Morgunblaðið - 26.01.1996, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEIMT
FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 1996 21
Umdeild
9;ft3.k3;
íUtah
ANDSTÆÐINGAR dauðarefs-
inga í Bandaríkjunum reyndu í
gær að koma í veg fyrir aftöku
Johns Alberts Taylors, 36 ára
fanga í Utah, sem var dæmdur
til dauða fyrir morð og nauðgun
á 11 ára gamalli stúlku árið 1989.
Fimm manna aftökusveit átti að
taka hann af lífi í dag.
Taylor hafði viðurkennt að
hafa brotist inn á heimili stúlk-
unnar en kvaðst saklaus af því
að hafa myrt hana. Verði aftök-
unni ekki frestað vegna áfrýjun-
ar á siðustu stundu verður hann
settur á sérstakan stól, sem sést
hér á myndinni, með bundið fyr-
ir augun. Fimm Iögreglumenn
eiga að miða rifflum á hjartað
og skjóta. Einn þeirra skýtur þó
púðurskoti, þannig að lögreglu-
mennirnir geta allir staðið í
Reuter
þeirri trú að þeir hafi ekki orðið
fanganum að bana.
Dauðadæmdir fangar í Utah
geta valið á milli banvænnar
sprautu og aftökusveitar. Taylor
valdi síðari kostinn og verði af-
tökunni ekki frestað verður hann
fyrsti bandariski fanginn sem
tekinn er af lífi með þessum
hætti frá árinu 1977.
Taylor hefur sagt að hann vilji
deyja en getur áfrýjað málinu
þar til á síðustu stundu og alríkis-
dómari verður því á staðnum.
Hörð átök um eftir-
mann Jozefs Oleksys
Varsjá, Moskvu. Reuter.
ALEKSANDER Kwasniewski for-
seti Póllands sagðist í gær virða
afstöðu Jozefs Oleksys sem sagði í
fyrrakvöld af sér starfi forsætisráð-
herra vegna ásakana um að hann
hefði njósnað fyrir sovésku leyni-
þjónustuna, KGB og síðan þá rúss-
nesku. Sagði Kwazniewski að þrír
menn kæmu til álita sem arftakar
Oleksys.
Viðræður hófust milli leiðtoga
flokkanna tveggja, sem aðild eiga
að samsteypustjórninni, Lýðræðis-
lega vinstrabandalagsins (SLD) og
Bændaflokks Póllands (PSL), um
framtíð stjórnarinnar.
Fróðir menn töldu að hart yrði
tekist á um eftirmann Oleksys ann-
ars vegar og uppstokkun stjórnar-
innar hins vegar. Bændaflokkurinn
gerir kröfu til stóls forsætisráðherr-
ans og segir það einu leiðina til
þess að stjórnin geti öðlast almenna
tiltrú sem þvarr vegna ásakananna
á hendur Oleksy.
Ráðherrar úr röðum SLD gáfu
til kynna í gær, að ekki væri sjálf-
gefið að Bændaflokkurinn fengi
vilja sínum framgengt. Mátti ráða
að átök yrðu um stól forsætisráð-
herra og hugsanlega uppstokkun.
Hefur SLD hótað Bændaflokknum
að rjúfa þing og efna til kosninga
sýni hann tilburði til að hverfa úr
stjórninni, en staða PSL bendir
ekki til þess að hann myndi fara
vel út úr kosningum sem að
óbreyttu eiga ekki fara fram fyrr
en í september 1997.
Kwasniewski sagði eftir viðræð-
ur við Oleksy í gær, að mennirnir
þrír sem kæmu til álita sem eftir-
menn forsætisráðherrans væru Joz-
ef Zych forseti neðri deildar þings-
ins en hann er úr Bændaflokknum,
Marek Borowski ráðherrra og
Wlodzimierz Cimoszewicz varafor-
seti neðri deildarinnar en þeir úr
SLD.
Rússar óttaslegnir
Sergej Krylov, aðstoðarutanríkis-
ráðherra Rússlands, sagði að stjórn-
völd í Moskvu vonuðust til að ásak-
anirnar á hendur Oleksy yrðu ekki
til þess að valda erfiðleikum í sam-
skiptum ríkjanna tveggja. Sagðist
hann þó óttast að umræðan í Pól-
landi vegna ásakananna kynnu að
leiða til þess.
Hart deilt um
svefnþörfina
London. The Daily Telegraph.
SERFRÆÐINGAR beggja vegna
Atlantsála deila nú hart um það
hversu mikinn svefn við þurfum.
Hópur bandarískra vísindamanna
heldur því fram að almenningur
fái að jafnaði ekki nægan svefn
og að menn tækju betur eftir og
væru atorkusamari, svæfu þeir
lengur. Þá segja þeir að slysum
myndi fækka. Breskir vísinda-
menn fullyrða hins vegar að
menn sofí nóg, gætu raunar kom-
ist af með minni svefn, fengju
menn sér hænublund seinni hluta
dags.
Samkvæmt könnunum á
svefnvenjum fullorðinna kemur í
Ijós að menn sofa að meðaltali
um 7'A tíma. Þetta telja sérfræð-
ingar við læknamiðstöðvar í Day-
ton í Ohio ófullnægjandi, að því
er frarn kemur í grein þeirra í
tímaritinu Sleep. Segja sérfræð-
ingarnir, Michael Bonnet og
Donna Arand, að ýmis gögn
bendi til þess að fólk hafi sofið
lengur um aldamótin síðustu en
nú. Þá njóti flestir þess að sofna
aftur eftir að vekjaraklukkan láti
fyrst í sér heyra, sem aftur þýði
það að menn séu betur með á
nótunum, sérstaklega síðari hluta
dags, þegar marga syfji.
Yvonne Harrison og Jim Horne
við Loughborough-háskólann í
Bretlandi mótmæla þessu. Þau
segja að á Viktoríutímanum hafi
menn sofið skemur en nú og sá
ávinningur sem menn hafi af því
að lúra aðeins lengur, sé lítill
samanborðið við þann tíma sem
menn tapi. Dæmi um þetta gæti
verið Margaret Thatcher, fyrrum
forsætisráðherra Bretlands, sem
segist aðeins þurfa fjögurra
stunda nætursvefn.
Harrison og Horne líkja of
miklum svefni við það að borða
eða drekka yfir sig. „Það má vel
vera að okkur þyki notalegt að
liggja lengi í rúminu eða að borða
heil ósköp, en við þurfum ekki á
því að halda,“ segir Horne. „Próf-
steinninn á það hvort að við höf-
um sofið nóg, er hvort að við
erum syfjuð allan daginn eður
ei.“ Segir hann að syfji menn
jafnan eftir hádegi, sé miklu
betra að leggja sig í tíu mínútur
en að liggja klukkutímanum
lengur í rúminu á morgnana. Of
mikill svefn dragi mjög úr atorku
manna og að þeir verði miklu
syfjulegri.
„Þeir sem sofa aðeins skemur
eru yfirleitt jákvæðari og andlega
hressari," segir Horne og hann
er á því að ekki sé við svefnleysi
að sakast þegar afgjöp í starfí
séu annars vegar. Ástæðan sé
oftar óreglulegur vinnutími, t.d.
vaktavinna en þá sé líkamsklukk-
an ekki rétt stillt miðað við hvaða
tími dags er.
Kanadískur sérfræðingur sem
fylgst hefur með þessum deilum,
segist ekki taka afstöðu í málinu
að svo stöddu, aðeins frekari
rannsóknir geti leitt í ljós hvorir
hafi rétt fyrir sér.
•* Baösloppar
Áöur 1 stk. 990,-
Nú 1 bama og l fullorðins:
Termo
sængur
Áöur l stk.
2.990,-
6 arma
kertastjakar (svartir)
i Áður: 399,-
húsgögn
(Útlitsgölluð)
Skeifunni 13
108 Reykjavík
568 7499
Norðurtanga 3
600 Akureyri
462 6662
Reykjavíkurvegi 72
220 Hafnarfjörður
565 5560
Holfagörðum
v/Holtaveg
104 Reykjavik
588 7499