Morgunblaðið - 26.01.1996, Síða 14

Morgunblaðið - 26.01.1996, Síða 14
14 FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Tvflemba finnst í Kerlingar- flöllum Syðra-Langholti - Nokkrir bænd- ur héðan úr Hrunamannahreppi fóru á jeppum í Kerlingarfjöll á mánudaginn og sóttu þangað á með tveimur lömbum. Kindurnar voru við hús skíðaskólans í As- garði. Hinn mildi vetur hefur farið vel með þessar skepnur. I venju- legu árferði hefðu þessar kindur sennilega verið fenntar eða falln- ar úr hungri. Snjólaust er að kalla á hálendinu og ökufæri gott. Það voru félagar úr ferða- klúbbnum 4x4 sem voru á ferð í Kerlingarfjöllum um helgina og komu auga á kindurnar og létu vita af þeim. Þessi tvílemba er í eigu Eiríks Kristóferssonar á Grafarbakka en margt af sauðfé hans heldur sig á þessum slóðum á sumrin. Þijár kindur frá honum fundust i Hveradölum þann 11, nóvember. Eiríkur saknar þó enn einnar tvílembu sem sást í hinum fögru en stórbrotnu Kerlingarfjöllum í fyrstu leit í haust. Fyrir mörgum áratugum fundust kindur í Kerl- ingarfjöllum um þetta leyti árs svo að þetta er ekki einsdæmi. Vinnsludekkið útbúið fullkomnustu tækjum Morgunblaðið/Unnsteinn Hermannsson LEITARMENNIRNIR með kindurnar þijár við skíðaskólann. Þeim sem skoðuðu skipið leist mjög vel á það og þá sér- staklega vinnsludekkið sem er útbúið hinum fullkomnustu tækjum. Togarinn er nú í sinni fyrstu veiðiferð undir skipstjórn Jó- hanns Gunnarssonar, Viðars Sigurðssonar fyrsta stýri- manns og Ásmundar Halldórs- sonar fyrsta vélstjóra. ^ Morgunblaðið/Silli ÁHAFNARMENN tóku lagið i tilefni heimkomu togarans. Togarinn Júlíus Havsteen í heimahöfn á Húsavík SR. Sighvatur Karlsson bless- aði skip og áhöfn. Húsavík - Húsvíkingar fögn- uðu hinum grænlenskættaða togara Júlíusi Havsteen ÞH 1 þegar hann kom í fyrsta skipti til heimahafnar í hinu fegursta veðri sl. föstudag. Við heimkomuna blessaði sóknarpresturinn sr. Sighvat- ur Karlsson skipið og skips- höfnina sem söng sálm ásamt öðrum viðstöddum. Sameinað sveitarfélag á Vestfjörðum Alþýðuflokkurinn hvetur til sameigin- legs framboðs ísafirði - Alþýðuflokksmenn á Vestfjörðum hafa sent fulltrúum nokkurra flokka bréf þar sem hvatt er til viðræðna um sameigin- legt framboð fyrir komandi bæjar- stjórnarkosningar í hinu nýja sam- einaða sveitarfélagi á norðanverð- um Vestfjörðum sem fram eiga að fara í vor. Vegna erindis Alþýðuflokks- manna hefur Vestfjarðalistinn, þ.e. listi Péturs Bjarnasonar fræðslustjóra, sent frá sér frétta- tilkynningu þar sem segir m.a. að listinn útiloki ekki á þessu stigi þátttöku í sameiginlegu framboði til nýrrar bæjastjórnar en telur nauðsynlegt að þegar á fyrstu stigum þessa máls verði haft sam- band við þá óháðu lista sem boðið hafa fram til sveistarstjórna í við- komandi sveitarfélögum og starf- að þar. Gæta þarf lýðræðis ogjafnaðar „Það er skilyrði af hálfu Vest- fjarðalistans að þessum aðilum verði boðin þátttaka í viðræðunum frá upphafi. Vestfjarðalistinn telur nauðsynlegt að við uppstillingu til nýrrar bæjarstjórnar verði gætt lýðræðis og jafnaðar, jafnframt því sem sjónarmið allra byggðanna verða að eiga sér málsvara,“ segir m.a. í fréttatilkynningu frá Vest- ijarðalistanum. Sala ÁTVR á ísafirði á árinu 1996 Mánaðarlaun í kaup á áfengi og tóbaki ísafirði - Sala Áfengis- og tóbaks- verslunar ríkisins á ísafirði nam tæpum 320,4 milljónum króna á síðasta ári á móti tæpum 320,9 milljónum kr. árið áður. Af ein- stökum áfengistegundum seldust. mest af vodka og viskí en Egils Gull og Becks voru vinsælustu bjórtegundirnar. Sala á tóbaki minnkaði um 3,4 milljónir kr. milli áranna 1994 og 1995, þrátt fyrir hækkun á tóbaksverði. 107 þúsund í áfengi Ef litið er nánar á sölu áfengra drykkja og neyslu tóbaks kemur í ljós að hver Vestfirðingur 18 ára og eldri (miðað við kjörskrá) á sölusvæði útsölunnar, sem nær frá Isafjarðardjúpi og vestur til Arnar- fjarðar, eyddi tæpum 107 þúsund krónum að meðaltali í framan- greindar vörur á árinu 1995, eða sem nemur einum mánaðarlaunum á mann að meðaltali. Alls seldust 67.324 flöskur af áfengi á árinu 1995 að verðmæti 119 milljónir króna sem svarar til þess að hver hinna framangreindu einstaklinga hafi neytt 22,5 flaskna af áfengi á ári, eða að jafnaði tveggja flaskna á mánuði og er þá neysla bjórs ekki meðtalin. Vestfirðingar keyptu 345.612 flöskur/dósir af bjór á sama tíma- bili fyrir rúmar 56,5 milljónir króna. Svarar það til 141.700 lítra neyslu, að meðaltali 47,2 lítra á mann á ári, eða tæplegaa fjögurra lítra á mánuði. MEÐ BLÖNDUÐU GRÆNMETI fiV* £ * => < LETTOSTAR , þrír góðir á léttu nótunum MUNDU EFTIR OSTINUM

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.