Morgunblaðið - 01.02.1996, Side 14
14 FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 1996
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Hraðfrystistöðin á Þórshöfn eykur frystigetuna
Benedikts
frá Auðn-
um minnst
Húsavík - Safnahúsið á Húsa-
vík minntist þess að síðastliðinn
sunnudag voru liðin 150 ár frá
fæðingu brautryðjandans Bene-
dikts Jónssonar frá Auðnum.
Um manninn, störf hans og
hugleiðingar flutti Sveinn
Skorri Höskuldsson, prófessor,
erindi og var það mjög fróðlegt
og ítarlegt og kom hann víða
við. Sveinn rakti fyrst þær að-
stæður sem voru í íslensku
þjóðfélagi þá Benedikt fæddist
og var uppalinn i og þá sér-
stöku baráttu hans og nokk-
urra frammámanna í héraði þá
þeir voru ungir og áhugasamir
fyrir bættum og breyttum þjóð-
félagsháttum. Minntist hann
sérstaklega á stofnun félags-
skaparins Ófeigs í Skörðum og
Bókasafns Suður-Þingeyinga
sem á þeim tíma var alveg sér-
stakt fyrir eign erlendra fræði-
rita sem hann las og fékk aðra
héraðsbúa til að lesa. Sveinn
taldi mannlíf i Þingeyjarsýslu
hafa orðið annað og ekki eins
gott ef Benedikts á Auðnum
hefði ekki notið við.
Ingimundur Jónsson, kenn-
ari, las kafla úr nokkrum bréfa
langafa síns en alveg er sér-
stakt hve mikið er til af merkum
bréfum sem Benedikt skrifaði
frændum sínum og kunningjum.
Morgunblaðið/Silli
SVEINN Skorri Hös-
kuldsson og Ingimundur
Jónsson.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Nýtt fiskverkunarhús
á Blönduósi
Fyrsta
skóflustung-
an tekin
Blönduósi - Fyrsta skóflustungan
að nýju fiskverkunarhúsi sem á
að rísa á Blönduósi var tekin á
föstudaginn. Það var forseti bæj-
arstjórnar Blönduóss, Pétur Arnar
Pétursson, sem það gerði og not-
aði til þess dráttarvélargröfu.
Fiskverkunarhúsið sem verður
um 540 fermetrar að stærð er
verkefni átta sveitarfélaga í A-
Húnavatnssýslu sunnan Skaga-
strandar, verkalýðsfélags A-Hún.
og Fisco hf. í Reykjavík. Við til-
komu þessa húss og starfseminnar
sem þar verður munu skapast 24
ný störf.
Sveitarfélögin átta og verka-
lýðsfélagið hafa stofnað með sér
hlutafélagið Skúlahorn ehf. um
byggingu þessa húss. Byggingu
hússins á að vera lokið fyrir 1.
júlí nk. og annast trésmiðjan Stíg-
andi byggingaframkvæmdir.
Fyrst um sinn á að vinna kola í
húsinu.
Samvinna við Hafnfirð-
inga um loðnuvinnslu
Þórshöfn - Loðnuvertíðin hefur
farið hægt af stað en á þriðjudag
landaði loðnuskipið Júpíter 1.200
tonnum af loðnu hér á Þórshöfn.
Áætlað var að tæp 150 tonn af
þeim afla færu í frystingu en hitt
í bræðslu.
Frystigeta hjá Hraðfrystistöðinni
er um 80 tonn af loðnu á sólarhring
en nú hefur fyrirtækið fært út
kvíamar og gert samning við eig-
anda Dagstjörnunnar hf. í Hafnar-
firði um samvinnu á loðnuvertíð-
inni. Hraðfrystistöð Þórshafnar
mun í samvinnu við eiganda Dag-
stjörnunnar hf. koma upp búnaði
til flokkunar á loðnu í verksmiðju-
húsinu við Vesturgötu í Hafnarfirði
en frystigeta hjá Dagstjörnunni
hf., sem áður hét Norðurstjarnan
hf., er 30-40 tonn af loðnu á sólar-
hring.
Frysting í Hafnarfirði
Að sögn Hilmars Þórs Hilmars-
sonar, framleiðslustjóra loðnuverk-
smiðjunnar á Þórshöfn, er áætlað
að frystingin hjá Dagstjörnunni hf.
geti hafist um miðjan febrúar. Það
er til mikilla hagsbóta fyrir Hrað-
frystistöðina að loðnufrysting fyrir-
tækisins sé framkvæmanleg bæði
hér á norðausturhorninu og fyrir
sunnan, þann skamma tíma sem
loðnufrysting stendur yfir. Fjöl-
mörg fiskvinnslufyrirtæki hafa fært
út kvíarnar síðustu ár og aukið við
frystigetu sína og er nú Hraðfrysti-
stöð Þórshafnar þeirra á meðal.
Veður og færð hafa ráðið því
hvort hægt er að aka loðnu til Þórs-
hafnar í frystingu og er því hæpið
að treysta á það; raunhæfara er
því að færa út kvíarnar og eiga
frystimöguleika annars staðar á
landinu, sagði Jóhann A. Jónsson,
framkvæmdastjóri Hraðfrystistöðv-
ar Þórshafnar hf.
A Litla- Búrfelli í Svínavatnshreppi er búskapurinn lífrænn
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
RAIMUND bóndi mjólkar kúna Mjallhvíti og
hænurnar hamingjusömu fylgjast með.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
NOKKRIR nemendur í búfræðivali á leið í helgardvöl hjá bændum. Efri röð f.v.: Borgar Páll Braga-
son, María Svanþrúður Jónsdóttir ráðunautur og Ingimundur Jónsson. Fremri röð f.v.: Berglind
Stefánsdóttir, Stefán Jökull Jónsson og Róbert Orri Skúlason.
Mjallhvít og hænurnar
hamingjusömu
SÓLMUNDUR, Sunneva og
Mæva Friðrún Sólmundar-
dóttir með hænuna Björgu.
Kynningamám í búfræði
Laxamýri - Sú nýbreytni hefur
verið tekin upp í Framhaldsskól-
anum á Laugum í Reykjadal að
búfræði er kennd sem valgrein
og er aðaltilgangurinn með því
að vekja athygli ungs fólks á
búnaðarnámi. Tilraun þessi var
gerð í samvinnu við Bændaskól-
ann á Hvanneyri og vonast er til
að efla megi þennan þátt í skóla-
starfinu á Laugum er tímar líða.
Kynningaráfangi sá sem settur
hefur verið upp nefnist búfræði
102 og skiptist í tvo flokka, ann-
ars vegar kynningu á almennri
búfræði og hins vegar kynningu
á landgræðslu og landnýtingu.
í almenna hlutanum verður
farið yfir fóðurefni og fóðurþörf,
nautgriparækt verður kynnt og
þar komið inn á einkenni ís-
lenskra kúa. Fóðrun, hirðing og
mjaltir verða á dagskrá auk um-
fjöllunar um júgurbólgu.
í sauðfjárrækt verður komið
inn á sögu sauðfjárræktar, inn-
flutning sauðfjár og afleiðingar
hans, meðferð ullar og fjallað
verður um baráttuna við riðu-
veiki.
Þriðjungur námsins er dvöl á
sveitabæ þar sem nemendum
gefst kostur á að taka þátt í störf-
um bænda og safna þar upplýs-
ingum. Verkefnablöð eru fyllt út
í viðurvist bóndans og í lok heim-
sóknar er gefin umsögn um nem-
andann að kennaranum viðstödd-
um.
Kennslu í almennri búfræði
mun María Svanþrúður Jónsdótt-
ir, nýskipaður ráðunautur hjá
Búnaðarsambandi S-Þingeyinga,
annast en landnýtingarþátturinn
mun verða i umsjá Guðrúnar
Láru Pálmadóttur ráðunautar
og starfsmanns Lándgræðslúnn-
ar.
Vatnsleysuströnd
Umsókn um
húsaflutn-
ing hafnað
BYGGINGARNEFND Vatns-
leysustrandarhrepps hefur
hafnað á nýjan leik umsókn um
að flytja sex timburhús af
Keflavíkurflugvelli til uppsetn-
ingar í Vogum.
Byggingarnefndin hafði áður
hafnað erindinu en það var tek-
ið fyrir að nýju að ósk umsækj-
anda á fundi nefndarinnar á
þriðjudag.
í bókun nefndarinnar segir
að erindinu sé hafnað þar sem
nefndin vilji ekki gefa fordæmi
fyrir innflutningi gamalla timb-
uríbúðarhúsa af Keflavíkur-
flugvelli í hreppinn.
Blönduósi - Fyrirsögnin er eins
og heiti á ævintýri. En er það
ekki ævintýri þegar maður hitt-
ir hamingjusamar hænur og kú,
sem ber nafnið Mjallhvít, á beit
í byrjun þorra?
Á bænum Litla-Búrfelli í
Svínavatnshreppi búa hjónin
Raimund B.B. Urbschat og
Mæva ásamt tveimur börnum
sínum. Það er einmitt á þessum
stað sem Mjallhvít á heima og
hænurnar hamingjusömu.
Mjallhvít og hænurnar deila
húsum, svo og þrír kálfar sem
þarna eru.
Vel menntuð
Raimund bóndi og Mæva sem
eru þýsk að ætt og uppruna
fluttu til Islands fyrir fimmtán
árum vitandi það eitt um landið
að þar væru engin kjarnorku-
ver. Sú vissa réð úrslitum um
framtíðarlandið.
Bæði eru þau lijón allvel
menntuð, hann er eðlisfræðing-
ur en hún hefur BS-próf í þjóð-
hagsfræði og saman luku þau
kandidatsprófi í búvísindum
frá Hvanneyri sl. vor. Síðan þá
hafa þau verið að byggja upp
lífrænan búskap á býli sínu og
þessa dagana eru að koma á
markað lífræn egg frá þeim.
Lífrænn búskapur byggist á því
að engin aukaefni eru í fóðri
dýranna og því eiga afurðir frá
þeim að vera hollari vara en
ella.
Að sögn Raimunds er þessi
framleiðsluaðferð töluvert dýr-
ari en hefðbundin landbúnaðar-
framleiðsla. Þar af leiðandi
verða lífrænar landbúnaðaraf-
urðir eitthvað dýrari í verslun-
um. Raimund sagði ennfremur
að hann stefndi að því að verða
fyrstur bænda norðan heiða til
að fá vottun á sína framleiðslu
og bjóst hann við að af því
gæti orðið mjög fljótlega.