Morgunblaðið - 03.12.1995, Page 11

Morgunblaðið - 03.12.1995, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 1995 C 11 150 g fínsaxaðar heslihnetur 125 g fínsöxuð engiferhnýði í sírópi eða sykruð hnýði 200 g rúsínur 250 g hveiti ________1 tsk. lyftiduft______ __________Glassúr:____________ 150 g flórsykur 2-3 msk. sítrónusafi fínsöxuð engiferhnýði til skrauts, ef vill 1 Setjið ofninn á 175 gráður. 2 Smjör og sykur er þeytt sam- an og eggjunum bætt í. Þeytt þar til blandan er létt og freyðandi. Bætið öllu öðru í, nema því sem fer í glassúrinn. 3 Smyrjið eða þrýstið deiginu á smurða eða pappírsklædda plötu, svo að úr verði um 2-3 cm þykkur ferhyrningur. Bakið deigið í um 20-30 mín. 4 Skerið bakaða fláttuna í hæfi- lega stóra eða öllu heldur hæfilega litla bita. Blandið saman flórsykri og sítrónusafa, svo úr verið hæfi- lega þykkt glassúr. Smyrjið kaldar kökurnar með glassúrnum. Stráið yfir söxuðum engiferhnýðum, ef ykkur sýnist svo. Mokkatoppar (um 30 stk) Möndlukökur með mokkabragði er rétta lýsingin á þessum Ijúf- fengu þýsku kökum. Hér gefur áfengi gott bragð og hægt að nota koníak, viskí eða líkjöra eins og Drambuie, DOM eða appelsínulí- kjör. Þeir sem ekki vilja nota áfengi geta notað appelsínusafa. 3 eggjahvítur 1 tsk. sítrónusafi ___________200 g sykur________ 200 g malaðar möndlur 3 msk. kaffiduft (nescafé) 2 msk. áfengi 1 Setjið ofninn á 175 gráður. 2 Eggjahvíturnar eru stífþeyttar með sítrónusafanum. Safinn gerir það að verkum að þær stífna bet- ur. Best er að nota stál- eða gleríl- át, sem hefur verið strokið með ediki, til að engin fita blandist eggjahvítunum, því hún hindrar þær í að stífna. Þeytið sykrinum í smátt og smátt. 3 Blandið afganginum léttilega saman við hvíturnar og setjið deig- ið í toppa á plötuna. Bakið í um 20 mín., eða þar til kökurnar eru gullnar og hæfilega bakaðar. Súkkulaói-kókos- toppar (um 30 stk) Súkkulaði-smákökutopparnir eru þýskir, rétt eins og mokkatopp- arnir hér á undan og framkvæmdin er líka sú sáma. 1 msk. sítrónusafi 200 g sykur 1 tsk. vanillusykur 150 g kókosmjöl 50 g fínsaxað súkkulaði 1 msk. kakó 1 tsk. kanell 1 Setjið ofninn á 175 gráður. 2 Þeytið hvíturnar og sítrónusaf- ann og svo sykurinn, eins og lýst er í uppskriftinni hér á undan. 3 Blandið saman öllu hinu og hrærið varlega saman við hvíturn- ar. Setjið deigið í toppa á smurða eða pappírsklædda plötu. Bakið í um 20 mín., eða þar til kökurnar eru gullnar og hæfilega bakaðar. Súklculaói-kexkök- ur (um 100 bitar) Að lokum kemur hér algjör uppáhaldsuppskrift, bæði af því árangurinn er sjaldgæflega Ijúf- fengur og framkvæmdin einstak- lega einföld og fljótleg. Því er eng- in ástæða til að nota hana aðeins um jól, heldur að eiga og bjóða upp á sem mola með kaffinu eftir góða máltíð. Upphaflega uppskrift- in er ættuð frá Ítalíu, en síðan breytt og betrumbætt á norður- slóðum. Eiginlega er hér fremur um sælgæti en smákökur að ræða, því enginn er baksturinn. Upp- skriftin er eiginlega jólagjöf til þeirra, sem langar í eitthvað gott, en vilja eyða í það sem minnstum tíma. Og framkvæmdin er svo ein- föld að það getur hvert barn galdr- að fram þetta góðgæti. 200 g smjör, helst ósaltað 200 g gott dökkt súkkulaði ______2 kúfaðar msk. hunang 1/2 tsk. kanell __________1 msk. kakó_______ 200 g heilar heslihnetur 200 g maríukex 1 Bræðið smjör, súkkulaði og hunang við lágan hita, svo súkkul- aðið hlaupi ekki í kekki. Hrærið kanel og kakói saman við. 2 Bætið heslihnetum saman við og myljið kexið út í, en það á að vera í fremur stórum flögum, svo gangið ekki hart fram við mulning- inn. 3 Breiðið blönduna út á bökun- arpappír í um 2-3 cm þykkt fer- hyrnt lag og látið kólna. Þegar blandan er orðin stíf er hægt að skera hana í bita og geyma, helst á köldum stað eða í kæliskáp, því bitarnir eru fremur mjúkir við stofu- hita. Annars er geymsluvandinn við þessar kökur í lágmarki, því það er venjulega nóg af fúsum munnum til að leysa þann vanda. Þar með er sætmetisrolla á enda og ekkert annað eftir en bestu óskir um gleðileg jól! Qpeaar íslemki östuvi/m ev kominn á tistabakkann, f/evjnv hann kóvónav matavcjevdi/m - bvceWuv eóa djúpsteikluv - eóa ev einfalólecja settuv beint í munninn / Kvymoliu Frábær með fersbu salati og sem snarl. í £/)ala vjpdvic Á ostababbann og með bexi og ávöxtum. (pkónda (pótúe Með bexinu, brauðinu og ávöxtunum. Mjoy góður djúp- eða smjörsteibtur. ©'/lascavpone Góður einn og sér og tilvaiinn i matargerðina. (jpfvítur kastali Með fersbum ávöxtum eða einn og sér. Póamembevt Einn og sér, á ostababbann og í matargerð. (pljómaostur Á bexið. brauðið, í sósur og ídýfur. <3mv/ -J^aimon Ómissandi þegar vanda á til veislunnar. Ú^úxusjvja Mest notuð eins og hún bemur fyrir en er einbar góð sem fyiling í bjöt- og fisbrétti. Dragðast mjög vei djúpsteibt. DYhoh qÞo vI (dfalut Bestur með ávöxtum, brauði og hexi. Pjvóbao&tuv Tilvaiinn til matargerðar - í súpur, sósur eða til fyliingar í hjöt- og fisbrétti. Góður einn og sér. Qpefj/evoneostuv Góður í íerðalagið. (pivítlauks Qphie Kærbominn á ostababbann, með hexi, brauði og ávoxtum. ÍSLENSKIR OSTAR^ *v' ^INASÍ,

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.