Morgunblaðið - 26.01.1996, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 26.01.1996, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 1996 11 FRÉTTIR Morgunblaðið/Sverrir GUNNAR Marel Eggertsson, Guðrún Kvaran, Árni Johnsen og Stefán Karlsson ræða nafngift langskips, sem Gunnar hefur nú lokið við að smíða. Viðræður í víkingaskipi GUNNAR Marel Eggertsson skipasmíðameistari hefur nú lokið smíði langskips að fyrir- mynd þeirra skipa, sem land- námsmenn sigldu á til Islands, og í gær var haldinn fundur til að finna skipinu nafn. Gunnar kallaði til liðs við sig Stefán Karlsson, forstöðumann Stofnunar Árna Magnússonar, og Guðrúnu Kvaran, forstöðu- mann Orðabókar Háskólans, til að gera skrá um skipanöfn, sem koma fyrir í fornritum, fyrir milligöngu Árna Johnsens þing- manns. Stefán og Guðrún lögðu lista með um 40 nöfnum fyrir Gunn- ar og Árna í gær. Stefán sagði að þrjú nöfn hefðu verið valin úr og kæmu þau öll fyrir í Is- lendingasögum. Á listanum hefðu einnig verið nöfn úr Sturlungu og Biskupasögu, þar sem skip væru stundum kennd við dýrlinga, en þau nöfn væru „síður við hæfi þegar smíðað er eftir skipi frá víkingatíma". Gunnar sagði að nafnið yrði ákveðið á næstu dögum, en vildi ekki láta uppi um hvaða þrjú nöfn væri að ræða. „Nafnið verður örugglega rammíslenskt og injög líklega sama nafn og var á einu af víkingaskipunum, sem notuð voru til að sigla hing- að á landnámsöld," sagði Gunn- ar. Gunnar kvaðst hafa hafist handa við smíði 1. september 1994. Skipið væri 23 metrar á lengd og rúmir fimm á breidd með 16 metra háu mastri og gert fyrir 32 árar. Seglið væri 130 fermetrar og sérsaumað í Noregi. Stefán Karlsson sagði að fyrirspurnir af ýmsum toga bærust til Stofnunar Árna Magnússonar og beiðni um lista yfir skipanöfn teldist ekki óvenjuleg. Tveir harð- ir árekstrar TVEIR harðir árekstrar urðu í Reykjavík í gærmorgun. Tveir bílar lentu saman á gatna- mótum Sogavegar og Tunguvegar kl. 8. Ökumaður annars var fluttur á slysadeild með sjúkrabíl. Báðir bíl- amir voru fjarlægðir með krana. Skömmu síðar lentu tveir bílar saman á gatnamótum Knnglumýr- arbrautar og Borgartúns. Ökumaður annars bílsins var fluttur á slysadeild og bílarnir fjarlægðir með krana. Á miðvikudag varð gangandi veg- farandi fyrir bíl á Hverfisgötu við Klapparstíg. Hann var fluttur á. slysadeild með sjúkrabíl. Ekki er vitað um meiðsl hinna slös- uðu. ----' ♦ ■ ♦■■■♦.- Langholtskirkja Flóki og Jón fá frest fram í næstu viku SR. Flóki Kristinsson, sóknarprestur í Langholtskirkju, og Jón Stefánsson, organisti kirkjunnar, hafa fengið frest fram í næstu viku til að skila athugasemdum við niðurstöðu Eiríks Tómassonar, hæstaréttarlögmanns og lagaprófessors, um deilurnar í Langholtskirkju. Eiríkur skilaði biskupi stjórnsýslu- úttekt á deilunni í síðustu viku. Hann kemst í henni m.a. að því að biskup hafi ótvírætt vald til að úrskurða í deilunni. Eftir viðræður við deiluaðila skilaði Eiríkur biskupi annarri skýrslu á mánudag. í framhaldi af því bauð biskup deiluaðilum að skila inn athugasemdum eða leita sátta. Samkvæmt heimildum Morgunblaðs- ins hafa Flóki og Jón fengið frest fram til mánaðamóta eða svo til að skila inn athugasemdunum. Að því loknu úrskurðar biskup í deilunni hafi deiluaðilar ekki náð sáttum. -----♦ ♦ ♦----- Farið í tvö hús vegna fíkniefna LÖGREGLAN í Reykjavík fór í tvö hús í fyrrinótt vegna gruns um neyslu fíkniefna. Um hálfeittleytið var farið í hús í Skógunum. Þar fannst lítið eitt af hassi og áhöld til fíkniefnaneyslu. Húsráðandi hefur áður komið við sögu svipaðra mála. Þá handtóku lögreglumenn fjóra menn í húsi við Bergþórugötu vegna gruns um neyslu fíkniefna. Þeir voru færðir í fangageymslur. Lögreglunni var upp úr miðnætti í fyrrakvöld tilkynnt um að brotist hefði verið inn í bíl við Fannafold og stolið úr honum radarvara. Einnig var tilkynnt um innbrot í vinnuskúr við Eggertsgötu. KAUP iölskylduna ABALÚTSALAN í BÆNUM VIB HÖFUM LÆKKAfl ENN MEIRA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.