Morgunblaðið - 01.02.1996, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 1. FEBRÚAR 1996 35
AÐSEIMPAR GREIIMAR
Vilji Alþingis
hunsaður!
í ÚTHLUTUNARREGLUM
Lánasjóðs íslenskra námsmanna
1995-1996 sem stjórn Lánasjóðs-
ins setur og staðfestar eru af
menntamálaráðherra er kveðið á
um að húsaleigubætur teljist til
tekna og komi til frádráttar náms-
láni, en vaxtabætur ekki.
Þessi reglusetning stjórnar LÍN
gengur þvert gegn 1. gr, laga um
húsaleigubætur, en þar segir að
markmið laganna sé
að jafna aðstöðumun
kaupenda og leigjenda
íbúðarhúsnæðis.
Hlutverk Alþingis
Á Alþingi sitja lýð-
ræðislega kjörnir full-
trúar sem þjóðin kýs
til að fara með lög-
gjafarvald ásamt for-
seta. Meginhlutverk
Alþingis er því laga-
setning eða m.ö.o. að
móta þær leikreglur
sem þegnunum er ætl-
að að fylgja í sam-
skiptum sínum inn-
byrðis og við ríkisvald-
ið.
Verksvið framkvæmdavaldsins
er yfirleitt skilgreint neikvætt
þannig að í því felist opinbert vald
sem hvorki telst löggjafarvald né
Færa þarf löggjafarvald
frá stjórn LÍN, segir
Vilhjálmur H. Vil-
hjálmsson, og til Al-
þingis þar sem það á
heima samkvæmt
stjórnarskrá.
dómsvald. Viðurkennt er að Al-
þingi er heimilt að framselja fram-
kvæmdavaldinu vald til að útfæra
lögin nánar í reglugerð. Þessar
reglugerðir verða þó að eiga sér
stoð í lögunum og vera í samræmi
við þá stefnu sem þar er mörkuð.
Markmið laga um
húsaleigubætur
Markmið með setningu laga um
húsaleigubætur var tvíþætt: Ann-
ars vegar að lækka húsnæðis-
kostnað tekjulágra einstaklinga.
Hins vegar að jafna aðstöðumun
kaupenda og leigjenda íbúðarhús-
næðis. Kaupendur íbúðarhúsnæðis
njóta niðurgreiðslu vaxta og verð-
bóta í formi vaxtabóta. Leigjendur
nutu ekki sambærilegrar niður-
greiðslu vegna húsnæðiskostnað-
ar. Því taldi Alþingi tímabært að
breyta og samþykkti lög um húsa-
leigubætur.
Nú þegar rúmlega
ár er liðið frá gildi-
stöku laganna er ekki
úr vegi að velta því
fyrir sér hvort það
markmið laganna, að
jafna aðstöðumun
kaupenda og leigjenda
íbúðarhúsnæðis, hafi
náðst.
Hvað umbjóðendur
Lánasjóðs íslenskra
námsmanna varðar er
svarið skýrt. Markmið
Alþingis náðist ekki.
Og þegar því hefur
verið svarað neitandi
vaknar sú spurning
afhveiju markmiðið
náðist ekki. Hvað kom í veg fýrir
að vilji lýðræðislega kjörinna full-
trúa þjóðarinnar næði fram að
ganga?
Svarið er einfait. Það var stjórn
Lánasjóðs íslenskra námsmanna.
Stjórn Lánasjóðsins braut gegn
vilja Alþingis og mótaði eigin
stefnu í málinu. Stefnu sem brýtur
í bága við markmið Alþingis.
Stefnu sem miðar að því að við-
halda aðstöðumuninum milli kaup-
enda og leigjenda íbúðarhúsnæðis.
Hvað er til ráða?
Fyrst og fremst þarf stjórn LÍN
að bregðast skjótt við og breyta
úthlutunarreglunum 1995-1996
svo þær bijóti ekki gegn yfirlýstu
markmiði Alþingis í lögum um
húsaleigubætur.
í öðru lagi þarf Alþingi að grípa
í taumana og takmarka það gegnd-
arlausa valdframsal sem á sér stað
í lögum um Lánasjóð íslenskra
námsmanna. Færa þarf löggjafar-
valdið frá stjórn Lánasjóðsins aftur
til Alþingis þar sem það á heima
samkvæmt stjórnarskrá.
Höfundur er fulltrúi SHÍ
í stjórn LÍN.
Vilhjálmur H.
Vilhjálmsson
KitchenAid
Draumavél
heimilanna!
5 gerðir
Margir litir
Fæst um land allt.
50 ára frábær rexjnsla.
EF Borgartúni Einar Farestveit&Cohf 28 » 562 2901 og 562 2900
Gail flísar
iili
,sáhUL1
Stórhöfða 17, við Gullinbrú,
sími 567 4844
Word námskeið
Tölvu- og verkfræðiþjónustan
Tölvuraögjöf • námskeið • útgáfa
Grensásvegi 16 • © 568 80 90
í Reiki - heihj
2 til 4 feb. helgarnámsk. -
Reiki 1. 5 til 7 feb. kvöldnámsk.
Reiki 2. 13 til 15 feb. kvöldnámsk.
Hugleiðsluhópar (mánud.kvöld),
Leshringir ( miðvikud.kvöld)
hefjast í byrjun febrúar.
Kennsla fer fram í Bessast.hrepp
10 mfn. akstur frá Rvík i rólegu,
vinalegu umhverfi við sjóinn.
\ ióurkinmiur nuiM.ri Upplýsingar og skrániiig i síttta 565 2309
GReikismtök QPslniíis. WP Rafn Sigitrbjörnssoit Reiki Meistarí.
skeið
Reiki 1.
HRAÐLESTRARNÁMSKEIÐ
7P Viltu auka aflcöst í starfi um alla framtíð?
71 Viltu margfalda afköst í námi?
Viltu lesa góðar bækur með meiri ánægju?
Ef svar þitt er jákvætt skaltu skrá þig strax á næsta hrað-
lestramámskeið sem hefst miðvikudaginn 7. febrúar.
Skráning er í símum 564-2100 og 564-1091
HFfc^ÐIJESTTtAJF^KÓLJININ
Hugsaðu vel um húðina þína.
Marja Entrich sér um sína.
Gakktu \ ið í Grainu línunni.
Græna línan
L a u g a v e g i 4 6
Húðráðgjóf - bætiefnaráðgjöf
- kjarni málsins!
NYTLl^IYTT - NYTT - NYTT - NYTT - NÝTT - NÝTT - NÝTT
LÆKKAÐU
PRENTKOSTNAÐINN UM
50-60%
l i tVH
MEÐ BLEKHYLKJAÁFYLLINGU FYRIR
LFYl
BLEKSPRAUTU- OG NALAPRENTARA
HP Desk jet 850C/1200C Kr. 1.680.-
HP Desk jet 550C/560C Kr. 1.110,-
Epson Stylus Color - Svart Kr. 1.380.-
Epson Stylus Color - Litir Kr. 3.030.-
Epson Stylus 800/1000 Kr. 620.-
IBM Lexmark Kr. 1.180.-
VERÐDÆMI
UM
ÁFYLLINGU
Endurnýting og endurnýjun á blekborðum fyrir nálaprentara
Láttu okkur endurnýja
blekborðann
■
M ■ - ......
Garðatorgi - 210 Garðabæ - S.565-6061 - 896-5061
Weetabix
- hjartans mál!
rvppwe
Jt
1 11 (>11<-< 11
'C,