Morgunblaðið - 01.02.1996, Side 10
10 FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
—-----------■----------------------------------------------------------i
Akvæði um veðsetningu skips með kvóta felld út úr frumvarpi um samningsveð \
Framsóknarþingmenn
á Reykjanesi taka upp
röksemdir krata
Þingmenn Framsóknarflokksins, sem
leggjast gegn því að leyft verði að veðsetja
fískiskip með kvóta, hafa tekið upp rök-
semdir Alþýðuflokksins í málinu, skrifar
*
Olafur Þ. Stephensen.
ÞORSTEINN Pálsson dómsmála-
ráðherra hefur endurflutt frum-
varp um samningsveð á Alþingi.
Úr frumvarpinu hefur nú verið
fellt ákvæði um að heimilt sé, þeg-
ar skip er veðsett, að láta veðrétt-
inn ná einnig til aflaheimilda skips-
ins. Þessi breyting er til komin
vegna andstöðu þingflokks Fram-
sóknarflokksins, en þar hafa gagn-
rýnendur núverandi fiskveiði-
stjómunarkerfis tekið upp rök-
semdafærslu alþýðuflokksmanna,
sem lögðust einnig gegn ákvæðinu
er þeir sátu í stjórn með Sjálfstæð-
isflokknum.
Forsaga málsins er sú að við
gildistöku nýrra laga um stjórn
fískveiða í ársbyijun 1991 breyttist
réttarstaðan að því er varðaði veð
í veiðiheimildum. Fyrir þann tíma
gilti sú regla, að varanlegt framsal
kvóta var óheimilt nema viðkom-
andi fískiskip væri afmáð af skipa-
skrá. Afskráning var háð því skil-
yrði að ekki hvíldu veðbönd á skip-
inu og í rauninni mátti því ekki
selja kvóta nema með samþykki
sj ávarútvegsráðuneytisins.
Á þessum tíma þurftu bankar,
sem lánuðu útgerðarfyrirtækjum
gegn veði í skipi, ekki að hafa
áhyggjur af því að skipið félli í
verði við það að kvóti þess væri
seldur.
Veð, sem voru í gildi við gildis-
töku laganna, haldast áfram, en
hvað varðar veðsamninga, sem
gerðir hafa verið eftir 1. janúar
1991, verða veðhafar að tryggja
með öðrum hætti að skipin rýrni
ekki í verði vegna þess að kvóti
sé fluttur af þeim. Þetta hefur
verið leyst þannig að bankar krefja
eigendur skipa um skriflega yfír-
lýsingu um að þeir muni ekki fram-
selja kvótann á meðan veðsamn-
ingur sé í gildi. Samkomulaginu
hefur verið þinglýst á skipið, og
það tilkynnt sjávarútvegsráðu-
neytinu.
Bankarnir telja hins vegar að
þetta veiti ekki nægilegt réttar-
öryggi, því kaupanda kvóta sé ekki
skylt að kynna sér þinglýsingabók.
Sá möguleiki sé því í raun opinn
að lántakendur selji kvótann, án
þess að bankinn geti mikið við því
gert. Sjávarútvegsráðuneytið
stöðvi heldur ekki lengur sölu á
kvóta nema veðsetning skips hafi
átt sér stað fyrir 1991. Bankarnir
hafa því verið tregari en ella til
að lána sjávarútvegsfyrirtækjum.
Alþýðuflokkur hindraði
samþykkt
Er frumvarpið um samningsveð
var lagt fram á Alþingi í desember
1994 var það gagnrýnt harðlega
af hálfu Alþýðuflokksins, sem hélt
því fram að með umræddu ákvæði
væri stjórnvöldum gert erfíðara
fyrir að breyta fiskveiðistjórnunar-
kerfínu. Fyrsta grein laga um
stjóm fiskveiða, þar sem kveðið
er á um að fiskimiðin séu sameign
þjóðarinnar og úthlutun veiðiheim-
ilda skapi ekki eignarrétt eða
óafturkallanlegt forræði yfir veiði-
heimildum, gerði stjórnvöldum
kleift að breyta kerfinu án þess
að handhafar kvóta gætu gert
neinar kröfur um skaðabætur. Ef
það yrði hins vegar lögfest að veð-
setja mætti kvóta, mætti túlka það
svo að ef ríkið breytti eða afnæmi
kvótakerfíð, ættu þeir skaðabóta-
skröfu, sem hefðu tekið veð í skipi
og veiðikvóta.
Vegna andstöðu Alþýðuflokks-
ins dagaði frumvarpið uppi í þing-
inu. Það var lagt að nýju fyrir ríkis-
stjórn og fyrir þingflokka stjórnar-
flokkanna í desember síðastliðnum
og mætti þá strax harðri andstöðu
þingmanna Reykjaness í þingflokki
Framsóknarflokksins. Athyglis-
vert er að þeir hafa nú uppi ná-
kvæmlega sama rökstuðning og
Alþýðuflokksmenn fyrir rúmu ári.
„Við teljum að ef það er hin
almenna regla í lögum að taka
megi veð í kvóta, sé of langt geng-
ið í að festa núverandi kerfi í sessi
og færa kvóta í hendur ákveðinna
fyrirtækja og einstaklinga," segir
Siv Friðleifsdóttir, þingmaður
Reyknesinga. „Það er heldur engin
þörf á að taka ákvæðið inn í frum-
varpið, vegna þess að lánastofnan-
ir geta varið sig með því að taka
veð af þessu tagi inn í samninga
í hvert sinn. Ef þetta ákvæði hefði
verið inni í frumvarpinu, hefði það
gert að verkum að nánast ekkert
yrði hægt að hrófla við kvótakerf-
inu, vegna lagalegrar tryggingar
lánastofnana fyrir veði í kvóta. í
fiskveiðistjórnunarlögunum segir
að fískimiðin séu sameign þjóðar-
innar og lögfesting veðsetningar
kvóta hefði verið skref í átt frá
því.“
Eftir langar rökræður í þing-
flokki Framsóknarflokksins náðist
loks samstaða innan hans um að
leggjast gegn því að umrætt
ákvæði yrði í frumvarpi dómsmála-
ráðherra.
Lítil áhrif
Þorsteinn Pálsson dómsmála-
ráðherra sagði fyrir rúmu ári, er
deilt var um málið milli þáverandi
stjórnarflokka: „Aflaheimildir eru
að sjálfsögðu veðsettar í dag. Það
er forsenda þorra lánaviðskipta við
útgerðirnar í landinu og um leið
það öryggi, sem innstæðueigendur
hafa. „Það væru ekki margir fúsir
að leggja sparifé sitt í banka ef
bankastjórunum væri óheimilt að
taka veð í aflaheimildunum, því
ekki er mikils virði að taka veð í
skipi, sem ekki hefur veiðirétt. Við
búum hér við löggjöf, þar sem er
með skýrum hætti kveðið á um að
fiskimiðin eru sameign þjóðarinn-
ar, en veiðirétturinn er á höndum
útgerðarinnar. Sá réttur felur í sér
verðmæti og er því takmörkuð
eignarréttindi. Það er heimilt að
framselja hann og það væri
skringilegt ef menn gætu ekki ráð-
stafað honum með takmarkaðri
hætti með því að veðsetja hann.“
Þegar Þorsteinn er nú spurður
hvaða áhrif hann telji það hafa,
að fella kvótaákvæðið út úr veð-
lagafrumvarpinu, segir hann að
það hafi eitt og sér lítil áhrif, þar
sem veðsetning kvóta viðgangist í
raun. Annað mál væri ef menn
ætluðu að banna veðsetningu veiði-
heimilda. „Frumvarpið í fyrri mynd
gerði ráð fyrir að setja nokkrar
takmarkanir á rétt útvegsmanna
til að framselja veðsettan kvóta, í
þeim tilgangi að tryggja betur
stöðu lánastofnana," segir Þor-
steinn. „Það eina, sem gerist þegar
ákvæðið fer út, er að þessi lög-
bundna vernd lánastofnananna
fellur niður og réttur útgerðar-
mannanna til að framselja veðsett-
an kvóta verður rýmri. Það er ein-
faldlega sú framkvæmd, sem er á
þessum málum í dag. Málið hefur
því ekkert að segja um það, hvort
heimilt sé að veðsetja kvóta eða
ekki; það hefur alla tíð verið heim-
ilt. Eg tel sjálfur eðlilegt að setja
útgerðarmönnum takmörk að því
er varðar veðsetningar, með svip-
uðum hætti og öðrum atvinnurek-
endum, en þarna er hópur fram-
sóknarþingmanna, sem vill slá sér-
staka skjaldborg um hagsmuni
útvegsmanna. Sjávarútvegsráð- .
herrann lætur sér það kannski í '
léttu rúmi liggja, en dómsmálaráð- }
herranum finnst að útvegsmenn |
eigi að vera háðir sömu leikreglum
og aðrir.“
Kemur fiskveiðisljórnun
ekki við
Aðspurður, hvort hann hafi
áhyggjur af þeirri samstöðu, sem
að verulegu leyti hafi ríkt milli
Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks j
um núverandi fiskveiðistjórnunar-
kerfi, segir Þorsteinn: „Þetta kem- ’
ur fiskveiðistjórnun ekkert við. )
Málið lýtur einvörðungu að því,
hvort eigi að skapa lánveitendum
tryggari rétt, lagalega, en þeir
hafa í dag gagnvart útvegsmönn-
um. Þeir geta auðvitað tryggt sér
slíkan rétt í samningum, eins og
nú tíðkast. Það að flokkur banka-
málaráðherrans hefur ekki áhyggj-
ur af málinu, sýnir bezt hvað mál- )
ið er lítið og það er ekki tilefni
deilna. Það væri annað mál, ef .
menn deildu um hvort veðsetning
væri heimil eða ekki.“
Ekki hægt að veðsetja
kvótann einan og sér
Ýmis sjómannafélög hafa and-
mælt ákvæðinu, sem nú er horfið
úr frumvarpinu, en Landssamband
íslenzkra útvegsmanna studdi það .
á sínum tíma. Jónas Haraldsson,
lögfræðingur LÍÚ, segir að löngu
hafi verið kominn tími til að gefa i
út ný heildarlög um veð og veð- 1
setning skips með aflaheimild eigi
auðvitað heima þar, enda eigi slík
veðsetning sér stað í reynd. „Það
er hins vegar trúaratriði að slíkt
megi ekki sjást. Þetta er eins og
í ijölskyldum, þar sem má ekki
tala um fyllerí og framhjáhald,"
segir Jónas. Hann segir misskiln-
ing að hægt sé að veðsetja kvótann
einan og sér og bendir á að kvóti
sé bundinn skipi og geti ekki lifað
sjálfstæðu lífi ótengt einhveiju
skipi. „Það er eingöngu verið að
veðsetja skipið með kvóta,“ segir
Jónas.
Vegna mikillar þátttöku
í keppni um nýtt nafh á breyttan Átthagasal
á Hótel Sögu hefur dómnefnd ákveðið
að fresta tilkynningu
á úrslitum til 9. febrúar nk.
<
U)
m
(O
cr>
u.
<
o
Cj
-þin saga!
Fr amkvæmdastj ór i SL vísar á bug staðhæfingum um talnaleik
Lækkun í krafti stærðar í
HELGI Jóhannsson framkvæmda-
stjóri Samvinnuferða-Landsýnar
kveðst telja sýnt að sambandsleysi
ríki innan Flugleiða, hafí fram-
kvæmdastjóri markaðssviðs ekki
haft spurnir af viðræðum milli þess-
ara aðila um leiguflug í sólarlanda-
ferðir, eins og fram kom í Morgun-
blaðið í gær.
„Við eigum skriflegt tilboð frá
þeim í leiguflug okkar til Mallorca
og einnig ræddum við um möguleika
á sólarlandaferðum almennt við
Flugleiðir. Við vorum að kanna þann
möguleika að fljúga með breiðþotu
í leiguflugi, en réttilega telja Flug-
leiðamenn ekki grundvöll fyrir
breiðþotu í áætlunarflugi þannig að
þeir hafa ekki þann vélakost sem
við leituðum eftir," segir Helgi.
Ótrúleg
meðhöndlun
Hann kveðst telja fullyrðingar
framkvæmdastjóra markaðssviðs
Flugleiða, um að ailt að 18% verð-
lækkun á sólarlandaferðum SL sé
talnaleikur og í raun hvít lygi, vera
með_ ólíkindum.
„í ljósi þess að fyrirtækið skipti
við Flugleiðir á seinasta ári fyrir
900 milljónir króna, fínnst mér það
vera ótrúleg meðhöndlun á einum
stærsta viðskiptavini félagsins, að
væna hann um hvíta lygi og reyna
að gera hann tortryggilegan í fjöl-
miðlum. Talsmaður þessa sama
samstarfsaðila notar tækifærið til
að auglýsa litla ferðaskrifstofu úti
í bæ sem er varla orðin til í dag,
en gleymir að upplýsa almenning
um að þessi umrædda ferðaskrif-
stofa er í eigu Úrvals-Útsýnar sem
Flugleiðir eiga að rnestu," segir
Helgi.
Helgi kveðst telja einkennilegt
og koma sér á óvart ef Flugleiða-
menn geri sér ekki grein fyrir hag-
kvæmni þess að fljúga á háannatíma
með breiðþotu á borð við þá sem
notuð verður í leiguflug Atlanta í
sumar, í stað þess að vera með helm-
ingi minni vélar. Þeir hljóti að sjá
að stærðin leiði til hagkvæmni.
Verðlækkun
ekki tilboð
„Við erum ekki að ráðast á Flug-
leiðir, enda seljum við mikinn fjölda
fargjalda með þeim til staða eins
og Glasgow, Lundúna og Kaup-
mannahafnar og höfum hagkvæma
samninga þar að lútandi. En eins
og við seljum hagstæðar ferðir með
vélum Flugleiða getum við boðið upp
á viðbótarstaði í Evrópu og í því
sambandi eru engar sjónhverfingar.
Lægsta skráða verð er miklu
hærra en þau fargjöld sem við get-
um boðið og þau eru engin tilboð
heldur komin í verðskrá og munu
halda í sumar meðan flogið verður.
Þetta verð miðast ekki við eina
brottför eða tíu sæti í vél eða eitt-
hvað þess háttar,“ segir Helgi.
Hann tekur fram að verðlækkun
SL byggist ekki á minni gæðum i
gistingar eða þjónustu, þvert á móti
sé hvergi slakað á. „Við erum ein-
göngu að gefa fólki kost á að njóta |
stærðarinnar. Auðvitað tökum við
ákveðna áhættu, en teljum hana
þess virði til að ná fram þessu
markmiði, og ef eitthvað er aukum
við þjónustuna," segir Helgi.
Samkeppni jákvæð
„Þó að Flugleiðir séu að gera
okkur tortryggilega í ijölmiðlum er
það þeirra mál og við ætlum ekki
að svara því. Mín skoðun er sú að
hér þurfi að vera eitt sterkt flugfé- |
lag í áætlunarflugi til og frá landinu
og því hlutverki þjóna Flugleiðir
mjög vel. Það virðist hins vegar
vera skoðun framkvæmdastjóra
markaðssviðs að aðeins eigi að vera
ein sterk ferðaskrifstofa á markað-
inu, þ.e. þeirra eigin, en ég vil
hryggja hann með því að SL er
komin til að vera, enda kemur sam- |
keppnin öllum til góða. Þó að Flug-
leiðamenn virðist ekki sammála
mér, er ég þess fullviss að almenn- I
ingur sé það.“