Morgunblaðið - 06.01.1996, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 06.01.1996, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ GREINARGERÐ LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 1996 37 öðrum kosti eru þeir hrein mark- leysa. Ég tel víst að Morgunblaðið muni vilja ljá SÍT vettvang til að upplýsa þessi atriði. 40% vegna tjóna á munum! Enn er eitt þýðingarmikið atriði í öllum þessum málflutningi trygg- ingafélaganna sem mikla tortryggni vekur. Þau segja, og á því byggir Bjarni Guðmundsson, að í lögboðn- um bifreiðatryggingum hafi um 60% tjónabóta verið vegna líkamstjóna en 40% vegna munatjóna (skemmda á bifreiðum o.fl.). Þetta eru hlutföll sem munu hafa verið reiknuð út fyrir gildistöku skaðabótalaga, þeg- ar heildarbætur fyrir líkamstjón voru án nokkurs vafa miklu hærri en þær urðu eftir gildistökuna. Hvers vegna notast félögin í málflutningi sínum við þetta hlutfall? Þetta er m.a.s. gert við munatjónin á síðari hluta árs 1993, sem hljóta einfaldlega að liggja ljós fyrir í krónutölu. Getur það verið að þessari undarlegu að- ferð sé beitt til að fá út hærri tjóna- kostnað? Spyr sá sem ekki veit en þykist þó vita! Einhliða samantekt hagsmunaaðila Það eru reyndar tvö meginatriði sem menn verða að hafa í huga í allri þessari umfjöllun um umsögn SÍT til Alþingis. I fyrsta lagi er þar um að ræða einhliða samantektir og útreikninga sem gerðir eru á vegum hagsmunaaðila, sem beijast með kjafti og klóm við að koma í veg fyrir úrbæturnar á skaða- bótareglunum. Og gögnin og for- sendurnar fyrir útreikningunum fá engir aðrir en þeir að sjá. Ég hef sjálfur óskað eftir að fá aðgang að gögnunum en ekki fengið. í raun og veru eru skýrslur málsaðila, sem unnar eru með þessum hætti, afar lítils virði fyrir þann sem taka þarf málefnalega og hlutlausa afstöðu til þess málefnis sem til meðferðar er, nema þá að því leyti sem úr slíkum skýrslum er unnt að lesa upplýs- ingar, sem ganga gegn þeim hags- munum sem skýrslugerðarmenn vilja veija. „Sönnunargildi" saman- tektar SÍT er því svipað og sönnun- argildi skýrslu málsaðila í dómsmáli samkvæmt réttarfarslögum. í at- hugun Bjarna Guðmundssonar er byggt á fleiri forsendum en þeim sem nefndar hafa verið hér að framan, sem fróðlegt væri að fá að vita hvernig eru fundnar. T.d. er stað- hæft, og á því byggt í útreikningum, að tjón á fyrri hluta árs muni að jafnaði „yflr 20% hærri en tjón á síðari hluta árs“. Bjarni er að skoða tjón á síðari hluta árs (1993) og notar því þessa forsendu til að reikna með 20% hærri kostnaði (líklega 20% fleiri líkamstjónum) á fyrri hluta árs en hinum síðari. Það kemur manni mjög undarlega fyrir sjónir, svo ekki sé meira sagt, að líkamstjón í um- ferðinni skuli að jafnaði vera 20% fleiri á árshelmingnum janúar-júní heldur en júlí- desember. Fróðlegt væri að vita á hvaða könnunum þetta er byggt. Engar upplýsingar fylgja um það. Einnig má nefna forsenduna í athugun Bjarna um meðalkostnað á tjón í þeim málum, sem ekki er lokið. Áður hefur verið fjallað um meðalkostnaðinn 1 milljón króna í málunum 587. En þetta á líka við um meðalkostnaðinn 1,7 milljónir króna í þeim 215 tjónum, sem „svo langt voru komin í vinnslu að starfs- menn tjónadeilda töldu sér fært að áætla greiðslur". Hagsmunir vá- tryggingafélaganna af samantekt Bjarna Guðmundssonar ganga út á að gera þennan kostnað sem mest- an. Menn geta spurt sjálfa sig í hvora áttina vafaatriði hafi verið metin við þessar aðstæður. Til þess að slíkar áætlanir verði fyllilega marktækar þurfa þær að vera gerð- ar _af hlutlausum aðila. í öðru lagi skipta hugleiðingar vátryggingafélaga um fjárhæð ið- gjalda í bílatryggingum engu máli fyrir efnisreglur skaðabótaréttar. Með þeim reglum viljum við tryggja svo sem unnt er það meginmarkmið í skaðabótarétti að tjónþolar fái að fullu bætt fjártjón sitt. Þeir menn sem andmæla slíkum lagareglum með þeirri röksemd að fjárhæð ið- gjalda í einhverri grein vátrygginga verði of há, eru í reynd að halda því fram að tjónþolar eigi að láta af hendi hluta af fullum fjártjónsbótum sínum til að niðurgreiða iðgjöld í þeirri vátryggingagrein. Fyrir því fínnast engin rök. Vilja halda áfram uppsöfnun fjár Þegar menn skoða þetta mál er í sjálfu sér alveg nóg að horfa á þá gríðarlegu uppsöfnun fjár sem und- anfarin ár hefur átt sér stað í bóta- sjóðum vátryggingafélaganna. Þar birtist vafningalaus niðurstaða af því að hafa látið bifreiðaeigendur greiða miklu hærri iðgjöld en þarf til að standa undir tjónakostnaðin- um. Þær umræður sem nú fara fram um umsögn SÍT til allsheijarnefndar Alþingis snúast efnislega aðeins um, hvaða aðferðum félögin hafi beitt við þessa uppsöfnun. Umsögnin var líklega send í þeirri von, að menn færu ekki um of að athuga forsend- ur hennar. Henni var ætlað að styðja fullyrðingar um þörf fyrir 30% hækkun iðgjalda í bifreiðatrygging- um. Það var sá áróður sem félögin töldu að best myndi duga gagnvart löggjafanum til að koma í veg fyrir lögleiðingu nauðsynlegra og vand- lega rökstuddra réttarbóta til handa því fólki sem missir starfsorku sína í slysum og á rétt til þess að fá tjón sitt bætt úr hendi bótaskylds aðiia. Það má vera rétt að félögin þurfi þessa hækkun til að geta haldið áfram að raka saman fé með þeim hætti sem þau hafa gert undanfarin ár. Alþingismenn telja varla þörf á að láta þessa hagsmuni hamla lög- leiðingu réttarbótanna. Reiði forstjórans Daginn eftir birtingu greinar Bjarna Guðmundssonar hér í blaðinu eða þann 29. desember s.l. birtist svo grein eftir Axel Gíslason forstjóra VÍS hf og formann SÍT. Forstjórinn er reiður og sakar mig um dylgjur og vanþekkingu. Að vísu nefnir hann aldrei nafn mitt, þó að tilefni skrif- anna sé grein mín frá 19. desember s.l. en kallar mig þess í stað ýmist lögmanninn eða hæstaréttarlög- manninn. Þetta er áreiðanlega djúp- hugsað snillibragð hjá forstjóranum. Grein Axels eykur engu við efni þessa máls. Raunar misskilur hann að hluta til tölur Bjama Guðmunds- sonar um fjölda tjóna á síðari hluta árs 1993. Telur hann uppgerðu mál- in og þau sem tjónakostnaður er áætlaður í vera samtals 459 talsins í stað 334 (119+215). Það ernú frek- ar óheppilegt fyrir forstjórann að hann skuli ekki þekkja eigin umsögn betur en þetta. Allavega bendir það ekki til þess að hann hafi mikinn skilning á því sem hann fjallar um. Hann lætur svo í ljós áhyggjur af því að málflutningur minn fyrir dóm- stólum og reyndar málflutningur þar almennt muni vera bágborinn. Dreg- ur hann þessa ályktun af skrifum mínum. Þetta sérkennilega útspil á sér líklega skýringu í gremju for- stjórans yfir dómsúrlausnum í fjöl- mörgum dómsmálum út af tjónabót- um á síðustu misserum. Ég get glatt hann með því, að málflutningur af hálfu VÍS hf í þeim hefur verið til fyrirmyndar. Það félag teflir fram afburða góðum málflytjanda, þó að það hafi ekki dugað til mikils árang- urs til varnar þeim dapra málstað sem forstjórinn og kollegar hans hjá öðrum vátryggingafélögum gerðu að sínum, þegar þeir tóku að neita fólki um eðlilega bótasamninga haustið 1991. Þar er ekki málflytjandanum um að kenna. Látum þetta allt vera. Hitt undrast ég ekki, að maðurinn skuli hafa reiðst við að birtar skyldu opinberlega rökstuddar athugasemd- ir við þá aðferð, sem vátryggingafé- lögin hafa á undanförnum árum haft á því að safna fjárfúlgum úr vasa viðskiptavina sinna, án þess að hafa einu sinni þurft að greiða skatta af. Auðvitað vill hann geta haldið áfram sama leiknum í félagi við vini sína hjá aðalkeppinautnum Sjóvá- Almennum tryggingum hf. Forstjór- inn finnur að sjálfsögðu til vanmátt- ar við að veija framgöngu þeirra félaga. Reiðin er afsprengi vanmátt- arkenndarinnar. Og menn hafa reiðst af minna tilefni en þessu. Höfundur er hæstHréttarlögmað- ur. Leikfimi Tækjasalur Kjörþyngdarnámskeið Leikfimi og líðkun -hádegis - síðdegis- og kvöldtímar Heitur pottur konur með böm á brjósti barnshafandi Máttur kvenna - Skipholti 50a Sími 581 4522 Máttur Faxafeni 14* Sími 568 9915* Fax 588 9297 Sérsníðín heilsurækt fyrir konur: Máttarkortin gilda bæðí í Skípholti og Faxafeni Eitt blab fyrir alla! - kjarni málsins!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.