Morgunblaðið - 10.12.1995, Síða 31

Morgunblaðið - 10.12.1995, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. DESEMBER 1995 31 Steingrímur var ákaflega sér- stakur maður, fl’uggáfaður og eld- heitur hugsjónamaður, þrumandi ræðumaður. Þó að við værum ekki sammála í pólitík urðum við bestu vinir. Þegar við Steingrímur vorum að fá okkur í glas á skrifstofunni hans eða á kaffihúsum kom fyrir að dömur væru með í för. Hann hafði ekkert á móti því að kvenleg fegurð skreytti samkvæmi. Oftar var þó félagsskapurinn allur karl- kyns, einkum úr hópi þingmanna því að mikið samneyti var milli Búnaðarfélagsins og þeirra. Meðal þeirra sem ég drakk stundum með voru, auk Steingríms, séra Svein- bjöm Högnason á Breiðabólstað, sem var formaður Mjólkursamsöl- unnar, Jón Pálmason á Akri, Bern- harður Stefánsson, Barði Guð- mundsson og séra Sigurður Einars- son. Á þessum árum drukku fyrir- menn í Reykjavík ekki minna en á síðari tímum. Ævisaga Steingríms þótti mjög glannafengin í umsögnum um sam- ferðamenn. Hann gerði sér ekkert far um að hlífa neinum. Ég fékk minn skerf en það má samt sjá að ekki var kalt á milli okkar. Stein- grímur segir meðal annars: „Gunn- ar var á margan hátt glæsimenni, hár og vel vaxinn, ljós yfírlitum, fríður en dálítið tileygður. Hann er raunar greindur, hrifnæmur og hugkvæmur, en lætur hugmyndir oft frá sér fara að lítt yfirveguðu máli. Gunnar er áhugamaður um allt, sem hann tekur að sér en stundum gætti fljótfæmi. Sam- vinna okkar Gunnars var nokkuð brokkgeng. Mér gramdist oft við hann og þótti hann fara rasanda ráði, en alltaf þótti mér vænt um hann, svo margt er mannlegt og gott í fari hans. Gunnar var mikill framsóknarmaður þegar hann kom frá prófí, en það breyttist síðar, því að þollyndi er ekki einkenni á skap- gerð hans.“ Gull eða seðlar Það er reyndar margt að varast í hrossaræktinni jafnvel þótt versl- unin verði frjálsari, eftirspumin eft- ir íslenskum reiðhestum aukist og verðið, bæði á geldingum og kyn- bótahrossum, haldi áfram að stór- hækka. Fyrst og fremst verður að gæta að því að erfðir og tamning em ekki það sama. Það er ekki víst að bestu og söluhæfustu reiðhest- amir séu jafnframt upplögðustu kynbótagripimir. Ég hef stundum líkt þessu við gullforða og seðlaút- gáfu. Stóðhestarnir með kynföstu erfðaeiginleikana em gullið í gena- bankanum en blendingar af mis- munandi stofnum gæðinga em bankaseðlamir. Hægt er að taka hest af horn- firskum stofni og blanda saman við Svaðastaðastofninn, t.d. Kirkjubæj- arhrossin. Þá getur maður fengið frábæran einblending í fyrsta ættl- ið, því mjög líklega koma fram dóm- inerandi eiginleikar úr báðum kynj- um og úr því verður kannski slíkur úrvalsgripur að annar eins flnnst ekki í kyninu sjálfu, hvom sem er. Það sem mér þykir sárgrætilegt er að sumir yngri kynbótamennimir átta sig ekki á þessu. Þeir taka blending milli Hornafjarðar og Svaðastaða og láta hann keppa við hreinræktaðan hest af öðru hvora kyninu. En eðli blendingsins er ekki arfgengt. Það dettur niður í ann- arri eða þriðju kynslóð. Við höfum mörg dæmi um þetta hér á landi. Þeir sem fást við ræktun gæð- ingastofna þurfa að gæta að því með hvaða hætti best sé að kyn- festa eðliskosti stóðhestanna. Ór- ugg hrossarækt byggist fyrst og fremst á stóðhestum með kynföst- um eðliskostum sem tryggt sé að gangi í arf til afkvæmanna. Þetta má einnig orða þannig að við þurf- um að hafa sem mesta vissu fyrir þvi að þeir kostir sem við sjáum í stóðhestinum séu fyrir hendi í arf- hreinu ástandi í litningum kynfmm- anna. íslensku hrossin em eitt kyn sem mótast hefur í norðanverðri Evrópu í þúsundir ára og fylgdi raunar ís- röndinni á liðnum ísöldum. Eftir að ísland byggðist átti nær engin kyn- blöndun sér stað hér. Kynbætur hrossa hér á landi hafa því alltaf verið innan ramma hreinræktunar og oft með afmarkaðri stofnræktun í einangmðum hémðum og þá einn- ig með óhjákvæmilegri skyldleika- rækt. Stofnblöndun hefur hins vegar átt sér stað í talsverðum mæli á tuttugustu öldinni með flutningi stóðhesta milli héraða og landshluta. Við sérstakar aðstæður, eins og lýst var hér á undan, hafa bestu gæðingastofnarnir orðið til við hreinræktun með skyldleikarækt. Og það em þessir skyldleikarækt- uðu hrossastofnar sem em gull- forðinn og hreinræktuðu stóðhest- amir „gullklumpamir" í genabank- anum. Verðtryggingin byggir á hinu kynbótafræðilega gildi hross- anna. Svo geta menn náð prýðis- gócJum árangri í framleiðslu á reið- hestum með því að blanda saman tveimur eða fleiri stofnum. Þannig fá þeir oft fallegri söluhross en hreinu stofnarnir gefa. En þessi söluhross em bara seðlamir sem í umferð em hveiju sinni. Og á kyn- bótasýningum verða menn að hafa þekkingu til að greina á milli hvort þeir em að dæma gullið eða seðlana. • Kóngur um stund. Gunnar Bjarnason — Ævi og störf eftir Örnólf Árnason. Útgefandi er Orm- stunga. Bókin er 400 bls. Verð 3490 kr. |ó heimilið ó hótelið |á verlsunina Ullargólfteppi hrein náttúruajurð - umhverfisvœnt gólfejhi lá veitingahúsið Eitt glæsilegasta úrval landsins af vönduðum ullargólfteppum er að finna hjá HARR í Ármúla 23. Hreint ótrúlegt úrval af litum, mynstrum og möguleikum frá BRINTONS og Cavafier Carpets í Englandi. Auðhreinsanleg Áferðarfalleg Ármúla 23 - sími: 568 5290 BARR á næturklúbbinn á fundarsalinn j á skrifstofunal á Alþingi íslendingaj Fulí búö afööru vísi gjafavörum, m.a. döusku Jamparmr frá Byriél Allar skrcytm%ar uimar affagmönnum Sjón er sögu ríkari Opib frá kl. 9-21 alla daga. Næg bílastæði (bílastæbahúsib Bergstabir). Ekkert stöbumælagjald um helgar. DAGATÖL OG JÓLAKORT í NÝJUM VÍDDUM V096 AFLJÓSAKRI - veiölaunadagatal, 12 breiÖmyndir eftir Hörö Dantelsson. Myndatextar 6 Islensku, sænsku, ensku, þýsku, frönsku og spænsku. DAGATALIlf C A L C N D A It „jMmm ljósakri ?y.'£-«saagr.- fást í helstu bóka- og minjagripaverslunum VI63 ÍSLAND '96, borödogatal meö 14 myndum eftir 6 Ijösmyndara Glœsilegt úrval íslenskra jólakorta Sala og þjónusla , mj> við fyrirtœki og NYJAR / f VÍDDIR, símí 56i 4300, fax 56i 4302 dreifing í verslanir: Snorrabraut 54, pósthólf5075, 125 Reykjavík

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.