Morgunblaðið - 03.12.1995, Síða 46
46 D SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
• SYKURSJÚKA
FLESTUM finnst gott að gefa
tauminn lausan á jólun og njóta
hátíðarinnar í góðum mat og góm-
sætum kræsingum. Þá tilheyrir að
-^íaka ærlega til matar síns af sæt-
um og sykruðum, þungum og feit-
um mat, dag eftir dag, og láta
áhyggjur af holdafari lönd og leið.
Sífellt fleirum finnst þetta þó
ekki þess virði og vilja rata meðal-
veginn um jól sem aðra góða daga
og til eru þeir sem búa við það
heilsufar að þeir verða að gæta
vel að því hvað þeir láta ofan í sig.
Til að sykursjúkir geti haldið
sjúkdómi sínum í skefjum verða
þeir meðal annars að huga vel að
mataræði sínu. Guðrún Þóra
Hjaltadóttir, næringarráðgjafi og
formaður Samtaka sykursjúkra,
segir þó að þeir geti sem aðrir
borðað það sem á borðum sé svo
framarlega sem blóðsykur þeirra
^*sé í góðu jafnvægi og að mögulegt
sé að fylgjast með honum.
Tæplega 4.000 með
sykursýki
Um 1,5% þjóðarinnar eru með
sykursýki eða tæplega 4.000
manns. Sykursýki er ólæknandi
efnaskiptasjúkdómur en hægt er
að halda honum í skefjum með
réttri meðhöndlun. Sjúkdómnum
er skipt í insúlínháða og insúlín-
óháða sykursýki. Talið er að um
500 íslendingar séu með insúlín-
háða sykursýki en hún leggst aðal-
lega á ungt fólk. Insúlínóháð sykur-
sýki leggst hins vegar einkum á
^fólk sem komið er yfir miðjan aldur
og helst þá sem eru of feitir. Með-
höndlun þeirrar fyrrnefndu felst í
insúlínsprautum og sérstöku mat-
aræði en þeim sem hafa hina síð-
arnefndu nægir oft að fara í megr-
un og/eða huga að mataræði sínu.
Meðferð sjúkdómsins þróast ört
og nú er svo komið að þeir sem
hafa insúlínháða sykursýki geta
mælt blóðsykurinn í sér eins oft
og þurfa þykir. Þá eru þeir farnir
að nota svokallaða insúlínpenna
þannig að það er orðið mun auð-
veldara að hafa stjórn á sjúkdómn-
um en var fyrir tiltölulega fáum
árum. Rétt mataræði skiptir engu
að síður miklu máli nú sem fyrr.
Jólamatur, gjafir og föndur leit-
aði til Guðrúnar Þóru Hjaltadóttur
og bað hana að gefa nokkrar upp-
skriftir sem hæfa sykursjúkum og
reyndar öllum öðrum sem þurfa
að huga að mataræði sínu.
) tsk. vanilludropar
___________1 msk. kakó___________
____________40 g sykur___________
40 g Hermesetas strásætg
__________50 g smjörlíki_________
____________50 g skyr____________
1 eggjarauða
____________Til skrauts:_________
eggjahvíta
saxaðar valhnetur
Hitið ofninn í 175° C. Blandið
þurrefnunum saman. Myljið smjör-
líkið saman við. Vætið í deiginu
með skyri og eggjarauðu og hnoð-
ið saman. Rúllið í þrjár langar pyls-
ur, álíka á lengd og bökunarplatan.
Smyrjið bökunarplötuna eða notið
bökunarpappír. Setjið lengjuna á
og þrýstið á hana með fingrinum.
Penslið með eggjahvítu og stráið
valhnetum yfir. Bakið í 10-12 mín-
útur, ofarlega í ofninum. Skerið
lengjuna niður í bita meðan hún
er heit. Best er að kæla súkkulaði-
bitana á bökunarrist.
Athugið: ef kökurnar eru bakaðar
of lengi verða þær þurrar.
Hver kaka inniheldur: 20,6 he.,
1,0 g fitu, 3,7 g kolvetni. Athugið
að þetta á einungis við ef bakaðar
eru nákvæmlega 40 súkkulaðibita-
kökur.
Serinukökur
(70 stk.)
100 g smjörlíki
1 dl (90 g) sykur
% dl Hermesetas strósætg
___________i egg_________
1 tsk. vanilludropgr
_______14 tsk. lyftiduft_
50 g saxaðar möndlur
3 dl (180 g) hveiti
Til skrauts:
___________egg___________
25 g möndlur, gróft saxaðar
2 msk. strósæta
Hitið ofninn í 180° C. Hrærið
saman smjörlíki, sykri og strá-
sætu. Hrærið egginu út í. Bætið
vanillu, lyftidufti, söxuðum möndl-
um og hnoðið deigið. Látið deigið
standa í 30 mínútur í kæli. Búið
til kúlur úr deiginu og setjið þær
á smurða plötu eða bökunarpapp-
Morgunblaðið/Kristinn
ír. Þrýstið á kökurnar með gaffli.
Penslið með eggi og stráið söxuð-
um möndlum yfir. Bakið í 10-12
mínútur. Geymið í boxi með þéttu
loki.
Hver kaka inniheldur: 30 he.,
1,5 g fitu, 3,5 g kolvetni, 0,5 g trefj-
ar.
Piparkökur
(um 80 stk.)
150 g smjörlíki
1 dl (90 g) sykur
% dl Hermesetas strásæta
3 msk. (60 g) dökkt síróp
2 tsk. engifer
2 tsk. kanill
___________Vi tsk. negull_________
___________Vi tsk. lyftiduft______
___________6 dl hveiti____________
20 g fínt saxaðar möndlur
4-5 msk. kaffirjómi
Hitið ofninn í 200° C. Hrærið
saman smjörlíki, síróp og sætu-
efni. Bætið kryddi, lyftidufti, hveiti,
möndlum og rjóma saman við.
Látið deigið í kæli í 1 klukkustund.
Fletjið deigið út og mótið kringlótt-
ar kökur úr deiginu um 5 sm í þver-
mál. setjið á smurða bökunarplötu
eða bökunarpappír. Það er líka
hægt að búa til lengjur úr deiginu
og skera þær niður í þunnar sneið-
ar. Bakið kökurnar í 7-8 mínútur
ofarlega í ofninum.
Hver kaka inniheldur: 40 he., 2
g fitu, 5 g kolvetni, 0,5 g trefjar.
Ávaxtasalat
(fyrir 6)
2 meóalstór epli, helst rouð
2 meðalstórar gppelsinur
_____1 lítil dós gnanas í eigin_
safa (227 g)
1 lítill banani
10 bló vínber(óOg)
1 dl ferskur óvaxtasafi
1 msk. pressuð sítróna
2 msk. strósæta
Þvoið eplin og skerið í teninga.
Afhýðið appelsínurnar og banan-
ann og skerið í bita. Hellið safanum
af ananasinum og skerið í bita.
Stundum veróur
„besti vinurinn"
þreytandi
Með jákvæðu hugarfari
Guðrún Þóra greindist með syk-
ursýki fyrir rúmum 25 árum. Hún
segist líta á hana sem sinn besta
vin en segir að auðvitað geti hann
verið þreytandi eins og aðrir þaul-
setnir vinir. Maður verði hins vegar
að li'ta þetta jákvæðum augum til
að lifa sæmilega sáttur við hlut-
skipti sitt.
Hún segir að engin ástæða sé
til annars fyrir sykursjúka en að
borða það sem á borðum er yfir
jólin, að minnsta kosti á meðan
blóðsykurinn er í góðu jafnvægi
og mögulegt er að fylgjast vel með
honum. Þeir þurfi þó að huga að
kolvetnainnihaldi matarins. „Það
er síðan einstaklingsbundið hversu
mikið fólk þarf af kolvetnum, allt
eftir því hve þungt það er, hversu
mikið það hreyfir sig og svo fram-
vegis," segir Guðrún Þóra og bæt-
ir við að mikilvægt sé að borða
reglulega, þrjár til fimm máltíðir á
dag.
Þjóðin fitnar
Það mega fleiri en sykursjúkir
taka þetta til sín, að mati Guðrún-
ar Þóru. Hún segir að íslenska
þjóðin „víkki út í veröldinni" og
verði sífellt feitari og að börnin
verið t.d. æ þéttari. „Þriðji hver
(slendingur er of feitur og þriðji
hver íslendingur deyr úr hjarta- og
æðasjúkdómum. Fræðslan um rétt
mataræði er léleg og forvarnar-
starf lítið," segir hún. Þá segir hún
að hún hafi látið nokkrar konur
sem hún leiðbeindi á megrun-
arnámskeiði telja þær hitaeiningar
sem þær borðuðu yfir daginn. Þá
kom í Ijós að allar borðuðu þær
of fáar hitaeiningar fyrri hluta
dagsins. Þetta segir hún að sé
mjög algengt hér á landi. „Líkam-
inn vill fá þá orku sem hann er
vanur. Ef hann er sveltur fyrri hluta
dags heimtar hann sitt þegar heim
er komið og þá er fólk að borða
samfellt frá klukkan fimm og langt
fram á kvöld."
Guðrún Þóra segir að sykur-
sjúka vanti helst uppskriftir að
kökum og eftirréttum. Fólk tekur
auðvitað eftir því að það er sykur
í uppskriftunum og segir hún að
Danir, Svíar og Norðmenn séu
farnir að gera það þótt þær séu
ætlaðar sykursjúkum. Hún minnir
einnig á að ávaxtasykur er sykur
ekki síður en strásykur og að hann
leggi sitt af mörkum í blóðsykri.
Súkkulaóibifar
(40 stk.)
150 g hveiti
14 tsk. lyftiduft