Morgunblaðið - 16.11.1995, Síða 27

Morgunblaðið - 16.11.1995, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1995 27 _____LISTIR___ Daufar uppstillingar MYNDLIST Listasafn Kópavogs - Geröarsafn MÁLVERK Pétur Gautur. Opið alla daga (nema mánud.) kl. 12-18 til 19. nóvember. Aðgangur kr. 200 (á allar sýningar í safninu). Sýningarskrá ókeypis. í VESTURSAL Gerðarsafns hef- ur Pétur Gautur Svavarsson hengt upp rúmlega þrjátíu málverk, sem eru nær öll unnin á þessu ári. Þessi ungi listamaður hélt sína fyrstu einkasýningu 1993, og vakti nokkra athygli með ágætri sýningu í Gall- erí Borg á síðasta hausti. í verkum sínum hér heldur hann í megindrátt- um áfram þar sem frá var horfið, þó áherslurnar séu nú nokkuð aðrar. Að þessu sinni er öllu rólegra yfirbragð á málverkunum, þar sem meginviðfangsefnin eru uppstilling- ar og kyrralífsmyndir - ávextir á borði, könnur og kirnur. Hér hefur Pétur Gautur því líkt og fyrr kosið að vinna á grunni hefðarinnar, og er að þessu sinni á svipuðum slóðum og ýmsir þeir listamenn, sem tóku til við að rannsaka samspil lita og forma á nýjan leik á síðasta áratug. I málverkunum vinnur listamað- urinn oftast með þeim hætti að bera litina á í mörgum lögum og skafa síðan niður á milli, þannig að úr verður hart yfirborð, þar sem undir- lagið skín oft í gegn. Þessir fletir eru á stundum ókyrrir fyrir augum áhorfandans, þótt þeim sé ekki ætl- uð hreyfing af myndefninu, sem þeir eru bundnir við. Litfletirnir eru loks brotnir upp í hveiju verki á fætur öðru með hringlaga formum, sem ýmist virka sem dældir inn í yfirborðið eða blettir sem hvíla ofan á því. Hið síðarnefnda er skiljanlega ríkjandi í þeim uppstillingum, sem hér eru mest áberandi. Mikiivægi þessarar vinnslu lit- anna fyrir málverkin verður einkum ljós þegar þau eru borin saman við nokkrar litlar myndir sem eru unnar á pappír (nr. 6-16), og virka öllu daufari og flatari en önnur verk. Þar ná ímyndirnar sér því ekki á strik ti! jafns við það sem gerist í stærri málverkunum. Almennt er litanotkun lista- mannsins mun stilltari nú en áður; heitir litir eru fáséðir í verkunum, og þar sem þeir koma fyrir marka þeir myndefnið öðru fremur, líkt og t.d. í „Kyrra“ (nr. 1) og „Epli á borði“ (nr. 4). Daufir litatónar flestra verkanna eru í fuilu sam- ræmi við stillu myndefnisins, og eykur enn á kyrrð þess, svo jaðrar við stöðnun. I heild er þessi sýning Péturs Gauts síðri en sýning hans fyrir ári síðan, og er líkt og fölur doði hafi tekið við af þeim litríka krafti, sem einkenndi verkin sem hann sýndi þar. Sagan sýnir glögglega að upp- stillingar og kyrralífsmyndir geta orðið kraftmikil málverk þegar vei er að staðið; þar ræður reynsla og listrænn þroski mestu um, og hvoru tveggja á Pétur Gautur vissulega framundan. P.S.: Þeim er þetta skrifar þætti viðkunnaniegra að vera rétt nefnd- ur, þegar vitnað er í umsagnir hans um einstakar sýningar, líkt og gert er i kynningarefni hér... Eiríkur Þorláksson HEIMABANKI Heimabanki Sparisjóöanna mætir kröfum nútímans um skýrt og myndrænt notendaviömót. wfarárstíg 27 ðabanki íslands (ðabantó íslands Að maUflfíta,ÍkilvaXt Mor*- ."Wendum Japtir mm2 tanda'rt- í„rt. vardar IV?8 tytir 'Jn)ynðir, w bjóða upp /,nn’ enda , vee*r m JtVLnokkM 1 elr>s þérhentar Huimatanti spaiisióSanna - Innlán i •0 1 s

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.