Morgunblaðið - 02.02.1996, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 02.02.1996, Blaðsíða 30
30 FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1996 31 STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. TILRÆÐIVIÐ TENNUR NIÐURSTÖÐUR rannsóknar, er Sigfús Þór Elíasson, prófessor í Tannlæknadeild Háskóla íslands, hefur gert á tannheilsu íslenskra barna og unglinga á síðustu árum, eru uggvænlegar. Tannheilsa sex, tólf og fimmtán ára barna var könnuð 1985, 1990 og 1995 og beindist rannsóknin aðallega að tannskemmdum. í ljós hefur komið að slit á tönnum vegna gosdrykkju er orðið áberandi hjá fimmtán ára unglingum. Hafa sumir unglingar slitið allan glerung af tönnunum á stórum svæðum. Mest ber á eyðingu á framtönnum og ákveðnum flötum jaxla og eru dæmi um hrikalegar skemmd- ir, líkt og sést á sláandi mynd á baksíðu Morgunblaðsins í gær. Sigfús Þór segir „stórkostlegt vandamál" vera í uppsigl- ingu og að unglingar séu komnir með slitnar tennur eins og gamalmenni. Ein helsta ástæða þessara skemmda er gengdarlaus drykkja á gosi, sódavatni og safa, súrum drykkjum er leysa upp tennurnar. Gosneysla íslendinga er í raun það mikil að furðu sætir. Hver íslendingur drekkur að meðaltali 147 lítra af gosi á ári eða sem svarar um hálfum lítra á dag. Þetta er helm- ingi meiri neysla á mann en í Bandaríkjunum og langtum meiri en í flestum Evrópuríkjum. Þetta er hins vegar einungis hluti af stærra vandamáli. Manneldismál á íslandi eru í molum. Uppistaða fæðu margra, ekki síst ungmenna, byggist á skyndibitum og sjoppufæði með vægast sagt takmörkuðu hollustugildi. Dagleg fæðusamsetning okkar er, til lengri tíma litið, sá þáttur hr hvað mestu máli skiptir varðandi heilsufar. Hjarta- og æðasjúkdóma, krabbamein og marga fleiri vá- gesti má í mörgum tilvikum rekja beint til þess lífsstíls er viðkomandi hefur tamið sér. Óhollum fæðuvenjum fylgir oftar en ekki óhollur lífsstíll, þar sem streita og hreyfingar- leysi gegna lykilhlutverki. Margar ástæður liggja eflaust að baki þessari þróun og þá ekki síst sá hraði er einkennir nútímasamfélagið og stóraukin menningaráhrif úr Vesturheimi. Að auki gerir verðlag á ýmsum hollari fæðutegundum, s.s. grænmeti og ávöxtum, að verkum að almenn neysla þeirra hlýtur að teljast til munaðar. Því miður er hætta á að stórkostleg heilbrigðisvandamál kunni að vera í uppsiglingu í framtíðinni á fleiri sviðum en tannheilsu unglinga. LYFJA- OG LÆKNIS- KOSTNAÐUR SJÚKLINGAR greiða stöðugt stærri hluta af lyfja- og lækniskostnaði. Þessi þróun er óhjákvæmileg. Kostnað- ur við heilbrigðiskerfið hefur vaxið svo hratt að það var engin von til þess, að almannasjóðir gætu staðið undir þeim kostnaðarauka. Eina spurningin er í raun og veru sú, hvort þessum kostnaði er skipt niður á þann veg, að sæmi- lega réttlátt geti talizt. Þátttaka sjúklinga í kostnaðargreiðslum vegna heilbrigð- isþjónustu er tekjutengd. Þannig á það líka að vera. Eðli- legt er, að þeir sem hærri hafa tekjur eða meiri efni, greiði stærri hluta þessarar þjónustu, ef þeir þurfa á henni 'að halda. Hins vegar má spyrja, hvort ætlast sé til að fólk með tiltölulega lágar tekjur, þegar tekið er mið af öðrum framfærslukostnaði, taki of mikinn þátt í þessum kostnaði. Þetta er auðvitað alltaf álitamál. Eftir þvi, sem fólk verð- ur eldra lækka tekjur þess yfirleitt en almennur framfærslu- kostnaður líka. Jafnframt eykst kostnaður vegna lyfja- kaupa og læknisþjónustu. Eldra fólk þarf oft að nota marg- ar tegundir af lyfjum og leitar oft til lækna og stundum margra. Allt kostar þetta peninga. Þótt upphæðirnar séu ekki háar í hvert skipti geta þær orðið býsna háar, þegar upp er staðið. Að mati Morgunblaðsins er sú stefna, sem mörkuð hefur verið á undanförnum árum rétt, að sjúklingar taki þátt í greiðslu kostnaðar við heilbrigðisþjónustu. Það er líka rétt að tekjutengja þessar greiðslur. En það er ekki fjarri lagi, að nú sé ætlast til of mikils af fólki með tiltölulega lágar tekjur. Þess vegna getur vel komið til greina að auka greiðslur þeirra, sem meiri tekjur og efni hafa, til hags- bóta fyrir hina. Löng umræða á Alþingi um frumvarp um samningsveð Aðeins rætt um ákvæðið sem hvarf Löng umræða var á Alþingi í gær um frumvarp um samningsveð og sneríst hún nær eingöngu um ákvæði sem ekki er í frumvarpinu. Guðmundur Sv. Hermannsson fylgdist með umræðunni. Morgunblaðið/Árni Sæberg RÆTT var um veðsetningu fiskveiðiheimildu á Alþingi í gær. FRUMVARPIÐ um samn- ingsveð hefur verið lagt fram þrívegis áður á Al- þingi. Það náði ekki fram að ganga á síðasta ári vegna and- stöðu Alþýðuflokksins, sem þá var í ríkisstjórn, við ákvæði um að heim- ilt sé að veðsetja aflaheimild skipa. Nú hefur þetta ákvæði verið fellt úr frumvarpinu að ósk Framsóknar- flokksins. Þorsteinn Pálsson dómsmálaráð- herra sagði, þegar hann mælti fyrir frumvarpinu, að hann hefði talið eðlilegra að ekki væri sátt um að hafa ákvæðið í frumvarpinu. Hann hefði talið eðlilegra að tryggja betur með lögum réttindi lánastofnana og setja útgerðarmönnum þrengri skorður en verið hefði. En sjálfsagt væru fleiri þingmenn sem teldu að útgerðarmenn ættu að geta fram- selt aflaheimildir sem veðsettar hefðu verið með skipum og þannig rýrt stöðu lánveitandans. Ekki væri um að ræða ágreining um að unnt væri að veðsetja veiði- heimildir. Og það að ákvæðið hyrfi úr frumvarpinu snerti það mál ekki. Hins vegar væri verið að rýmka frá fyrri gerð frumvarpsins frelsi út- gerðarmanna til að ráðstafa veð- settum aflaheimildum. Það fæli í sér óbreytt ástand, sem raunar hefði hingað til ekki valdið óróleika á lá- namarkaði. Misskilningur eða ekki Þorsteinn sagði það misskilning að slík trygging til lánveitenda hefði einhver áhrif á stöðu fiskveiðistjórn- unarlaganna. Löggjafinn gæti breytt lagaákvæðum um stjóm fisk- veiða burtséð frá því hvaða trygg- ingar menn veittu lánveitendum útvegsmanna. Misskilningurinn byggðist e.t.v. á því að einhveijir teldu unnt að taka veð í aflahlutdeildinni sérstak- lega en það væri ekki hægt og and- stætt fiskveiðistjórnunarlögunum því aflamark væri bundið við skip. Sighvatur Björgvinsson þing- maður Alþýðuflokks sagði að eng- um manni hefði dottið í hug að hægt yrði að taka veð í aflahlut- deildinni sérstaklega og fráleitt af Þorsteini að nota þetta sem röksemd gegn afstöðu Framsóknarflokks, Alþýðuflokks, og sennilega Alþýðu- bandalagsins. Sighvatur sagði að ef sú breyting hefði orðið á lögum um samnings- veð, sem dómsmálaráðherra vildi, þá myndu lánastofnanir geta gert skaðabótakröfu á ríkisvaldið breytti Alþingi lögum um stjórn fiskveiða. Að ákvæðið um veðsetningu afla- heimilda sé ekki í frumvarpinu þýði, að Alþingi geti .gert þær breytingar sem það lysti. „...því það er í gadda slegið að fiskurinn í sjónum er þjóð- areign.“ Ráðherra beygður Steingrímur J. Sigfússon þing- maður Alþýðubandalags 'sagði að dómsmálaráð- herra hefði lengi framan- af í málínu lagt ofurkapp á að umrætt ákvæði næði fram að ganga og talið það úrslitamál en segði nú að ákvæðið skipti engu máli. Ráðherr- ann hefði því greinilega verið beygð- ur. Steingrímur sagði það lágkúru- legan málflutning hjá Þorsteini að láta að því liggja að þeir sem væru á móti málinu gengju erinda óprútt- inna útgerðarmanna. Málið snerist ekki um það heldur um það, að ef lagaheimild væri fyrir því að veð- setja aflaheimildir yrðu þær smátt og smátt að mjög mikilvægum veð- um í efnahagslífinu og sá þrýsting- ur skapaðist á stjórnvöld að rýra þær ekki með neinum breytingum. Því myndi fátt treysta óbreytt kvótakerfi betur í sessi en laga- breyting af þessu tagi. Grunnsjónarmið Þingmenn Framsóknarflokksins voru inntir eftir ástæðum þess að þeir vildu ekki fallast á veðheimild- ir á aflakvótum. Hjálmar Árnason svaraði að ýmsar ástæður væru fyrir þessu, en hann sjálfur hefði lagt þau grunnsjónarmið til grund- vallar að auðlindin væri sameign þjóðarinnar og um væri að ræða afnotarétt á þeirri auðlind. Með lögbundnum veðsetningum á aflaheim- ildum væri verið að stíga fyrsta skrefið að ávísun á eign einstaklinga eða útgerða á auðlindinni. Innan 10-15 ára kynnu menn að benda á, að þeir hefðu á grundvelli lagastoðar haft veðsetn- ingu á aflaheimildum og vildu nú stíga næsta skref, að eignast kvót- ann. Hjálmar sagðist telja að núver- andi fyrirkomulag gæti gengið áfram þar sem bankar og lánastofn- anir þyrftu að meta sína áhættu. Eignarréttarákvæði styrkt Guðný Guðbjörnsdóttir þingmað- ur Kvennalista lýsti yfir ánægju með að ákvæðið um veðsetningu aflaheimilda skipa væri horfið úr frumvarpinu. Hún sagðist vilja halda fast við það að fiskurinn í sjónum væri eign þjóðarinnar. Ef lögfest væri heimild um að veðsetja aflaheimildir væri að sínu mati stig- ið of stórt skref í þá átt að viður- kenna, að heimildirnar væru í eigu þeirra sem hefðu afnot af þeim hveiju sinni. Fyrst þegar sátt væri um, að 1. grein fiskveiðistjórnunar- laganna væri virt, t.d. með veiði- leyfagjaldi, yrði hægt að ná fram viðunandi lausn fyrir fjár- málastofnanir á veðsetn- ingu í sjávarútvegi. Kristinn H. Gunnars- son þingmaður Alþýðu- bandalags sagði að brott- fall ákvæðisins úr frumvarpinu styrkti eignarréttarákvæði fisk- veiðistjórnunarlaganna og nið- urstaða þingumræðunnar væri sú að þingmenn vildu senda þau skila- boð frá þinginu að það tefldi ekki á tvær hættur varðandi eignarhald á auðlindinni. Sýndarmennska Einar Oddur Kristjánsson þing- maður Sjálfstæðisflokks sagðist frá upphafi hafa verið andstæðingur aflamarkskerfisins, vegna sóunar- innar sem það hefði í för með sér. En kerfið gæti haft ýmislegt sér til hróss. Hagfræðilega væri það til bóta vegna þess að það fæli í sér séreignaráhrif. Og allir flokkar og ríkisstjórnir sem setið hefðu á Al- þingi síðan 1983 bæru ábyrgð á því. Einar Oddur sagðist vera sann- færður um að þegar ákvæðið um að fiskistofnarnir væru sameign þjóðarinnar var sett í fiskveiði- stjórnunarlögin, þá hefði það fyrst og fremst verið sýndarmennska enda hefði ákvæðið engin áhrif. Fiskar, eins og annað; væru eign hins himneska föður. „Eg tel að það verði þannig í framtíðinni, eins og verið hefur, að þeir sem veiða fisk- ana eiga þá.“ Rökleysa Þorsteinn Pálsson sagði í lok umræðunnar að það væri rökleysa að halda því fram að með því að fella frumvarpsákvæði út hefði ver- ið dregið úr því að festa kvótakerf- ið í sessi. Og færa fyrir því þau rök, að þegar löggjafinn takmark- aði framsal aflaheimilda festi það framsalsréttinn og aflamarkskerfið í sessi. Frekar mætti færa rök fyrir hinu gagnstæða. En réttara væri þó, að þetta hefði engin áhrif á fisk- veiði stj órnunarkerfið. Stjórnarnúningur Nokkur núningur virtist vera milli þingmanna stjórnarflokkanna vegna málsins. Kristján Pálsson þingmaður Sjálfstæðisflokks sagði að ákvæðin um veðsetningu afla- heimilda hefðu verið inni í frum- varpsdrögunum þegar það kom til stjórnarflokkanna fyrir áramót, með þeim formerkjum að ríkis- stjórnin hefði einróma samþykkt framlagningu þess. Margir • þing- menn Sjálfstæðisfiokksins hefðu þá áskilið sér rétt til að vera gegn frumvarpinu þegar kæmi að af- greiðslu þess á Alþingi. Kristján sagðist sjálfur hafa gert fyrirvara um ákvæðið um veðsetn- ingu kvóta. Hann sagði að sjálf- stæðisþingmenn hefðu ekki áttað sig á því, að með því að afgreiða málið með fyrirvara, þá hefðu ráð- herrar Framsóknarflokksins gefið sínum þingmönnum tækifæri til þess að hafna einstökum atriðum inni í frumvarpinu, eins og þeir væru frelsararnir í málinu og þar með hygla eigin þingmönnum á kostnað þingmanna Sjálfstæðis- flokksins. „Þessi vinnubrögð eru með ólíkindum,“ sagði Kristján. Guðni Ágústsson þingmaður Framsóknarflokksins sagði að sér hefði orðið ómótt undir ræðu Kristj- áns, sem hefði ráðist á þingflokk Framsóknarflokks fyrir að fjalla lýðræðislega um málið og taka afstöðu til frum- varpsins og margra atriða sem í því væru. Það hefði verið samdóma álit þing- flokksins að umrætt atriði yrði að fara út úr frumvarpinu ef það ætti að ná fram, á þeirri for- sendu að það ætti að veija það að auðlindin væri sameign þjóðarinnar. Á þetta hefði Sjálfstæðisflokkurinn síðan fallist og því væru flokkarnir tveir í fullri samvinnu og heilindum í málinu. Þrívegis lagt fram áður á Alþingi Þeir sem veiða fiskana eiga þá STÖÐUGT fleiri þýsk fyrirtæki verða að fækka störfum til að spara. Hér mótmæla starfsmenn hjá Zeiss-fyrirtækinu því að störfum verði fækkað. Þýska kerfíð í tilvist- arkreppu Aukið atvinnuleysi og lítill sem enginn hag- vöxtur hefur knúið þýsku ríkisstjómina til að samþykkja umfangsmiklar efnahagsaðgerðir. Þær eru þó umdeildar og eru skiptar skoðanir um hversu miklum árangri þær muni skila. ÝSKA ríkisstjórnin mun á næstunni leggja allt kapp á að hleypa nýju lífi í efna- hagslífið í þeirri von að fjölga atvinnutækifærum og draga úr fjárlagahalla þannig að Þýskaland uppfylli skilyrði Maastricht-sáttmál- ans fyrir þátttöku í hinum efnahags- lega og peningalega samruna Evrópu- ríkja, EMU. Atvinnuleysi hefur stöð- ugt farið vaxandi, hagvöxtur verið neikvæður og fjárlagahalli á síðasta ári var töluvert meiri en Maastricht- skilyrðin leyfa. Þýska kerfið, er um áratugaskeið hefur byggt á blöndu markaðshagkerfis, velferðarkerfis og umfangsmikils samráðs hagsmunaað- ila í efnahagslífinu, er í tilvistar- kreppu. Vandinn í þýsku efnahagslífi hefur leitt til mikillar óvissu um framtíð EMU og virðast fáir trúa því lengur í raun að hægt verði að taka fyrstu skrefin í átt að sameiginlegri mynt árið 1999, líkt og Evrópusambands- ríkin eru skyldug til að gera sam- kvæmt Maastricht. Helmut Kohl, kanslari Þýskalands, hefur verið helsti talsmaður peningalegs samruna en fiármálaráðherrann Theo Waigel jafn- framt verið sá stjórnmálamaður í Evr- ópu sem mesta áherslu hefur lagt á að ekki megi hvika frá hinum ströngu skilyrðum er ákveðin voru á sínum tíma í Maastricht. Án Þjóðveija er ekki efnahagslegur grundvöllur fyrir sameiginlegri mynt og án Frakka, sem einnig hafa verið í miklum vanda, ekki pólitískur gnindvöllur. Það er því engin tilviljun að stjórn- völd jafnt í Þýskalandi og Frakklandi skuli á þriðjudag hafa greint frá viða- miklum aðgerðum í efnahagsmáium, er eiga að miða að því að auka hag- vöxt og skapa ný störf. Þýsku tillögurnar eru í fimmtíu lið- um og mun umfangsmeiri en þær frönsku. Meðal helstu atriða í þeim má nefna að sérstakur stóreignaskatt- ur verður afnuminn, breytingar gerðar á erfðaskatti og dregið úr greiðslum vinnuveitenda til félagslegra trygg- inga launþega. Atvinnuleysisbætur verða skeitar og hlutabréfaskattar lækkaðir. Þá er stefnt að því að lækka svokallaðan „samstöðuskatt", er lagð- ur var á sem tekjuskattsauki til að fjármagna uppbygginguna í austur- hluta Þýskalands eftir sameiningu, úr 7,5% í 5,5%. Margir efnahagssérfræðingar efast um að Þjóðveijum og Frökkum takist að glæða vonir manna um hagvöxt á ný til að halda áformunum um sameig- inlega mynt árið 1999 á lífi. Tillögurn- ar hafa hins vegar beint athygli frá nýjum hagspám, er voru birtar í Þýskalandi í fyrradag, þar sem því er spáð að Þjóðveijar muni á þessu ári rétt eins og í fyrra ekki uppfylla skilyrði Maastricht um að ijárlaga- halli sé innan við 3% af vergri iands- framleiðslu. Tillögur frönsku stjórnarinnar, sem Jean Arthuis fjármálaráðherra kynnti í þinginu á þriðjudag, eru líkt og áður sagði mun umfangsminni og í raun einungis nákvæmari útfærsla á tillög- um er Alain Juppé forsætisráðherra kynnti í síðasta mánuði. I þeim felst m.a. að helstu innlánsvextir á spari- | reikningum póstsins og hjá ríkisrekn- um sparisjóðum eru lækkaðir úr 4,5% í 3,5%. Þá verður boðinn skattaafslátt- ur vegna kaupa á íbúðarhúsnæði er nota á til útleigu og fyrir að breyta skrifstofuhúsnæði í íbúðarhúsnæði. Einnig stendur til að gera skattabreyt- ingar til að ýta undir fjárfestingar. Vatnaskil eftir ræðu Ludewig Þýska tímaritið Der Spiegel segir að vatnaskil hafi orðið fyrr í mánuðin- um á fundi hjá kristilegum demókröt- um, CDU, í bænum Mayschoss skammt frá Bonn. Meðal þeirra er tóku til máls á fundinum var Johannes Ludewig, háttsettur embættismaður í efnahagsmálaráðuneytinu, er eitt sinn starfaði á skrifstofu kanslarans. Ludewig, sem um árabil hefur verið. helsti efnahagsráðgjafi Kohls, skipu- lagði m.a. á sínum tíma uppbygging- una í austurhluta Þýskalands. Hann lagði fram drög að áætlun í fjórum liðum, eins konar neyðaráætlun gegn atvinnuleysi. Ludewig var ómyrkur í máli og sagði kjarna málsins vera að launakostnaður og launatengd gjöld væru of há í Þýskalandi. Ef fjölga ætti atvinnutækifærum yrði að lækka launatengdan kostnað og hækka virð- isaukaskatt á móti. Þá yrði að fækka skattaívilnunum og lækka í staðinn tekjuskatt. Loks yrði að auðvelda mönnum að koma nýjum fyrirtækjum á laggirnar. Ekki fór á milli mála að Ludewig var með þessum tillögum að endurspegla, líkt og svo oft áður, sjón- armið kanslarans. Þetta innlegg Ludewigs varð til að breyta umræðunni innan CDU og síð- an pólitískri umræðu í landinu. Hún hefur undanfarnar vikur snúist um fátt annað en það hvemig hægt sé að fjölga störfum og fækka atvinnu- lausum. Hið stóraukna atvinnuleysi í Þýska- landi veldur mönnum miklum áhyggj- um. Um fjórar milljónir Þjóðveija eru nú opinberlega án atvinnu. Þessar töl- ur segja hins vegar ekki allan sannleik- ann. Spiegel segir hina réttu tölu vera nær sex milljónum og að efnahags- stofnanir spái því að fjöldi atvinnu- lausra gæti numið átta milljónum inn- an skamms, verði ekkert að gert. Hagfræðingar hafa um langt skeið verið sammála um að launakostnaður sé helsta vandamál þýsks efnahagslífs þó að stjórnmálamenn hafi forðast eins og heitan eldinn að ræða það. Þá er einnig ljóst að verulegar breyt- ingar verður að gera á velferðarkerf- inu til að draga úr rekstrarkostnaði fyrirtækja. Samanburður við Bretland í þýskri stjórnmálaumræðu er farið að bera töluvert á því að ástandið í Þýskalandi sé borið saman við ástand- ið í Bretlandi. Löngum hafa Þjóðveijar litið með hálfgerðri fyrirlitningu til þeirra þjóðfélagsbreytinga er Margar- et Thatcher og breski Ihaldsflokkurinn stóðu fyrir á síðasta áratug og hampa í staðinn hinu „félagslega markaðs- kerfi“ Þýskalands. Nú er hins vegar svo komið að Bret- land er orðið að helstu fyrirtækjapara- dís Evrópu. Um þúsund þýsk fyrirtæki hafa opnað þar útibú svo dæmi sé tekið og skapað með því um hundrað þúsund ný atvinnutækifæri. Mikilvæg skýring á því er ekki síst að launa- kostnaður er hehningi lægri í Bret- landi en Þýskalandi. Laun eru tveir þriðju af því sem þau eru í Þýskalandi en launatengdur kostnaður einungis þriðjungur. Þá eru frídagar breskra launþega mun færri en launþega i Þýskalandi, engin lágmarkslaun eru í gildi og vinnutími er almennt lengri. Síðast en ekki síst eru áhrif verkalýðs- félaga mun minni í Bretlandi en flest- um öðrum Evrópuríkjum. Boða ekki „thateherisma“ Áform þýsku stjómarinnar eru langt frá því að vera það róttæk að hægt sé að kenna þau við thatcherisma af einhveiju tagi. Þau hafa þrátt fyrir það sætt harðri gagnrýni stjórnarandstöð- unnar og verkalýðsfélaga. Rudolf Scharping, einn helsti leiðtogi jafnaðar- manna, sagði á miðvikudag að ekki væri hægt að beijast gegn atvinnu- leysi með þvi að beija á atvinnulausum. Til stendur að halda áfram allsheij- arviðræðum ríkisstjómar, stéttarfé- laga og samtaka vinnuveitenda er hófust 23. janúar sl. og er ákveðin hætta á því að þær muni þróast út í hugmyndafræðilega togstreitu og því skila litlum árangri. í viðræðum fyrr í mánuðinum náð- ist samkomulag um að draga yrði úr kostnaði við velferðarkerfið, gera um- bætur í skattamálum og draga úr launakostnaði til að auka samkeppn- ishæfni þýsks efnahagslífs. Var markmiðið sagt vera að fækka at- vinnulausum í um tvær milljónir fyrir aldamót. Næstu viðræðulotur hafa verið boðaðar í febrúar og apríl. Andstaða jafnaðarmanna Gerhard Schröder, forsætisráðherra Neðra-Saxlands og einn helsti leiðtogi jafnaðarmanna, gagnrýndi harðlega að jafnaðarmenn tækju ekki þátt í viðræðunum og benti á að án stuðn- ings jafnaðarmanna gætu margar af tillögunum ekki orðið að lögum. Jafn- aðarmenn eru í meirihluta í Sambands- ráðinu, efri deild þingsins, þar sem fulltrúar sambandslandanna eiga sæti. Þá sagði Klaus Zwickel, Ieiðtogi hinna öflugu samtaka IG Metall og helsti hvatamaðurinn að allsheijarvið- ræðunum, að aðgerðaáætlun ríkis- stjórnarinnar myndi engu skila. Her- bert Mai, forseti ÖTV, samtaka opin- berra starfsmanna, sagði þær tákn um afturhvarf til gamallar hugmynda- fræði. „Þeir hafa reynt að lækka skatta á fyrirtæki og bijóta niður velferðar- kerfið í þrettán ár. Það verður að draga úr launakostnaði en það á ekki að bitna á launþegum einvörðungu," sagði Mai. Ef jafnaðarmenn spyrna við fótum og verkalýðshreyfingin setur sig upp á móti áformuin ríkisstjórnarinnar gæti reynst erfitt að koma þeim í fram- kvæmd. Margir liðir áætlunarinnar eiga að sama skapi ekki að koma til framkvæmda fyrr en upp úr miðju næsta ári og jafnvel síðar og því mun líða langur tími áður en áhrifa þeirra fer að gæta að ráði. Norbert Walter, yfirhagfræðingur Deutsche Bank í Frankfurt, segir við Reuters að árangurinn muni ekki skila sér nema til lengri tíma litið og líklega"~ yrðu áhrifin á atvinnustig engin á yfir- standandi ári. Prófraunin verður sú kjaravið- ræðnalota er hefst síðar á árinu. Þá fyrst, kemur í ljós hvort verkalýðs- hreyfingin er reiðubúin til að fallast á að kauphækkunum verði stillt í hóf eða hvort reynt verður að knýja fram umfangsmiklar hækkanir á launum er myndu keyra upp launakostnað. í síðustu samningalotu voru laun hækk- uð um nær 5% á einu ári á sama tíma og fyrirtæki voru að byija að rétta úr kútnum eftir mikið erfiðleikatíma^ bil með hrikalegum afleiðingum. Vöruðu samtök þýska bílaiðnaðar- ins við því í fyrradag að ef ríkisstjórn og stéttarfélög stæðu ekki saman að því að lækka launakostnað myndu bif- reiðaframleiðendur neyðast til að fækka störfum um hundrað þúsund fram til ársins 2000. Framleiðsla yrði einfaldlega flutt úr landi. "
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.