Morgunblaðið - 06.01.1996, Page 20
20 LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 1996
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Frelsun franskra
flugmanna í Bosníu
Clinton
þakkað en
ekki Chirac
París. Reuter.
NEFND, skipuð vinum tveggja
franskra orrustuflugmanna sem
skotnir voru niður yfír iandi Bosníu-
Serba, þakkaði á föstudag Bill Clinton
Bandaríkjaforseta fyrir þátt hans í
frelsun þeirra. Ekki var minnst á af-
skipti Jacques Chirac Frakklandsfor-
seta.
Chirac sendi menn til að reyna að
fá mennina tvo leysta úr haldi. Tals-
maður nefndarinnar sagði þó að ekki
hefði verið um vísvitandi ofanígjöf.
„Frönsk stjómvöld sinntu sínu starfí,
eins og eðlilegt var,“ sagði talsmaður-
inn, Francois Lamboley. Flugmenn-
imir tóku þátt í loftárásum Atlants-
hafsbandalagsins og voru skotnir nið-
ur í lok ágúst í grennd við höfuðstað
Bosníu-Serba, Pale. Þeir voru í haldi
í 104 daga og hlutu illa meðferð.
í þakkaryfírlýsingu var Clinton
sagður hafa gegnt „einstæðu hlut-
verki“ í málinu. Einnig var frönskum
dagblöðum þakkað og minnst á að
borist hefðu um 600.000 stuðningsyf-
irlýsinge • meðan mennimir vom enn
í haldi.
----♦ ♦ ♦------
Lottóæði í
Bretlandi
London. Reuter.
VONIN um 35 milljóna punda lottó-
vinning, jafnvirði 3,5 milljarða króna,
dró flölda útlendinga til Bretlands í
gær.
Dregið verður í breska lottóinu í
kvöld og sögðu formælendur þess að
vegna gifurlegrar miðasölu í gær og
straum útlendinga til landsins til
miðakaupa í gær gæti fyrsti vinning-
ur reyndar orðið hærri. Fyrsti vinn-
ingur gekk ekki út í síðustu tvö skipti
og því er hann svo hár nú. Áður hef-
ur fýrsti vinningur hæstur orðið 22,5
milljónir punda.
Makalausar mennta-
konur í karlaleit
Singapore. The Daily Telegraph. ,
Ungum háskólamenntuðum framakonum
í Austur-Asíu hefur gengið afieitlega
að fínna sér maka, Um tuttugu einhleypir
karlar og konur í makaleit, hafa tekist
á hendur helgarsiglingu í von um að
kynnast fólki með giftingu í huga,
og skemmta sér dálítið í leiðinni.
I AUSTUR-Asíu hefur ungum
framakonum með háskólapróf og
há laun íjölgað mjög. Þeim hefur
hins vegar gengið afleitlega að
finna sér maka. Þær segja karl-
mennina forðast konur sem þeir
telji of dijúgar með sig. í austur-
lensku samfélagi, þar sem fjöl-
skyldan skiptir mestu máli, telst
það víða skömm fyrir eiginmann
að hafa lægri laun en eiginkonan.
Um tuttugu einhleypir karlar
og konur í makaleit, hafa tekist á
hendur helgarsiglingu í von um
að kynnast fólki með giftingu í
huga, og skemmta sér dálítið í
leiðinni.
Madeline er 28 ára fram-
kvæmdastjóri útvarpsstöðvar,
lærði í Bandaríkjunum og eyðir fé
og frítíma í dýrum og glæsilegum
verslanamiðstöðvum. Hún segir
karlmenn hafa áhyggjur af því að
hún sé of fáguð fyrir þá. Rose-
mary, 31 árs, hefur náð góðum
árangri í starfi sínu sem markaðs-
fræðingur. Hún segist engu að síð-
ur reiðubúin að gerast undirgefin
eiginkona en að karlmennirnir í
Singapore gefi sér enga möguleika
á að sanna það.
Kee Chuan, 29 ára vísindamað-
ur með doktorsgráðu frá Oxford,
býr heima hjá foreldrum sínum og
hefur aldrei átt í alvarlegu ástar-
sambandi. „Ég er hreinn sveinn
og finnst ekkert athugavert við
það því ég bý ekki í vestrænu sam-
félagi þar sem slíkt telst neikvætt"
Skattaívilnanir og
stefnumótaþjónusta
í Singapore hafa stjórnvöld
ákveðið að veita konum skattaív-
ilnanir, eignist þær tvö börn eða
fleiri áður en þær verða 31 árs.
Þá rekur ríkið stefnumótaþjónustu
fyrir langskólagengið fólk en hún
var stofnuð árið 1984 að frum-
kvæði Lee Kuan Yew, forsætisráð-
herra um áratugaskeið, en hann
taldi ekki nógu margt menntafjlk
giftast og eignast vel gefin böm.
Stofnunin stendur fyrir dans-
leikjum, matarboðum og nám-
skeiðum til að ýta undir kynni ein-
hleypra karla og kvenna og nýlega
var boðið upp á alnetsþjónustu
fyrir makalausa'. Snúið hefur verið
út úr skammstöfun á nafni stefnu-
mótaþjónustunnar og sagt að hún
standi fyrir „Einhleyp, örvænting-
arfull og Ijót“.
Um 14.000 manns, um helming-
ur einhleypra Singaporebúa með
framhaldsnám að baki, eru á
skrám stofnunarinnar. Á fyrstu tíu
starfsárum stofnunarinnar gengu
um 10.000 pör upp að altarinu
fyrir tilstuðlan hennar en hlutfall
ógiftra menntakvenna er hins veg-
ar lítið breytt.
Stefnumótaþjónustur eru ekki
aðeins fyrir langskólagengna,
heldur einnig fyrir þá sem lokið
hafa menntaskóla og þá sem að-
eins hafa lokið skyldunámi. Hins
vegar var hætt við áætlun sem
kynnt var á níunda áratugnum og
kallaðist „Breeding for Brilliance"
(Getum af okkur gáfumenni) þar
sem of langt þótti. gengið í kyn-
bótastefnu stjórnvalda.
Karlar vilja ekki framakonur
í heimildarmynd sem BBC gerði
um makalausa Singapore-búa og
kallaðist „Singapore Singles" er
fylgst með Rosemary, Madeline,
Kee Chuan og sautján öðrum ein-
hleypum menntamönnum og -kon-
um á helgarsiglingu. í upphafí er
andrúmsloftið einkennilegt; kump-
ánlegt en þó þvingað. Þegar fólk
fer að para sig, léttist andrúmsloft-
ið mjög, pörin haldast í hendur
þegar sungið er „Love me Tender“
í karaoke-tækjunum. Kee Chuan
hrósar happi, hann kynntist ungri
konu í siglingunni og þegar rætt
er við hann, nokkrum mánuðum
síðar, stendur samband þeirra enn.
Lee Kuan Yew, sem hefur stigið
úr stól forsætisráðherra eftir 31
árs setu þar, segir að átak stjóm-
valda til að hvetja konur til að afla
sér menntunar, hafí ekki skilað til-
ætluðum árangri. „Asíski karlmað-
urinn vill ekki eiga konu sem hefur
jafnháar, ef ekki hærri tekjur en
hann... Það þykir mjög skammar-
legt.“
Segist Lee fremur kjósa að mál-
unum væri eins háttað og í Japan,
þar sem velmenntaðar og glæsileg-
ar konur „styðji vel við frama eigin-
mannsins. Forsætisráðherrann,
Goh Chok Tong, segir markmiðið
að tryggja það að „karlmenn í Sin-
gapore verði ekki ónauðsynlegir
aukahlutir eins og þeir séu orðnir
í Bretlandi".
Um þtjár milljónir manna búa í
Singapore og hefur efnahagsundrið.
þar í landi ekki síst byggst á þeirri
viðleitni stjórnvalda að hvetja konur
til að afla sér jafngóðrar menntun-
ar og karlar. Madeline er dæmi um
slíka konu. Hún vinnur að jafnaði
um ellefu stundir á dag, sem fram-
kvæmdastjóri útvarpsstöðvar. Eftir
vinnu hittir hún vini sína á ein-
hvetju þeirra kaffihúsa sem ungt
fólk á uppleið sækir og lítur svo í
búðir áður en hún heldur heim en
hún býr enn hjá foreldrum sínum.
Madeline er hin dæmigerða
framakona en viðurkennir að
stundum sæki að henni efi um hvort
að hún hafi gert rétt með því að
fara í nám til Bandaríkjanna. Þá
veltir hún því líka fyrir sér hvort
að hún sé of vandlát. „Ég vil gift-
ast. Mér finnst karlmenn ráða
mestu í þessu þjóðfélagi og geri
fastlega ráð fyrir að mér muni
fínnast ég undir eiginmann minn
sett.“
Nýtt
MEGRUNARPLÁSTURINN
ELUPATCH
Andrei Kozyrev fráfarandi utanríkisráðherra Rússlands
Vel liðinn á Vesturlönd-
um en óvinsæll heima
Nú með E vítamínifyrir huðina
Fœst í apótekum
ELUPATCH
megrar ogfegrar
ANDREI Kozyrev
ANDREI Kozyrev, sem sagði
af sér embætti sem utanríkis-
ráðherra Rússlands í gær, var
vel liðinn á Vesturlöndum og
átti mikinn þátt í að bæta sam-
skipti Rússa við vestræn ríki.
Heimafyrir lá hann hins vegar
undir stöðugum árásum fyrir
undanlátssemi gagnvart er-
lendum ríkjum.
Kozyrev er 44 ára gamall,
fæddur í BrusseM951. Hann
starfaði í sovésku utanríkis-
þjónustunni um árabil þangað
til hann tók við utanríkisráð-
herraembættinu í október
1990. Hefur enginn annar ráð-
herra setið jafnlengi samfellt í
stjórn Rússlands.
Hann var strax frá upphafi
fús til að efla og bæta sam-
skiptin við Vesturlönd og varð
það • til að nokkrir rússneskir
fjölmiðlar byijuðu að uppnefna
hann “Herra já“, þar sem hann
var af mörgum talinn of fús til
samstarfs og málamiðlana. Andrei
Gromyko sem lengi var utanríkis-
ráðherra Sovétríkjanna var gjarn-
an kallaður „Herra nei“ á Vestur-
löndum.
Stundum kom hann þó umheim-
inum í opna skjöldu til dæmis er
hann flutti ræðu í anda kalda
stríðsins í Stokkhólmi í desember
1992 en dró síðan ummæli sín til
baka skömmu seinna.
Utanríkisstefna Kozyrevs tók
verulegum breytingum eftir að
þjóðemissinnar juku við fylgi sitt
í þingkosningum árið 1993. Honum
tókst hins vegar ekki að afla stefn-
unni stuðnings kommúnista og
þjóðemissinna, sem kröfðust meiri
hörku í samskiptunum við Vestur-
lönd.
Harðlínumenn höfðu meirihluta
í neðri deild þingsins og réðust
reglulega á Kozyrev fyrir
meinta linkind, ekki síst í mál-
efnum fyrrverandi Júgóslavíu.
Krafðist þingið þess að hann
segði af sér fyrir að hafa ekki
stutt Serba nægilega.
Ftjálslyndir stjómmálamenn
létu einnig margir af stuðningi
við hann eftir að hann sagði sig
úr flokknum Valkosti Rússlands
snemma árs 1995.
í október síðastliðnum gagn-
rýndi Borís Jeltsín Rússlands-
forseti hann harðlega og töldu
þá margir að daga Kozyrevs í
embætti væru liðnir. Mikla at-
hygli vakti er Jeltsín lýsti því
yiír að hann hygðist skipta um
utanríkisráðherra í stjóminni en
skipti um skoðun daginn eftir.
Kozyrev neitaði að segja af
sér en að mati sumra fréttaský-
renda var ein helsta ástæða þess
að hann bauð sig fram í þingkosn-
ingunum í desember sú að hann
vildi útgönguleið ef honum yrði
ekki lengur vært í embætti utanrík-
isráðherra. Hann vann þingsæti í
Múrmanskhéraði og gat því valið
á milli þess að setjast á þing eða
beijast áfram sem utanríkisráð-
herra. Samkvæmt lögum í Rúss-
landi geta ráðherrar ekki setið á
þingi.