Morgunblaðið - 22.11.1995, Side 36

Morgunblaðið - 22.11.1995, Side 36
36 MIÐVIKUDAGUR 22. NÓVEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ 4J GREINAGERÐ ER RETTARKERFIÐ MIÐSTYRT OG MISMUNAR ÞAÐ ÞEGNUNUM? Hjónin Jóhanna Tryggvadóttir og Jónas Bjarnason skýra í eftirfarandi greinargerð frá reynslu sinni af réttarkerfmu. HÉR er stórt spurt en ekki er víst að almenningi þyki það miklu skipta hvort réttarkefi Islendinga sé miðstýrt eða ekki. En greinar- höfundar sem bæði eru ólöglærð hafa þó lært það í lögfræði að höfuðatriði er að réttarkerfisstofn- anir og einstakir starfsmenn rétt- arkerfísins, sem eiga að starfa óhlutdrægt og sjálfstætt, geri það. Enda hefur það verið talinn einn af hornsteinum réttarríkisins. Hins vegar má vera ljóst að valdhafar, dómarar og aðrir opinberir emb- ættismenn mega ekki mismuna þegnunum. Tengslin milli mið- stýrðs réttarkerfis og mismununar eru slík að ætíð verður erfitt að sannfæra menn um að mismunun eigi sér ekki stað í miðstýrðu rétt- arkerfi. Sérstakar aðstæður Aðstæður okkar hjónanna eru að því leyti sérstakar að ég, Jó- hanna, hafði um alllangt árabil staðið fyrir nokkuð margþættum atvinnurekstri og umsvifum, oft með góðum árangri. í október 1987 lenti ég í umferðarslysi og hlaut það mikla áverka að ég gat ekki með nokkru móti unnið þau störf sem ég hafði áður unnið. Sjón mín skertist Svo að ég gat nánast ekki lesið auk annars. Við þessar aðstæður varð að ráða fleiri starfs- menn að rekstri mínum. Fjárreiður og bókhald voru að sjálfsögðu veigamiklir verkþættir og þess vegna var ráðinn löggiltur endur- skoðandi til að hafa umsjón með þeim. Mál rekstursins réðust á annan veg en vonir stóðu til. Bókhald var ekki fært en nú liggur fyrir að þurft hefur að leggja rekstrinum til nálægt þijátíu milljónir króna á rúmlega þriggja ára tímabili. Við seinni athuganir á bókhaldsgögn- um, sem unnið hefur verið að eftir því sem heilsa mín, Jóhönnu, og fjármunir hafa leyft, hefur komið í ljós að misfarið hefur verið með fé okkar, ekki aðeins í óheppilegar rekstraraðgerðir, heldur hafa starfsmenn, sem störfuðu í skjóli hins löggilta endurskoðanda, mis- farið með og oftekið til sín fé okk- ar. Síðustu ár hafa að miklu leyti farið í að Ieysa úr kröfumálum sem beint hefur verið að rekstrinum, m.a. í allmörgum dómsmálum, bæði fyrir héraðsdómstólum og Hæstarétti. Höfum við tekið til vama þegar við höfum talið að kröfugerð á hendur okkur væri óréttmæt. Ofsagt er að þær að- gerðir okkar hafi verið til einskis, en árangur til þessa hefur sannar- iega verið lítill og nú og á næst- unni verður tekist á um það hvort við höldum heimili okkar og kom- umst hjá gjaldþroti. Undarlegur úrskurður Mánudaginn 23. október kvað Már Pétursson héraðsdómari í Héraðsdómi Reykjaness upp úr- skurð í málinu nr. Y/7 - 1995: Jónas Bjamason og Jóhanna Tryggvadóttir gegn Halldóri Ást- valdssyni. Úrskurðarorð hans er svohljóðandi: „Kröfu sóknaraðila Jónasar Bjamasonar og Jóhönnu Tryggva- dóttur um ógildingu fjárnámsgerð- ar er hmndið. Sóknaraðilar greiði varnaraðila málskostnað að fjárhæð kr. 50.000 auk virðisaukaskatts af málflutn- ingsþóknun. Málskot frestar frekari fulln- ustuaðgerðum.“ Að sjálfsögðu þarf þessi niður- staða ein og sér ekki að vera at- hugunarefni eða undarleg, nema sá þáttur hennar að málskot úr- skurðarins til Hæstaréttar skuli fresta frekari fullnustuaðgerðum. Er ekki eðlilegt að niðurstöður sjálfstæðs dómstóls séu byggðar á það traustum og ótvíræðum gögn- um að í úrskurðinum sjálfum sé ekki fýrirvari um réttmæti niður- stöðunnar? Undmnarefnið við úrskurðinn er misræmið milli forsendna hans og úrskurðarorðs. í úrskurðinum segir: „Álit réttarins. Skýra verður . kröfugerð og málsútlistun sóknaraðila svo, að því sé aðallega haldið fram, að fjárnámskrafan hafi verið greidd, þ.e. fjárnámshafí hafi oftekið fé frá sóknaraðilum er nemi hærri fjárhæðum en fjárnámskröfunni, en til vara, að sóknaraðilar eigi kröfu til skuldajafnaðar á hendur varnaraðila er nemi hærri fjárhæð- um en fjámámskrafan. Þessu til stuðnings færa sóknar- aðilar einkum fram skýrslur Mar- grétar Flóvenz löggilts endurskoð- anda frá 23. janúar 1995, þar sem talið er að varnaraðili hafí oftekið kr. 672.645,- og skýrslu Páls V. Daníelssonar viðskiptafræðings, þar sem oftaka varnaraðila er tal- in kr. 1.866.839,-. Báðar þessar skýrslur em byggðar á bókhalds- gögnum, síðari skýrslan þó á mun rækilegri úrvinnslu þeirra. Af hálfu varnaraðila hefur framan greindum gagnkröfum og röksemdum verið eindregið mót- mælt. Gagnkrafa gerðarþola, sóknar- aðila í máli þessu, á hendur gerðar- beiðanda, hér varnaraðila, er hvorki aðfararhæf né viðurkennd. Sóknaraðilar hafa kært varnar- aðila bæði til RLR og ríkissaksókn- ara, ítrekað þær kærur margsinn- is, skriflega og munnlega. Fyrir liggur að RLR synjaði ósk ríkis- saksóknara frá 2. þ.m. um rann- sókn, með bréfi til hans, dags. 4. þ.m. Ríkissaksóknari hefur síðan hvorki gefið RLR ný fyrirmæli um rannsókn né tilkynnt kæranda, sóknaraðilum, að ekki verði krafíst frekari aðgerða vegna kæru þeirra. Af þeim sökum sem að framan greinir er hvorki unnt að veita frekari fresti í máli þéssu á þeim grundvelli að opinber rannsókn sem líklegt sé að hafi áhrif á úr- slit þess slandi yfir, né fallast á að gagnkrafa sóknaraðila fullnægi hinum þröngu skilyrðum aðfarar- laga um skuldajöfnuð þegar svo stendur á sem hér. Með því að ekki liggur endan- lega fyrir hvort ríkissaksóknari mælir fyrir um rannsókn RLR þykir rétt að málskot fresti frek- ari fullnustuaðgerðum." Hér skal ekki deilt við dómarann um staðreyndalýsingu. Þess skal þó getið að mismunur á fjárhæðum meintra oftekinna verðmæta úr kr. 672.645 í kr. 1.866.839 stafar af því að Páll V. Daníelsson við- skiptafræðingur fékk í hendur skýrslu rithandarsérfræðings RLR, dags. 31. ágúst 1995, en hún var lögð fram í réttinum. Meginatriði athugasemda okkar við lýsingu dómarans á málsatvik- um varðar áskoranir okkar til lög- manns vamaraðila, Þórunnar Guð- mundsdóttur hrl. Við skoruðum oft á lögmanninn að gera grein fyrir því hvernig fjárhæðir sem löggilti endurskoðandinn og við- skiptafræðingurinn töldu að varnaraðili hefði oftekið af fjár- munum fírma okkar samrýmdust fjárnámskröfunni. Og þessar áskoranir komu ítrekað fram í þinghöldum, m.a. í símskeytum, sem lögð voru fram í réttinum. Hvernig stendur á því að dómar- inn getur ekki um slík grundvallar- atriði að margoft var skorað á lögmann varnaraðila að gera grein fyrir þessum viðskiptum og að áskorunargögn hafi legið fyrir réttinum? Hvemig stendur á því að dómarinn getur þess ekki að lögmaður varnaraðila hirti ekki um að bóka mótmæli gegn niður- stöðum löggilta endurskoðandans og Páls V. Daníelssonar viðskipta- fræðings, sem voru lögð fram eft- ir að lögmaðurinn hafði skilað greinargerð sinni? Hvemig stend- ur á því að dómarinn sinnti ekki skiflegri kröfu okkar, sóknaraðila, um að varnaraðili, Halldór Ást- valdsson, kæmi sjálfur fyrir rétt og gæfí skýrslu eins og lögmaður hans hafði boðað? Þá er undrunarefni að dómarinn virðist líta svo á sem honum komi ekkert við að sóknaraðilar hafi margoft kært varnaraðila til RLR og ríkissaksóknara án árangurs til þessa og fyrir liggi að RLR hafi synjað ósk ríkissaksóknara um rannsókn frá 2. október 1995. Telja íslenskir dómarar sig ekkert þurfa að athuga sjálfir þau mál sem fyrir þá era lögð? Geta þeir tekið við nýjum gögnum um mögu- leg alvarleg fjártökumál án þess að gera nokkuð sjálfír annað en að styðja að kröfum þeirra sem gögn liggja fyrir um að hafi oftek- ið fé? Ber dómuram ekki að kanna mál sjálfir þegar traust gögn liggja fyrir sem gefa tilefni til þess að fá að minnsta kosti einhverjar efn- islegar skýringar? Hvar er sjálf- stæði Héraðsdóms Reykjaness? Hver er skýringin? Hver er skýringin á því að Hér- aðsdómur Reykjaness lýsir nokkuð glögglega í úrskurði gögnum um óréttmæta oftöku fjár, en stuðlar ekki að því að efni andsvara komi fram? Og virðist ekki láta sig nokkru skipta þótt Rannsóknar- lögregla ríkisins sinni ekki óskum sóknaraðila og ríkissaksóknara um að framkvæma rannsókn á hinni meintu ólögmætu fjártöku. Auðvitað getur enginn svarað þessu til fulls nema dómarinn sjálfur. 0g það verður að segjast eins og er að fyrirfram töldum við að Már Pétursson héraðsdómari væri af þeim dómurum, sem við þekktum til, líklegastur til að taka vel og réttilega á málinu. Við varnaraðgerðir okkar fyrir dómstólunum, sérstaklega Jó- hönnu, á síðustu árum, höfum við orðið nokkurs vísari um íslenska lögmenn og dómstóla, sem við telj- um geta skýrt aðgerðir Héraðs- dóms Reykjaness í málinu nr. Y/7 - 1995. Ég, Jóhanna, virðist hafa komið mér í stöðu nokkurs konar utangarðsmanns í réttarkerfinu og það virðist einnig ná til hins greinarhöfundar, Jónasar, þótt hann hafí til þessa að mestu hald- ið sig til hlés í dómsmálunum og reynt að afla fjár fyrir kröfum og málskostnaði. Þessi staða okkar í réttarkerfínu virðist svo slæm, að réttur manns, sem talinn er hafa tekið fé með ólögmætum hætti frá okkur, er tekinn fram yfir okkar rétt og málið hefur ekki fengist rannsakað hjá RLR og heldur ekki af þeim óhlutdræga og sjálfstæða dómstóli, Héraðsdómi Reykjaness. Mér, Jóhönnu, virðist sú skýring möguleg, að ég hafi á einhveiju stigi ekki komið nógu kurteislega fram við dómara, og hef ég þó ætíð reynt að sýna fyllstu hátt- prýði. En ég hef í mínum erfíðu málum ekki sett dómara á stall, sérstaklega eftir að ég kynntist vinnubrögðum hæstaréttardóm- ara, sem fyrir nokkrum árum var lögmaður minn. Hann hélt lengi fyrir mér skjölum og verðmætum, eftir að hann tók við starfi hæsta- réttardómara. Ég, Jóhanna, gerði Hæstarétti Islands þá „ósvinnu“, að ég lagði fram í Hæstarétti skjöl sem hæstaréttarlögmaður hafði sent ríkissaksóknaraembættinu sem kæruskjöl og bentu til að meint alvarleg lögbrot hefðu verið framin af starfandi hæstaréttar- dómurum. Á þeim tíma er ég lagði þessi skjöl fram hafði ríkissak- sóknari ekki látið fram fara rann- sókn á þessum meintu lögbrotum hæstaréttardómaranna og heldur ekki á mögulegum röngum sakar- giftum hæstaréttarlögmannsins og hefur raunar ekki gert það enn svo ég, Jóhanna, viti. Um hálfu ári eftir að ég lagði þessi kæruskjöl fram í Hæsta- rétti, hinn 24. nóvember 1994, var málið nr. 385/1992 til umfjöllunar í Hæstarétti, sem raunar er út af sömu atvikum og málið nr. Y/7 - 1995 fyrir Héraðsdómi Reykja- ness. Niðurstaða hæstaréttarmáls- ins var sú að það var fellt niður vegna þess að Hæstiréttur taldi sýnt að mig, Jóhönnu, skorti hæfi til að flytja mál mitt fyrir dómi. Komst Hæstiréttur að þessari nið- urstöðu án þess nokkrar kröfur kæmu fram um meint vanhæfi mitt, nokkur gögn væru lögð fram um það eða nokkur tækifæri feng- just til að fjalla efnislega um það fyrir Hæstarétti. Það er þessi að- gerð Hæstaréttar og ýmsar fleiri athugunarverðar sem valda því að mínu mati, Jóhönnu, að Héraðs- dómur Reykjaness kannar ekki mikilsverð málsgögn í máiinu nr. Y/7 - 1995, stingjir mikilsverðum atriðum undir stól og lætur sig engu skipta hvort ríkissaksóknari fjalli eða fjalli ekki um mál. Skýringin á aðgerðum Héraðs- dóms Reykjaness ræðst ekki af því hvort varnaraðili hefur eða hefur ekki oftekið fé frá okkur sóknaraðilum sem þó hefði átt að vera aðalatriði. Skýringarinnar er að okkar mati að leita hjá Hæsta- rétti íslands og hagsmunum hans. Miðstýrt réttarkerfi Mál standa þannig að embættis- menn Hæstaréttar Islands og fleiri leysír vandann Reflectix er 8 mm þykk endurgeislandi einangrun i rúllum. 7 lög en 2 ytri alúminíum-lög endurgeisla hitann. Breiddir: 61 og 122 mm. Rúllulengdir: 15, 38 og 76m. háaloft, bak við ofna, í fjós, hesthús, á rör, á veggi, tjaldbotna, sessur, svefnpoka o.m.fl. Skæri, heftibyssa og limband einu verkfærin. BYOOINQAVÖRUVERSLUN Þ. ÞORGRIMSSON fi CO Alltat tll t Imgmr ÁRMÚLA 29 - REYKJAVÍK - SÍMI553-8640 opinberir embættismenn hafa ver- ið kærðir til ríkissaksóknara fyrir meint lögbrot sem tengjast stöðum þeirra og störfum og þeir hafa ekki svarað þessum kærum efnis- lega. Ekki hafa heldur verið gerð- ar ráðstafanir til að koma lögum yfir kærandann, Tómas Gunnars- son hæstaréttarlögmann, fyrir að bera saklausa menn röngum sök- um. Gleggsta heimildin um þessi meintu lögbrot embættismanna er bókin Skýrsla um samfélag eftir Tómas Gunnarsson sem kom út í mars 1995. Fullburða og virkt réttarkerfi leyfir ekki að opinber réttarkerfis- stofnun sæti kæru fyrir meint lög- brot án þess að gripið sé til viðeig- andi ráðstafana til að staðreyna um réttmæti kæruatriða og gera ráðstafanir. En aðgerðaleysi gagnvart kæru af þessu tagi getur haft margvíslegar afleiðingar og virðist binda menn. Við hjónin teljum að við höfum orðið vör við ýmis merki um mið- stýringu réttarkerfisins og bind- ingu. Dómurinn í Héraðsdómi Reykjaness frá 23. október sl. er eitt dæmið. Annað dæmi er af- staða Rannsóknarlögreglu ríkis- ins, sem hvorki hefur fengist til að sinna óskum okkar eða ríkis- saksóknaraembættisins um rann- sóknaraðgerðir. Þriðja atriðið get- um við nefnt að okkur hefur reynst erfitt að fá lögmenn til að vinna fyrir okkur. Til dæmis var ómögu- legt að fá hæstaréttarlögmann til að flytja málið nr. 385/1992 fyrir Hæstarétti í nóvember 1994 og var þó auglýst eftir lögmannsað- stoð í Morgunblaðinu. Við höfum alloft leitað til Lögmannafélags íslands um aðstoð, bæði aðstoð til að fá lögmann og einnig til að fá lögmann varnaraðila í málinu nr. Y/7 - 1995 til að gefa skýringar, en án árangurs. Þá var leitað til Félags löggiltra endurskoðenda, vegna starfa hins löggilta endur- skoðanda á okkar vegum en án árangurs. Leitað hefur verið til dómsmálaráðuneytisins vegna tregðu RLR á að taka að sér rann'- sókn máls og til að fá Þóri Odds- son vararannsóknarlögreglustjóra til að víkja sæti í máli okkar. Ástæða beiðninnar var sú að ég, Jóhanna, hafði leitað til vararann- sóknarlögreglustjórans um að taka af mér skýrslu um að hæsta- réttardómari héldi fjármunum fyr- ir mér og öðrum mikilsverðum gögnum og að löggiltur endur- skoðandi hefði misfarið með fé okkar og ekki látið færa bókhald okkar réttilega, sem hann var þó ráðinn til. Vararannsóknarlög- reglustjórinn sagðist ekki heyra óskir mínar og vísaði mér út. Dómsmálaráðuneytið hefur ekkert gert í málinu og látið óátalið að RLR gæfi ekki skýringar á því hvers vegna kærumál væru ekki rannsökuð. Leitað hefur verið til Alþingis vegna afgreiðslna réttar- kerfisstofnana en án árangurs. Þau eru því býsna mörg dæmin sem við höfum rakið og benda til miðstýrðs réttarkerfis, sem jafn- framt tengist framkvæmdavaldi og Alþingi. Líklegt er að tína mætti fleiri dæmi til en þetta er látið nægja. Þegar þessi staða er uppi eins og hér virðist að réttar- og stjórn- kerfið er komið undir einn hatt og embættismenn, sem eiga að vera sjálfstæðir og óhlutdrægir í störfum, eru það ekki, gerast und- arlegir hlutir. Þá virðast hagsmun- ir réttarkerfisins geta átt samleið með manni, sem löggiltur endur- v skoðandi og viðskiptafræðingur telja að hafi oftekið fé og byggja það á bókhaldsgögnum og rithand- arrannsókn. En aðilinn sem sætti fjártökunni fær mál sitt ekki rann- sakað og fjártökumaðurinn og lög- maður hans þurfa engar skýringar að gefa í réttarkerfinu. Jóhanna Tryggvadóttir forstjóri Evrópuferða. Jónas Bjarnason læknir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.