Morgunblaðið - 22.12.1995, Side 24
24 FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Agnes frumsýnd
AGNES, nýja íslenska kvikmyndin og jafnframt eina ís-
lenska jólamyndin, verður frumsýnd í dag, föstudag, í
Laugarásbíói. Almennar sýningar verða í Laugarásbíói
og í Stjörnubíói.
Ástríður, svik og blóðug hefnd eru í brennidepli í Agn-
esi, en myndin styðst við atburði frá fyrri hluta 19. aldar
og fjallar um þá atburðarás sem leiddi til síðustu aftökunn-
ar á ísiandi árið 1830, þegar Agnes Magnúsdóttir og
Friðrik Sigurðsson voru tekin af lífi fyrir morð á Natani
Ketilssyni.
í aðalhlutverkum eru María Ellingsen, sem leikur Agn-
esi, Baltasar Kormákur fer með hlutverk Natans og Eg-
ill Olafsson leikur sýslumann. í öðrum helstu hlutverkum
eru Hilmir Snær Guðnason, Magnús Ólafsson, Hanna
María Karlsdóttir, Guðný Guðlaugsdóttir, Gottskálk Dag-
ur Sigurðarson og Árni Pétur Guðjónsson.
Leikstjóri er Egill Eðvarðsson, kvikmyndataka var í
höndum Snorra Þórissonar, hljóðvinnslu annaðist Þor-
björn Erlingsson, leikmynd Þór Vigfússon, búninga hann-
aði Helga I. Stefánsdóttir, Ragna Fossberg sá uin förðun,
klippingu Steingrímur Karlsson og tónlist samdi Gunnar
Þórðarson. Framkvæmdastjóri var Sigrún Ósk Sigurðar-
dóttir.
Agnes er framleidd af Pegasus hf. i samvinnu við Jour-
nal Film í Berlín og Zentropa Entertainments í Dan-
mörku og naut gerð hennar styrlga úr Kvikmyndasjóði
Islands, Berlin Brandenburg-sjóðnum, kvikmyndasjóði
Evlrópuráðsins Eurimages og Norræna sjónvarps- og
kvikmyndasjóðnum.
AGNES, nýja íslenska kvikmyndin og jafn-
framt eina íslenska jólamyndin, verður
frumsýnd í dag, föstudag, í Laugarásbíói.
hádegísleikhúsi
Ljóð af lands-
byggðinni
Kósý í
Á ÞORLÁKSMESSU mun unglinga-
hljómsveitin Kósý koma fram í há-
degisleikhúsi Leikfélags Reykjavík-
ur. Hljómsveitin mun leika jólalög,
stuðlög og bannlög af nýútkomnum
geisladiski sínum, Kósý-jól. Aðgang-
ur er ókeýpis og veitingar seldar
gegn vægu verði, segir í kynningu.
Ennfremur segir: „Hljómsveitin
Kósý er rúmlega eins árs gömul en
tónlistarflutningur Kósý einkennist
öðru fremur af huggulegheitum og
„kósý“ stemmningu. Nú fyrir jólin
kom út geisladiskurinn Kósý-jól. Á
plötunni eru jólalög í bland við dæg-
urflugur og frumsamið efni. Hljóm-
sveitin var í sviðsljósinu nýverið
vegna skiptra skoðana um nýja út-
setningu á laginu Ég veit þú kemur.“
Unglingahljómsveitin Kósý er
skipuð fjórum ungum piltum, þeim
Magnúsi Ragnarssyni, Markúsi Þór
Andréssyni, Ragnari Kjartanssyni
og Úlfi Eldjárn.
Hádegisleikhúsið er opið frá kl.
11.30 til 13.30 en dagskráin sjálf
hefst upp úr kl. 12.
BOKMENNTIR
Ljóö og smásaga
FJÖLLIN SÁL OG
ÁSÝND EIGA
Kristján Árnason frá Kistufelli:
Gefið út af höfundi, 1994,121 bls.
HÖFUNDUR þessara ijóða er
orðinn roskinn maður og hefur
ekki áður látið ljóðabók frá sér
fara. Hann er fæddur og uppalinn
í Borgarfirði, en á seirini árum
hefur hann verið búsettur austan-
vert í Skagafirði, út að austan,
og aðallega fengist við smíðar. Á
bókarkápu segir ennfremur að
hann hafi fengist við að yrkja frá
barnæsku. Hann á því eflaust sitt-
hvað meira í fórum sínum.
Ljóð þessi eru öll ort í hefð-
bundnum stíl með stuðlum og höf-
uðstöfum. Persónulega skiptir það
mig engu máli hvort ljóð eru ort
með þeim hætti eða hvort þau eru
rímlaus. Gildi skáldskapar fer ekki
eftir því. Báðar tegundir hafa auk
þess að minni hyggju sínar frum-
reglur sem ekki er farsælt að víkja
mikið frá. Að öðrum kosti er illa
kveðið.
Kristján Árnason kann vel með
að fara þær skáldskaparreglur
sem heyra til hefðbundnum skáld-
skap. Hann er vel skáldmæltur,
eins og eitt sinn hefði verið sagt.
Talsvert oft er það að honum tekst
að hefja sig yfir haglega smíð og
ná ljóðrænni lyftingu. Allmörg eru
þau kvæði í þessari bók þar sem
skáldskaparneistinn kviknar. Eg
nefni Föðurminningu, Flugið
mikla, Á Stálpastöðum, Hálfdan í
Felli, Ferðavés, Gamla bæjarhell-
an, Jón Ósmann og svo síðasta
kvæði bókarinnar, Pegasus, sem
hér má gjarnan koma sem sýnis-
horn:
Skáldfákur vildi skeiða
skriður og brattar hlíðar.
Upp undir Ólympstindinn
ætlaði ég að ríða.
Fjöllunum fagurbláu
færið þið mína kveðju.
Klárinn minn festi fætur
í flatneskju, aur og leðju.
Þetta er víst tilfinning sem mörg
hinna svonefndu alþýðuskálda okk-
ar hafa og hafa oft látið í ljós með
ýmsum hætti. En líkt og mörg
þeirra þarf Kristján Árnason á enga
lund að fyrirverða sig fyrir ferðalag
sitt inn í ijalllendi ljóðlistarinnar.
Þeim sem á annað borð kunna að
meta þann skáldskap sem íslend-
ingar hafa lengstum iðkað hefur
hann talsvert að gefa. Smekkleg
og rétt ort ljóð eru þetta, sem oftar
en hitt búa yfir ljóðrænni fegurð.
Sigurjón Björnsson
Gefðu elskunni þinni filýja gjöf
Jersey kjólar
með 1.000 kr.
k afslætti
fiátícíœrsfzapi
meá fatÍfíg qtemucfu frá o/tfzm
GLERAUGNASALAN • LAUGAVEGI 65 • SÍMI 551 8780
Kórar
y jc;JarJ
í kyftJd fll k
Sr/i@ssu im