Morgunblaðið - 06.01.1996, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 06.01.1996, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR Skattar lækka RÍKISFJÁRMÁL hafa verið í brenni- depli efnahagsum- ræðunnar að undan- förnu. Þetta er eðli- legt með hliðsjón af þeim vandamálum sem þar hefur verið við að etja, einkum þrálátum hallarekstri og óæskilegum áhrif- um hans á vexti, hag- vöxt og atvinnustig. Miklir erfiðleikar í þjóðarbúskapnum mörg undanfarin ár hafa kallað á marg- víslegar aðgerðir af hálfu stjómvalda, jafnt skatta- lækkanir sem aukin útgjöld, til þess að greiða fyrir kjarasamning- um og treysta stöðugleika í efna- hagsmálum. Þótt þessar aðgerðir hafí kostað meiri halla á ríkissjóði en ella hefði orðið var það talið réttlætanlegt miðað við aðstæður. Nú þegar rofað hefur til í efna- hagsmálum er hins vegar brýnt að ná jafnvægi í rekstri ríkissjóðs sem fyrst. Það er besta leiðin til að tryggja áframhaldandi stöð- ugleika í efnahagsmálum, efla hagvöxt og auka atvinnu í land- inu. Um þetta er ekki deilt lengur. Þetta er rifjað upp meðal ann- ars í tilefni af grein Kristjáns J. Gunnarssonar, fyrrverandi fræðslustjóra, í Morgunblaðinu miðvikudaginn 3. janúar sl. Krist- ján er afar glöggur maður, en í grein hans gætir samt nokkurrar óná- kvæmni og á köflum misskilnings í umfjöll- un um breytingar á skattamálum að undanförnu. Ég vil sérstaklega taka fyrir þijú atriði: Skattfrelsi lífeyrisgreiðslna Haustið 1994 voru miklar umræður um meinta tvísköttun líf- eyrisgreiðslna. For- sagan er sú að frá og með árinu 1988 var fellt niður skattfrelsi lífeyrisiðgjalda launþega, en áður hafði verið heimilt að draga iðgjal- dagreiðslu launafólks í lífeyrissjóði frá tekjuskatti. Þar sem greiðslur úr lífeyrissjóðum eru skattskyldar gat þetta leitt til tvísköttunar að því marki sem heildartekjur lífeyr- isþega voru yfir skattleysismörk. Hér er þó rétt að hafa í huga að þetta átti einungis við um þá ein- staklinga sem greiddu í lífeyris- sjóði frá árinu 1988. Til að koma til móts við þessi sjónarmið ákvað þáverandi ríkis- stjórn að fara þá leið að undan- þiggja tiltekinn hluta lífeyris- greiðslna tekjuskatti, eða sem svaraði til framlags launafólks í lífeyrissjóði. Samkvæmt útreikn- ingum sérfræðinga jafngilti þetta 15% af útborguðum lífeyri. Með Það er því misskilning- ur, segir Friðrik Soph- usson, að lífeyris- greiðslur hafí verið skertar nú um áramótin og þaðan af síður að ríkissjóður hafi haft af því einn milljarð í tekjuauka. þessari útfærslu var þannig haldið áfram að skattleggja lífeyrisið- gjald launþega eins og verið hafði frá árinu 1988, en ígildi þess við greiðslu lífeyrisins var undanþegið skatti. Þessi útfærsla sætti mikilli gagnrýni af hálfu ýmissa laun- þegasamtaka, einkum ASÍ, sem töldu eðlilegra að fara hina leið- ina, þ.e. að undanþiggja lífeyrisið- gjaldið, en skattleggja að fullu greiðslur úr lífeyrissjóðum. Þetta mál varð síðan eitt helsta atriði í kröfugerð ASÍ gagnvart stjórn- völdum við gerð kjarasamninga í febrúar 1995. Niðurstaðan varð sú að ríkisstjórnin féllst á að fara þá leið að undanþiggja lífeyrisið- gjöld tekjuskatti, enda ljóst að ekki tækjust kjarasamningar sem tryggðu áframhaldandi stöðug- leika í efnahagslífinu að öðrum Friðrik Sophusson Skatttekjur ríkissjóðs sem hlutfall af vergri landsframleiðslu 1986 1987 1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 kosti. Var ákveðið að þessi breyt- ing kæmi til framkvæmda í þrem- ur áföngum á árunum 1995-1997. Undir lok ársins féllst ríkisstjórnin á ósk ASÍ um að flýta gildistöku þessara áfanga þannig að breyt- ingin kæmi að fullu fram á árinu 1996. í ljósi þessara ákvarðana voru ekki lengur forsendur fyrir skattfrelsi hluta (15%) lífeyris- greiðslnanna og var ákveðið að fella það niður á árinu 1996. Lífeyrisgreiðslur hækka í takt við laun í grein Kristjáns gætir nokkurs misskilnings hvað varðar breyting- ar á lífeyrisgreiðslum nú um ára- mótin. Eins og hann hefur væntan- lega orðið var við, líkt og aðrir lífeyrisþegar, hækkuðu almennar grunnfjárhæðir lífeyrisbóta um 3,5% nú um áramótin. Þetta er fyllilega í takt við almenna hækk- un launa frá sama tíma líkt og verið hefur. Það er því misskilning- ur að lífeyrisgreiðslur hafi verið skertar nú um áramótin og þaðan af síður að ríkissjóður hafi haft af því einn milljarð í tekjuauka. Breytingin sem gerð var um áramótin fólst í því að framvegis mun Alþingi taka ákvörðun um breytingar á h'feyrisbótum, vænt- anlega í tengslum við fjárlagagerð hveiju sinni, í stað þess að þær séu framreiknaðar með launavísi- tölu. Þessi ákvörðun er hluti af stærra máli þar sem Alþingi hefur nú samþykkt að hverfa frá sjálf- virkum framreikningi ýmissa fjár- hæða samkvæmt einhveijum verð- vísitölum. Þetta voru leifar gam- alla verðbólgutíma sem ekki eru lengur rök fyrir. Ég vek sérstaka athygli á því að þetta gildir ekki einungis um bætur ýmiss konar heldur einnig um ýmsa skatta og gjöld sem áður hækkuðu sjálfkrafa í takt við vísitölur. Ákveðið var að fella út vísitöluviðmiðunina og jafnframt að halda fjárhæðunum Ódýr raforka til Reykjavíkur? IÐNAÐARRÁÐHERRA hefur ákveðið að hefja heildarendurskoðun á löggjöf um vinnslu, flutning og dreifingu orku. Meginmarkmið end- urskoðunarinnar á að vera að auka skilvirkni og samkeppni en þó þann- ig að hún stuðli að jöfnun orku- verðs. Sérstök ráðgjafanefnd verður sett á laggirnar vegna þessa verk- efnis og hefur m.a. Akureyrarbæ og Reykjavíkurborg verið boðin þátt- taka í því starfi. Þessi ákvörðun kemur kannski ekki á óvart í ljósi umræðna um orkumál að undanförnu, þ.e. um- ræðu um álver og forgangsröðun virkjana. Það er þó athyglivert að endurskoðun löggjafarinnar á að leiða til aukinnar samkeppni og að þeim svetarfélögum sem eiga hlut í Landsvirkjun er sérstaklega boðið að taka þátt í þessu starfi. Ódýrari raforka Einn af virkjunarkostum Lands- virkjunar sem nú er í athugun er Nesjavallavirkjun. Eins og flesturn er kunnugt hafa átt sér stað umræð- ur að undanförnu á milli Landsvirkj- unar og Reykjavíkurborgar vegna þeirra virkjunar í tengslum við Col- umbía álverið svokallaða. Við stækk- un ísal liggur fyrir að öll umfram- orka í raforkukerfi Landsvirkjunar fullnýtist og því þarf að ráðast í nýjar orkuöflunarframkvæmdir. Margir hafa látið í ljós þá skoðun sína á undanförnum árum að Reykjavíkurborg eigi sjálf að virkja Nesjavelli og selja raforkuna beint til Rafmagnsveitu Reykjavíkur en ekki til Landsvirkjunar og lækka þannig raforkuverð til Reykvíkinga. Síðast skrifaði Ólafur G. Flóvens, jarðeðlisfræðingur, ágæta grein um þetta efni í Morgunblaðið þann 1. desember sl. Þar rakti hann m.a. að líklega væri hægt að lækka raforku- kostnað Reykvíkinga um 700 til 1.000 milljónir á ári með framleiðslu raforku á Nesjavöllum. Sá útreikn- ingur byggist á því að hægt sé að framleiða um 500 GWst (gígawatt- stundir) af raforku á ári á Nesjavöll- um og að raforkuverðið verði ekki hærra en sem nemur 1,50 kr/kWst. í dag kaupir Rafmagnsveita Reykjavíkur um 660 GWst á ári af Lands- virkjun og greiðir fyrir það u.þ.b. 3,00 kr/kWst eða rúmlega 1.940 milljónir króna á ári. Afkastageta Nesja- vallarvirkjunar er talin um 480 GWst á ári. Af mati sérfræðinga má ráða að hægt er að framleiða um 360 GWst á ári með tiltölu- lega lítilli viðbótar gufunotkun en til að ná afkastagetunni í 480 GWst þarf verulega aukna gufunotkun. Af þessu má ljóst vera að hér er um gríðarlegt hagsmunamál fyrir Reykvíkinga að ræða og eins gott að rétt verði staðið að málum þann- ig að þetta tækifæri gangi ekki okk- ur úr greipum, sérstaklega þar sem iðnaðarráðherra hefur nú þegar lýst yfír vilja sínum til þess að opna fyr- ir möguleika á samkeppni í orku- vinnslu. Breyta þarf orkulögum Rétt er að hafa í huga að Reykvík- ingar hefja ekki raforkuvinnslu á Nesjavöllum til eigin nota án þess að lögum verði breytt. í lögum um raforkuver o.fl. er iðnaðarráðherra veitt heimild til þess að veita Hita- veitu Reykjavíkur leyfi til raforku- vinnslu á Nesjavöilum með því skil- yrði að fyrir liggi samningur um rekstur virkjunarinnar sem hluta af raforkukerfí landsins, eins og það er orðað í lÖgunum. Skilyrði borgarinnar Borgarstjórn Reykjavíkur þarf að tryggja tvennt til þess að hægt sé að ljá máls á því áð hafin verði raf- orkuvinnsla á Nesjavöllum. í fyrsta lagi þarf að tryggja að sú ódýra raforka sem hægt er að framleiða á Nesjavöllum gangi ekki of nærri varmaforðan- um. í því sambandi er rétt að hafa í huga kenningar eða álit jarð- hitafræðinga um að jarðvarminn sé ekki óþijótandi orkulind eins og áður var talið. í öðru lagi þarf að tryggja raf- orkunotendum á orku- veitusvæði Rafmagns- veitu Reykjavíkur lægra orkuverð og eig- anda virkjunarinnar, Hitaveitu Reykjavíkur og Reykjavíkurborg, eðlilegan arð í framtíð- inni. Ef Reykjavíkurborg einblínir á þann kost að hefja eigin raforku- vinnslu á Nesjavöllum án þess að annað komi til er hætt við því að slíkt verði ekki þolað af samkeppnis- aðilunum. Skal þetta skýrt nánar. Ef Reykjavíkurborg hefur raforku- vinnslu í eigin þágu og þarf ekki lengur að kaupa 500 GWst af raf- orku árlega af Landsvirkjun, en heildarraforkusala Landsvirkjunar árið 1994 nam 4.250 GWst, gæti það haft í för með sér hugsanlega hækkun á raforkuverði til annarra. Við það fengi umræða um orkujöfn- unargjald eða sérstakan orkuskatt á Reykvíkinga án efa að nýju byr undir báða vængi og það þrátt fyrir þá augljósu staðreynd að með eigin raforkuvinnslu á Nesjavöllum eru Reykvíkingar að njóta þeirrar fyrir- hyggju sem sýnd var er Nesjavellir voru keyptir á sínum tíma. Það hlýtur jafnframt að vera ó- skynsamlegt fyrir Reykjavíkurborg að eiga 45% eignarhlut í Landsvirkjun ef borgin þarf ekki að kaupa af fyrir- tækinu nema brot af þeirri orku sem orkunotendur á Reykjavíkursvæðinu nota árlega að því gefnu að arður af fyrirtækinu verði svipaður á næstu árum og hann hefur verið að undan- fömu. Slík staða gerði fjárfestingu Reykjavíkur í Landsvirkjun illþolan- lega út frá arðsemissjónarmiðum. Af þessu má ljóst vera að hér er um gríðarlegt hagsmunamál fyrir Reykvíkinga að ræða, segir Gunnar Jóhann Birgisson, og eins gott að rétt verði staðið að málum. Tveir kostir Af framansögðu og að því gefnu að raforkuvinnsla á Nesjavöllum skili um 480-500 GWst á ári tel ég að kostir Reykvíkinga í stöðunni séu einkum tveir. Annaðhvort selur Reykjavík (Hitaveita eða Rafmagns- veita Reykjavíkur) Landsvirkjun alla raforku sem hægt er að framleiða á Nesjavöllum, fyrir utan þá raforku er varmaverið þarf sjálft, á það hag- stæðu verði að arður af framleiðsl- unni verði ásættanlegur fyrir Reyk- víkinga eða Reykjavíkurborg fram- leiðir rafmagn til eigin nota og Landsvirkjun verði jafnframt skipt upp á milli eigenda. Ef raforkuverð verður byggt upp á Nesjavöllum til þess að selja raf- orku eingöngu inn á raforkukerfi landsins eða til Landsvirkjunar, eins og nú er í umræðunni, verður orku- salan að skila Reykvíkingum ásætt- anlegum arði þannig að Reykvíking- ar geti þá, í stað þess að framleiða ódýra orku til eigin nota, nýtt arðinn til þess að greiða niður eigin raforku- reikninga og þannig notið þeirrar fyrirhyggju sem kaupin á Nesjavöll- um voru á sínum tíma. Ef arðurinn er ekki ásættanlegur er engin ástæða til þess að hefja raforku- vinnslu í stórum stíl á Nesjavöllum enda hafa ýmsir lýst þeirri skoðun sinni að þar sem jarðvarminn sé ekki óþijótandi orkulind eigi ekki að nýta hann til raforkuframleiðslu Gunnar Jóhann Birgisson fyrir stóriðju. Hér togast á hagsmun- ir Reykjavíkur og hagsmunir Lands- virkjunar; hagsmunir Reykvíkinga sem eiganda orkulinda og hagsmun- ir Reykvíkinga sem eins eiganda Landsvirkjunar. Hinn kosturinn sem ég nefndi, þ.e. að Reykvíkingar framleiði raf- orku á Nesjavöllum til eigin nota er eins og áður sagði að mínu mati aðeins fyrsta skrefíð í þá átt að Landsvirkjun verði skipt upp á milli eignaraðila. Mörgum kann að finnast sú hugsun fráleit og kannski er hún það en engu að síður verða menn að skoða þann kost ef á annað borð er vilji til þess að heíja eigin raforkuvinnslu með það fyrir augum að geta í framtíðinni lækkað orku- reikninga Reykvíkinga um hundruð milljóna króna. Ég hef áður lýst því hvers vegna ég tel óráðlegt að gera ráð fyrir því að Reykvíkjngar hefji eig- in orkuvinnslu á Nesjavöllum án þess að skrefið sé stigið til fulls og Lands- virkjun skipt upp á milli eignaraðila. Ef hins vegar möguleiki væri á því að Reykvíkingar gætu framleitt raforku á Nesjavöllum til eigin nota án afskipta ríkisvaldsins og jafn- framt fengið ásættanlegan arð af eignarhlut sínum í Landsvirkjun eru hugmyndir af því tagi sem hér eru ræddar óþarfar. Hvað vill ráðherrann? í upphafi vísaði ég til þess að iðn- aðarráðherra hefði tekið ákvörðun um að endurskoða lög um orkumál m.a. með það fyrir augum að koma á samkeppni í orkuvinnslu. Þetta eru stórtíðindi og einnig sú staðreynd að Reykjavíkurborg og Akur- eyrarbæ hefur verið boðið að taka þátt í þeirri endurskoðun einum sveitarfélaga. Ástæðan hlýtur að vera sú að Akureyri og Reykjavíkur- borg eru einu sveitarfélögin sem eiga hlut! Landsvirkjun. Hver er ástæðan og hveiju á endurskoðunin á lögun- um að skila ef á annað borð er vilji til þess að koma á samkeppni í orku- vinnslu? Er ráðherrann kannski að hugleiða að breyta skpulagi Lands- virkjunar eða jafnvel að skipta fyrir- tækinu upp? Því getur hann einn svarað og því þarf hann að svara þar sem samkeppni raforkuvinnslu kallar á gjörbreytt skipulag. Hitt er
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.