Morgunblaðið - 02.02.1996, Qupperneq 26
26 FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FJÖLMIÐLUN
New Statesman
berst fyrir lífinu
NEW STATESMAN, vikublað
vinstrisinnaðra jafnaðarmanna í
Bretlandi, hefur rambað á barmi
gjaldþrots um árabil og nú eru
mál þess komin í hendur skipta-
ráðanda, sem reynir að selja það
hæstbjóðanda.
Hnignun New Statesman hófst
fyrir 30 árum þegar blaðið seldist
í um 96.000 eintökum, en nú er
upplagið aðeins 20.000 eintök og
tapið á rekstrinum 5-6.000 pund
á viku.
Eigandi New Statesman er sós-
íalisti og milljónamæringur, Philip
Jeffrey, sem keypti blaðið þegar
litlu munaði að það yrði gjaldþrota
vegna ósigurs fyrir John Major
forsætisráðherra í meiðyrðamáli.
Erfiðir samstarfsmenn
Jeffrey hefur stutt ritstjórann,
Steve Platt, sem hefur sætt gagn-
rýni fimm fjárhaldsmanna (einn
þeirra er dálkahöfundurinn Neil
Ascherson). Þeir gegna því hlut-
verki að standa vörð um sjálfstæði
blaðsins og geta neitað að sam-
þykkja ráðningu eða brottvikningu
ritstjóra.
Jeffrey kennir fjárhalds-
mönnunum um hnignun blaðsins,
þótt þeir hafi ekki skipt sér af
skrifum þess, og hefur viljað losna
við þá. Fjárhaldsmennirnir komu
í veg fyrir fyrirætlanir Jeffreys
um að endurfjármagna New Stat-
esman af ótta við að Jeffrey ræki
þá.
New Statesman skuldar Jeffrey
600.000 pund og ákvörðun fjár-
haldsmannanna varð til þess að
hann fól málið í hendur skiptaráð-
anda. Gert var ráð fyrir að þar
með yrði honum gert kleift að
kaupa eignir blaðsins án þeirra
gömlu skuldbindinga sem á þeim
hvíldu. Síðan hefur milljónamær-
ingur og þingmaður Verkamanna-
flokksins, Geoffrey Robinson, boð-
ið í New Statesman. Jeffrey neitar
því að hann sé á móti tilboði Robin-
sons, en barátta fjárhaldsmann-
anna gegn Jeffrey hefur vakið
andúð flokksleiðtogans, Tony Bla-
ir.
Steve Platt ritstjóri hefur boðizt
til að segja af sér og hann hefur
ekki stutt Blair. Því telja stuðn-
ingsmenn flokksleiðtogans að Jef-
frey sé orðinn „einn af þeim.“
Gordon Brown, sem er fjármála-
ráðherra í skuggaráðuneyti
Verkamannaflokksins, átti hins
vegar hugmyndina að tilboði Rob-
insons í New Statesman. Fjár-
haldsmennimir voru hæstánægðir
með tilboð Robinsons og töldu að
hann yrði þeim auðsveipur.
Ýmsir segja að Robinson sé
stuðningsmaður Gordons Browns
og ætlunin sé að nota New States-
man til að koma Brown til aukinna
metorða. Robinson nýtur einnig
stuðnings þriggja fyrrverandi
framkvæmdastjóra blaðsins.
Fleiri hafa áhuga
Þannig virðist New Statesman
bitbein helztu fylkinga og auðug-
ustu manna brezka Verkamanna-
flokksins.
A sama tíma er eigandi
Harrods, Mohammed al Fayed,
einnig talinn hafa hug á að kaupa
New Statesman. Meðal annarra,
sem hugsanlegt er talið að vilji
kaupa blaðið, eru John Knight,
fyrrverandi blaðamaður Daily
Mirror, Richard Stott, fyrrverandi
ritstjóri Today, Derek Coombs,
fyrrverandi þingmaður íhalds-
flokksins, og Catherine Hallgart-
en, sem er af frægri vínætt.
Ýmsir telja þó líklegt að New
Statesman (eða „Staggers“ eins
og blaðið er kallað) verði áfram í
eigu Philips Jeffreys. Síðar mun
koma í ljós hvort lát verður á
dauðastríði New Statesman, sem
leikritaskáldið George Bernard
Shaw stofnaði 1913 ásamt öðrum.
Forstöðumaður alþjóðadeildar IDG í heimsókn hér á landi
Ná til um 95%
tölvunotenda
um allan heim
Morgunblaðið/Kristinn
David F. Hill
ÚTGÁFU S AMSTEYPAN IDG
(Intemational Data Group) er einn
stærsti útgefandi heims á sviði
tölvutækni og gefur samsteypan
út þekkt tímarit og blöð á borð við
Computerworld, PC World og
MACWorld. Þessi útgáfa IDG nær
nú til um 95% af tölvunotendum
heims, að því er fram kom í máli
Davids F. Hill, forstöðumanns al-
þjóðadeildar IDG, á hádegisverðar-
fundi á vegum Hemru ehf. sl.
mánudag.
Útbreiðsla IDG nær nú til um
70 þjóðlanda og bættist ísland
nýlega í hópinn er tímaritið Tölvu-
heimur hóf göngu sína. Hrósaði
Hill í hástert útliti hins nýja tíma-
rits og sagðist gjarnan draga það
upp á fundum sínum með útgefend-
um á mun stærri markaðssvæðum
sem dæmi um einstaklega vel
heppnaða útgáfu.
Hill sagði þessa miklu útbreiðslu
vera eitt af helstu markmiðum IDG
og væru smærri markaðir engin
undantekning þar á. „Markmið
okkar er að bæta aðstæður fólks
með því að koma upplýsingatækn-
inni betur á framfæri. í því skyni
stefnum við að því að vera til stað-
ar á öllum þeim mörkuðum sem
það er á annað borð mögulegt,"
sagði Hill og bætti því við að fyrir-
tækið leitaði gjaman samstarfs við
frumkvöðla í viðkomandi ríkjum
sem hefðu sömu sýn varðandi þessi
mál.
Hentugur vettvangur til
kynninga
Hill benti hugbúnaðarfyrirtækj-
um og öðrum sem störfuðu við
útflutning á tölvutækni á frétta-
þjónustu IDG sem tilvalinn vett-
vang til að koma vöru sinni á fram-
færi. Sagði hann að þjónusta þessi
starfaði í líkingu við fréttaþjón-
ustur á borð við Reuter eða Assoc-
iated Press, með fréttaritara til
• staðar út um allan heim.
„Útgáfur okkar í hveiju landi
hafa allar aðgang að þessum upp-
lýsingum og er heimilt að nýta sér
þær að vild. Þama hafa oft birst
fréttir af nýrri tækni eða nýrri teg-
und hugbúnaðar sem vakið hafa
athygli.
Okkur hafa oft borist fyrirspum-
ir um slíkar nýjungar frá aðilum
sem hafa áhuga á því að eiga við-
skipti við viðkomandi aðila, en hins
vegar emm við ekki í góðri aðstöðu
til að fylgjast með hvert framhald-
ið hefur orðið.“
Hill benti á að Tölvuheimur
væri fulltrúi IDG hér á landi og
hvatti hann tölvufyrirtæki óspart
til þess að nýta sér þennan mögu-
leika.
IDG stendur nú að útgáfu um
270 blaða og tímarita í um 70 lönd-
um, auk þess sem samsteypan hef-
ur gefið út bækur á yfir 28 tungu-
málum, unnið ýmsar rannsóknir á
sviði tölvuiðnaðarins í um 38 lönd-
um, auk fjölmargra námskeiða víðs
vegar um heim.
Svíar
stofna
sjónvarp
í Eistlandi
Tallinn. Reuter.
SÆNSKA fjölmiðlafyrirtækið
Kinnevik hefur undirritað
samning við nokkur eistnesk
fyrirtæki um stofnun nýrrar
sjónvarpsstöðvar í Eistlandi og
mun hún nefnast Stöð3.
AS EVTV, sem Kinnevik á
mikinn hlut í, mun eiga 42% í
nýju stöðinni. Telemedia Eesti,
sem er að hluta til í eigu
sænska fyrirtækisins Teleme-
dia, mun eiga um 34%. Aðrir
hluthafar eru eistnesku fyrir-
tækin Krenno, Finantsinvest
og Mainos-sjónvarpið í Finn-
landi.
Nýja rásin tekur við af
EVTV, sem var illa á vegi statt,
og RTV, sem sendi á sömu
tíðni, en annan hvern dag.
Flestir hluthafa nýju stöðv-
arinnar voru meðal eigenda
gömlu rásanna. Gert er ráð
fyrir að auglýsingatekjur nýju
stöðvarinnar í ár muni nema
rúmlega 200 milljónum ísl.
króna.
Eistneska ríkissjónvarpið
hefur verið vinsælasta rás
landsins.
Rupert Murdoch ver stórfé
til fréttasjónvarps
Spring-er
gefur út
sjónvarps-
bækur
Bcrlín. Reuter.
AXEL SPRINGER Verlag AG og
Thomas Lardon, bókmenntalegur
umboðsaðili í Hamborg, hafa komið
á fót sameignarfyrirtæki til að gefa
út bækur, sem eru byggðar á sjón-
varpsþáttum og eiga að fylgja þeim.
Nýja fyrirtækið nefnist S&L
MedienContor GmbH. Lardon legg-
ur til einkarétt á sjónvarpsefni, sem
hann hefur fengið hjá þýzku sjón-
varpsstöðvunum SATl og VIVA.
Springer leggur til „verkþekkingu
á sviðum markaðssetningar og
dreifingar."
New Vork. Reuter.
RUPERT MURDOCH, stjómarfor-
maður News Corp., hefur skipað
kunnan mann úr heimi kaplasjón-
varps yfirmann nýrrar sjónvarps-
stöðvar, sem á að senda út fréttir
eingöngu.
Úm leið hefur Murdoch lýst því
yflr að hann muni veija 80 milljón-
um dollara ári til að gera þann
draum sinn að veruleika að koma
á fót fréttasjónvarpi í líkingu við
CNN-sjónvarp Teds Tumers.
Murdoch sagði á blaðamanna-
fundi að hann vonaði að fréttasjón-
varpinu yrði komið upp fyrir árslok.
Auk CNN mun Murdoch keppa við
svipaðar stöðvar, sem ABC og NBC
sjónvarpskerfin hyggjast setja á
laggirnar á þessu ári og hinu næsta.
Ráðgjafi þriggja forseta
Hið nýja fréttasjónvarp
Murdochs fær nafnið Fox All News
Network og stjórnarformaður þess
og aðalframkvæmdastjóri verður
Roger Ailes, fyrrverandi stjóm-
málaráðgjafí þriggja forseta repú-
blikana, sem sagði nýlega lausu
starfi sínu sem forstjóri CNBC
kaplasjónvarps NBC.
Ailes á heiðurinn af því að hafa
gert CNBC að fremsta fjármála-
fréttaneti heims. Hann hætti hjá
CNBC í þessum mánuði þegar
NBC, sem er í eigu General Electric
Co., skýrði frá fyrirætlunum um
koma á fót eigin rás með stanzlaus-
um fréttum allan sólarhringinn án
þess að telja hann með.
Murdoch kvaðst gera ráð fyrir
að Fox-sjónvarpsnet sitt í Banda-
ríkjunum mundi njóta svo mikilla
vinsælda fyrir útsendingar frá
kappleikjum á næstu árum að tak-
ast mætti að tryggja hinni nýju
fréttarás aðgang að kaplakerfum.
Ailes og Murdoch eru þekktir
fyrir íhaldssemi í stjórnmálum og
neita því að fréttarás þeirra verði
hlutdræg.
Ailes benti á að hann hefði ekki
skipt sér af stjórnmálum„í nokkur
ár“ og Murdoch sagði: „Satt að
segja virðast allar hinar fréttarás-
irnar og CNN vera eins. Við verðum
öðru vísi.“