Morgunblaðið - 06.01.1996, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ÚRVERINU
FRÉTTIR: EVRÓPA
Loðnan óvenju sunnar-
lega miðað við árstíma
„ÞAÐ E,R að sjálfsögðu rétt þann-
ig lagað að loðnan er óvenju sunn-
arlega miðað við árstíma," segir
Hjálmar Vilhjálmsson, fiskifræð-
ingur hjá Hafrannsóknastofnun-
inni, um frétt Morgunblaðsins af
því að loðna hefði veiðst austan
við Hvalbak í fyrradag.
„Loðnan sem greint er frá er
væntanlega við straummótin út
af Suðausturlandi, þár sem hlý-
Atlantshafið mætir kalda sjónum
að norðan. í byijun janúar er mun
algengara að fyrsti hluti hrygning-
argöngunnar sé einhvers staðar
út af Langanesi.
Þetta hefur þó verið afskaplega
breytilegt í áranna rás, allt frá því
að vera eitthvað í áttina við það
sem nú er og yfir í það að engin
loðna að heita megi hafí verið
komin austur fyrir Hala 10. jan-
úar.“
Hjálmar segir að menn hafi
lent í því að finna fremsta hluta
hrygningargöngunnar á öllu
svæðinu þar á milli: „Það er al-
gengast að hún sé komin á svæð-
ið út af Norðausturlandi og norð-
anverðum Austfjörðum í byrjun
janúar. í haust sem leið var mest-
ur hluti hrygningar- og veiði-
stofnsins út af Norðurlandi og
Vestfjörðum, en talsvert af loðnu
var þá komið á svæðið austur af
Langanesi og reyndar suður á
móts við Glettinganes."
Að sögn Hjálmars er það vænt-
anlega sú loðna sem komin er
suður eftir núna. „Eg er búinn
að gera ráðstafanir til að fá sýni
af henni,“ segir hann. „Mér er
sagt að það sé lítið af hrognum
í henni ennþá og ef það er rétt
heldur hún sig trúlega á þessum
slóðum a.m.k. næstu tvær vikurn-
ar.“
Hann segir að fyrsta hrygning-
argangan komi venjulega inn að
suðausturströndinni um eða upp
úr mánaðamótum janúar/febrúar,
þótt þess séu dæmi að loðna hafi
verið komin á svæðið út af Horna-
firði 16. janúar: „Að öðru leyti er
í sjálfu sér lítið um þetta að segja.
Það verður bara að fylgjast með
framvindu mája. Miðað við rann-
sóknirnar í haust þykir mér trú-
legt að mestur hluti veiðistofnsins
sé norðar og austar en þetta.“
Að lokum segir Hjálmar að ef
þessi tíðindi þýði að menn geti
farið að -veiða loðnu af fullum
krafti næstu daga sé það ánægju-
legt: „Það veitir ekki af tímanum
þar til hrygningu lýkur til að ná
þeim kvóta sem ákveðinn hefur
verið.“
Höfðavík seld til Húsavíkur
UNDIRRITAÐUR hefur verið
samningur um kaup Langaness hf.
á Húsavík á skipinu Höfðavík
AK-200 frá Krossvík hf. á Akra-
nesi. Kaupverð fæst ekki uppgefíð,
en samkvæmt samningnum á skip-
ið að afhendast 15. mars.
„Skipið var ekki selt með afla-
heimildum," segir Bjami Aðalgeirs-
son, útgerðarstjóri Langaness hf.
„Við ætlum að setja aflaheimildir
sem við erum með á tveimur bátum
okkar, Björgu Jónsdóttur og
Björgu Jónsdóttir II, á Höfðavík. I
framhaldi af því ætlum við að selja
bátana.“ Hann segir að þetta komi
líklega til með að þýða einhveija
fækkun starfa hjá útgerðinni.
„Skipið var byggt á Akureyri
árið 1978 sem fjölveiðiskip, hét þá
Óskar Magnússon, en hefur alltaf
verið notað sem skuttogari,“ segir
Bjami. „Við ætlum okkur að breyta
því þannig að það verði jafnframt
nótaveiðiskip og gera það út á
loðnu, síld og rækju. Það em nokk-
uð miklar breytingar, á lestum og
búnaði skipsins."
Hann segir að kaupsamningur-
inn hafí verið undirritaður með
ýmsum fyrirvörum: „Það er m.a.
um veðflutninga og lánastofnanir
eins og gengur og gerist í svona
samningum.“ Annars segir hann
að afkoma Langaness hf. verið all-
góð í fyrra: „Loðnan var dálítið
brellin eins og fyrri daginn, en
bátamir skiluðu þokkalegum afla
á land.“
Gifstrefjaplötur til notkunar á veqqi, loft oq qólf
í p j l J * ELDTRAUSTAR * HLJÓÐEINANGRANDI * MJÖG G0TT SKRÚFUHALD * UMHVEFISVÆNAR PLÖTUR VIÐURKENNDAR AF BRUNAMÁLASTOFNUN RÍKISINS Þ. Þ0RGRÍMSS0N & C0 Ármúla 29 • Reykjavík • Sími 553 8640
/
BALLETT SKOLI
Skúlatúni 4
Kennsla hefst á ný laugardaginn 13. janúar.
Byrjenda- og framhaldshópar frá 4ra ára.
Innritun og upplýsingar í síma 553 8360:
Endurnýjun og aíhending skírteina í skólanum
fimmtudaginn 11. janúar frá kl. 16.00 til 18.00.
Meðlimir í Félagi íslenskra listdansara.
Fyrrverandi forsætisráðherra Frakklands
Efast um að
Frakkar uppfylli
EMU-skilyrði
París. Reuter.
LAURENT - Fabius,
fyrrverandi forsætis-
ráðherra Frakklands,
segist í grein í dagblað-
inu Le Monde á
fimmtudag telja að
Frakkar muni ekki upp-
fylla skilyrði Maast-
richt-sáttmálans fyrir
þátttöku í efnahagsleg-
um- og peningalegum
samrana Evrópuríkja
(EMU) fyrir árið 1999.
í greininni, sem bar
yfirskriftina, „Beiðni
um Evró-raunsæi“,
spáir Fabius, sem nú
er leiðtogi sósíalista á franska þing-
inu, því að slakað verði á kröfunum
tii að peningalegi samraninn geti
átt sér stað engu að síður.
Hann segir hina ströngu túlkun
á Maastricht og takmarkanir á fjár-
lagahalla, opinbeiri skuldsetningu,
verðbólgu og gengissveiflum valda
því að sífellt fleiri Frakkar snúist
gegn Evrópusambandinu.
„Það er mjög líklegt að núverandi
ríkisstjórn takist ekki að uppfylla
skilyrðin. Ég veðja á að þegar að
því kemur muni túlkunin á skilyrð-
unum verða sveigjanlegri en nú er
rætt um,“ segir Fabius.
Sósíalistar vora í ríkisstjóm þegar
samið var um Maastricht-sáttmál-
ann en margir forystumanna flokks-
ins hafa látið í ljós efasemdir um
ágæti hans eftir að flokkurinn lenti
í stjórnarandstöðu árið
1993. Hafa þeir eink-
um gagnrýnt þann
niðurskurð á félags-
lega kerfinu sem að-
haldsaðgerðimar
kreíjast.
Vill evrópska
ríkisstjórn
Fabius segist vera
þeirrar skoðunar að
tengja verði hina sam-
eiginlegu mynt þeim
gjaldmiðlum sem ekki
taka þátt í EMU frá
upphafí til að koma í
veg fyrir að ríkisstjórnir beiti gengis-
fellingum til að bæta samkeppnis-
stöðu sína. Slíkt gæti leitt til efna-
hagslegs öngþveitis.
Þá segir hann að æskilegt sé að
lýðræðislega kjörin eining, „raun-
veraleg efnhagsleg ríkisstjórn“, sjái
um að móta efnahagsstefnu aðild-
arríkjanna í stað þess að fela evr-
ópskum seðlabanka, er ekki hafí
neitt umboð frá almenningi, það
hlutverk.
„Við stjórn hinnar sameiginlegu
myntar verður að taka tillit til mikil-
vægi atvinnu. Annars springur allt
í loft upp,“ segir forsætisráðherrann
fyrrverandi. Hann telur að Frakkar
eigi að samþykkja kröfur Þjóðverja
um aukin pólitískan samrana gegn
því að þeir fallist á þessi skilyrði
fyrir sameiginlegri mynt.
Aðildarumsókn Tékk-
lands í mánuðinum
• TÉKKNESKA stjórnin hef-
ur greint frá því að Vaclav
Havel, forseti Tékklands, muni
hinn 22. janúar næstkomandi
afhenda ítölsku ríkisstjórninni,
sem fer með formennsku í ráð-
herraráði Evrópusambands-
ins, umsókn lands síns um að-
ild að sambandinu.
• Könnunarviðræður við Sló-
veníu um aukaaðild landsins
að ESB hafa siglt í strand eft-
ir að Ítalía tók við formennsku
í ráðherraráðinu. Ítalía, sem
missti landsvæði til Slóveníu í
stríðslok, vill að ítalskir fyrr-
verandi íbúar landsins fái af-
hentar eignir sínar á ný.
• ESBhefursettáfótupplýs-
ingaskrifstofu, sem mun sjá
um að veita Austur-Evrópu-
ríkjum, sem sótt hafa um aðild
að sambandinu, tæknilega að-
stoð. Þetta á að hraða vinnu
ríkjanna við að uppfylla skil-
yrði „hvítbókar“ um aðgerðir
í efnahags- og stjórnmálum
sem framkvæma verður áður
en til aðildar getur komið.
ESA og vörugjald á ísiandi
Kæra til dómstóls
innan tveggja vikna
EFTIRLITSSTOFNUN EFTA
(ESA) mun senda EFTA-dómstóln-
um kæru vegna álagningar og inn-
heimtu vörugjalds á íslandi innan
tveggja vikna, að sögn Hákans
Berglin, blaðafulltrúa stofnunarinn-
ar.
Berglin segir að stofnunin eigi
enn eftir að fá í hendur þýðingu á
nokkrum íslenzkum lagatextum
sem verði fylgiskjöl kærannar og
þeir séu það eina, sem beðið sé eft-
ir, að öðru leyti sé kæran tilbúin.
Hann segir að kæran verði send
dómstólnum eftir tvær vikur í sein-
asta lagi þótt þýðingarnar verði
ekki tilbúnar; þær verði þá sendar
eftir á.
Berglin segir að ESA hafi ekki
fengið neina tilkynningu frá ís-
lenzkum stjórnvöldum um að búið
sé að gera ráðstafanir til að lag-
færa þau atriði í álagninu og inn-
heimtu vörugjalds, sem stofnunin
telur brjóta samninginn um Evr-
ópskt efnahagssvæði.
Vonazt eftir niðurstöðu
nefndar í næstu viku
Friðrik Sophusson fjármálaráð-
herra hefur hins vegar sagt að
stefnt sé að því að nefnd fjármála-
ráðuneytisins, með þátttöku kaup-
manna og iðnrekenda, sem á að
gera tillögur um breytingar á vöru-
gjaldinu, skili tillögum í þessum
mánuði. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins liggur niðurstaða
nefndarinnar ekki fyrir en hennar
er þó vænzt í næstu viku.