Morgunblaðið - 22.11.1995, Síða 44
44 MIÐVIKUDAGUR 22. NÓVEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
BREF
HL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
Grettir
kú
BG
Ek.
At>
S LEPPA
SA/Aþ'ÝKKTte AE> SLB
SWARUNU'A KVÖtOiN
ÖK&TTIK
Tommi og Jenni
Ljóska
W&'
weét
Helgafell
Frá Hinrík Jóhannssyni:
BÆR undir Helgafelli var ekki reist-
ur fyrr en eftir að landnámsöld þrýt-
ur eða á árinu 935 af fyrsta ábúand-
anum Þorsteini þorskabít.
Vil ég fara nokkrum orðum um
staðinn Helgafeli síðustu áratugi.
Ég býst við að fiestir hafi lesið
Eyrbyggju eða bókina Helgafell,
Saga höfuðbóls og klausturs eftir
Hermann Pálsson.
Eyrbyggja hefur sagt svo skil-
merkilega frá landnámi Þórólfs milli
Vigrafjarðar og Hofsvogs.
Á því nesi er eitt fjall er hann
kallaði Helgafell, á því hafði hann
svo mikinn átrúnað að þangað skyldi
enginn maður óþveginn líta og engu
skyldi tortíma á fjallinu hvorki fé né
mönnum, nema það sem sjálft gengi
á brott.
Nú er oft mikið talað um land-
vemd og sem betur fer hefur það
opinbera mikið gert fyrir marga
sögustaðina.
‘ Einn sögustaður er Helgafell. Eins
og flestum er kunnugt er fjöldi inn-
lendra og erlendra ferðamanna sem
koma að Helgafelli til að ganga á
fellið. Þessi fólksfjöldi hefur marg-
faldast hin síðustu ár. Nú er svo
komið að fellið er víða að verða
moidarflag.
Ef ekkert verður að gert af því
opinbera hefur eigandi jarðarinnar
haft það á orði að loka fyrir umferð
á fellið.
Annað er það að vegurinn heim
að Helgafelli er vægast sagt til
skammar. Þá sjaldan að borið er ofan
í veginn er það mold og gijót.
Þarna eru iðulega á ferðinni stórar
rútur sem koma oft heim að húsi.
Moldarmökkurinn fer yfír tún og
bæjarhús svo að stundum er ekki
hægt að opna glugga fyrir moldar-
mekki.
Gijótbyrgið uppi á fellinu er frið-
lýst, ábuandi á sjálfur að halda því
við. Mér er sagt að í sumar hafí
borið á því að fólk hafí tekið upp
gijót og borið inn í byrgið þar sem
gengið er inn og bornar fram óskir.
Eitt var þó gert fyrir fellið sem
skylt er að geta. Félagar í Rotary-
klúbbi Stykkishólms reistu útsýnis-
skífu á fellinu. Skífuna teiknaði og
setti upp Jón Víðis mælingamaður
frá Vegagerð ríkisins.
Eins er friðlýst ieiði Guðrúnar
Ósvífursdóttur. Það var ómerkt.
Séra Gísli H. Kolbeins og undirrit-
aður ákváðu að taka stein úr fellinu
og fór séra Gísli með valinn stein
suður til Reykjavíkur og lét grafa
á hann nafn Guðrúnar Ósvífurs-
dóttur, ártalið 1008 og Helgafells-
sókn kostaði síðan girðingu í kring-
um leiðið.
Hún var úr sama efni og girðingin
í kringum kirkjugarðinn.
Nú býr fjórði ættliðurinn á Helga-
felli. Sá fyrsti kom að Helgafelli og
hóf búskap árið 1888. Þá var jörðin
komin í algjöra niðurníðslu, húsa-
kostur iélegur, tómir moldarkofar og
öll umgengni eftir því.
Síðan þá hefur margt gott verið
gert fyrir jörðina, kirkju og kirkju-
garð af ábúendum og söfnuði Helga-
fellssóknar. Þar er bæði um endur-
bætur og nýsmíði að ræða.
Það er von mín að hið opinbera,
ríki og sveitarfélag, sjái sér fært að
búa svo vel að Helgafelli að sómi sé
að svo að öllum þeim, sem áhuga
hafa á að ganga á fellið, sé það
fært án þess að skaða náttúru þess.
HINRIK JÓHANNSSON
frá Helgafelli.
Nudd og
nálastungur
Ferdinand
Hefurðu hugsað um Armbandsúr? Þú ert ekki Þú verður að fá vængúr! Fuglar hafa enga
það hvað þig Iangar að með neinn arm ... HA HA HA!! kímnigáfu.
fá í jólagjöf?
Frá Áslaugu Þorsteinsdóttur:
MIG langar aðeins að segja frá
reynslu minni svo fleiri geti notið
hennar. Þetta byijaði með því að
ég var mjög illa haldin af jafnvægis-
truflunum og vöðvabólgu í herðum
og hálsi. Það virtist ekki vera til
nein bót á þessu. Mér var bent á
að reyna að fara á Kínversku nudd-
stofuna á Skólavörðustíg 16. Nudd-
stofu þessa rekur Kínveiji að nafni
Jia. Hann hefur íslenskan ríkisborg-
ararétt og heitir Jóhannes Karl.
Hann er nálastungumeistari og
nuddari og sem slíkur er hann fé-
lagi í Félagi íslenskra nuddara og
því með full réttindi hér. í Kína er
hann lærður læknir, því þar í landi
getur enginn orðið nuddari nema
vera með læknismenntun.
Allavega get ég sagt að nuddið
og nálastungumar hafa gert mér
ótrúlega gott. Jóhannes Karl notar
ævaforna aðferð við nuddið og nála-
stungurnar. Það er nú þannig að
Kínveijar hafa stundað nálastungu
frá örófi alda og því er þar komin
á þær löng hefð og gífurleg reynsla.
í biðstofunni liggur frammi grein
úr DV um Jóhannes Karl. í henni
segir frá því að móðir hans sé mjög
virtur nálastungulæknir í Kína og
að hann hafi numið af henni.
Þegar ég kom til hans á stofuna
skoðaði hann mig mjög vandlega
en ekki vildi hann þó byija með-
höndiun fyrr en hann hafði fengið
að sjá röntgenmyndir af hálsliðun-
um því honum leist ekki meira en
svo á ástandið. Hann virðist oft ótrú-
iega glöggur að sjá út hvað hijáir
fólk.
Ég hef orðið vitni að því að fólk
hefur nánast verið borið inn til hans
en síðan gengið út óstutt, mér er
einnig kunnugt um að hann hafí
farið heim til fólks sem ekki hefur
komist úr rúmi og meðhöndlað það.
Mér finnst Kínverska nuddstofan
vera góð viðbót við þá möguleika
sem mönnum bjóðast hér á landi til
að fá bót meina sinna með nuddi,
viðbót þar sem oft er tekið öðru
vísi á vandanum en hefðbundið er
í hinum vestræna heimi.
ÁSLAUG ÞORSTEINSDÓTTIR
kennari,
Esjugrund 23, Mosfellsbæ.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.