Morgunblaðið - 01.02.1996, Síða 21

Morgunblaðið - 01.02.1996, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 1996 21 Sænskir jafnaðarmenn Hægri- flokkurinn stærstur samkvæmt könnunum Ivaupmannahöfn. Morgunblaðið. í FYRSTA skipti benda sænskar skoðanakannanir til að Hægriflokk- urinn undir forystu Carls Bildts hafi mest fylgi sænskra stjórnmála- flokka, eða rúm þijátíu prósent, en Jafnaðarmannaflokkurinn um 29 prósent fylgi. Sænska krónan hefur enn á ný verið skekin af óró á gjald- eyrismörkuðum, sem er Svíum nokk- urt áfall, þar sem vonir stóðu til að efnahagsstefna stjórnarinnar hefði loksins áunnið sér traust. Jafnaðarmannaflokkurinn vann kosningasigur haustið 1994, hlaut þá 45 prósent atkvæða. Síðan hefur fylgið ijátlast af flokknum hægt og bítandi og stendur nú í 29 prósent- um. Hægriflokkurinn hlaut 22 pró- sent atkvæða í kosningunum þá, en hefur nú rúmlega þijátíu prósenta fylgi. Miðflokkurinn, sem hefur starfað með stjórninni undanfarna mánuði, hefur misst fylgi, hlaut fyigi 6,5 prósenta í þingkosningunum, en hefur nú fimm prósent sainkvæmt skoðanakönnunum. Leitað til vinstri? Helstu ástæður fyrir fylgistapi Jafnaðarmannaflokksins eru annars vegar niðurskurður í bótakerfinu, með lækkandi atvinnuleysis- og sjúkrabótum, en einnig óþægileg mál er tengjast óábyrgri notkun fjár meðal háttsettra flokksmanna eins og Monu Sahlin fyrrverandi vara- formanns og bæjar- og sveitarstjórn- armanna. Þar sem fylgið hefur leitað til vinstri, spyija Svíar sig nú hvort flokkurinn muni hnika stefnu sinni til vinstri, en enn sem komið er bend- ir ekkert til þess. Fylgistap Mið- flokksins gerir honum einnig erfitt um vik að standa með stjórninni í óvinsælum niðurskurði. Bildt dregur að Velgengni Hægríflokksins stafar ekki eingöngu af vasklegri stjórnar- andstöðu flokksins, heldur líka af því að hinir flokkarnir á hægri vængnum hafa verið rislitlir í stjórn- arandstoðu. Það hefur heldur ekki dregið úr trausti á flokknum að Bildt hefur valist tii að stjórna uppbygg- ingunni í Bosníu og fjarvera hans hefur einnig lífgað upp á ásjónu flokksins, þar sem fleiri koma fram fyrir hönd hans. Það kom Svíum óþægilega á óvart að sænska krónan skyldi aftur verða fyrir barðinu á sviptingum á gjald- eyrismörkuðum fyrir helgi með til- heyrandi vaxtahækkunum og geng- issigi. Vonir stóðu til að krónan og efnahagsstefnan sænska hefði unnið sér traust. Enn þykja hins vegar áhöld um hvort Göran Persson fjár- málaráðherra, sem væntanlega verð- ur forsætisráðherra í mars, muni boða áframhald aðhaldssemi í efna- hagsmálum nú þegar jafnaðarmenn hríðtapa fylgi. ----» .»---- Fjöldagröf í Austurríki Vín. Reuter. FJÖLDAGRÖF frá tímum nasista hefur fundist í Lambach í Austurríki en talið er, að í henni séu jarðnesk- ar leifar ungverskra gyðinga. Verið var að grafa fyrir nýju orku- veri þegar komið var niður á manna- bein í fjórum tveggja metra djúpum gröfum. Talið er, að um sé að ræða fanga, sem gefist hafi upp á göngunni frá útrýmingarbúðunum í Mauthausen, illræmdustu fangabúð- unum í Austurríki í styijöldinni, til annarra búða í grendinni og hafi þá verið skotnir. ERLENT A 300 km hraða með lest NÝJASTA hraðlestin í Japan fór í jómfrúrferðina sína í gær í borginni Fukuoka í vestur- hluta landsins. Kalla Japanir hana Shinkansen „500-kei“ en hún á að fara með meira en 300 km hraða á milli áfanga- staða. Hún verður þó ekki tek- in í notkun fyrr en á næsta ári og allt þetta ár verður notað til tilrauna. Reuter BRETTALYFTUR ÓTRÚLEGT VERÐ! CML brettalyftur eru úrvalsvara á fínu verði. Þær eru á einföldum eða tvöföldum mjúkum hjólum, sem ekki skaða gólf. Verð m/vsk frá kr. 35.990 stgr. / Hringás ehf. Smiðjuvegi 4a, s. 567 7878. í nýjum og glæsilegum sal að öævarhöfða 2 í húsi Ingvars Helgasonar frí ábyrgðartrygging lánakjör til allt að 60 mán. fyrsta greiðsla jafnvel eftir 6-ð mán.j vetrardekk fylgja á notuðum bílum stórum sem smáum Opið vlrka daga 9-19 laugardag 10-17 sunnudag 13-17 Ingvar Helgason hf. Sœvarhöfða 2 Sími 525 8000

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.