Morgunblaðið - 16.11.1995, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1995 51
Skýrsla um
borgaraleg
réttindi
DÓMSMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur
gefið út 2. og 3. skýrslu íslands
um framkvæmd alþjóðasamnings
um borgaraleg og stjórnmálaleg
réttindi. Alþjóðasamningurinn um
borgaraleg og .stjórnmálaleg rétt-
indi frá árinu 1966 var gerður á
vegum Sameinuðu þjóðanna og hef-
ur ísland verið aðili að honum frá
árinu 1979.
í frétt frá Dóms- og kirkjumála-
ráðuneytinu segir m.a.: „Meðal
þeirra fjölmörgu réttinda sem
samningurinn um borgaraleg og
stjórnmálaleg réttindi verndar eru
réttur manna til lífs, bann við pynd-
ingum, réttur til frelsis og mann-
helgi, réttur til réttlátrar málsmeð-
ferðar fyrir dómstólum, friðhelgi
einkalífsins, trúfrelsi, tjáningar-
frelsi, félagafrelsi, fundafrelsi og
jafnræði allra manna fyrir lögunum.
I skýrslunum tveimur er að finna
ítarlega lýsingu á því hvernig þessi
réttindi eru vernduð á Islandi,
hvernig þau birtast í stjórn-
arskránni og almennri löggjöf og
hvernig vernd þeirra er fylgt eftir
í framkvæmd."
Karíus og Bakt-
us í Ævintýra-
Kringlunni
í ÆVINTÝRA-Kringlunni hafa ver-
ið leiksýninmgar á fimmtudögum
en nú hefur verið ákveðið að flytja
þær yfir á laugardaga. Heijast leik-
sýningar þá kl. 15. Fyrsta leikritið
verður laugardaginn 18. nóvember
og verða það Karíus og Baktus sem
hefja leikinn.
Leikritið er byggt á sögu Thor-
þjörns Egners og eru það Elva Ósk
Ólafsdóttir og Stefán Jónsson sem
leika þá félaga. Sýningin tekur um
30 mínútur og er miðaverð 500 kr.
Barnagæsla er innifalin i miðaverð-
inu. Á öðrum tímum kostar barna-
gæslan 100 kr. og geta börnin dval-
ist í 1 'A klst. í senn.
Á fimmtudögum kl. 17 verða
áfram minni uppákomur eða skipu-
lögð dagskrá. í dag ætlar Ólöf
Sverrisdóttir leikkona að bjóða
börnunum í leikræna tjáningu.
Fyrirlestur
um náttúru-
ljósmyndun
GUÐMUNDUR Páll Ólafsson held-
ur fyrirlestur í Norræna húsinu um
náttúruljósmyndun, föstdagskvöld-
ið 17. nóvember kl. 20.
Guðmundur Páll ér þekktur fyrir
bækur sínar, Perlur í náttúru ís-
lands, Fuglar í náttúru íslands og
síðustu bók sína um lífríki fjörunnar
og fjöruna í náttúru íslands. Fyrir-
lesturinn er haldinn að frumkvæði
félags jarð- og landfræðanema og
er efni fyrirlestursins ætlað öllum
áhugamönnum um náttúru- og
landslagsljósmyndun. Guðmundur
Páll mun fjalla um tækni, vinnu-
brögð og hugarfar þegar staðið er
að landslags- og náttúruljósmyndun
ásamt því að sýna myndir.
Aðgangseyrir er 650 krónur og
erU allir velkomnir.
Leikjabanki
BÓKSALA Nemendafélags Kenn-
araháskóla íslands hefur gefið út
safn um 150 leikja til kennslu eink-
um í 1.-7. bekk grunnskólans.
Leikjunum er skipað í flokka með
hliðsjón af markmiðum þeirra. Um
er að ræða orðaleiki, kynningar-
leiki, rökleiki, námsleiki, ratleiki,
spurningaleiki og námsspil. Kenn-
aranemar á þriðja ári í almennu
kennaranámi hafa safnað leikjun-
um undir leiðsögn Ingvars Sigurð-
geirssonar dósents.
FRÉTTIR
Manneldisráð
fær Fjöreggið
FJÖREGG MNÍ er verðlaunagrip-
ur sem veittur er á matvæladegi
Matvæla- og næringarfræðinga-
félags Islands (MNI). Á matvæla-
degi 1995 voru verðlaunin veitt
Manneldisráði Islands fyrir út-
gáfu tengda neyslukönnunum,
útgáfu manneldismarkmiða óg
annars fræðsluefnis.
Forstöðumaður Manneldisráðs
Islands, Laufey Steingrímsdóttir,
næringarfræðingur, tók við verð-
laununum en Samtök iðnaðarins
gáfu verðlaunagripinn sem er
handunnin, íslensk framleiðsla
frá Gleri í Bergvík.
I dómnefnd sátu Sveinn Hann-
esson, Samtökum iðnaðarins,
Alda Möller, Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna og Einar Matthias-
son, Mjólkursamsölunni. í frétta-
tilkynningu segir m.a.: „Manneld-
isráð hefur starfað í núverandi
mynd frá 1978 þegar lög um
manneldisráð voru sett. Aukinn
kraftur komst í starfsemi ráðsins
árið 1989 eftir að manneldis- og
neyslustefna var samþykkt á Al-
þingi. Manneldisráð hefur gengist
fyrir viðamiklum könnunum á
mataræði Islendinga. Niðurstöður
hafa verið gefnar út á aðgengi-
legu skýrsluformi. Þá hefur ráðið
gefið út margvísleg efni fyrir iðn-
aðinn, stóreldhús og almenning
sem byggist á manneldismarkm-
iðum. Að mati dómnefndár er
fræðsluefni sem Manneldisráð
hefur gefið út vandað, öfgalaust
og til þess gert að nýta það.
Almanak
Þroska-
hjálpar
LISTAVERKAALMANAK Lands-
samtakanna Þroskahjálpar fyrir
árið 1996 ei komið út.
Á forsíðu almanaksins er mynd
eftir Karólínu Lárusdóttur sem hún
færði samtökunum að gjöf. Flestar
myndirnar í almanakinu eru til sölu
á skrifstofu samtakanna. Lista-
verkaalmanakið er einnig happ-
drætti og eru vinningar dregnir út
mánaðarlega. Vinningar í ár eru
51 listaverk.
Listaverkaalmanakið kostar
1.200 kr.
Landssamtökin Þroskahjálp eru
hagsmunasamtök fatlaðra barna,
fullorðinna og fjölskyldna þeirra.
Samtökin vinna að því að tryggja
fötluðum jafnrétti á við aðra þjóðfé-
lagsþegna.
FORSÍÐAN er eftir Karólínu
Lárusdóttur.
Jólakort Rauða
kross hússins
Hannyrða-
verslun opnuð
í Kópavogi
NÝLEGA var opnuð verslunin Gam
og gaman, Smiðjuvegi 68 í Kópa-
vogi. Verslunin býður upp á hann-
yrða- og föndurvörur auk ýmiss kon-
ar gjafavöru.
Á boðstótum eru m.a. pijónagarn
þ. á m. Dale-garnið ásamt pijóna-
blöðum frá Dale og öllum fylgihlut-
um. Filtvörur og útsaumur frá Buc-
illa og silkiborðsaumur, einnig út-
saumur frá mörgum öðrum fyrir-
tækjum. Jólasveinar úr tré til að setja
saman og allt tii föndurgerðar og
silki og dúkar til ámálunar ásamt
litum frá Tri-Chem.
Eigendur verslunarinnar Gams og
gamans eru Sigurbjörg Guðjónsdóttir,
Sigurður P. Ólafsson, Snjólaug Stein-
arsdóttir og Agnes Steinarsdóttir.
Grænlenskur
ráðherra
GRÆNLENSK-íslenska félagið Kal-
ak boðar til fundar i Norræna húsinu
fimmtudaginn 18. nóvember kl.
20.30.
Gestur fundarins verður Bene-
dikta Thorsteinsson, félags- og at-
vinnuráðherra Grænlands, og mun
hún ræða á íslensku um Grænland,
fólkið í landinu, stjórnmál og framtíð-
arhorfur og svara fyrirspurnum
fundarmanna. Einnig verður sýnt
stutt myndband frá Grænlandi.
MAGDALENA Margrét
Kjartansdóttir hannaði jóla-
kort Svalanna.
Jólakort
Svalanna
JÓLAKORT Svalanna 1995 eru
komin út. Ein félagskvenna,
Magdalena Margrét Kjartansdóttir
listakona, hefur hannað kortið.
Með sölu jólakortanna afla Svöl-
urnar fjár til líknar- og hjálparstarf-
semi. Svölurnar er félag núverandi
og fyrrverandi flugfreyja. Á þessu
ári hafa Svölunar fært MS félaginu
að gjöf tvo meðferðarbekki og stóla,
Barnaspítali Hringsins fékk styrk
að upphæð ein milljón króna til
kaupa á tækjum til rannsókna og
meðferðar barna með hjartasjúk-
dóma. Einnig hafa þær styrkt börn
sem hafa farið í hjartaaðgerðir er-
lendis.
Umsjón með dreifingu kortanna
hafa Rannveig Ásbjörnsdóttir, Ása
Jónsdóttir og Fríða Valdimarsdótt-
ir. Kortin fást hjá félagskonum og
þ. á m. í eftirfarandi verslunum:
Tess við Dunhaga, Kúnst, Engja-
teigi 17, Lífstykkjabúðinni, Lauga-
vegi 4, Silfurbúðinni í Kringlunni,
Gala, Laugavegi 101, Flughótelinu
í Keflavík og á Snyrtistofu Jóhönnu
Valdimarsdóttur, Norðurbyggð 31,
Akureyri.
JÓLAKORT Rauða kross hússins er
komið út. Myndin á kortinu í ár er
eftir Jón E. Guðmundsson, gerð árið
1941.
Rauða kross húsið veitir þrenns
konar þjónustu, unglingum að kostn-
aðarlausu; neyðarathvarf sem er opið
allan sólarhringinn, trúnaðarsíma
þar sem ræða má viðkvæm mál án
þess að segja til nafns og ráðgjöf
sem foreldrar, börn og unglingar
leita eftir í auknum mæli.
Kortið kostar það sama og undan-
farin fjögur ár eða 100 kr. stk.
Vinningstölur 10. nóv. 1995
• 4*6 »13 »19 »22 *24 * 25
Eidri úrslit á símsvara 568 1511
Öllum þeim mörgu, sem glöddu mig á 80 ára
afmœli mínu þann 9. nóvember sl. með heim-
sóknum, blómum, skeytum og gjöfum, sendi
ég mínar bestu þakkir.
Guð blessi ykkur öll.
Guðbrandur Einar Hlíðar.
caUJoriua rusrnur
jveslihneíur
HesWmetar jfk'
hakkoðar VÖ ' s-
Vveslih netur
jlögur
kókosmjöí
mcð hySi
mntöur
afhýidar
möruflur
hakkaoar
dfrnetukjarnar M
i Bráðumkoma
J blessuðjólin...
VELJUM ÍSLENSKT!