Morgunblaðið - 16.11.1995, Side 6
6 FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Sigurgeir
Hændur að blikapabba
UNGUR Eyjamaður, Haukur
Weihe, tók fyrir tveimur árum
í fóstur lítinn æðarunga sem
hafði orðið viðskila við æðar-
kolluna. Haukur hefur síðan
alið æðarblikann og hefur
hann sem gæludýr. Er hann
orðinn afar hændur að hús-
bónda sínum. Saknar hans þeg-
ar hann er ekki heima og fagn-
ar honum mjög þegar hann
kemur heim.
Samkeppmsráð telur að samstarf Securitas, Sívaka og
Vara geti haft skaðleg áhrif á samkeppni í öryggisþjónustu
Gæti kallað á aðgerð-
ir samkeppnisyfírvalda
SAMKEPPNISRÁÐ hefur komist
að þeirri niðurstöðu að náið sam-
starf Securitas, Vara og Sívaka
geti haft skaðleg áhrif á samkeppni
á öryggisþjónustumarkaðnum og
kallað að öðru óbreyttu á aðgerðir
af hálfu yfirvalda. Ráðið lítur hins
vegar svo á að ekki sé tilefni til
að grípa til aðgerða að svo stöddu.
Þetta kemur fram í áliti Sam-
keppnisráðs á fyrirkomulagi Neyð-
arlínunnar hf. sem ofangreind fyrir-
tæki standa að ásamt Slysavarna-
félaginu, Pósti og síma og Slökkvi-
stöð Reykjavíkur. Neyðarlínunni er
sem kunnugt er ætlað að annast
símsvörun fyrir samræmda neyðar-
símanúmerið 112 og verður einnig
heimilt að taka að sér vöktun við-
vörunarkerfa.
Hópur öryggisþjónustufyrir-
tækja kvartaði við Samkeppnis-
stofnun í september sl. yfir því að
samningur dómsmálaráðuneytisins
við Neyðarlínuna hf. fæli í sér mis-
rétti. Sérstaklega var bent á rekstr-
arframlagið sem hvert fyrirtæki
þarf að greiða til stöðvarinnar án
tillit til umfang starfseminnar.
Ennfremur var bent á að rekstr-
arlegar ákvarðanir hinnar sameig-
inlegu neyðarsímsvörunar yrði í
höndum aðila sem nú þegar hefðu
yfirburðastöðu á markaðnum þann-
ig að hætta væri á fákeppni og jafn-
vel einokun. Jafnframt fékk ráðið
samninga og samþykktir Neyðarlín-
unnar til umsagnar frá dómsmála-
ráðuneytinu.
í áliti Samkeppnisráðs eru gerðar
ýmsar athugasemdir við samning
dómsmálaráðuneytisins og Neyð-
arlínunnar hf. Bent er á að fyrir-
tækið sé í eigu stærstu öryggisþjón-
ustufyrirtækjanna á markaðnum,
auk þriggja opinberra fyrirtækja
og stofnana og sé að stórum hluta
íjármögnuð af opinberu fé.
Samkeppnisráð telur það ekki
samræmast markmiðum sam-
keppnislaga að Neyðarlínan geti
starfað á samkeppnismarkaði og
þá e.t.d. í samkeppni við einkaaðila
í öryggisþjónustu. Samningur
dómsmálaráðuneýtis og Neyðarlín-
unnar girði ekki fyrir þenna mögu-
leika félagsins, með sem hætti sem
æskilegt sé. Ráðið beinir m.a. þeim
tilmælum til dómsmálaráðherra að
árleg greiðsla þeirra einkaaðila sem
vilji reka öryggisþjónustu sína í
tengslum við hina sameiginlegu
neyðarvaktstöð verði að hámarki
1-2 milljónir í stað 5 milljóna króna.
Þau fyrirtæki sem annist öryggis-
þjónustu og geri samninga við
Neyðarlínuna hf. um vaktþjónustu
greiði að öðru leyti fyrir þá þjón-
ustu sem þau njóti samkvæmt þjón-
ustugjaldskrá sem taki við af um-
fangi þjónustu til þeirra.
Vari og Securitas með
70-80% hlutdeild
I áliti Samkeppnisráðs er sér-
staklega vakin athygli á því að
Securitas og Vari eru langstærst á
markaðnum fyrir öryggisþjónustu.
Þau hafa að mati fyrirtækjanna
sjálfra um 70-80% hlutdeild á mark-
aði fyrir öryggiskerfi og fjargæslu
og 100% af markaðnum fyrir far-
andeftirlit.
Þann 1. október flutti Vari hf.
vaktstöð sína í stjórnstöð Securitas.
Bent er á að með sameiginlegum
rekstri neyðarvaktstöðvar Neyðar-
línunnar hf. megi vænta enn frek-
ara samstarfs þessara aðila.
„í því sambandi kemur 18. gr.
samkeppnislaga til álita, en þar er
fjallað um samruna fyrirtækja eða
yfirtöku fyrirtækis á öðru fyrirtæki
sem m.a. leiði til markaðsyfirráða
þess eða dragi verulega úr sam-
keppni," segir í álitinu.
Einkamerki verða leyfð
á bílum og bifhjólum
REGLUGERÐ um breytingu á
skráningu ökutækja tekur gildi um
næstu mánaðamót. Samkvæmt
henni verður heimilt að gefa út
sérstök skráningarmerki, einka-
merki, að ósk eiganda bifreiðar
eða bifhjóls. Einkamerkið kemur
í stað hefðbundins skráningar-
merkis. Gert er ráð fyrir að inn-
heimt verði sérstakt gjald fyrir
einkamerki en ekki hefur verið
ákveðið hvert gjaldið verður.
Í reglugerðinni segir að áletrun
á einkamerki skuli vera 2-6 bók-
stafir og/eða tölustafir að vali eig-
anda ökutækisins. Einkamerki
megi þó ekki bera áletrun sem er
Innheimt verð-
ur sérstakt
gjald
fyrir merkin
tveir bókstafir og þrír tölustafir
né heldur sömu áletrun og skrán-
ingarmerki ökutækis af eldri gerð
sem er í notkun. Áletrunin megi
ekki bijóta í bága við íslenskt
málfar, vera fallin til að valda
hneykslun eða geta haft í för með
sér óþægindi fyrir aðra.
Bifreiðaskoðun íslands er ætlað
að setja nánari reglur um áletrun
á einkamerkjum. Við úthlutun
merkjanna verður farið eftir röð,
þannig að sá sem fyrstur sækir
skriflega um ákveðna áletrun hlýt-
ur réttinn til að nota hana.
Rétt til að nota ákveðna áletrun
á einkamerki má ekki framselja
til annars aðila. Réttur til að hafa
ökutæki á einkamerki gildir í tíu
ár. Eiganda er heimilt að flytja
merkið jrfír á annað ökutæki í eigu
sinni. Ekki er heimilt að hafa
einkamerki á bílum sem lúta regl-
um um innskatt vegna virðisauka-
skatts.
Morgunblaðið/Ásdis
Biskupar hittast
BISKUPINN yfir íslandi,
séra Ólafur Skúlason, (t.v.)
hitti nýskipaðan biskup kaþ-
ólskra, Johannes M. Gijsen, á
Biskupsskrifstofu í gær eins
og venja er til við komu nýs
kaþólsks biskups. J.M. Gijsen
er hollenskur, hefur lengst
af starfað í Hollandi, eða í
21 ár, og haft aðsetur í borg-
inni Roermond í Limburg-
héraði.
Sjónvarpsstöðin Sýn hefur útsendingar á opinni dagskrá sinni klukkan 20 í kvöld
Áskriftarpakki
kynntur eftir helgi
Áhersla á kvikmyndir, íþróttir og framhaldsþætti
SJÓNVARPSSTÖÐIN Sýn hefur útsend-
ingar kl. 20 í kvöld en framvegis byijar
dagskrá stöðvarinnar ávallt kl. 17 dag
hvern. Dagskrá Sýnar verður öllum opin
fyrstu sex dagana, en frá og með 22. nóv-
ember verður hún lokuð öðrum en áskrif-
endum Stöðvar 2 og þeim sem kaupa sér
áskrift að dagskrá Sýnar.
Að sögn Páls Magnússonar, sjónvarps-
stjóra Sýnar, verður Sýn opin áskrifendum
Stöðvar 2 til kynningar í nokkra mánuði
án endurgjalds en öðrum gefst kostur á að
kaupa áskrift að Sýn sérstaklega. Sjón-
varpsstöðin mun nota sama myndlyklakerfi
og Stöð 2 þannig að væntanlegir áskrifend-
ur sem eru með myndlykil að stöð 2 þurfa
ekki að koma sér upp sérstökum búnaði til
að ná útsendingum stöðvarinnar.
Páll sagði að búið væri að taka ákvörðun
um áskriftarverð Sýnar en það yrði ekki
kynnt fyrr en eftir næstu helgi. „Þá verður
boðið upp á pakka, bæði í verði og kjörum,
sem á eftir að koma ýmsum á óvart,“ sagði
Páll.
Kvikmyndir frumsýndar
sex kvöld í viku
Dagskrá Sýnar verður í nokkuð föstum
skorðum. Frá 17 til 19.30 verður áhersla
lögð á efni fyrir unglinga. Kl. 21 á öll kvöld
verða frumsýndar kvikmyndir nema á
sunnudagskvöldum en þá ráða íþróttir ferð-
inni. Virka daga stendur dagskráin yfir
fram undir miðnætti en hún verður talsvert
lengri um helgar. „Við leggjum mikla
áherslu á kvikmyndir," segir Páll. Einnig
verður að hans sögn boðið upp á margskon-
ar blandað efni, s.s. framhaldsþætti,
spennumyndaflokka og innlenda og erlenda
tónlist.
Þá verður Sýn með beinar knattspymuút-
sendingar frá meistaradeild Evrópu. Páll
sagði að íslenskar lýsingar yrðu á íþrótta-
efni og tónlistarmyndbönd verða með ís-
lenskum kynningum. „í blábyijuninni verður
ekki um innlenda dagskrárgerð að ræða en
við erum að kanna ýmsa möguleika, ekki
síst í samstarfi við sjálfstæða aðila á markað-
inum. Við komum hins vegar ekki til með
að reka eigin framleiðsludeild,“ sagði Páll.
I kvöld hefst dagskrá Sýnar með sérstök-
um klukkustundarlöngum kynningarþætti
en að honum loknum verður sýnd bíómynd
og þáttur úr spennumyndaflokki.
Útsendingarsvæðið nær frá Akranesi
til Suðurnesja
Útsendingarsvæði Sýnar nær yfír höfuð-
borgarsvæðið og afmarkast af Akranesi í
norðri og Suðurnesjum í suðri. Dagskrá
Sýnar er dreift bæði á VHF og UHF rásum
og eiga öll heimili því að vera með loftnet
sem ná útsendingum stöðvarinnar, að sögn
Páls. Sýn hefur einnig fengið úthlutað rás
á örbylgjusviði en beðið er eftir sendi til
að unnt verði að hefja útsendingar á ör-
bylgju.
„Við munum mæla viðtökurnar strax í
upphafi og hraðinn á stækkun dreifíkerfis-
ins ræðst af því hveijar viðtökurnar verða,“
sagði Páll.
Þjónustusamningur við íslenska
útvarpsfélagið hf.
Enn sem komið er eru ekki margir fast-
ráðnir starfsmenn hjá Sýn, að sögn Páls.
Tæknileg atriði verða afgreidd samkvæmt
sérstökum þjónustusamningi sem gerður
hefur verið við íslenska útvarpsfélagið.
Daglég stjónun stöðvarinnar og öll dag-
skrárstjórn er alveg aðskilin frá Stöð 2.
Stöð 2 og Sýn munu hins vegar verða með
sameiginlegt innheimtukerfi.
Sýn er í eigu samnefnds hlutafélags. ís-
lenska útvarpsfélagið hf. á 20% hlutafjár,
Chase Manhattan-bankinn á 20% og aðrir
eigendur íslenska útvarpsfélagsins eiga sem
einstaklingar megnið af öðru hlutafé stöðv-
arinnar. Skrifstofur Sýnar eru til húsa á
Suðurlandsbraut en tæknibúnaður er í húsa-
kynnum Stöðvar 2 á Lynghálsi.
■ Útvarp/Sjónvarp/62
■ Dagskrá/Cl-12