Morgunblaðið - 10.12.1995, Blaðsíða 26
26 SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 199Í
MORGUNBLAÐIÐ
KVIKMYNDIR/Laugarásbíó sýnir ævintýra- og spennumyndina Mortal Kombat með
Christopher Lambert í aðalhlutverki. Myndin er gerð eftir vinsælum tölvuleik og hefur
verið meðal mest sóttu myndanna í Bandaríkjunum frá því hún var frumsýnd í haust.
HEIMSINS helstu bar-
dagahetjur heyja al-
ræmdustu orrustu allra
tíma í ævintýra- og spennu-
myndinni Mortal Kombat
sem er full af tæknibrellum
og bardagasenum sem vart
hafa áður sést á hvíta tjald-
inu. Á níu kynslóða tíma-
bili hefur hinn illræmdi
seiðmaður Shang Tsung,
sem ekki er af þessum
heimi, leitt valdamikinn
prins til sigurs gegn dauð-
legum óvinum sínum, og
vinni hann tíundu Mortal
Kombat keppnina mun
illska sú og hatur sem
blómstrað hefur í heimi
myrkraaflanna taka sér
bólfestu á jörðinni til fram-
búðar. Þrumuguðinn Ryden
(Christopher Lambert)
ákveður því að senda þijár
bardagahetjur til að etja
kappi við hina yfimáttúru-
legu og illu krafta. Það eru
tveir menn og ein kona sem
verða að kafa djúpt í eigin
hugarfylgsn til að leysa úr
læðingi þann ofurmátt sem
á þarf að halda til að tak-
ast á við og sigra hin illu
myrkraöfl.
Kvikmyndin Mortal
Kombat er nýjasti hluti
mikillar margmiðlunar-
markaðssetningar sem á
rætur að rekja til geysivin-
sæls tölvuleiks. Meðal ann-
arra afurða sem rekja má
til tölvuleiksins upphaflega
eru t.d. tveir slíkir til við-
bótar, skáldsaga, farand-
sýning, teiknimynd og alls-
kyns leikföng og skraut.
Framleiðandi myndarinnar
er Lawrence Kasanoff
framkvæmdastjóri og
stjómarformaður Thres-
hold Entertainment sem
þróar og framleiðir hug-
verk á öllum sviðum miðl-
unar, en fyrirtækið er .um
HIN þijú dauðlegu verða að sigra í bardaganum ÞRENNINGIN sem tekst á við myrkraöflin er leik-
til að koma í veg fyrir að illska og hatur myrkraaf- in af þeim Bridgette Wilson, Robin Shou og Lind-
lanna nái fótfestu á jörðinni. en Ashby.
þessar mundir að framleiða
kvikmynd sem byggir á
brúðunni G.I. Joe, sem selst
hefur í 2,6 milljörðum ein-
taka.
Kasanoff hefur áður
komið nálægt framleiðslu á
kvikmyndunum True Lies
með Amold Schwarzeneg-
ger og Strange Days, sem
Kathryn Bigelow leikstýrði,
en einnig sá hann um fram-
leiðslu og markaðssetningu
óskarsverðlaunamyndar-
innar Terminator 2: Judge-
ment Day, sem skilað hefur
rúmlega milljarði dollara í
tekjur. Kasanoff hefur
einnig látið að sér kveða í
tónlistarheiminum en hann
hefur framleitt myndbönd
með listamönnum eins og
Michael Jackson, Rolling
Stones og Guns ’n’ Roses.
„Um leið og eitthvert
sköpunarverk lítur dagsins
ljós, hvort sem það er
skáldsaga, teiknimynda-
saga eða tölvuleikur eins
ALLS kyns óvættir eru í slagtogi með hinum illu
öflum sem leitast við að ná yfirráðum á jörðinni.
og í þessu tilfelli, þá skap-
ast tækifæri til að yfirfæra
það á einhvem annan mið-
il,“ segir Kasanoff. Hann
segir að vinsældir upphaf-
legu útgáfunnar dugi þó
ekki einar til, og hvað Mor-
tal Kombat varði þá þurfí
allar markaðssetningamar
að vera vandlega sam-
ræmdar til að viðhalda
áhuga á þeim persónum
sem þar em á ferðinni.
Kvikmyndin sé þannig
magnþrunginn fylgihlutur
annarra útgáfa á hug-
myndinni sem býr að baki
Mortal Kombat. Hún komi
til skila sögunni sem að
baki liggi og hjálpi til við
að skýra hinar dularfullu
persónur sem komi við sögu
og skýra hvers vegna þeir
einstaklingar sem um ræðir
hafi verið valdir til að taka
þátt í þeim stórfenglega
lokabardaga sem um er
íjallað.
Það var hinn þrítugi leik-
Tölvuleikur
öðlast líf
stjóri Paul Anderson sem
fékk það hlutverk að koma
sögunni á hvíta tjaldið, en
hann segir að Mortal Kom-
bat hafí vakið endurminn-
ingar hans um allar þær
kvikmyndir sem hann hafí
tekið ástfóstri við á unga
aldri. „Sem leikstjóri gaf
þetta mér tækifæri til að
segja eina af þessum stór-
fenglegu sögum þar sem
dauðlegar manneskjur
heyja orrustu við yfimátt-
úrulegar verur. En ég fékk
að gera þetta með öllum
tiltækum tæknibrellum og
skerpu tíunda áratugar-
ins.“
Anderson er Englend-
ingur og á hann að baki
kvikmyndina Shopping sem
athygli vakti í fýrra á Sund-
ance kvikmyndahátíðinni
sem leikarinn Robert Red-
ford hleypti af stokkunum
á sínum tíma. ' Þá gerði
hann heimildarmyndina
Speed sem fjallar um af-
brotaunglinga, en hún
vakti hörð viðbrögð og
ákall um fangelsun að-
standenda hennar. Meira
en 200 sjónbrellusenur
voru gerðar til að auka
áhrif persónanna Mortal
Kombat og sviðsbúnaðarins
sem á grafískan hátt skýrir
muninn á lífinu á jörðinni
og hinum saggafulla raun-
veruleika þeirra ytri heima
sem koma við sögu. Það
sjónræna nægtahom sem
myndin býður upp á með
öllum tæknibrellunum og
sviðsmyndinni gerir svo sitt
til að skapa magnaða
blekkingu sem færa á
áhorfendur myndarinnar
inn í aðrar víddir.
„Það mikilvægasta sem
við sem kvikmyndagerðar-
menn þurfum að gera er
að flétta þessi töfrabrögð
inn í söguna sjálfa án þess
að eftir því verði tekið og
úr verði ein órofa heild.
Við viljum ekki að fólk
yfirgefi kvikmyndahúsið
að lokinni sýningu mynd-
arinnar og tali um hvað
brellurnar hafi verið stór-
kostlegar eða sviðsmyndin
glæsileg. Þvert á móti þá
viljum við að það tali um
það hvað sagan hafí verið
rosalega góð,“ segir Paul
Anderson.
Dularfulli
frans-
maðurinn
ÞAÐ er franski leikarinn
Christopher Lambert
sem leikur aðalhlutverkið
í Mortal Kombat, en hann
leikur þrumuguðinn Ryd-
er, sem sendir bardaga-
hetjurnar þrjár í keppni
við hin yfimáttúrulegu
og illu öfl sem em við það
að ná yfirráðum á jörð-
inni. Lambert túlkar
gjarnan dularfullar og
torráðnar persónur og er
hann sennilega þekktast-
ur fyrir að túlka hetjuna
í Highlander myndunum,
en næsta mynd sem hann
lék í á undan Mortal Kom-
bat var The Hunted.
Lambert er fæddur í
New York 29. mars 1957,
en þar starfaði faðir hans
hjá Sameinuðu þjóðun-
um, og hefur hann ríkis-
fang bæði í Frakklandi
og Bandaríkjunum.
Vegna starfa föðurins
var fjölskyldan mikið á
ferðalögum um allan
heim og hlaut Lambert
menntun sína að mestu
leyti í Genf í Sviss. Eftir
að hafa nánast lokið há-
skólaprófi var hann eitt
ár í franska hernum en
að herþjónustunni lok-
inni reyndi Lambert fyr-
ir sér í fjármálaviðskipt-
um um hríð. Hugur hans
hneigðist hins vegar til
leiklistarinnar og innrit-
aðist hann í leiklistar-
skólann Paris Conser-
vatoire Drama Academy
staðráðinn í. að verða
leikari, en þar var hann
við nám í tvö ár. Fyrsta
tækifærið til að sýna
hæfileika sína fékk hann
svo í frönsku kvikmynd-
inni Le Bar du Telep-
hone. Eftir að hafa leikið
i nokkrum öðrum mynd-
um snéri hann á ný til
náms í leiklistarskólan-
um, en þar kom hæfileik-
anjósnari auga á hann og
mælti með honum við
leikstjórann Hugh Hud-
son í aðalhlutverkið í
Greystoke: The Legend
of Tarzan, Lord of the
Apes. Lambert hreppti
hlutverkið og á þeim
tveimur árum sem það
tók að gera myndina
lærði hann að tala ensku.
Að lokinni gerð mynd-
arinnar snéri Lambert á
nýjan leik til Parísar og
lék þar í mörgum kvik-
myndum. Meðal þeirra er
rómantíska gamanmynd-
in Ástarsöngvar, en í
henni lék hann á móti
Catherine Deneuve, og
Subway, sem hann
hreppti Cesar verðlaunin
fyrir sem besti leikari í
aðalhlutverki. Skömmu
eftir það var Lambert
valinn í aðalhlutverkið í
Highlander sem sló ræki-
lega í gegn, og einnig lék
hann í Knight Moves með
þeim Diane Lane, sem
hann er reyndar kvænt-
ur, og Daniel Baldwin.
Meðal annarra mynda
sem Christopher Lam-
bert hefur leikið í eru
Gunmen með Mario Van
Peebles, Highlander II og
Highlander ni. Næsta
mynd hans á eftir Mortal
Kombat er North Star,
sem hann framleiðir einn-
ig, en í henni leikur hann
á móti James Caan. Þá
hefur hann einnig á þessu
ári leikið í myndinni
Adrenaline, sem tekin var
í Bratislava. Lambert á
eigin kvikmyndagerðar-
fyrirtæki sem hefur að-
setur í Frakklandi, og var
hann t.d. framleiðandi
myndarinnar Nine
Months með Hugh Grant
í aðalhlutverki.