Morgunblaðið - 06.01.1996, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
BLYSFÖR - Norðlenskir álfar í blysför ásamt kóngi sínum og drottningu.
murguiiuiauiu/ xvria tjai i
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
ALLT er fertugum fært.
Þrettándi hefur ætíð verið
lokadagur jóla hér á landi, en 6.
janúar var upphaflega opin-
berunarhátíð og tengdur ýmsum
kristnum trúaratburðuni, þar á
meðal fæðingu Krists. í heilagri
ritningu er þess hvergi getið hver
sé fæðingardagur Jesú og að von-
um fóru kristnir menn snemma að
velta því fyrir sér. Allt frá byrjun
3. aldar eru heimildir fyrir því að
menn hafí reynt að tímasetja
fæðingu Krists og í því sambandi
nefndir dagarnir 6. janúar, 23.
mars, 28. mars, 9. apríl, 20. apríl,
20. maí, ,17. nóvember og 25. des-
ember. í fyrstu náði 6. janúar
mestri útbreiðslu.
Konstantínus mikli veitti krist-
num mönnum trúfrelsi í
Rómaveldi árið 313. Á 4. og 5. öld
vék opinberunarhátíðin 6. janúar
smám saman fyrir öðrum degi, 25.
desember, sem fæðingardagur
Krists og átti sú breyting sér
sögulegar rómverskar ástæður
BÍÐASTI dagur jóla er
runninn upp og af því
tilefni bregða Islending-
ar blysum á loft
samkvæmt gamalli hefð, með
tilheyrandi álfadansi og álfabrenn-
um, enda var þetta hér í eina tíð
kallað að „brenna út jólin“.
Norðlendingar kölluðu reyndar til-
standið að „rota jólin“, þótt óljóst
sé hvernig það orðatiltæki er
hugsað.
Það er gamall siður að gera sér
dagamun á þrettánda og hér áður
fyrr var á þeim degi borið fram
það sem eftir var af jólamat og
drykk. Þá var einnig alþekkt að
áramótabrennu væri írestað fram
á þrettánda vegna veðurgog á
þessum síðasta degi jóla kveíirtu
menn á þeim kertisstubbum sem
eftir voru og „brenndu jólin út“.
Þá eru heimildir fyrir því að talað
var um að „spila jólin út“ enda var
þrettándakvöld síðasta spilakvöld
jólahátíðarinnar. <
Fæðingardanur
Krists?
Mominblaðið/Þorkell
LJOSHRINGUR -
Onefndur Reykvíkingur
myndar ljóshring í tilefni
dagsins.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
ÞRETTÁNDAKVÖLD - Sunnlenskaryngismeyjar í tilheyrandi búningum.
daginn og fyrr á árum einkenndist
hann öðru fremur af óspektum
unglinga og meðal annars fór mikl-
um sögum af róstum og ólátum í
Hafnarfirði á þrettándanum hér
áður fyrr, en það er liðin tíð. Nú
koma menn saman við álfabrennur
til að kveðja Grýlu, Leppalúða og
jólasveinana og heilsa upp á álfa-
kóng og álfadrottningu og vel við
hæfí að ljúka jólahátíðinni með
þeim hætti. Eða eins og segir í
söngnum, eftir Sæmund
Eyjólfsson og Helga Helgason,
sem saminn var fyrir þrettánda-
brennu á Austurvelli í Reykjavík
árið 1891:
Nú er glatt í hverjum hól
hátt nú allir kveði,
hinstu nótt um heilög jól,
höldum álfagleði.
Fagurt er rökkrið
við ramman vætta söng.
Syngjum dátt og dönsum
því nóttin er svo löng.
Heimild; Saga daganna
eftirÁrna Björnsson.
Höidum álfaglEði
Hvað sem öðru líður er sjálfsagt
að halda í þann sið að „brenna út
jólin“. Reyndar hefur það verið
nokkuð sveiflukennt hvernig
íslendingar hafa haldið upp á
sem ekki verða raktar hér. Skal
hér aðeins vitnað í fornkristinn
sýrlenskan höfund um þessa til-
færslu frá 6. janúar til 25. desem-
ber:
Heiðingjarnir voru vanir að
halda hátíðlega fæðingu sólarínnar
og kveiktu elda viðþau tækifæri.
Krístnir menn tóku einnig þátt í
leikum þeim oggleði sem þessu
fylgdi. Þegar hinir kristnu kenni-
menn sáu að hátíðin dró ki-istna
menn að sér, sáu þeir svo um að
hin sanna fæðingarhátíð færi fram
þann dag (25. desember), en opin-
berunarhátíðin 6. janúar. Og þeir
héldu áfram þeim sið að tendra
ljós.
Það var svo um 440 að æðstu
menn í höfuðstöðvum kirkjunnar
ákváðu að 25. desember skyldi
opinberlega haldinn hátíðlegur
sem fæðingardagur Krists.
Tilstandið okkur
til heiðurs
„TILSTANDIÐ á þrettándanum setti alltaf
skemmtilegan svip á afmælisdaginn og þegar við
vorum yngri höfum
við sjálfsagt haldið
að þetta væri ailt
gert okkur til
heiðurs,“ sögðu tvíburabræðurnir Sigursteinn og
Þór Mýrdal, sem eni fertugir í dag. Bræðurnir eru
í hópi tvö hundruð íslendinga sem eiga afmæli í dag
samkvæmt þjóðskrá, og einu tvíburarnir af nítján
einstaklingum, sem halda upp á fertugsafmæli sitt.
Sigursteinn og Þór eru fæddir í
Reykjavík og aldir upp í
Kópavogi, synir Njáls Mýrdal,
scm er látinn og Theodóru
Mýrdal og eiga þeir cina eldri
systur. „Sigursteinn kom á undan
og móðir okkar sagði mér að
átökin við fæðingu hans hefðu verið svo mikil að
hún þurfti að fá súrefni áður en hafist var handa við
að koma mér í
heiminn,“ sagði Þór.
„Við crum ekkert
líkir, en vorum oft
eins klæddir og Sigursteinn átti það til að troða sér
í fötin mín, þótt hann liafí alltaf verið stærri.“
Þeir bræður vildu ekki gefa upp hvað þeir ætla
að gera í tilefni dagsins. „Það kemur bara í ljós,“
sögðu þeir.
ÞRETT ÁNDABRÆÐUR
ÞRETTÁNDI