Morgunblaðið - 10.12.1995, Page 29

Morgunblaðið - 10.12.1995, Page 29
28 SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 1995 29 STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI FRAMKVÆMDASTJÓRI RITSTJÓRAR AÐ KEMUR ALLTAF BET- ur og betur í ljós, að einn vænlegasti kosturinn í upp- byggingu iðnaðar á íslandi er að byggja á þeirri víðtæku þekkingu, sem við búum yfir í ~fiskveiðum og vinnslu. Nokkur fyrirtæki, sem hafa sérhæft sig í iðnaðarframleiðslu, sem teng- ist sjávarútvegi hafa náð mikl- um árangri m.a. í útflutningi. Eitt þessara fyrirtækja er Marel hf., sem hefur sérhæft sig í framleiðslu á tæknibúnaði fyrir fiskiskip og fiskvinnslufyrir- tæki. í Morgunblaðinu í gær var kynnt nýtt rannsóknar- og til- raunaverkefni á vegum þessa fyrirtækis, sem snýst um hönn- un og gerð vélþræls fyrir fisk- vinnslu. Hér er um að ræða „alsjáandi" vélþræl, sem matar hausunarvélar. Hingað til hefur mannshöndin séð um þetta verk. Að baki þessa tækis liggur mikil vinna. Sú vinna hófst fyr- ir rúmum þremur árum og hef- ur kostað um 300 milljónir króna. Tveir þriðju hlutar þess fjár koma frá sérstökum rann- sóknarsjóði á vegum Evrópu- sambandsins en þriðjungur kemur frá innlendum aðilum, Rannsóknarráði ríkisins, Iðn- þróunarsjóði, Fiskveiðasjóði og Árvakur hf., Reykjavík. Hallgrímur B. Geirsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. þremur ráðuneytum. Að auki er Grandi hf. þátttakandi í verk- efninu. Nýlega hefur verið gerð úttekt á verkinu hjá fyrrnefnd- um rannsóknarsjóði Evrópu- sambandsins og er talið, að hún lofi góðu um framhaldið. Fleiri aðilar koma hér við sögu. í samtali við Morgunblað- ið í gær sagði dr. Geir A. Gunn- laugsson, forstjóri Marels hf., m.a.: „Við erum í raun að tengja saman tvenns konar tækni, annars vegar myndtæknina og hins vegar vélþrælatæknina, en þar sem við höfum mjög tak- markaða reynslu af vélþrælum leituðum við eftir samstarfi við Oxford Intelligence Machines í Englandi, sem hefur mikla reynslu á þessu sviði en afar litla í myndgreiningu. Við sam- einum því krafta okkar.“ Til viðbótar hafa komið að verkinu danska fyrirtækið Matcon, há- skólinn í Bristol og gríska fyrir- tækið Hitec. Hönnun vélþrælsins er ekki lokið en um stöðu verksins seg- ir forstjóri Marels hf. í fyrr- nefndu viðtali: „Enn er þetta þróunarverkefni í okkar huga, þótt árangur og mat dómnefnd- ar sé ótvíræður og veki vonir. Þær jákvæðu niðurstöður hljóta að vera mjög ánægjulegar fyrir þá starfsmenn okkar, sem unn- ið hafa að verkefninu, en um er að ræða fjóra menn undir forystu Jóns Benediktssonar, rafmagnsverkfræðings. Mat dómnefndar gefur ótvírætt til kynna að okkar starfsmenn eru að vinna vinnu, sem er á heims- mælikvarða. Þetta er ekki síður viðurkenning fyrir Iðntækni- stofnun, þar sem tæknileg verk- efnisstjórnun heildarverkefnis- ins var í höndum Ingvars Krist- inssonar, verkfræðings á Iðn- tæknistofnun. Þessar jákvæðu undirtektir þýða það líka, að von er á auknu fjármagni frá Esprit (rannsóknarsjóði ESB - innskot Mbl.) í framhaldi verk- efnisins vegna þess, að staðið hefur verið vel að verki og trú manna er sú að varan eigi sér góða markaðsmöguleika." Dr. Hörður Árnason, þróun- arstjóri Marels hf., lýsir hinu nýja tæki m.a. með þessum orð- um: „Þannig getur þessi vél- þræll tekið upp fisk, sem liggur á ýmsa vegu, í ýmsum stelling- um, á færibandinu. Þetta er nokkuð, sem aldrei hefur verið reynt áður. Okkar vélþræll er sjáandi með hjálp tölvusjónar- kerfisins og þetta er einnig eini vélþrællinn í heiminum sem meðhöndlar heila fiska eða aðra eðlissambærilega hluti, sleipa, þunga og sveigjanlega. Aðrir vélþrælar eru þannig úr garði gerðir að þeir geta aðeins tekið upp hluti, sem eru alltaf á sama staðnum.“ Þegar horft er til framtíðar gefur augaleið, að notkun vél- þræla í fiskvinnslu opnar gífur- lega möguleika á aukinni hag- kvæmni í framleiðslu og rekstri fiskvinnslufyrirtækja. Jafn- framt er ljóst, að forysta okkar íslendinga í hönnun og fram- leiðslu slíkra tækja getur opnað okkur mikla möguleika á sölu þeirra víðs vegar um heim. Þess vegna getur sú þróunarvinna, sem nú er unnið að á vegum Marels h£ hugsanlega skilað allt að því ævintýralegum ár- angri á næstu öld. VÉLÞRÆLL MARELS OG SNÚUM •okkur þá að Marmara. Aðalpersónan í leik- ritinu, Robert Belford, er hugsjón Kambans holdi klædd. Þessi hug- sjón á rætur í yfirmannlegum kröfum Krists um að elska óvini sína. En þar er lengra gengið fram í kærleika en nokkurs staðar annars í trúarbrögð- um, svo ég viti. Þegar við menn erum annars vegar er slíkur boðskapur meiri áskorun en nokkur maður af holdi og blóði getur orðið við. Kamban telur, þótt ótrúlegt sé, að morðingi geti búið yfír meiri sálargöfgi og ver- ið þjóðfélaginu hættuminni en sá sem hefur ekki gert sig sekan um nein lögbrot. Það sé ekki glæpurinn, sem, máli skipti, heldur ódrengskapurinn. Það sé hann sem saurgi anda manns- ins og eyðileggi sál hans. Á forsendum þessa boðskapar er Marmari málsvöm fyrir morðingja skáldsins nær þremur áratugum áður en hann var veginn. Verkið er forspá um ógnlega atburði síðari heimsstyijaldar. Þetta ieiðir hugann að því að Kamb- an hafði ekkert til saka unnið, þegar hann mætti örlögum sínum andspænis byssukjaftinum. Eitt helzta foriag Þýzkalands hafði að vísu gefið út Skálholt í glæsilegri þýzkri þýðingu og við miklar og góðar undirtektir á kreppuárunum og skáldið hafði svo verið á mánaðarlaunum hjá þessu sama forlagi til að skrifa nýja sögu, Vítt sé ég land og fagurt, sem er sam- in með hliðsjón af Eyrbyggju og Vín- landssögunum. Auk þess hafði hann unnið að kvikmyndahandriti fyrir Grundgenz og átti myndin að fjalla um Gösta Berlings sögu eftir Selmu Lagerlöf. Það hafði einnig vakið grun- semdir danskra andspymumanna að Þjóðveijar vildu að Kamban yrði leik- gágnrýnandi Politikens á stríðsárun- um, - og þá ekki síður upplestur hans í danska útvarpið á þýð- ingum íslenzkra ljóða sem síðar birtust í Hvide Falke. Sitthvað fleira varð svo einnig til þess að örlögin söfn- uðu glóðum elds að höfði skáldsins, einsog Kristján Al- bertsson hefur bent á. Sjálfur gerði Kamban sér ljóst að hann var undir smásjá og raunar í mikilli hættu eftir að þýzki menningarfulltrúinn vildi fá hann að Politiken. HÖFUNDUR ROBERTS • Belfords þekkti samtíð sína og umhverfi. Og hann þekkti ekkisíður hið rétta eðli mannsins, ofstæki hans og einæði, en það orð notar hann í leikritinu. Þar er íjallað um efni sem minnir á setningu í Vítt sé ég land og fagurt; að flekklaus skapgerð sé æðsta og fágaðasta verðmæti lífsins, einsog komizt er að orði. Það er ekki- sízt vegna þeirra miklu og að sumu leyti fjarstæðukenndu krafna um full- komið siðferði og flekklausa skapgerð, sem Marmari á undir högg að sækja á sviöinu; boðskapurinn stýfír vængi verksins. Ævintýrið, skáldskapurinn gerir verk endingargóð. Boðskapur og lífseigla listaverka fara ekki endilega saman. Það er ævintýrið og skáldskap- urinn sem hefja verk Shakespeares yfír jarðbundið tímaskyn okkar. Marmari hefur úrelzt einsog svipuð verk, m.a. eftir Ibsen og Strindberg. Ég sagði við'Helgu Bachmann, Marm- ari er fremur bókmenntir en leiklist; fremur til lestrar en sýningar. Hún leiðrétti mig, eftirminnilega: Hann er ekki hreyfílist(l) sagði hún. Þannig fínnst mér leikrit Ibsens og Strind- bergs ekki síður bókmenntaverk en leiklist og því er dýrmætt að eiga þau á bókum í vönduðum þýðingum Ein- ars Braga. Þessi raunsæisverk hafa lifað boð- skapinn af þarsem fjallað er um per- sónumar einsog fólk er, án þess það sé málpípur - og trékalíar; og einnig ljóðræn verk einsog Brandur og Pétur Gautur. Tjekov lýsir fólki einsog það var í umhverfí hans, en ekki einsog það átti að vera eftir einhveijum rússneskum eða. þjóðfélagslegum kokkabókum. Ég skil vel Agnar Þórð- arson sem metur hann öðrum skáldum fremur. Skáldskapurinn er sannfær- andi þrátt fyrir þetta undarlega og mótsagnakennda yfírstéttarfólk á sviðinu. Samt telur Kundera að Tjekov hafí verið vondur höfundur. En Kund- era gerir líka kröfur til að höfundar séu alltaf að uppgötva eitthvað nýtt í verkum sínum, þótt það sé nú ekki beinlínis einkennandi styrkur hans sjáifs. í lffinu eru engin ný sannindi heldur nýjar og nýjar uppákomur, hvaðsem fullyrðingum Kundera líður. En það er víst rétt hjá honum að tóm- leiki, sprottinn úr narkissisma eða sjálfsdýrkun yfirborðslegs fjölmiðla- þjóðfélags, er nægilegt tilefni þess sjúkdóms sem hijáir samtíð okkar. Lífið er spegill þarsem hver og einn leitar sjálfs sín. Samt er hvarvetna til þetta dýrlega fólk sem leitar að öðrum og fínnur til með öðrum. En það nýtur sín ekki í neinu þjóðfélagi. Allrasízt þarsem boðskapurinn er partur af sjálfsdýrkun. Mér er nær að halda að Belford sé ekki vaxinn frá slfku þjóðfé- lagi. Það er í senn vandamál hans og umhverfisins. Verðmætin eru í okkur sjálfum, samt eru flestir með hugann við annað fóik. Samanburð; mannjöfn- uð; skoðanakannanir. Og tímabundnar vinsældir, þær eru ekki ákjósanlegt veganesti til þroska og hugþrifa, þótt stjómmálamenn og skemmtikraftar séu háðir þeim. Við tölum ekki um sáluhjáip vinsældanna, klíkunnar; eða þjóðfélagsins. Við tölum um sáluhjálp hvers og eins. Menn herðast í eldi; sækja þrek í andtízku sem gengur þvert á allar vinsældir. Sækja þroska í andbyr. HELGI spjall REYKJAVÍKURBRÉF Laugardagur 9. desember IFYRRI VIKU BIRTIST HÉR í Morgunblaðinu greinaflokkur um þá byltingu, sem er að verða í fjarskiptum í heiminum og stöðu einkafyrirtækja, sem eru í samkeppni við Póst og síma. í stuttu máli leiddi þessi greina- flokkur í ljós, að tímabært er, að Alþingi og ríkisstjóm beiti sér fyrir stefnubreytingu á þessu sviði. í upphafi fyrstu greinar Morgunblaðs- ins, sem birtist sunnudaginn 26. nóvember sl. sagði: „Áhrifa fjarskiptabyltingarinnar mun gæta um allan heim. Ný tækni upp- hefur hindranir Qarlægðarinnar og tengir útkjálka heimsins hringiðu atburða. Þessi breyting kann að verða ein sú afdrifarík- asta, sem mannkynið hefur gengið í gegn- um til þessa. Alheimsþorpið er að verða að veruleika. Fáum ætti að vera meiri akkur í þvílíkri breytingu en þjóðum, sem búa utan alfaravega, líkt og Islendingar. Fáir velkjast í vafa um, að það muni skipta sköpum um samkeppnisstöðu íslands á alþjóðamarkaði og lífskjör hér á landi á komandi ámm, hvort og þá hvemig okkur tekst að höndla kosti fjarskiptabyltingar- innar.“ Þessa byltingu upplifum við á hveijum degi. Við tökum upp símann og hringjum til nánast hvaða lands sem er. Það kostar að vísu enn þá alltof mikið en á því verð- ur væntanlega breyting á næstu ámm. Nú er síminn líka orðinn hreyfanlegt tæki. Starfsmanni á ritstjóm Morgunblaðsins lá mikið á að komast í samband við sam- starfsmann, sem var á ferð í Svíþjóð. GSM-símakerfíð sá til þess að til hans náðist í strætisvagni í Gautaborg! Við sitj- um við tölvu og sendum orðsendingar inn- an húss, á milli fyrirtækja og á milli landa á auðveldari hátt en nokkum hefði órað fyrir. Við sitjum við sjónvarp og fylgjumst jafnvel með upphafí stríðsátaka í beinni útsendingu, eins og gerðist í Persaflóa- stríðinu, hvar sem við eram í heiminum. Fjarskiptabyltingin er að gjörbreyta dag- legu lífí okkar. Hún snýst hins vegar um meira en tækni. Fjarskiptabyltingin hefur leitt til mikillar grózku í atvinnu og viðskiptum. Símafyrir- tæki hafa yfírleitt verið í ríkiseigu eins og hér. En á því er að verða gmndvallarbreyt- ing. Athyglisvert er að sjá hvað Svíar era framarlega í þeim efnum. Því er lýst í fyrstu grein Morgunblaðsins sunnudaginn 26. nóvember með eftirfarandi hætti: „Það var um mitt ár 1993 að losnaði um hömlur á rekstri fjarskiptafélags í Svíþjóð. Sam- keppni hefur harðnað í kjölfarið, ekki sízt hvað varðar fyrirtælq'aþjónustu. í maí sl. stofnuðu BT, Tele Danmark og Telenor í Noregi símafélagið Telenordia. Þessi sam- steypa ráðgerir að veija tæpum 20 milljörð- um króna til að verða næststærsta fjar- skiptafyrírtæki Svíþjóðar. France Telecom kynnti nýlega áætlun um að veija sem svarar 10 milljörðum króna til að byggja upp almenningssímaþjónustu í Stokkhólmi, Gautaborg og Málmey. Þá er ekki síður grózka í rekstri kapalfélaga, farsímafyrir- tækja og svonefndrar „call-back“ þjónustu, sem afgreiðir millilandasímtöl. Nú er talað um, að 40 fyrirtæki í Svíþjóð sérhæfi sig í afgreiðslu slíkra niillilandasímtala. Gjöld fyrir millilandasímtöl hafa lækkað um ein 30% í kjölfarið og Telia (sem er sænska símafélagið í opinberri eigu) hefur tapað um þriðjungi markaðshlutdeildar á innan við tveimur árum.“ í Þýzkalandi er stefnt að því að aflétta einokun Deutsche Telekom AG á símaþjón- ustu í árslok 1997. Ráðgjafar þýzku ríkis- stjómarinnar leggja til, að einkaleyfí fyrir- tækisins verði aflétt fyrr en til stóð í þeim tilgangi að ýta undir aukna samkeppni og nýjungar á sviði fjarskipta. Á næstu 18 mánuðum er ætlunin að eínkavæða símafyrirtæki í Austurríki, Frakklandi, írlandi, Perá, Tyrklandi, Sri Lanka og Venezúela. Á dagskrá er að einkavæða símafyrirtæki í Belgíu, Grikk- landi, Hollandi, Italíu, Spáni, Tékklandi, Ungveijalandi, ísrael, Indónesíu og Suður- Afríku. Hér á íslandi hafa umræður um þetta mikla mál ekki komizt svo langt. Halldór Blöndal, samgönguráðherra, hefur hins vegar lagt áherzlu á að breyta rekstrar- formi Pósts og síma í hlutafélag og jafn- framt er verið að skipta fyrirtækinu upp í tvær rekstrareiningar að fyrirmælum Samkeppnisstofnunar, þ.e. í samkeppnis- svið og einkaleyfíssvið. Almennar og víð- tækar umræður um stefnumörkun í íjar- skiptamálum hafa hins vegar ekki farið fram að ráði fyrr en nú, hvorki á Alþingi, í fjölmiðlum eða á öðram þeim vettvangi, þar sem slíkar umræður fara fram. Það er hins vegar mjög tímabært að þær hefj- ist af fullum krafti. Eins og Morgunblaðið hefur ítrekað bent á era atvinnuumsvif íslenzka ríkisins ekki að minnka heldur stóraukast, ekki vegna ásetnings þar um heldur hins, að stjómmálamennirnir hafa ekki veitt því eftirtekt hvað þróunin er gífurlega hröð á fjarskiptasviðinu og um- svif Pósts og síma í samræmi við það. NÚ ER ÁSTÆÐA til að taka fram, að Póstur og sími hef- ur staðið sig mjög vel í að fylgja tækniþróuninni eft- ir og innleiða hana hér. Oft liggja ríkis- fyrirtæki undir gagnrýni fyrir sofandahátt og tregðu til að taka upp nýjungar. Því. fer fjarri, að það eigi við um Póst og síma. Fyrirtækið er sennilega mjög vel rekið og vakandi fyrir öllum nýjungum og forsvars- menn þess fljótir að tileinka sér þær og bjóða viðskiptamönnum upp á að hagnýta sér nýja tækni. Löng reynsla bæði hér og annars staðar sýnir hins vegar, að það skiptir engu, hvort um er að ræða einokunarfyrirtæki í eigu ríkis eða einkafyrirtæki með yfírburða markaðsstöðu; slík fyrirtæki hafa nánast ósjálfráða tilhneigingu til að kæfa sam- keppni í fæðingu og ýta keppinautum út af markaðnum, ef þau hafa tækifæri til. Póstur og sími er svo yfírþyrmandi aðili á fjarskiptamarkaðnum, að lítil einkafyrir- tæki fá ekki þrifízt í skugga þessa risa. Og ef miðað er við reynsluna í öðram lönd- um kemur það bæði í veg fyrir lækkað verð á þjónustu til neytenda og að þessi atvinnugrein fái að vaxa og dafna eins og hún gæti og gerzt hefur annars staðar, þar sem ríkiseinokun hefur verið afnumin. Lýsingar forsvarsmanna nokkurra lít- illa einkafyrirtækja, sem eru að keppa við Póst og síma og birtust hér í blaðinu á miðvikudag og fimmtudag í fyrri viku era ótrúlegar. Fyrstu ár farsímakerfisins seldi Póstur og sími ekki farsíma. En þremur árum eftir að það var komið á, hóf þetta ríkisfyrirtæki sölu á farsímum og náði á skömmum tíma 70% af mark- aðnum! Talsmenn Pósts og síma hafa sagt, að þá fyrst hafi farsímar lækkað í verði á íslandi, þar sem þeir vegna stærð- ar hafi náð hagkvæmum samningum. Talsmenn einkafyrirtækjanna segja, að það sé rangt heldur hafi Póstur og sími komið inn á markaðinn, þegar verð var að falla um alla Evrópu. Þórður Guðmundsson, framkvæmda- stjóri Hátækni hf., segir að fyrirtæki hans verði að inna af hendi mikla sjálfboðavinnu fyrir Póst og síma vegna skráningar far- símanotenda og innheimtu stofngjalda, sem kaupmenn beri ábyrgð á, að séu greidd. Leitað var eftir því við Póst og síma að greidd væri þóknun fyrir þessa vinnu. Svar- ið var, að kaupmönnunum væri velkomið að vísa þessum viðskiptamönnum til Pósts og síma! Og Þórður bætir við: „Þeir vita nákvæmlega hvað við erum að selja dag frá degi en við fáum aldrei upplýsingar um hvað þeir era að gera. Þótt þeir segist aldr- ei skoða þessar skýrslur skiptir það ekki máli. Þeir hafa þessar upplýsingar.“ Kristján Gíslason, framkvæmdastjóri Radíómiðunar hf., lýsir því í samtali við Morgunblaðið, hvernig þetta ríkisfyrirtæki hafi reynt að ná af fyrirtæki hans umboði Póstur og sími og einkafyrir- tækin fyrir farsíma. Hann segir hér í blaðinu 29. nóvember sl.: „Það var á símasýningu, að fjórir fulltrúar Pósts og síma komu í bás- inn hjá Dancall og sögðust vilja kaupa 500 þráðlausa síma. Þetta var rætt við mig og ég samþykkti, að þessi viðskipti færu fram gegn því, að ég fengi lítilsháttar umboðslaun. Póstur og sími hafnaði því og sagðist ekki verzla í gegnum milliliði, þeir vildu milliliðalaus viðskipti eða engin. Það varð ekki af kaupunum og persónuleg vinátta mín við forstjórann bjargaði því, að ég missti ekki umboðið.“ Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Símvirkjans-Símtækja hf., lýsir samkeppn- isstöðu síns fyrirtækis með þessum orðum: „Fyrir tveimur áram fór Símvirkinn-Sím- tæki hf. að flytja inn símboðakerfi af nýrri gerð. Þessi boðtæki vora frábragðin eldri tækjum að því leyti að hægt var að nota sama símanúmer fyrir 99 símboðatæki og samt hægt að hringja sérstaklega í hvert og eitt tæki. í því kerfí, sem P&S hafði komið upp þurfti að greiða stofngjald og afnotagjald fyrir hvert boðtæki. í nýja kerf- inu frá Símvirkjanum-Símtækjum hf. þurfti bara að greiða eitt stofngjald og eitt afnota- gjald fyrir allt að 99 boðtæki. Að sjálf- sögðu þurfti eftir sem áður að greiða fyrir hvert skipti, sem hringt var í þessi boðtæki. Fljótlega fékk Símvirkinn-Símtæki hf. bréf frá P&S þar sem þeir gerðu athuga- semdir og áskildu sér allan rétt í þessu sambandi. Um tíma gerðist ekkert þar til allri gjaldskránni fyrir boðtæki var breytt. Þá gátu menn farið að nota þau boð- tæki, sem P&S og fleiri höfðu verið að selja en borga það sama og greitt var með þeirri tækni, sem Símvirkinn-Sím- tæki hf. bauð upp á.“ Síðan segir í frá- sögn Morgunblaðsins:,, Þeim hjá Símvirkj- anum-Símtækjum hf. þykir þetta lýsandi dæmi fyrir samkeppnisstöðuna. P&S, sem ræður yfir símakerfinu getur snúið gjald- skránni eftir því, sem stofnuninni hentar hveiju sinni.“ Dagný Halldórsdóttir, framkvæmda- stjóri Skímu ehf., rekur fyrirtæki, sem hefur sérhæft sig í tölvupóstþjónustu og býður einnig upp á Alnetsþjónustu. Hún segir í samtali við Morgunblaðið 30. nóv- ember sl., að helztu keppinautar hennar séu tvö opinber fyrirtæki, Póstur og sími og Skýrsluvélar ríkisins og Reykjavíkur- borgar. Hún bendir á, að Póstur og sími reki X.25 gagnaflutningsnetið og háhraða- netið, sem er grannur fyrir X.400 tölvu- póstþjónustu, sem Skíma veitir en auk þess rekur Póstur og sími slíka tölvupóst- þjónustu í samkeppni við Skímu. Dagný Halldórsdóttir segir um stöðu Pósts og síma: „Þótt dregið hafi úr einokun síðustu ár hafa þeir stöðugt styrkt stöðu sína og verið að færa út kvíamar. Þeir hafa fylgt eftir öllum nýjum tækifærum til fjarskipta- þjónustu án þess að skilja nokkurs staðar eftir smugu fyrir aðra.“ Fyrirtækið NAT hf. lagði inn umsókn í samgönguráðuneytið um leyfí til að reka GSM-símakerfi fyrir tæpu ári. Yngvi Harð- arson, stjómarformaður fyrirtækisins, seg- ir í samtali við Morgunblaðið 30. nóvem- ber sl., að svar hafí ekki borizt. Evrópu- sambandið er að gefa út tilskipun um sam- keppni í farsímarekstri frá 1. janúar nk. í flestum löndum Evrópska efnahagssvæð- isins geta notendur GSM-símaþjónustu valið á milli þjónustuaðila._ Af 18 ríkjum sem aðild eiga að EES er ísland hið eina, sem hefur ýmist ekki nú þegar veitt öðrum aðilum leyfi til að reka GSM-þjónustu eða tekið ákvörðun um að veita slíkt leyfi. Yngvi Harðarson segir, að gerist ekkert í afgreiðslu á umsókn fyrirtækisins á næst- unni muni það hugsanlega leita til umboðs- manns Alþingis. Þessar reynslusögur forsvarsmanna lít- illa einkafyrirtækja, sem era að reyna að keppa við Póst og síma, eru athyglisverðar og þá ekki sízt, að slíkar sögur skuli sagð- ar við lok þessarar aldar, þegar almenn pólitísk samstaða er um að ríkisrekstur eigi ekki lengur heima í atvinnulífínu. Afli risans á íslenzka fjarskiptamarkaðn- um er beitt með margvíslegum hætti til þess að koma í veg fyrir að einkafyrirtæki geti haslað sér völl að nokkra ráði. Og þessi risi er í eigu íslenzka ríkisins. Frelsi í fjar- skiptum ÞAÐ ER BRYN nauðsyn að fram fari á Alþingi víð- tækar umræður um stefnubreytingu á þessu sviði. Á spástefnu Stjörnunarfélags Islands sl. þriðjudag kom Hörður Sigur- gestsson, forstjóri'Eimskipafélags íslands hf., inn á þessi mál og sagði: „Það er skoð- un mín, að í markvissum áföngum eigi ríkisvaldið að draga sig út úr þessum rekstri. í mörgum nágrannalöndum, þar sem ríkið hefur hætt rekstri símaþjónustu hefur kostnaður lækkað um 25-30%.“ Þetta er rétt. Þetta á að vera megin- stefna íslenzka ríksins. Enginn gerir kröfu til þess að fyrirtækinu Pósti og síma verði skipt upp og/eða einkavætt í einu vet- fangi. En þetta á að gera í „markvissum áföngum", eins og forstjóri Eimskips sagði og sú stefnumörkun þarf að fara fram með einum eða öðram hætti á Alþingi. Sú ákvörðun samgönguráðherra að gera Póst og síma að hlutafélagi getur verið fyrsta skref í þá átt en aðeins fyrsta skref. Skipting fyrirtækisins í samkeppnissvið og einkaleyfissvið er vandræðalausn og ekki tráverðug fyrir markaðinn. Nauðynlegt er að hafa fullt samráð við helztu forsvars- menn Pósts og síma annars vegar og tals- menn einkafyrirtækjanna hins vegar um nýja stefnumörkun á sviði fjarskipta. Eðli- legt gæti verið sem fyrstu skref að Póstur og sími hætti alveg að selja notendabúnað í samkeppni við einkafyrirtæki, hætti að veita þjónustu, sem einkafyrirtæki veita en leggi í þess stað áherzlu á rekstur og upp- byggingu grannkerfanna. Jafnframt er eðli- legt og sjálfsagt að veita fleiri aðilum leyfí til að reka GSM-símakerfí hér á landi. Ný stefnumörkun á fjarskiptasviðinu er ein stærsta pólitíska ákvörðun, sem Al- þingi og ríkisstjóm standa frammi fyrir um þessar mundir. Fyrirsjáanlegt er að stóraukið frelsi á þessu sviði mun hafa í för með sér mikla grózku og aukin umsvif í viðskiptalífínu. Frelsi í fjarskiptum getur átt ríkan þátt í auknum hagvexti og fram- förum á næstu árum. „Þessar reynslu- sögur forsvars- manna lítilla einkafyrirtækja, sem eru aö reyna að keppa við Póst og síma, eruat- hyglisverðar og þá ekki sízt, að slíkar sögur skuli sagðar við lok þessarar aldar, þegar almenn pólitísk samstaða er um að ríkis- rekstur eigi ekki lengur heima í atvinnulífinu. Afli risans á íslenzka fjarskiptamark- aðnum er beitt með margvísleg- um hætti til þess að koma í veg fyr- ir að einkafyrir- tæki geti hazlað sér völl að nokkru ráði. Og þessi risi er í eigu íslenzka ríkisins.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.