Morgunblaðið - 02.02.1996, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1996 59'
DAGBÓK
VEÐUR
Spá
•áöö
Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað
* * * * Ri9n'n9
% V'Í % S|ydda
Snjókoma 'XJ £1
Slydduél
Sunnan, 2 vindstig,
Vindörin sýnirvind-
stefnu og fjóðrin SSS
vindstyrk, heil fjöður j j
er 2 vindstig. *
10° Hitastig
s Þoka
Súld
Heimild: Veðurstofa íslands
Veðurfregnir eru lesnar frá Veðurstofu kl.
1.00, 4.30, 6.45, 10.03, 12.45, 19.30, 22.10.
Stutt veðurspá er lesin með fréttum kl. 2, 5,
6, 8, 12, 16, 19 og á miðnætti. Svarsími veður-
fregna: 902 0600.
FÆRÐ Á VEGUM
(Kl. 17.30 í gær)
Allir helstu þjóðvegir landsins eru færir. Hálka
er nokkur víða um land.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá þjónustu-
deild Vegagerðarinnar í Reykjavík í símum:
800 6315 (grænt númer) og 563 1500. Einnig
eru veittar upplýsingar um færð á vegum í
öllum þjónustustöðvum Vegagerðarinnar ann-
ars staðar á landinu.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
Akureyri -4 skýjað Glasgow 3 skýjað
Reykjavík -4 léttskýjað Hamborg -3 þokumóða
Bergen 0 snjókoma London 3 mistur
Helsinki -1 alskýjað Los Angeles 13 skúr
Kaupmannahöfn -3 alskýjað Lúxemborg -1 skýjað
Narssarssuaq 7 skýjað Madríd 8 skýjað
Nuuk 1 skýjað Mataga 18 skýjað
Ósló -8 þoka ígrennd Mallorca 15 þokumóða
Stokkhólmur -5 skýjað Montreal vantar
Þórshöfn vantar New York -8 léttskýjað
Algarve 14 skúr Orlando 17 þoka
Amsterdam 2 mistur París 4 heiðskírt
Barcelona 10 þokumóða Madeira 17 skýjað
Berlín vantar Róm 12 léttskýjað
Chicago vantar Vín -7 skafrenningur
Feneyjar 5 heiðskírt Washington -7 hálfskýjað
Frankfurt 1 heiðskírt Winnipeg -40 skýjað
2. FEB. Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólris Sól í hád. Sólset Tungl
REYKJAVlK 5.23 3,7 11.40 1,0 17.43 3,5 23.46 0,9 10.05 13.40 17.16 24.21
ÍSAFJÖRÐUR 1.05 0,6 7.13 2,0 13.45 0,6 19.35 1.8 10.27 13.46 17.05 24.28
SIGLUFJÖRÐUR 3.01 OA 9.21 1,2 15.50 0,3 22.01 1,1 10.10 13.28 16.47 24.09
DJÚPIVOGUR 2.34 1,8 8.49 0,6 14.44 1,6 20.50 0,4 9.38 13.10 16.44 23.51
Sjóvarhœö miöast viö meöalstórstraumsfiöru (Moraunblaðiö/Siómœlinaar íslands)
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
Frá laugardegi til miðvikudags lítur út fyrir stífa
suðaustlæga átt. Það verður slydda eða rign-
ing víða um land, einkum á sunnanverðu land-
inu og hiti lengst af á bilinu 0 til 5 stig.
VEÐURHORFUR í DAG
Yfirlit: Yfir Norðaustur-Grænlandi er 1033 mb
hæð sem hreyfist suðaustur. Skammt austur
af Nýfundnalandi er 996 mb lægð sem hreyf-
ist norðaustur.
Spá: Horfur á föstudag: Hæg breytileg átt,
léttskýjað víðast hvar og frost á bilinu 2 til 8
stig, kaldast í innsveitum um morguninn. Síð-
degis fer að þykkna upp og hlýna með hægt
vaxandi suðaustanátt vestan til á landinu. Allra
vestast verða sums staðar dálítil slydduél und-
ir kvöld.
H Hæð L Lægð Kuldaskil
Hitaskil
Samskil
Helstu breytingar til dagsins i dag: Hæðin yfir Grænlandi
hreyfist suðaustur, en lægðin við Nýfundnaland fer
norðaustur.
Yfirlit
fttsiygnmfofeftift
Krossgátan
LÁRÉTT:
1 ísbreiðu, 4 kjökur, 7
menntastofnun, 8 tæla,
9 verkfæri, 11 holdug,
13 girnist, 14 aðfinnsl-
ur, 15 óþolinmæði, 17
ófögur, 20 títt, 22 urg,
23 stjórnar, 24 steinn,
25 samsafn.
LÓÐRÉTT:
1 biblíunafn, 2 krakki,
3 sá, 4 gleðskap, 5 baul,
6 veisia, 10 gengur
ekki, 12 ginning, 13
skilveggur, 15 undir
hælinn lagt, 16 kraftur-
inn, 18 kantur, 19 kaka,
20 ókyrrðar, 21 úr-
gangsfiskur.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: — 1 haldreipi, 8 andrá, 9 iðjan, 10 pól, 11
dunda, 13 lundi, 15 fulls, 18 glens, 21 tál, 22 skúra,
23 Óðinn, 24 hamslausa.
Lóðrétt: — 2 aldan, 3 drápa, 4 ekill, 5 pijón, 6 hald,
7 unni, 12 dfl, 14 ull, 15 foss, 16 ljúfa, 17 stans, 18
glóra, 19 efíns, 20 senn.
í dag er föstudagur 2. febrúar,
33. dagur ársins 1996. Kyndil-
messa. Orð dagsins er; Faðir,
gjör mig nú dýrlegan hjá þéjr
með þeirri dýrð, sem ég hafði
hjá þér, áður en heimur var til.
(Jóh. 17, 5.)
Skipin
Reykjavíkurhöfn: í
fjTrakvöld fór Laxfoss.
í gær kom Eldborg af
veiðum. Baldvin Þor-
steinsson kom i gær-
morgun. Rússneska
komskipið Andrei
Ivanov kom í gærmorg-
un. Togarinn Víðir EA
fer í dag. Engey _er
væntanleg í dag. Ás-
björn kemur til löndun-
ar í dag.
Hafnarfjarðarhöfn: í
gærmorgun kom Hrafn
Sveinbjarnarson af
veiðum. Flutningaskipið
Lómur kom í fyrrakvöld
og fór í nótt. Flutninga-
skipið Svanur kom í
fyrrakvöld. Kristbjörg
kom af veiðum í gær-
morgun. í dag er Hofs-
jökull væntanlegur.
Ýmir og Óskar Hall-
dórsson fara á veiðar í
dag.
Fréttir
Barnaspítali Hrings-
ins. Upplýsingar um
minningarkort Barna-
spítala Hringsins fást
hjá Kvenfélagi Hrings-
ins í síma 551 4080.
Kyndilmessa er í dag
og segir í Sögu daganna
að hún sé tengd hreins-
unarhátíð Maríu meyjar,
40 dögum eftir burð
sveinbarnsins. Er þá
mikið um ljósadýrð í
kaþólskum messum og
mun dagurinn þess
vegna vera kenndur við
kyndla. Töldu menn áð-
ur fyrr að veðurfar á
Kyndilmessu myndi
segja fyrir um komandi
tíð. Ef sól skein í heiði
þennan dag átti það að
vísa á mikla snjóa um
veturinn, en ef þungt
var yfír var það merki
þess að veturinn færi
halloka fyrir vorinu.
Mannamót
Félag eldri borgara,
Kópavogi. Spiluð verð-
ur félagsvist í Fannborg
8, Gjábakka, föstudag-
inn 2. febrúar kl. 20.30.
Húsið er öllum opið.
Húnvetningafélagið. Á
morgun, laugardag,
verður paravist spiluð í
Húnabúð, Skeifunni 17,
og hefst hún kl. 14. Allir
velkomnir.
Félag eldri borgara í
Reykjavík. Félagsvist í
Risinu kl. 14 í dag. Guð-
mundur stjórnar.
Göngu-Hrólfar fara kl.
10 í fyrramálið í sína
venjulegu göngu um
bæinn. Lögfræðingur
félagsins er til viðtals á
þriðjudögum. Panta þarf
viðtal í síma 552 8812.
Briddsdeild FEBK
Spilaður verður tví-
menningur í dag kl.
13.15 í Fannborg 8, Gjá-
bakka. Ath. að skák-
mótið hefst mánudaginn
5. febrúar. Þátttakendur
skrái sig á lista sem
hangir uppi í Gjábakka.
Aflagrandi 40. Bingó
kl. 14. Samsöngur með
Fjólu, Árelíu og Hans
kl. 15.30.
Hana-Nú, Kópavogi.
Vikuleg ganga verður á
morgun. Lagt af stað frá
Gjábakka, Fannborg 8,
kl. 10. Nýlagað mola-
kaffí.
Hæðargarður 31. Kl. 9
morgunkaffi, kl. 9-17
hárgreiðsla, 9-16.30
vinnustofa, perlusaum-
ur, 9.30 gönguhópur,
11.30 hádegismatur, kl.
14 brids (nema síðasta
föstudag hvers mánað-
ar) en þá er eftirmið-
dagsskemmtun. Kl. 15
er eftirmiðdagskaffí.
Félag ekkjufólks og
fráskilinna heldur fund
í Risinu
kl. 20.30 í kvöld. Nýir
félagar eru velkomnir.
Kristniboðsfélag
karla, Reylgavík. Aðal-
fundur félagsins verður
í Kristniboðssalnum,
Háaleitisbraut 58-60,
mánudagskvöldið 5.
febrúar kl. 20.30)1*.
Venjuleg aðalfundar-
störf.
Barðstrendingaf élag-
ið og Djúpmannafé-
lagið verða með fé-
lagsvist í „Koti“ Barð-
strendingafélagsins á
Hverfisgötu 105, 2.
hæð á morgun, laugar-
dag, kl. 14.
Kirkjustarf
Langhoitskirkja. Aft-
ansöngur kl. 18.
Laugarneskirkja.
Mömmumorgunn kl.
10-12.
Neskirkja. Félagsstarf
aldraðra: Á morgun,
laugardag, verður Fíla-
delfíusöfnuðurinn heim-
sóttur. Kaffíveitingar.
Lagt af stað frá Nes-
kirkju kl. 15. Þátttaka
tilkynnist kirkjuverði í
síma 551 6783 í dag kl.
16-18. Sr. Frank M.
Halldórsson.
Sjöunda dags aðvent-
istar á Islandi: Á laug-
ardag: *
Aðventkirkjan, Ing-
ólfsstræti 19. Biblíu-
rannsókn kl. 9.45. Guðs-
þjónusta kl. 11. Ræðu-
maður Björgvin Snorra-
son.
Safnaðarheimili að-
ventista, Blikabraut 2,
Keflavík. Guðsþjónusta
kl. 10.15. Biblíurann-
sókn að guðsþjónustu
lokinni. Ræðumaður
Steinþór Þórðarson.
Safnaðarheimili að-
ventista, Gagnheiði
40, Selfossi. Guðsþjón-
usta kl. 10. Biblíurann-
sókn að guðsþjónustu
lokinni. Ræðumaður
Eric Guðmundsson.
Aðventkirkjan, Breka-
stíg 17, Vestmannaeyj-
um. Biblíurannsókn kl.
10.
Aðventsöfnuðurinn,
Hafnarfirði, Loftsaln-
um, Hólshrauni 3. Bibl-
íufræðsla kl. 11. Umsjón
hafa konur úr söfnuður***
um.
Keflavíkurkirkja.
Bænanámskeið hefst
miðvikudaginn 7. febr-
úar kl. 20 í Kirkjulundi.
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavik. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: RiUtjórn 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG:
MBL@CENTRUM.IS / Áskriftargjald 1.500 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. eintakið.
Orninn er sestur. Hörkuspennandi njósna-
mynd meö Michael Caine, Robert Duvall og
Donald Sutherland. í kvöld kl. 23:15