Morgunblaðið - 02.02.1996, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1996 21
FRÉTTIR: EVRÓPA
Finnar stefna á
EMU þrátt fyrir
hægari hagvöxt
Hclsinki. Reuter.
FINNSKA ríkisstjórn-
in segir að þrátt fyrir
að stefni í hægari hag-
vöxt á næstunni en
spáð var, standist
markmið hennar um
að taka þátt í Efna-
hags- og myntbanda-
lagi Evrópu (EMU) er
það hefur göngu sína
1. janúar 1999.
„Það lítur út fyrir
að þótt hægi á hag-
vexti til skamms tíma,
sem mun hafa nokkur
áhrif á ríkisfjármálin,
standist áætlunin um
aðlögun [að skilyrðum
Maastricht fyrir EMU-aðild],“ sagði
Paavo Lipponen forsætisráðherra á
blaðamannafundi.
Atvinna ekki aukin á
kostnað ríkisfjármála
Forsætisráðherrann benti á að
verðbólgan, sem er nú 0,3% á árs-
grundvelii, væri sú lægsta í Evrópu
og ekki væri útlit fyrir að hún
ykist. Fjárlagahalli og erlendar
skuldir færu minnk-
andi.
Lipponen stendur nú
í viðræðum við verka-
lýðshreyfinguna um
það hvernig draga
megi úr atvinnuleysi,
en það er nú óvíða
meira í Evrópu. Yfir
17% vinnufærra Finna
hafa ekki atvinnu.
Lipponen sagði að rík-
isstjórnin myndi ein-
göngu taka þær tillög-
ur til skoðunar, sem
fælu ekki í sér aukinn
fjárlagahalla. Hann tók
sömuleiðis dræmt í
kröfur verkalýðsfélaga um lækkun
skatta til að örva atvinnustarfsemi.
„Verulegar nýjar skattalækkanir
verða ekki mögulegar. Það á eftir
að koma í ljós hvort það er einu
sinni svigrúm fyrir litla skattalækk-
un,“ sagði forsætisráðherrann.
Lipponen sagði hins vegar að
verkalýðshreyfingin hefði „nánast
öll“ lýst yfir stuðningi við stjórnar-
stefnuna.
Paavo Lipponen
Frakkar óánægðir með
samkeppnisstöðu sína
Vilja refsa fyrir
gengisfellingar
París. Reuter.
FRANCK Borotra, iðnaðarráðherra
Frakklands, segir í viðtali við
franska viðskiptablaðið Les Echos
í gær að hann telji að refsa eigi
Evrópuríkjum er beiti gengisfelling-
um til að ýta undir útflutning með
því að aðstoð frá Evrópusamband-
inu yrði greidd út, í þeirra eigin
gjaldmiðli.
„Það verður að finna lausn er
kemur í veg fyrir óréttlátar sam-
keppnisaðferðir," sagði Borotra og
benti á að enn meiri þrýstingur yrði
á að grípa til gengisbreytinga eftir
að peningakerfi sumra ESB-ríkja
rynnu saman í sameiginlega mynt.
Ef sú yrði raunin yrði að beita
þau hörðu til að tryggja aðhalds-
stefnu í gengismálum, t.d. með því
að greiða þróunarstyrki og aðra
ESB-aðstoð að hluta eða öllu leyti
í gjaldmiðli þessara ríkja.
Nú eru þróunarstyrkirnir, sem
aðallega renna til rikja í suðurhluta
álfunnar, greiddir út í mynteining-
unni ECU, en hún grundvallast á
myntkörfu, þar sem þýska markið
er ríkjandi.
Ef greitt yrði út í viðkomandi
gjaldmiðlum myndu þróunarstyrk-
irnir rýrna að raunvirði sem næmi
gengisbreytingunum.
Frakkar hafa ítrekað kvartað
yfir því að gengisstefna Suður-Evr-
ópuríkja bitni illa á ýmsum atvinnu-
greinum i Frakklandi, s.s. vefnaðar-
vöruiðnaðinum
Þá hafa grænmetis- og ávaxta-
ræktendur kvartað sáran yfir sam-
keppnisstöðu sinni og stundum
gripið til harðra mótmælaaðgerða.
Borotra sagði að allt að sextíu
þúsund störf í vefnaðarvöruiðnaði
og leður- og skóframleiðslu í Frakk-
landi væru í hættu á næstu tveimur
árum.
Síðbúnar kosningar til
Evrópuþings í Austurríki
• KOSNINGAR til Evrópu-
þingsins munu fara fram í Aust-
urríki 13. október næstkomandi,
sama dag og borgarstjórnar-
kosningar í Vín. Þetta verða
fyrstu Evrópuþingskosningar í
Austurríki, þótt liðin verði nærri
tvö ár frá inngöngu landsins í
E vrópusa mbandið.
• EVRÓPUSAMBANDIÐ ætti
að endurskoða markmið land-
búnaðarstefnu sinnar á ríkjaráð-
stefnunni síðar á árinu, að mati
Alþjóðanáttúruverndarsjóðsins
(World Wildlife Fund). Talsmað-
ur sjóðsins, Natasja Jellatsjítsj,
segir markmið landbúnaðar-
stefnunnar úrelt. „Þau voru sett
fram á sjötta áratugnum og mið-
uðu að því að framleiða sem
mest af matvælum í Evrópu. Nú
verður að endurskoða þau í því
skyni að tryggja gæði fremur en
magn.“ WWF segir að landbún-
aðarniðurgreiðslur hafi stuðlað
að umhverfisskaða og heilsu-
tjóni.
• ESB hefur lagt fram tillögur
um breytingar á fjármögnun
Sameinuðu þjóðanna, sem miða
m.a. að því að lækka kostnaðar-
hlutdeild Bandaríkjanna, hækka
hlutdeild Japans og herða refsi-
aðgerðir gagnvart þeim rikjum,
sem ekki borga sinn hlut í kostn-
aðinum við rekstur SÞ.
Tulíp DX4/100 MHZ
8 MB minni - 850 MB diskur
Með sjónvarpí
TulHp computers
Gæðamerkið frá Hollandi
Nyherjabuðin er opin laugardaga 10-14
Canon Bl-30
bleksprautuprentari
Lexm^rk
720 dpi prentari
30 blaða arkamatari
3 bls/mín á
Lexmark4076 II
Litableksprautuprentari
600 x 300 dpi upplausn
3 bls/mín -150 blaða arkamatari
RÉTT VERÐ: 34,900
Handskanni
Nettur og meðfærilegur
litaskanni.
A4 imagery
Alhliða skanni fyrir
skrifstofuna og heimilið
2400 dpi upplausn.
TulSp computers
Gæðamcrkið frá llollandi
8MBminiii
850 MB diskur
ithemetámóðurborði n
3áraábyrgð
28.800 Baud módem á frábæru verði
fyrir kaupendur heimabanka og
Internetpjónustu.
(*) Sumar gerðir
kr. 123.900
canon
26.900
frá Ericsson, Dancall, Nokia o.fl
Mikið úrval fylgihluta
14.900
59.900
. Trust TOLVUBUNAÐUR
RMmÍr
. t
| | |~~| 1
* • • ••***«
| ■
NYHERJA
bu&ití'
SKAFTAHLIÐ 24
SÍMI 569 7800
ÖLL VERÐ ERU STCR. VERÐ M/VSK