Morgunblaðið - 16.11.1995, Page 54
54 FIMMTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Ókeypis lögfræðiþjónusta
í kvöld milli kl. 19.30 og 22.00
í síma 551 1012.
Orator,
félag laganema.
Glæsilegt
úrval af
drögtum,
kápum,
blússum,
buxum,
pilsum og
peysum.
tískuverslun, Seltj. s: 5611680.
Abendingar á mjólkurumbúdiim, nr. 25 af 60.
Hann heitir...
Gátur eru oft í vísuformi og verða þannig áheyrilegri og
auðveldara að læra þær. Hér er ein:
Ingimundur og hans hundur
sátu báðir og átu.
Nú nefni ég hundinn
og gettu mína gátu.
MJÓLKURSAMSALAN
íslenskufrœösla. á mjólkurumbúðum er samstarfsverkefni Mjólkursamsölunnar,
íslenskrar málnefndar og Málrœktarsjóðs.
ÍDAG
BRIDS
llmsjAn Guðmundur Páll
Arnarsnn
Spilurum er tamt að telja
tapslagi í trompsamningum
og miða áætlun sína við
fækkun þeirra. Oftast gefst
þessi aðferð vel, því summa
tapslaga og tökuslaga er
yfirleitt þrettán. En svo er
þó alls ekki alltaf! í slemm-
unni hér að neðan eru til
dæmis tveir tapslagir, en
samt má finna tólf töku-
slagi.
Norður ♦ Á93 ▼ DG86 ♦ KG ♦ Á875
Vestur Austur
♦ D74 ♦ G2
? 72 llllll VK103
♦ 974 111111 ♦ D1052
* G9632 ♦ KD104
Suður ♦ K10865 ▼ Á954 ♦ Á863 ♦ -
Spilið er frá HM í Feneyj-
um 1974 úr leik ítala og
Indónesa. Á öðru borðinu
fékk snillingurinn Giorgio
Belladonna það verkefni að
spila sex spaða í suður.
Utspilið var hjartasjö, sem
í sjálfu sér voru góð tíð-
indi, því það þýddi að
slemman var a.m.k. ekki
andvana fædd.
Belladonna stakk upp
drottningu blinds og drap
kóng austurs með ás. Nú
virðist vörnin hljóta að fá
slag á hjartatíu og annan á
tromp. En sjáum tii. Bella-
donna spilaði strax hjarta
að gosanum. Síðan henti
hann hjarta niður í laufás
og trompaði lauf. Hann tók
tvo efstu í tígli og stakk
tígul. Trompaði svo aftur
lauf og síðasta tígulinn með
spaðaníu blinds. Þá lagði
Belladonna niður spaðaás
og trompaði síðasta laufíð.
Spaðakóngurinn stóð fyrir
sínu sem tólfti slagurinn,
en þann síðasta fékk vömin
sameiginlega á spaða-
drottningu og hjartatíu!
Raunar hefur umsjónar-
maður átt Iítillega við spilið:
breytt spaða blinds úr ÁG9
í Á93, en spilamennska
Belladonna miðaðist við að
þurfa ekki að fínna tromp-
drottninguna.
Pennavinir
15 ÁRA sænsk stúlka sem
hefur áhuga á bréfaskrift-
um, búðarápi og fl.:
Madeleine Carlsson,
Hallnliden 18,
260 24 Röstángn,
Sweden.
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Þakkir til
Urvals-Utsýnar
HÉR ERUM við þijár
ánægðar húsmæður sem
langar að þakka Ferða-
skrifstofunni Úrval-Útsýn
fyrir frábæra ferð tii Edin-
borgar vikuna 5-10. nóv-
ember sl. Hótelið var ynd-
islegt, ferðin til Glasgow
í fararstjóm Kjartans
Trausta Sigurðssonar var
mjög skemmtileg, en best
var sveitaferðin á fímmtu-
dag í Hálöndin undir
fararstjórn Arnars Símon-
arsonar. Það var hreint
frábær ferð, við lærðum
sögu Skotlands í orðsins
fyllstu merkingu. Svo kom
veðrið á óvart, 8-12 stiga
hiti, sól og mild rigning,
flest tré laufguð og haust-
litir í allri sinni dýrð, jafn-
vel rósir að springa út í
görðum.
Við viljum senda Úrval-
Útsýn og fararstjórunum
í Edinborg okkar hjartans
þakkir fyrir ógleymanlega
ferð. Þið lengi lifið.
Þríeykið á Hilton.
Tapað/fundið
Hanskar
töpuðust
LJÓSBRÚNIR stungnir
rúskinnshanskar með
hvítu fóðri töpuðust á leið-
inni frá Torfufelli að
strætisvagnaskýli og út í
strætisvagn 112C kl.
13.30 um miðja síðustu
viku. Finnandi vinsamlega
hringi í síma 557-9721.
Jólakort í
Kolaportinu
KONA sem á heima á
Þórsgötu og var að selja
jólakort í Kolaportinu sl.
sunnudag og gleymdi
pakka á borðinu hjá mér
er beðin um að hafa sam-
band í síma 551-8614.
Barnaskór fannst
við Tjarnarborg
GRÆNN barnarúskinns-
skór með loðkanti fannst
fyrir utan dagheimilið
Tjarnarborg við Tjömina
fyrir u.þ.b. tveimur vikum.
Kannist einhver við að
hafa týnt svona skó þá
má hann hafa samband á
dagheimilið í síma
551-5798.
Gæludýr
Kisa fannst á
Selfossi
STEINGRÁR ógeldur
högni, talinn vera af
norskri skógarkattaætt,
fannst laugardaginn 4.
nóvember í miðbæ Selfoss.
Þegar hann fannst var
hann ólarlaus, henn er
einkar gæfur og greini-
lega heimilisköttur. Upp-
lýsingar í síma 482-1199
eða 483-1090.
Hlutavelta
ir
Pennavinir
ÞESSAR duglegu stúlkur, þær Þórhildur og Guðlaug
Vaia, héldu nýlega hlutaveltu til styrktar átakinu
„Börnin heim“ og varð ágóðinn 2.800 krónur.
11 ÁRA sænsk stúlka sem
hefur áhuga á hestum,
hundum, skíðaíþróttum og
langstökki:
Josefin Löfvenborg,
Kolonigatan 3,
S-641 46 Katrineholm,
Sweden.
SÆNSK stúlka, sem stund-
ar líffræðinám í Kaup-
mannahöfn, yill skrifast á
við gáfaðan íslending:
Jenny Helander,
c/o Ahrenkiel,
Poul Mellers Vej 7,
DK-2000 Frbg,
Denmark.
ÞESSAR duglegu stúlkur héldu nýlega hlutaveltu til
styrktar Rauða krossi íslands og varð ágóðinn 2.382
krónur. Þær heita f.v. Guðrún Magnúsdóttir og
Thelma Björk Wilsson.
TVÍTUGUR Argentínu-
maður sem hefur áhuga á
náttúrunni, jarðfræði,
menningarmálum og ýmsu
öðru:
Sebastián C. Salvati-
erra,
Casilla de Correo 98,
Sucursal 37,
C.P. 1437,
Buenos Aires,
Argentina.
14 ÁRA sænsk stúlka óskar
eftir pennavinum af báðum
kynjum:
Camilla Axelsson,
Fágleviles v. 58,
423 53 Torslanda,
Sweden.
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI er lítið hrifinn af
nýrri tísku, sem tröllríður
málfari margra. Einna fyrst bar á
þessu í íþróttum, þar sem þjálfarar
fóru allt í einu að segja eitthvað á
þá leið að liðið hefði staðið sig
þokkalega, en sóknarlega hefði
fyrri hálfleikur ekki verið nógu
góður. Varnarlega hefði liðið hins
vegar haldið dampi. Hérna einu
sinni var sóknin beitt, sterk eða
hvað þetta nú hét, vömin þétt, góð
og þar fram eftir götunum, áhorf-
endur fjölmenntu, en leikur var
ekki góður áhorfendalega og
menn höfðu engar áhyggjur af því
hvort þeirra lið stóð sig vel gæða-
lega, bara á meðan það var gott!
Víkveiji var að vonast til þess
að þessi ósiður lognaðist fljótt úf
af, en því miður virðast sífellt fleiri
tileinka sér ósómann. Svo virðist
sem margir, sem ætla virkilega að
vanda mái sitt í viðtölunum við ijós-
vakafjölmiðla, geti ekki stillt sig
um að segja hvernig einhveiju miði
framkvæmdalega, nú eða þá að
fjárhagslega sé allt í lukkunnar
velstandi, en eftirlitslega hafi
kostnaður þó farið úr böndunum.
Víkveiji skilur þetta hreinlega ekki!
Úr því að minnst var á íþróttir
hér að framan getur Víkveiji ekki
stillt sig um að rifja upp ummæli
íþróttafréttamanns annarrar sjón-
varpsstöðvarinnar fyrir skömmu.
Hann var að lýsa handboltaleik, var
mjög hrifinn af því hvað einn leik-
manna var sprettharður og sagði
eitthvað á þessa leið: „Já, það
hleypur hann enginn uppi, eftir að
hann er kominn fram fyrir þá!“
xxx
KUNNINGI Víkveija hafði
samband vegna skrifa Vík-
veija á þriðjudaginn um þjónustu
og þjónustuleysi Áfengis- og tób-
aksverzlunar ríkisins. Kvaðst hann
vilja taka undir hvert orð þess pist-
ils og bæta við máli, sem hann
hefði hreyft við forráðamenn
ÁTVR árum saman, en enn án
nokkurs árangurs.
Sagði hann það óskiljanlegt með
öllu, af hveiju Áfengis- og tóbaks-
verzlun ríkisins geti ekki boðið við-
skiptavinum sínum að kaupa ýmsar
áfengistegundir í smáflöskum.
Hann sagðist ekki drekka áfengi,
en oft þurfa að nota áfengi við
bakstur. Til þeirra nota dygðu
smáflöskur vel og væri í alla staði
óþolandi að þurfa að kaupa áfengi
í stórum flöskum til þessa brúks,
svo ekki sé talað um kostnaðinn.
Vonandi eru forráðamenn ÁTVR
víðsýnni nú og sagði viðmælandi
Víkveija að vonandi hefðu menn
snör handtök við að bæta úr þessu
svo sjálfur geti hann gengið til jóla-
bakstursins með bros á vör!