Morgunblaðið - 03.12.1995, Síða 50
50 D SUNNUDAGUR 3. DESEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
- kjarni málsins!
„í minni æsku var allfjölmennt
í Ögurvíkinni: Garðsstaðagrundir,
Garðsstaðir, Ögur, Sólheimar,
Svalbarð og Oddi og í Ögurnesi
voru tíu þurrabúðir og útvegs-
bændabúðir. Nú eru þarna eftir
aðeins tvö býli, Ögur og Garðs-
staðir. Djúp var nokkuð þéttbýlt á
þeirra tíma mælikvarða. Þá var
barnaskóli og læknissetur í Ögur-
vík alla mína bernskutíð.
Ég kom ekki til ísafjarðar fyrr
en undir fermingu en hafði þó áður
fengið 'að fara með föður mínum
til Súðavíkur að kaupa útvarp.
Börn lágu ekkert í bæjarflakki á
þessum árum.
Við eignuðumst ekki útvarp fyrr
en 1938 og tæknin var ekki langt
á veg komin. Ekkert rafmagn var
á Svalbarði en gríðarlegar rafhlöð-
ur fylgdu útvarpinu sem þurfti síð-
an að fara með upp í litlu rafstöð-
ina í Ögri til að hlaða."
Það er Sverrir Hermannsson
bankastjóri sem rifjar hér upp
æskuumhverfi sitt við ísafjarðar-
djúp, en hann er fæddur á Sval-
barði í Ögurvík.
Undirbúningur jólanna
í byrjun desember var sjóróðr-
um hætt og þá var farið í kaupstað
til jólainnkaupa en í þá ferð fengum
við krakkarnir ekki að fara. Jólaund-
irbúningur heima fyrir hvíldi nær
eingöngu á móður minni, þessi
mikli kökubakstur sem fylgdi jólun-
um er mér minnisstæður. Það var
bakaður ótrúlegur aragrúi af smá-
kökum, lagkökum, brúnkökum og
ávaxtakökum og það sem meira
var að við máttum ganga í þetta
lostæti að vild frá jólum fram yfir
nýár.
Jólamaturinn var hefðbundinn.
Á aðfangadagskvöld var alltaf
steik. Steikt kjöt var mjög sjald-
gæft á öðrum tíma ársins. Þar sem
enginn kostur var á að geyma nýtt
kjöt var jafnan komið með það úr
kaupstað í síðustu ferð fyrir jól.
Það var síðan steikt í ofni kolaelda-
vélarinnar sem annars var notaður
til að baka í brauð en rúgkökur
voru bakaðar á heitum hringjun-
um. Á jóladaginn var síðan haft
hangikjöt en hangikjöt var yfirleitt
haft á stórhátíðum, jólum, páskum
og hvítasunnu. í annan tíma var
það ekki á borðum. Strák einum
frá fátæku heimili sem boðið var
upp á hangikjöt á hvítasunnu of-
bauð þetta kjötát og lét þess get-
ið, að ef jólin og páskana bæri
uppá hvítasunnu yrði nú aldeilis
mikil kjöthátíð. Jólailmurinn tengist
bæði kökubakstrinum og hangi-
kjötinu.
Við fengum alltaf einhverja nýja
flík fyrir jólin. Mamma átti hring-
prjónavél sem hún prjónaði í undir-
fatnað en önnurföt voru saumuð."
Jólatré
„í barnæsku minni áttum við
ekkert jólatré. Síðan var það að
um 1934 kom í Ögurvíkina læknir
sem hét Högni Björnsson. Hann
flutti til Danmerkur 1937 og eftirlét
okkur þá óskaplega fallegt gervi-
jólatré með öllu skrauti og á
greinarendunum voru kertakl-
emmur fyrir smákerti. Upp frá
þessu áttum við alltaf þetta jóla-
tré."
Sungum á aðfanga-
dagskvöld en ekki ella
„Tilhlökkun til jólanna var gríðar-
leg. Það var þessi hátíðleiki yfir
öllu og ég man spenninginn áður
en opnað var inn í stofuna klukkan
sex á aðfangadagskvöld og öll
dýrðin blasti við, jólatréð skreytt
og allt svo bjart og hreint.
Móðir mín var mjög strangtrúuð
kona sem kom fram í öllu hennar
dagfari. Það var faðir minn líka þó
hann færi dult með það. Hann las
húslestra á hátíðisdögum og
kenndi okkur bænirnar. Á jóladag
um hádegisbil las hann jólaguð-
spjallið.
Við sungum alla þessa algeng-
ustu jólasálma af kappi hvert með
sínu nefi. Við vorum þó afskaplega
ólagviss mörg og sum alveg lag-
laus en sungum þó af öllum lífs
og sálarkröftum á aðfangadags-
kvöld en ekki ella."
Spilastokkur
og marglit kerti
„Við systkinin vorum ellefu og
þau elstu voru farin að heiman
þegar ég var að stálpast og ég
man varla eftir þeim heima á jólum.
En öll fengum við nákvæmlega
eins gjafir. Við fengum einn stokk
af spilum hvert fyrir sig og kerta-
pakka með marglitum kertum og
síðan tvö stór kerti, hvítt og rautt.
Þegar faðir minn var búinn í
gegningunum og hafði lagt sig
ar
as
kökugerðarmaður tekur.. J
fvrst af öllu stefnuna í Húsasmiðjuna. Par fást iill
áhölcJ sem að gagni koma við piparkökubakstur og
annan jólabakstur. Mól fyrir piparkökuhús,
smákökumót, smákökuskeiðar, skeiðamál, kökukefli
í ýmsum stærðum, kökugrindur, kökusprautur...
og svo rná lengi telja. ________________________
HÚSASMIÐJAN
Skútuvogi 16 • Sími 568 7710
Helluhrauni 16 • Slmi 565 0100