Morgunblaðið - 13.01.1996, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 1996 9
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hæstiréttur kemur í ljós
NÝBYGGING Hæstaréttar á gatnamótum Ing-
ólfsstrætis og Lindargötu er komin í ljós en
verið er að rífa niður girðingu sem hulið hefur
húsið að mestu. Lokið er við frágang að utan
og er húsið klætt með kopar, sem er forunninn
með spanskgrænu, og íslensku grágrýti og
gabbrói sem er sagað og skorið til. Gert er ráð
fyrir að verkinu verði lokið í ágúst næstkom-
andi og að kostnaður standist áætlun, sem er
480 milljónir króna.
Sextán teknir í
fíkniefnahúsi
Hald lagt á muni sem taldir eru þýfi
SEXTAN manns voru handteknir
á miðvikudagskvöld, flestir í húsi
í Mjölnisholti, en þar hefur lengi
farið fram sala og neysla á fíkni-
efnum. í síðustu viku voru ellefu
handteknir í sama húsi í tengslum
við fíkniefnamisferli og fundust
þá einnig munir í húsinu sem tald-
ir eru þýfi.
Lögreglan í Reykjavík stöðvaði
mann á bíl skammt frá umræddu
húsi og hafði hann fíkniefni undir
höndum. Gerði þá fíkniefnadeild
lögreglunnar, með liðsstyrk frá
almennu lögreglunni, húsleit i
Mjölnisholti og handtók 16 manns.
Einnig voru gerð upptæk fíkni-
efni, 10 grömm af hassi, 15
grömm af amfetamíni og lítilræði
af landa.
Hald lagt á þýfi
Rannsóknarlögreglan lagði
hald á talsvert magn af munum
sem talið er að séu þýfi. Mennirn-
ir sextán gistu allir fangageymsl-
ur lögreglunnar um nóttina.
Margir þeirra sem voru handtekn-
ir voru einnig handteknir í síðustu
viku.
Talið er að mjög margir fíkni-
efnaneytendur hafi gert sér ferð
í þetta hús til þess að kaupa fíkni-
efnj að undanförnu.
Ómar Smári Ármannsson að-
stoðaryfirlögregluþjónn segir að
lögreglan hafi ákveðið að gefa
húsinu í Mjölnisholti meiri gaum
en áður og einnig nokkrum öðrum
stöðum í borginni sem sama orð
fer af.
Fullar fangageymslur
Fangageymslur lögreglunnar
voru fullnýttar aðfaranótt fímmtu-
dagsins en alls gistu þar 33 menn.
Auk þeirra sextán sem voru hand-
teknir í tengslum við fíkniefnamál-
ið gistu þar 13 manns vegna ölvun-
ar og fjórir sátu af sér sektir.
F
Tii starfa
í Tansaníu
•ÓMAR Valdimarsson blaða-
maður hefur verið ráðinn til starfa
sem sendifulltrúiltauða kross
Islands og heldur
til starfa í Ngara
í Tansaníu næst-
komandi þriðju-
dag. Ómar mun
gegna starfi upp-
lýsingafulltrúa
fyrir Alþjóðasam-
band Rauða
krossins á svæð-
inu næstu sex
mánuði.
•Þórunn Sveinbjarnardóttir
hefur gegnt þessu starfi undanfar-
ið hálft ár en hún er væntanleg
.heim í febrúar.
„Mig hefur langað til að taka
þátt í svona starfi frá því ég var
um tvítugt. Ég hef verið í félags-
málastarfi af ýmsu tagi en langað
að gera einhvern tímann eitthvað
sem skiptir máli í stærra sam-
hengi. Ég trúi því að Rauði kross-
inn sé að gera hluti sem skipta
miklu máli, bæði hér heima og
víða um heim, og er ég upp með
mér að fá þetta þetta fækifæri,"
segir Ómar.
Ngara er við landamæri
Tansaníu að Rúanda og Búrúndi
en Tansaníumegin landamæranna
er nær ein milljón flóttamanna frá
þessum ríkjum. Ómar segir að
hátt í 40 manna sendinefnd Al-
þjóðasambands Rauða krossins
annist hjálparstarfið og hann verði
upplýsingafulltrúi nefndarinnar.
Starfið felist í miðlun upplýsinga,
jafnt út á við sem inn á við. Seg-
ist hann ekki þekkja starfið í smá-
atriðum en óttast ekki að það valdi
sér vandræðum.
„Þarna verð ég að gera það sem
ég tel mig kunna best og upplýs-
ingar eru alltaf upplýsingar, hvar
sem maður er,“ segir hann.
Ómar Valdimarsson er 45 ára.
Hann hefur verið blaða- og frétta-
maður við flesta helstu fjölmiðla
landsins um árabil. Síðustu ár
hefur hann verið framkvæmda-
stjóri fjölmiðlafyrirtækisins At-
hygli í Reykjavík og meðal annars
unnið ýmis verkefni fyrir Rauða
kross Islands. Hann gegnir starf-
inu í Tansaníu í leyfi frá Athygli.
Ók á skilta-
brú og
ábrott
LÖGREGLAN í Reykjavík óskar
eftir að hafa tal af ökumanni vöru-
bíls, sem ók á skiltabrú við Vestur-
landsveg á miðvikudagskvöld.
Vörubíl með háum farmi var
ekið undir skiltabrúna, sem er
vestan Höfðabakkabrúar, áður en
ekið er til hægri upp í Árbæjar-
hverfi. Skiltabrúin skemmdist og
er ökumaður, eða vitni að atvik-
inu, beðinn að hafa samband við
slysarannsóknadeild lögreglunnar.
Lega heimkeyrslu að fyrirhugaðri ferða-
mannamiðstöð á Hveravöllum og vegar
i Þjófadali er leiðrétt hérfrá uppdrætti
þeim sem birtist á bls. 6
í Morgunblaðinu í gær
Nýrvegur
i Þjófadali
k \
Ve&ur- .
athugunar
stob ' -
II
i: 2 _
II Ferða- /
anna-'
Jiðstöð.
Aðstaða "11 j " ý' ýr
Ferðafélags\"V
f íslands _,-i—
/ c < ' v - - ■ . > \
' Aeírtjf ...-X'ír, , ' -
1 v'' - 'j 'SJf/l , - , , , ’ ' - '
y 'fifA l H;RA UN
j'■■■: 2oo m V ~.V ■
Leiðrétt kort
Frum
eftir Simon Surke
Þýðing: Haligrímur H. Helgason. Lýsing: Jóhann Bjarni Pálmason,
Éikmynd og búningar: Vignir Jóhannsson.
Seorg Magnússon. Leikstjórn: Hallmar Sigurðsson.
Leikendur:
Örn Árnason, Tinna Gunnlaugsdóttir,
Pálmi Gestsson, Anna Kristín Arngrímsdóttir,
Stefán Jónsson. Randver Þorláksson