Morgunblaðið - 10.12.1995, Síða 13

Morgunblaðið - 10.12.1995, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ ERLEIMT SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 1995 13 Þar var mælt með nokkurn veginn sömu aðgerðum og Gajdar hratt í framkvæmd. Javlínskíj hefur samt tekist ágætlega að fírra sig allri ábyrgð á því sem úrskeiðis hefur farið og þjáningunum sem almenn- ingur hefur þurft að sætta sig við vegna hruns sovétskipulagsins. Hann skákar í því skjólinu að hafa ekki gegnt neinum trúnaðarstörfum fyrir stjórn Jeltsíns sem hann lenti upp á kant við 1991. Jabloko fékk tæp 8% atkvæða í síðustu kosningum til Dúmunnar og samanlagt 20 sæti. Javlínskíj gagnrýndi harðlega þá ákvörðun Jeltsíns haustið 1993 að leysa upp þingið og var andvígur því að for- setanum skyldu falin svo mikil völd sem stjórnarskrá Jeltsíns frá desember 1993 mælir fyrir um. Fyrir réttu ári var stofnuð Þjóð- arhreyfing Jabloko til að breikka grundvöllinn og ná betur til al- mennings, smám saman hefur Javlínskíj tekist að verða ótvíræður forystumaður umbótasinna. Hann nýtur einnig meira persónufylgis en flestir aðrir stjórnmálaleiðtogar. Þótt hann sé oft sakaður um hroka hefur hann þann þokka sem er forsenda þess að ná til fólks á sjón- varpsskjánum. Mörgum líkar vel ákveðni hans er stundum jaðrar við ruddaskap. Hvað sem líður árangri Javl- ínskíjs og 58 flokksdeildum hans um allt landið er ljóst að flokkur hans er fyrst og fremst með rætur í Moskvu. Jabloko skortir fé, gott skipulag og reynslu til að verða jafnoki kommúnistaflokksins sem stendur vel að vígi úti á lands- byggðinni. Javlínskíj veit að það sem skipt- ir máli er að komast í forsetastól- inn í júní, þá yrði um alger um- skipti að ræða. Þingkosningarnar hyggst hann nota til að sýna öðrum umbótasinnum fram á að hann sé sá eini úr þeirra röðum sem hafi einhverja möguleika í forsetakosn- ingunum og þess vegna verði þeir að fylkja sér um hann næsta sum- Breytt forgangsröð Hvaða breytinga mætti vænta ef flokkurinn og Javlínskíj kæmust í valdaaðstöðu? Markmiðið hlýtur að vera að treysta umbæturnar í sessi og þegar öllu er á botninn hvolft yrði ef til vill hið sama upp á teningnum ef kommúnistar sigr- uðu. Þótt loforðin séu mörg og hart deilt á ríkisstjórnina virðast helstu stjórnmálaleiðtogar ólíklegir til að snúa af braut markaðsvæð- ingar. Meiri ástæða er til að óttast að kommúnistar og öfgafyllstu þjóðernissinnarnir gætu hugsað sér að takmarka lýðræðið og ýmis mannréttindi. Jabloko yi!! breyta forgar.gsröð- inni í efnahagsmálunum og hefur sett fram allskýra stefnu í þeim efnum. „Hvað snertir efnahags- málin er mikilvægast fyrir okkur að skapa sameiginlegt efnahags- svæði Samveldisríkjanna [gömlu Sovétríkjanna að Eystrasaltsríkj- unum undanskildum], afnema ein- okun í efnahagslífinu, auka sam- keppni, koma á eðlilegum eignar- rétti (fyrst og fremst á jarðnæði) og sjá til þess að efnahagsumbæt- ur byrji hjá grasrótinni, komi ekki að ofan. Samheijar okkar í hinum lýðræðisflokkunum vilja aðra for- gangsröð," segir Javlínskíj. Annar af leiðtogum Jabloko, Vjateslav ígrúnkov, gengur lengra. Hann telur „samherjana" stefna að nýju skrifræði og sakar Gajdar um tillitsleysi. „Flokkur Gajdars setur ekki hagsmuni almennings á oddinn,“ segir Igrúnkov. „Gajdar barðist aldrei gegn einokunaröfl- unum. Hann færði umráðaréttinn yfir ríkiseignum í hendur skriffinn- um sem eru einokunarsinnar. Aður réð ríkisvaldið öllu og stöðvaði verstu valdníðslu skriffinnanna. Þessir skrifræðisseggir geta nú gert það sem þeim sýnist, enginn tekur í taumana. Gajdar og menn hans veifuðu GRÍGORÍ Javlínskíj, leiðtogi umbótaflokksins Jabloko. GENNADÍ Sjúganov, leiðtogi kommúnistaflokksins endurreista. lýðræðisslagorðum en sköpuðu smám saman kerfi sem er verra en það gamla. Skriffinnar eiga í reynd nærri 90% af þjóðareign- inni,“ segir ígrúnkov og bætir því einnig við að draga verði úr kjara- mun sem hefur vaxið geysihratt síðustu árin. Ljóst er af þessu að Jabloko boðar ekki hreinræktaðan mark- aðsbúskap en vill sterkt ríkisvald er gæti hagsmuna hinna fátæk- ustu. „Ríkið á að stjórna á þrem sviðum: Menntamálum, ___________ heilbrigðismálum og ör- yggismálum," sagði Javl- ínskí á fundi með stúd- entum í nóvember. Hin hulda hönd markaðsaf- lanna á ekki að verða allsráðandi ef hann fær sínu framgengt. „Við viljum einkum höfða til þeirra sem umbótastefnan hefur komið illa niður á en hafa samt ekki glatað trúnni á að til sé leið út úr vandan- um. Við höfðum til millistéttarinn- ar, ekki síst þeirra sem fá laun sín hjá ríkisvaldinu,“ segir Javlínskíj en launagreiðslur ríkisins berast seint og illa og veldur þetta oft mikilli ólgu. „Sjá ljósið á ný“ Jabloko boðar öfluga utanríkis- stefnu sem sagt er að Vladímír Lúkín, formaður utanríkismála- nefndar Dúmunnar, sé aðalhöfund- ur að. Hvergi er þó hægt að segja að um öfgar sé að ræða og tekið er fram að hagsmunagæsla á er- lendum vettvangi verði að vera Allir boða her- skárri utan- ríkisstefnu innan eðlilegra takmarka og forð- ast beri að efna til átaka. Bent er á að þótt Rússar eigi að halda góðu sambandi við Bandaríkin og Vestur-Evrópu verði einnig að rækta gamalgróin sambönd við Mið- og Austur-Evrópulönd, Kína, ríkin á Balkanskaga og Miðaustur- lönd. í utanríkismálum bendir allt til þess að búast megi við breytingum í þá átt að stefnan verði her- skárri, hver sem nær völdum í ________ Rússlandi. Heita má að einhugur ríki meðal flokkanna um að stefna beri að stóraukinni sam- vinnu Samveldisríkj- ....... anna. Enginn flokkur boðar þó að endurreisa skuli gamla heimsveldið með valdi, jafnvel Zhírínovskij segir að einkum skuli beita fortölum og efnahagslegum yfirburðum. Þjóðernissinnar leggja einnig ofuráherslu á að réttinda rússneskra þjóðarbrota í grann- löndum verði gætt og ljóst er að sú krafa á sér mikinn hljómgrunn. Þingmaðurinn Arkadí Volskíj, mikill áhrifamaður í iðnaði og verkalýðsfélögunum, vill auka tengslin við fyrrverandi leppríki Sovétmanna í Austur- og Mið-Evr- ópu. Hann segir að í Póllandi, Ungveijalandi og Búlgaríu séu ráðamenn „farnir að sjá ljósið“ á ný og átta sig á því að hentugt sé að hafa mikið og gott samstarf við Rússa. Fyrrverandi kommúnistar eru nú við völd í öllum þrem löndunum. Allar hvítar skyrtur aðeins kr. 3.990 Kringlunni, s. 568 9980 - Laugavegi, s. 552 6860.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.