Morgunblaðið - 16.11.1995, Side 32
32 FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
4
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf„ Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HaUgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
EÐLILEG ÞRÓUN í
VARNARMÁLUM
HERMÖNNUM í varnarliði Bandaríkjamanna á Kefla-
víkurflugvelli hefur fækkað um 740 á síðastliðnum
tveimur árum. í byrjun ársins 1994 undirrituðu ísland og
Bandaríkin bókun við varnarsamning ríkjanna, sem kvað
á um að umsvif í varnarstöðinni myndu minnka en kjarni
starfseminnar verða í meginatriðum sá sami.
Fækkun varnarliðsmanna er meiri en íslenzk stjórnvöld
gerðu ráð fyrir. Hún er hins vegar aðeins eðlileg þróun,
í ljósi breytts ástands í heimsmálum. Mun minni spenna
er nú í okkar heimshluta en á dögum kalda stríðsins.
Eftir fall Sovétríkjanna og heimskommúnismans hefur átt
sér stað gífurlegur niðurskurður á herafla og viðbúnaði
Bandaríkjanna víða um heim. Það er óhjákvæmilegt að
slíkt komi fram hér á Islandi líkt og í Bandaríkjunum
sjálfum og í herstöðvum þeirra í öðrum ríkjum.
íslendingar hljóta að fagna því að hægt sé að sinna
vörnum lands þeirra með minni mannafla og minni til-
kostnaði en til þurfti þegar umsvif Sovétríkjanna á Norð-
ur-Atlantshafi voru sem mest og friðurinn ótryggastur.
Það var heldur aldrei ætlun þeirra, sem börðust fyrir
hingaðkomu varnarliðsins á miklum óvissutímum árið
1951, að það yrði hér um aldur og ævi eða að umfang
þess tæki ekki mið af aðstæðum í alþjóðastjórnmálum.
Mestu máli skiptir auðvitað að vörnum íslands sé hag-
að til samræmis við sameiginlegt mat íslenzkra og banda-
rískra stjórnvalda á ástandinu í alþjóðamálum. Hægt þarf
að vera að auka viðbúnað í Keflavíkurstöðinni með skömm-
um fyrirvara ef þörf krefur.
Framkvæmd varnarsamningsins er nú að nýju til endur-
skoðunar og er stefnt að því að þeirri vinnu ljúki um ára-
mót. Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra sagði eftir
fund sinn með bandaríska utanríkisráðherranum fyrir
skömmu að hann teldi að viðbúnaður í varnarstöðinni í
Keflavík yrði áfram með sama hætti og verið hefur að
undanförnu.
Slík niðurstaða væri skynsamleg, ekki sízt í því Ijósi að
óvissa ríkir nú um þróun mála í Rússlandi. Talsverða hættu
má telja á því að herskáir kommúnistar og þjóðernissinnar
sæki á í þingkosningunum, sem þar standa fyrir dyrum.
Það sýnir okkur að áfram er ástæða til að vera á varðbergi.
FRIÐARVON?
SAMKOMULAG það, sem Króatía og Serbía náðu 1
byrjun vikunnar um héraðið Austur-Slavoníu í Króat-
íu, sem serbneskar sveitir hafa hersetið um rúmlega
þriggja ára skeið, kann að vera fyrsta skrefið í átt til
friðsamlegra ástands á Balkanskaganum. Menn hafa lært
það á þeim árum sem stríð þjóðanna, sem áður byggðu
Júgóslavíu, hefur staðið að gleypa ekki við loforðum og
sáttmálum, en í samkomulaginu um Austur-Slavoníu eru
þó þættir, sem varðað gætu veginn til heildarlausnar á
þjóðernisdeilum á svæðinu.
í fyrsta lagi er með samningunum um Austur-Slavoníu
komið í veg fyrir þá hættu að Króatar reyni að taka hérað-
ið með hervaldi, eins og þeir gerðu fyrr á árinu í Vestur-
Slavoníu og Krajinu. Slíkt hefði haft í för með sér ómæld-
ar hörmungar fyrir serbneska íbúa og stefnt samningavið-
ræðunum í Dayton í Bandaríkjunum í hættu.
I öðru lagi er með samkomulaginu miðað við að hérað-
ið verði að einu til tveimur árum liðnum undir stjórn Króat-
íu að nýju. Það gefur ákveðið fordæmi hvað það varðar
að virða fyrri landamæri lýðvelda Júgóslavíu við gerð frið-
arsamninga.
í þriðja lagi - og það er mikilvægast - er gert ráð
fyrir að Austur-Slavonía verði að nýju landsvæði, þar sem
ólíkar þjóðir búa saman, rétt eins og mestallur Balkan-
skaginn. Fyrir stríð bjuggu þar um 193.000 manns, þar
af 86.000 Króatar og 67.000 Serbar, en einnig 13.000
Ungveijar og nokkur þúsund Slóvenar, Þjóðveijar og
Rúthenar. Eftir hernám Serba hefur fólk af flestu öðru
þjóðerni en þeirra eigin verið hrakið á brott. Samkomulag-
ið kveður hins vegar á um að fyrri íbúar fái nú að snúa
til síns heima. Og þá tekur það erfiðasta við - að læra
að búa saman á ný.
Takist að skapa traust á milli íbúa Austur-Slavoníu og
verði staðið við loforðin, sem gefin hafa verið á báða
bóga, gæti verið von um frið á Balkanskaganum.
SKAÐABÓTALÖG
Stuðull vegna útreik
skaðabóta verði hæk
Lögð hafa veríð fyrir allsheijamefnd Alþingis
drög að frumvarpi um breytingar á skaðabóta-
lögum. Lögin hafa verið gagnrýnd og er í
drögunum fallist á þá gagnrýni að hluta til.
Almennt talað koma breytingamar til með
að hækka skaðabætur vegna líkamstjóns verði
þær lögfestar. Egili Ólafsson kynnti sér efni
skýrslunnar og frumvarpið.
Samanburður á bótum í löndum ESB og EFTA
Skaðabætur vegna lömunar allra útlima, miiij. kr.
Læknir, karl, 40 ára, kvæntur,
2 börn á framfæri (5 og 7 ára)
0 20 40 60 80 100 120 140
Þýskaland
Lúxemborg
Belgía
Holland
Frakkland
England
írland
Skotland
Sviss
Ítalía
Grikkland
Spánn
Portúgal
Liechtenst.
Austurríki
Finnland
Svíþjóö
Danmörk
ísl. 1/793
fsland
Noregur
fíitari, kona, 20 ára,
ókvænt og barnlaus
0 20 40 60 80 100 120 140
Lúxemborg [
Belgía
Þýskaland
Frakkland
England
írland
Holland
Ítalía
Skotland
Grikkland
Spánn
Sviss
Portúgal
Danmörk |
Finnland
Liechtenst.
Austurríki
Svíþjóð
Noregur
ísl. 1/7‘93
fsland
Dánarbætur, milljónir króna
Læknir, karl, 40 ára, kvæntur,
2 börn á framfæri ( 5 og 7 ára)
0 20 40 60 80 100 120 140
Irland
Sviss
Liechtenst.'
Ítalía I
Austurríki
Lúxemborg
Belgía
Þýskaland
England
Skotland
Holland
Finnland
Frakkland
Portúgal
Grikkland
Spánn
Danmörk
ísland
ísl. 1/7'93
Noregur
Svíþjóð [
fíitari, kona, 20 ára,
ókvænt og barnlaus
0 20 40 60 80 100 120 140
Ítalía
Spánn
Frakkland
Grikkland
Sviss
írland
Lúxemborg
Belgía
Portúgal
Skotland
Liechtenst.
Svíþjóð
Austurríki
Holland
Þýskaland
Danmörk
Finnland
Island
ísl. 1/793
Noregur
England
DRÖG að frumvarpi til
breytinga á skaðabótalög-
um gerir ráð fyrir að sett-
ur verði inn í lögin breyti-
legur margfeldisstuðull sem lækki
með hækkandi aldri tjónþola. Þetta
þýðir að stuðullinn hækkar frá því
sem hann er í dag fyrir alla bóta-
þega. Við útreikning á margfeldisst-
uðli er gengið út frá því að enginn
greinarmunur verði gerður eftir kyn-
ferði eins og hefðbundið hefur verið
að gera í slíkum töflum til þessa.
Mikil umræða hefur orðið um
skaðabótalög, sem sett voru árið
1993. Fram hefur komið hörð gagn-
rýni á lögin frá hópi lögmanna, sem
heldur því fram, að reglur laganna
leiði til lægri bóta í ýmsum tilvikum
en stefnt var að með lagasetning-
unni. Dómsmálaráðherra fól á síð-
asta ári hæstaréttarlögmönnunum,
Gesti Jónssyni og Guðmundi Skafta-
syni og Gunnlaugi Claessen hæsta-
réttardómara, að vinna greinargerð
um framkvæmd laganna. í meiri-
hlutaáliti Gests og Gunnlaugs kom
fram það sjónarmið að hækka þyrfti
margföldunarstuðul laganna. I júní
á þessu ári fól allsherjarnefnd Al-
þingis Gesti og Gunnlaugi að taka á
ný upp athugun sína, í tilefni af
dómi Hæstaréttar frá 30. mars 1995.
í 'dómnum markaði Hæstaréttur
nýja stefnu varðandi framtíðarávöxt-
un við bótauppgjör. Frá árinu 1984
miðaði Hæstiréttur við 6% ársafvöxt-
un, en með dómnum frá 30. mars
er sú stefna mörkuð að miða skuli
við 4,5% ársávöxtun tapaðra framtíð-
artekna. Dómurinn skýrir þessa
stefnubreytingu með vísan til þróun-
ar í vaxta- og verðlagsmálum og
núverandi ávöxtunarkjara spariíjár.
Þessi breyting leiddi til þess að tjón-
þola voru dæmdar umtalsvert hærri
bætur en héraðsdómur hafði dæmt.
Lögunum svipar til
dönskulaganna
í erindi allsheijarnefndar til Gests
Jónssonar og Gunnlaugs Claessens
er óskað eftir áliti þeirra á því hvort
þessi stefnubreyting Hæstaréttar
kalli á endurskoðun á margföldun-
arstuðli laganna, en hann felur í sér
reiknireglu um hvernig fjártjón
vegna örorku skuli reiknað. Þeir
komust að þeirri niðurstöðu í álits-
gerð sem þeir unnu á síðasta ári að
hækka þyrfti margföldunar-
stuðulinn. Nauðsynlegt væri að
margfalda árslaun bótaþega með 10
í stað 7,5 og síðan með örorkustigi
til þess að samsvörun yrði milli eldri
skaðabótareglna sem ekki voru lög-
bundnar og nýju skaðabótalaganna.
Gagnrýni á skaðabótalögin hefur
ekki síst beinst að margföldunar-
stuðlinum. Danir eru með slíkan stuð-
ul í sínum lögum, en hann er ekki
að finna í skaðabótalögum Finna,
Norðmanna og Svía heldur er þar
beitt almennum reglum um stofnun
skaðabótaábyrgðar og ákvörðun
skaðabóta vegna líkamstjóns. í Dan-
mörku hafa skaðabótalögin verði
gagnrýnd og því haldið fram að
reikniregla laganna Ieiði til þess að
þeir sem fái framtíðartekjutjón sitt
einungis bætt á grundvelli þeirra laga
fái ekki fullar bætur fyrir fjártjón
sitt. Margfeldisstuðull dönsku lag-
anna er 6,0 og hafa gagnrýnendur
þeirra bent á að það sé of lágt því að
á þeim tíma sem lögin voru sett hafi
framtíðarávöxtun verið byggð á
15-20% markaðsnafnvöxtum á ári og
slík ávöxtun sé óraunhæf.
Segja má að Hæstiréttur Islands
hafi markað þá stefnu með dómum,
sem felldir voru 1984 og 1995, að
miða skuli framtíðarávöxtun við
raunvexti á hveijum tíma.
Skaðabætur lágar á
Norðurlöndunum
í skýrslu sem gefin var út árið
1994 um samanburð á bótafjárhæð-
um vegna líkamstjóna í ríkjum ESB
og EFTA kemur fram að skaðabætur
eru áberandi lægstar í Danmörku
af löndum ESB þrátt fyrir að laun
í Danmörku séu vel ofan við meðal-
talslaun í ríkjum ESB. I flestum þeim
dæmum, sem sett eru upp í skýrsl-
unni, eru bætur í Danmörku lægstar
eða með þeim lægstu.
Skýrslan sýnir einnig að skaða-
bætur eru lágar á öllum Norðurlönd-
unum borið saman við hin löndin.
Hún sýnir að skaðabætur á íslandi
eru að jafnaði lágar. Þetta á sérstak-
lega við um miskatjón, sem virðist
hvergi hafa verið lægra árið 1993
þegar samanburðurinn fór fram en
á Islandi. Rétt er að taka fram að
við þennan samanburð þarf að setja
ákveðna fyrirvara varðandi ná-
kvæmni. Þannig þarf t.d. að hafa í
huga að á Norðurlöndunum eiga
slasaðir einstaklingar kost á endur-
gjaldslausri félags- og heilbrigðis-
þjónustu í ríkari mæli en gildir í
mörgum öðrum löndum.
Breytilegur margfeldisstuðull
Eitt af þeim ákvæðum skaðabóta-
laga, sem gagnrýnt hefur verið, er
að miskabætur skuli vera lækkaðar
um helming á aldursbilinu 60-69