Morgunblaðið - 02.02.1996, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 02.02.1996, Blaðsíða 42
-42 FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1996 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ t Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, EYJÓLFUR ELÍASSON frá Reyðarfirði, lést á Hrafnistu í Reykjavík 31. janúar. Útförin auglýst síðar. Brynjar Eyjólfsson, Rfkey Guðmundsdóttir, Guðrún Eyjólfsdóttir, Kristinn Grfmsson, Jarþrúður Eyjólfsdóttir Karlsson, Bo Karlsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengda- faðir og afi, BJARNI ANDRÉSSON skipstjóri, lést í Landakotsspítala 1. febrúar. Jarðarförin auglýst síðar. Karen Andrésson, Alda Bjarnadóttir, Kristján Óskarsson, Kári Jóhannesson, Bjarni I. Kristjánsson, Bjarni B. Kárason, Örn Ó. Kristjánsson, Jóhann Ö. Kárason. t Faðir okkar og bróðir, GUNNAR R. PÁLSSON, lést á hjúkrunarheimili í Palm Beach, Flórída, þann 30. janúar sl. Ralf E. Paulsson, Paul G. Paulsson, Lovísa Pálsdóttir, Matthildur Pálsdóttir. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langa- langamma, SESSEUA GUÐLAUG HELGADÓTTIR frá Grímsey, Jaðarsbraut 11, Akranesi, lést í Sjúkrahúsi Akraness 17. janúar sl. Útför hennar fór fram í kyrrþey, að hennar ósk, frá Akraneskirkju 25. janúar sl. Við þökkum þeim mörgu, sem auðsýndu okkur samúð og heiðr- uðu minningu hennar. Helgi Daníelsson, Steindóra Steinsdóttir, Björgvin Daníelsson, Sigrfður Jónsdóttir, Hafdís Danielsdóttir, Helgi Andrésson, Hlín Danfelsdóttir, Erlingur Þorsteinsson og aðrir ættingjar. t Útför eiginkonu minnar, ELÍSABETAR JÓHANNSDÓTTUR, Skóiavegi 7, Hnífsdal, sem lést í Gautaborg þann 15. janúar sl., fer fram frá ísafjarðarkirkju á morg- un, laugardaginn 3. febrúar, kl. 14.00. Torfi Einarsson. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR B. JÓNSSON, Sólbergi, Bolungarvfk, sem lést þann 28. janúar sl., verður jarðsunginn frá Hólskirkju í Bolungarvík á morgun, laugardaginn 3. febrúar, kl. 11.00. Blóm og kransar vinsamlega afþakkað- ir, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Landssamtök hjartasjúklinga. Fríða Pétursdóttir, Björg Guðmundsdóttir, Elfsabet Guðmundsdóttir, Björgvin Bjarnason, Asa Guðmundsdóttir, Georg Karonina, Jón Guðni Guðmundsson, Guðrfður Guðmundsdóttir, Ragna Guðmundsdóttir, Sveinbjörn Sveinbjörnsson, Ingibjörg Guðmundsdóttir, Magnús Birgisson, barnabörn og barnabarnabörn. GUÐMUNDUR GUNNLA UGSSON + Guðmundur Gunnlaugsson fæddist í Súðavík 8. júní 1917. Hann lést í Borgarspítal- anum 28. janúar síðastliðinn. For- eldrar hans voru Gunnlaugur Rand- ver Einarsson og Sigrún Jónsdóttir. Systkini Guðmund- ar eru: Pálmi Sveinn og Jón Hjaltalín sem nú eru látnir, Magnús og Salóme. Eigin- kona Guðmundar var Asta Sveinbjörnsdóttir, hún lést 22. janúar 1993. Ásta átti fyrir tvær dætur sem eru: Elínborg Stef- ánsdóttir og Sonja Ingvarsdótt- ir. Dætur Guðmundar og Ástu eru Hrafnhildur og Sigrún. Útför Guðmundar fer fram frá Bústaðakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.80. GUÐMUNDUR Gunnlaugsson er látinn á áttugasta aidursári og er þar genginn góður drengur. Hann var einn af mörgum þeirrar kynslóð- ar sem þurfti að vinna hörðum hönd-' um til að skapa sitt lifibrauð og leggja stein í þann nægtabrunn sem við yngri afkomendur margra þess- ara vinnusömu hraustmenna ausum úr í dag. Faðir minn, Pálmi Sveinn, varð á unglingsárum að ganga i verk hús- bónda á heimili fjölskyldunnar í Súðavík. Þar stóð hann við hlið móður sinnar Sigrúnar Jónsdóttur, ungrar ekkju með tvíburana Guð- mund og Jón Hjaltalín, ásamt Magn- úsi og komungri dóttur, Salóme. Þetta mótaði líf þeirra systkina, þau kynntust ung lífsbaráttunni, studdu hvert annað og brutust öll áfram af dugnaði og harðfylgi til vegs og virðingar. Guðmundur setti snemma á stofn eigið fyrirtæki í Reykjavík. Það var Þvottahúsið Eimir við Bröttugötu og varð síðan einn af frumhetjum atvinnurekenda í Síðumúlanum þeg- ar hann flutti rekstur Eimis þangað í nýja og mikla byggngu. Þar starf- aði Guðmundur út sinn vinnuferil, Þvottahúsið Eimir seldi hann Landa- kotsspítala og sá um það áfram í nokkur ár, eða þar til þvottahúsið var sameinað Þvotta- húsi Ríkisspítalanna. „Gummi“ var hann kallaður á mínu æsku- heimili og „Gumma frænda" kallaði ég hann frá blautu barns- beini, hann var mér sem barni strax afar kær. Gummi frændi hafði ákveðna sérstöðu á meðal frændfólksins. Hann var frændinn sem kom oft í heimsókn til okkar á Akranes, léttur í lund og gjafimar sem hann hafði meðferðis eða sendi voru oft frábrugðnar öðr- um gjöfum sem ungur strákur á Skaganum fékk. Ferðirnar í „bæ- inn“ urðu margar á æskuárunum og eru minnistæðar margar ferðir með Gumma frænda um bæinn á sendibíl við útréttingar. Þá var víða farið um borgina og vesturbæ við að sækja eða skila af sér þvotta- pinklum, gönguferðir um bæinn og fastar ferðir við Tjörnina. Gummi frændi þekkti margt fólk í borginni, og oft hafði hann gaman af því að kynna mig, strákpjakkinn fyrir ýms- um vinum sínum eða kynlegum kvistum. Þvottahúsið við Bröttugötu varð því snemma fastur partur í til- veru minni, einskonar miðja Reykja- víkur og þar átti ég ófáar stundir innandyra. Eða þá í garðinum í heim- sóknum eða á meðan foreldramir sinntu bæjarerindum. Þeir voru um margt líkir bræð- urnir, faðir minn Pálmi Sveinn og Gummi frændi. Miklir vinnuþjarkar og afkastamenn, lögðu ávallt mest á sínar eigin herðar við að komast áfram í lífínu, höfðu mikinn metnað og mikið stolt. Þeir ætluðu fjölskyld- unni allan afraksturinn og börnum sínum af þeim afrakstri allra mest og best. Á unglingsárum mínum og allar götur síðar var það jafnan fastur hluti af „bæjarferðunum“ að koma við í Síðumúlanum eða heima hjá Gumma frænda og Ástu, eiginkon- unni sem hann kyntist síðar, elskaði og dáði. Ásta var sannkölluð ást í lífí Gumma, hún var konan sem skap- Lokað Lokað frá hádeqi í dag vegna jarðarfarar ÓLAFS SIGURJONSSONAR. Skógræktarfélag Reykjavíkur. t Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og vinarhug og aðstoðuðu okkur við andlát og útför föður okkar, SIGURÐAR GUÐMUNDSSONAR frá Hjarðardal, Fjarðargötu 14, Þingeyri. Vignir Sigurðsson, Dagrún Sigurðardóttir, Hermann Sigurðsson, Gunnar Sigurðsson, Torfi G. Sigurðsson, t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN SIGURÐARDÓTTIR frá Bóndastöðum, Seyðisfirði, síðast í Smáratúni 13, Selfossi, verður jarðsungin frá Selfosskirkju laupardaginn 3. febrúar kl. 13.30. Boðið verður upp á rútuferð frá BSI kl. 12.30. Reynir Valgeirsson, Valdfs Valgeirsdóttir, Örn Jónsson, Sigrfður Gísladóttir, barnabörn og langömmubörnin. Svavar Stefánsson, Guðrún Unnur Rafnsdóttir, Guðbjörg Edda Karlsdóttir, Ólafía Guðný Sverrisdóttir. aði honum heimili, konan sem stóð við hliðina á honum í áratugi og varð kjölfestan í heimilislífinu. Þetta voru samhent hjón hvort á sínu sviði og alltaf var ánægjulegt að hitta Ástu, létta, víðsýna og ljúfa mann- eskju. Það var Guðmundi mikið áfall að missa „Ástu sína“, eins og hann kallaði hana oft, en það var nokkuð óvænt fyrir þremur árum. Ásta átti tvær dætur áður sem ' urðu uppeldisdætur Gumma, þær Elínborgu og Sonju. Saman áttu þau tvær dætur, Hrafnhildi og Sigrúnu sem fengu alla hans athygli þegar eldri dætumar fluttu að heiman. Hrafnhildur og Sigrún urðu sólar- geislarnir sem skinu hvað skærast í huga Gumma, þær urðu hans til- vera og framtíð, ekkert í verkum hans virtist hafa tilgang nema hluti af því væri tengdur þeirra velferð. Ást hans til þeirra var mikil, oft var það haft á orði að þegar ættmenni hittu Gumma þá voru ávallt fyrst í umræðunni fréttir af högum Hrafn- hildar og Sigrúnar. Dætumar voru hans dýrmætasta eign, hann sá í vexti þeirra virkilegan tilgang í líf- inu og það veitti honum lífsfyllingu að leggja enn meira á sig til að gera framtíð þeirra sem mesta og besta. Þær voru um leið hans fram- tíð sem hann deildi með konunni sem hann dáði, Ástu. Gummi varð fyrir áfalli síðla árs 1994 og kom heim af sjúkrahúsi sem sjúklingur. Maðurinn sem þrátt fyr- ir aldur var fram að þvi virkilega sprækur, fór í laugarnar, ók um bæinn og sá um alla sína umsýslu og eignir sjálfur þurfti skyndilega á stuðningi annarra að halda í hinu daglega lífi. Áfallið var mikið fyrir þennan kappsama og sjálfstæða mann, hann sem „aldrei“ hafði ver- ið upp á aðra kominn síðan hann sleit barnsskónum í Súðavík. Gummi hafði mjög skýra hugsun í veikind- um sínum og mikinn viljastyrk. Enn átti hann til hinn gamla metnað og stolt. Hann ætlaði sannarlega að standa réttur og hafa sitt sjálfstæði og heimili á meðan stætt væri. Slíka menn ber að virða, slíkra manna ber að taka tillit til, slíkir menn eiga rétt á að fá fullan stuðning frá þeim sem þeir hafa helgað líf sitt og strit. Þegar veikindi eða erfiðleikar dynja yfir, þá reýnir á þá sem næst- ir okkur standa. Þá fyrst upplifum við hvaða vini við eigum og hver eru börnin okkar. Það er oft ótrú- legt hvað veraldlegir hlutir geta blindað okkur mannfólkinu sýn, jafnvel svo að ágirndin yfirtekur skynsemina og menn verða upp- teknir af því að skara eld að eigin köku, en í annarra manna eldstæði. Það jafnvel svo að þeir sem áður stóðu næstir bregðast og neita áður ástkærum öldungi um stuðning og horfa til hans sem byrði. Gummi, þessi elskulegi frændi minn sem enga illgirni átti til, hann þurfti að upplifa það að verða settur skör lægra en þeir veraldlegu hlutir sem hann sjálf- ur hafði aflað. Þrátt fyrir mótlæti og vonbrigði var hann ákveðinn í að standa til þrautar þótt gæfi á bátinn í þessum lífsins ólgusjó og þá með stuðningi annarra. Hrafnhildur stóð við hlið Gumma eins og klettur í hafinu og var alltaf tilbúin til að styðja hann við hvert ólagið sem kom síðustu mánuðina. Frá henni og börnunum kom mikið af þeirri hlýju sem hann þurfti á að halda. Sonju sem býr erlendis minntist hann ávallt mjög innilega í veikindum sínum. Aðrir úr hans ástkæru og nánustu fjölskyldu voru ekki til staðar þegar hann loksins þurfti sjálfur á þeim að halda, þær horfðu í aðra átt. Ég er stoltur af þessum elskulega frænda mínum, minning hans mun lifa áfram því hann er hluti af upp- runa mínum og uppvexti sem þeir bræður Guðmundur og Pálmi Sveinn tóku höndum saman um að tryggja ásamt móður minni Matthildi. Bestu þakkir vil ég flytja hjúkr- unarfólki og læknum á deild 4B á Borgarspítalanum sem sýndu Gumma mikinn skilning og góðan stuðning. Ég kom þar oft og fylgd- ist með frábæru starfi þessa fólks þar sem virðing fyrir manneskjunni er vissulegu sett í forsæti. Pálmi Pálmason.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.