petersen hefðu gert með sér samning þess efnis að fímm krónur af hveiju seldu jólakorti fyrirtækisins fyrir kom- andi jól rynni til félagsins. Hið rétta er að það var íþróttasamband fatlaðra sem gerði samning við Hans Petersen um hlut í sölu jólakorta. Þá var enn- fremur ranghermt að Ól- afur Jensson væri for- maður íþróttafélags fatl- aðra. Hið rétta er að Ólaf- ur Jensson er formaður íþróttasambands fatl- aðra. Beðist er velvirðing- ar á mistökunum. Jónína íslands- meistari í förðun í frétt um íslands- meistaramót í hárskurði, hárgreiðslu og förðun í blaðinu í gær var missagt að Jónína Hallgrímsdóttir hefði orði íslandsmeistari í kvöldförðun og Sigur- jóna Frímann í dagförðun. Hið rétta er að Sigurjóna sigraði í kvöldförðun og Jónína í dagförðun. Jón- ína Hallgrímsdóttir sigr- aði í samanlagðri dag- og kvöldförðun og er því ís- landsmeistari í förðun 1995. Myndavíxl í frétt í gær þar sem sagt var frá Islandsmeist- arakeppni í dansi urðu þau mistök að tvær mynd- ir víxluðust en það var mynd af systkinunum Árna og Erlu og myndin af Kristni og Védísi. Beð- ist er velvirðingar á mis- tökunum. I DAG BRIPS Umsjón Guómundur Páll . Arnnrson SIGFÚS Bjarnason sendi þættinum skemmtilegt spil, sem kom fyrir í spila- mennsku hjá Bridsfélagi Hreyfils fyrr í vetur. Sigfús varð sagnhafi í sex laufum, sem hann tapaði, að eigin sögn, vegna fljótfæmi í upphafi spils. Lítum á: Suður gefur; enginn á hættu. Norður ♦ K53 V DGIO ♦ K10543 ♦ 103 Vestur ♦ G76 t 962 ♦ ÁDG82 ♦ 84 Austur ♦ 10982 + 743 ♦ 76 ♦ DG65 Suður ♦ ÁD4 ▼ ÁK85 ♦ 9 ♦ ÁK972 Eftir opnun suðurs á Vín- arlaufi, ströglaði vestur á einum tígli og síðan lá leið- in upp í slemmu. Vestur spilaði út tígulás og síðan drottningu. Hvernig á suð- ur að spila? Sigfús tók á kónginn og henti smáu hjarta heima. Spilaði svo lauftíu. Austur lagði gosann á og Sigfús drap á ás. Hann fór síðan aftur inn í borð á spaða og svínaði laufníu. En austur átti fjórlit í trompi og fékk um síðir slag á tromp- drottninguna. Hægt er að ráða við fjór- litinn í trompi í austur ef suður trompar tíguldrottn- inguna (eða hendir háhjarta niður í tígulkóng). Síðan notar sagnhafi tvær af þremur innkomum blinds til að spila laufinu. Þegar áttan kemur undir níuna, era lík- umar miklar á þessari legu, og því skynsamlegt að spila upp á trompbragð: Sagnhafí tekur þá slagina sína þijá á spaða og hjarta og endar í blindum. I þriggja spila endastöðu á hann tígulkóng þriðja eftir í borði, en heima K7 í laufi og hjartaás. Hann spilar tígulkóng og austur er vamarlaus. Farsi COSPER COSPER NEI, ég er ekki að reyna að gleyma konu. Ég er að reyna að gleyma heilli sveit af berbijósta dansmeyjum. Meö morgunkaffinu Ást er... þegar þú áttar þig á að þú getur ekki breytt honum. TM R«g U.S. PM OB. — al rtflbts mserved (c) 1996 Loe Angoios Times Syrxflcate HANN brosir stöðugt. Ertu viss um að þú hafir látið allt á reikninginn? STJÖRNUSPA SPORÐDREKI Afmælisbam dagsins: Tryggiyndi ogstaðfesta afia þér stuðnings og góðra vina. Hrútur (21. mars - 19. aprfl) Hagur þinn vænkast í vinn- unni árdegis, og þér gefst óvænt tækifæri til að bæta afkomuna. Starfsfélagar veita þér stuðning. Naut (20. apríl - 20. maí) Þér tekst að ná hagstæðum samningum varðandi fjár- málin, og síðdegis gefst tækifæri til að slaka á heima með fjölskyldunni. Tvíburar (21. maí - 20. júní) Vinir eiga saman góðan dag, og brátt geta draumar þínir varðandi ferðalag farið að rætast. Einhugur ríkir hjá ástvinum. Krabbi (21. júní — 22. júlQ HI8 Þú hefur vanrækt einhvem sem er þér mikils virði, og ættir að bæta þar úr hið fyrsta. Sinntu þínm nánustu í kvöld. Ljón (23. júll - 22. ágúst) Fjölskyldan hefur ástæðu til að fagna góðum fréttum, sem berast. Þetta verður happadagur hjá þeim sem leita sér að íbúð. Meyja (23. ágúst - 22. september) Eitthvað mikið er um að vera í vinnunni, og þér gæti stað- ið til boða nýtt og betra starf. Farðu samt sparlega með peninga. Vog (23. sept. - 22. október) Þú finnur nýja leið til lausn- ar á gömlu vandamáli í vinn- unni, sem skilar góðum ár- angri með sameiginlegu átaki starfsfélaga. Sþoródreki (23.okt. - 21. nóvember) Þér veitir ekki af frístundum til að safna orku eftir miklar annir. Reyndu að eiga róleg- an dag heima með þínum nánustu. Bogmaóur (22. nóv. - 21. desember) m Fundahöld og viðræður um viðskipti ganga vel i dag. Þér berast fréttir langt að sem eiga eftir að koma að góðum notum. Steingeit (22. des. - 19. janúar) X* Þú nýtur góðs gengis í vinn- unni og framtíðin lofar góðu. Taktu ekki mark á orðrómi, sem á ekki við nein rök að styðjast. Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar) Þér berast góðar fréttir er geta fært þér betri afkomu á næstunni. Vinur kemur þér á óvarl með því að færa þér góða gjöf. Fiskar (19.febrúar-20.mars) * Ástin er ofarlega á baugi um þessar mundir, og sumir eru að undirbúa brúðkaup. Þér berast góðar fréttir af fjár- málum. Stjömuspána & að lesa sem dægradvöi. Spár af þessu tagi byggjast ekki á traustum grunni vísindalegra stað- reynda. í tilefni af afmælinu bjóðum við 30% afslátt af frjálsum kortum vikuna 13.-18. nóvember. 12 vikna kort aðeins kr. 8.400 Við þökkum nemendum okkar frábærar viðtökur á bættri aðstöðu á nýjum stað. TT konur atli! TT 2 námskeið hefst 11. desember. Morgun- ,dag- og kvöldtímar. Líkamsrækt og megrun fyrír konur á öllum aldrí Lágmúla 9, sími 581 3730 Ráðstefna Rauða kross íslands um skipulag sjúkraflutninga í tengslum viö aöalfund sinn gengst Rauði kross (slands fyrir ráðstefnu um skipulag og framkvæmd sjúkraflutninga. Ráðstefnan verður haldin á Scandic Hótel Loftleiðum föstu- daginn 17. nóvember. Hún hefst með skráningu og afhend- ingu gagna kl. 9.30 og henni lýkur kl. 16.00. Frummælendur: • Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigðisráðherra • Jón Viðar Matthíasson, aðstoðarslökkviliðsstjóri í Reykjavík • Magnús Hreinsson, formaður Rki-deildar Djúpavogs • Svanhvít Jakobsdóttir, skrifstofustjóri í heilbrigðisráðu- neytinu • Þórir Sigurbjörnsson, fulltrúi RKÍ í sjúkraflutningaráði • Jón Baldursson, yfirlæknir slysadeildar Borgarspítalans • Dr. Eelco H. Dykstra, forstöðumaður CIEMS, evrópskrar upplýsingamiðstöðvar um sjúkraflutninga • Úlfar Hauksson, formaður heilbrigðis- og almannavarna- nefndar RKÍ Ráðstefnustjóri verður Guðjón Arngrímsson, blaðamaður. Upphaflega var fyrirhugað að halda ráðstefnuna 27. október en þá var henni frestað. Þeir sem áður létu skrá sig eru velkomnir á ráðstefnuna nú og aðrir geta látið skrá sig á skrifstofu RKÍ í síma 562 6722 fyrir 16.-nóvember. Þátttaka er án endurgjalds. RAUÐI KROSS ÍSLANDS fW - kjarni málsins!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.