Morgunblaðið - 13.01.1996, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 1996 23
Trefjarík
fæða fyrir
meltinguna
MEÐALMAÐUR sem borðar
um 2.500 hitaeiningar á dag
ætti að fá að minnsta kosti
25_g af trefjum úr fæðunni.
í manneldismarkmiðum ís-
lendinga segir að trefjar séu
nauðsynlegar fyrir heilbrigði
meltingarvegar. Þær örva
meltinguna og hreyfingu
þarma og auk þess hægja þær
á upptöku næringarefna úr
meltingarvegi. Hæfileg neysla
er tryggð með því að borða
gróf brauð eða annan kornmat
daglega, a.m.k., 100 g af
grænmeti auk kartaflna og
einn til tvo ávexti á dag.
Ef ekki hefur verið borðuð
trefjarík fæða um skeið borgar
sig að fara hægt af stað því
annars gera kannski melting-
aróþægindi vart við sig.
Fæðutegund trefjainnihald
í 100 grömmum
fíkjur 18,5 g
þurrkaðar apríkósur 24 g
sveskjur 16 g
rúsínur 7 g
soðið spínat 7 g
baunir 7 g
spergilkál 3,5 g
bananar 3,4 g
Almanak
Þjóövinafélagsins
er ekki bara almanak.
IþvierAibói t&fca1 íl
Islands með
Iróðleik um órferði,
alvinnuvegi, íþtólfn, E',
sljórnmál, mannalál |s|
og margl leira.
Fæsl í bókabúðum 1
umlandalll. "I
1 i
Fáanlegir eru .jj
eldii árgangar, ____
aliliá 1946.
SÖGUFÉIAG
Sögufélag,
Fischersundi 3,
sími 551 4620.
1902
NEYTEIMDUR
Sky ndibitafæði
getur verið hollt
SNÖGG máltíð við pylsuvagninn
eða hjá pizzusalanum er ekki eins
óholi og margir vilja vera láta og
ef maður vandar valið getur mað-
ur orðið sér úti um til-
tölulega hollap og nær-
ingarríkan skyndibita.
Þetta kemur fram í nýju
tölublaði rits dönsku
hollustuverndarinnar,
LST-nyt, en starfsfólk
hollustuverndarinnar
fékk sér göngutúr á
Köbmagergade í Kaup-
mannahöfn til að skoða
úrval og gæði skyndibitafæðis.
Það er hins vegar ekki sama
hvað maður velur og hamborgara-
staðir eru varhugaverðari en flest-
ir aðrir staðir. Matur sem þjóðir
og þjóðarbrot frá fjarlægum lönd-
um, matreiða og bjóða sem skyndi-
fæði er aftur á móti hollur, enda
inniheldur hann alla jafna gott
hráefni svo sem magurt kjöt,
grænmeti, brauð eða hrísgrjón.
Langlokur geta einnig verið ágæt-
is máltíð svo framarlega sem þær
eru ekki löðrandi í sósu. Krósöntur
með fyllingu ættu einnig að vera
í lagi.
Öðru máli gegnir um
pizzur, en ef maður var-
ar sig á áleggi með feit-
um ostum og þykkum
kjötsósum og man eftir
að borða allt brauðið eru
þær sæmilega hollar.
Sinnep og tómatsósa
ekki fitríkt meðlæti
Kínamatur er ekki svo slæmur,
að minnsta kosti ef maður velur
sér rétti með hrísgrjónum og chop
suey. Vorrúllurnar eru einnig í fínu
lagi þrátt fyrir að þær séu djúp-
steiktar. Maður ætti hins vegar
að halda sig fjarri grilluðum kjúkl-
ingum með frönskum kartöflum
og remúlaði, að minnsta kosti ef
maður vill hafa einhveija stjórn á
því hve mikla fitu maður lætur
Skyndibitar
þjóða og þjóð-
arbrota frá
fjarlægum
löndum eru
alla jafna
hollir.
ofan í sig. Þá eru steiktar kjötboll-
ur með kartöflumús og feitri sósu
ekki nógu hollar.
Soðnar vínarpylsur hlutu hins
vegar náð fyrir augum hollustu-
verndarinnar, að því tilskildu að
fólk borði gott brauð með. Sinnep
og tómatsósa eru ekki fituríkt
meðlæti.
Hrifning starfsmannanna var
hins vegar ekki mikil þegar þeir
fengu sér hamborgara. Þeim
fannst brauðið lint, kjötið feitt og
ekki voru sósurnar betri. Brauðið
og kjötið fóru ekki saman og enn
verra varð það ef franskar kartöfl-
ur voru keyptar með og mjólkur-
hristingur á eftir.
Nýtt kortatimabil.
Dæmi um
minni kr.
stærri kr.
Alparós
Stofuaskur
Lára iónsdóttir
Hafsteinn Hafliðason
Sérfræðingar á
staðnum alla daga
Fáið góð ráð.
Primúlur
Jukka 45 cm
Ráðeiöf - plöntuval