Morgunblaðið - 02.02.1996, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Stefnt
að nýjum
síldarfundi
ímars
EKKERT samkomulag náðist á
fundi aðildarríkja Norðaustur-Atl-
antshafsfiskveiðinefndarinnar
(NEAFC), sem lauk í London í gær,
um hlutverk stofnunarinnar við
stjórnun norsk-íslenzka síldarstofns-
ins. Stefnt er að því að aðildarríkin
ræði frekar saman sín á milli og að
komið verði saman til nýs fundar
7. marz, sé tilefni til.
Að sögn Guðmundar Eiríkssonar,
formanns íslenzku viðræðunefndar-
innar á fundinum, virðist sem önnur
aðildarríki NEAFC hafi nálgazt það
sjónarmið íslendinga, að frumskilyrði
þess að hægt sé að ná samkomulagi
um stjómun á síldarstofninum sé að
strandríkin fjögur, sem mestra hags-
muna eigi að gæta, komi sér saman.
Því hafi menn loks orðið sammála
um að hvetja fulltrúa aðildarríkjanna
til að ræða saman sín á milli.
„Ef einhver von er um árangur
eftir umræður á þeim vettvangi, er
boðað til framhaldsfundar 7. marz.
Þannig er hægt að undirbúa hugs-
anlega ákvörðun á aukaársfundi
NEAFC, sem hefur verið boðaður
19. marz,“ segir Guðmundur.
Rætt við Færeyinga
Fulltrúar Færeyja og íslands
ræddu sín á milli á fundinum um
útgáfu sameiginlegs sfldarkvóta.
Formleg ákvörðun hefur þó ekki
verið tekin.
Fyrr í vikunni urðu aðildarríki
NEAFC sammála um að halda áfram
viðræðum um skiptingu úthafs-
karfakvóta á Reykjaneshrygg á
framhaldsfundi, sem boðaður var 19.
febrúar. Fundinum hefur nú verið
seinkað til 7. marz, til samræmis
við hugsanlegan fund um síldar-
stofninn.
------»♦ ♦------
Refabóndi
borinn út
Selfossi. Morgunblaðið.
FULLTRÚI sýslumannsins á Sel-
fossi hefur tilkynnt ábúandanum
að Hvoli I í Ölfusi, Björgvini Ár-
mannssyni refabónda, að hann og
flölskylda verði borin út á mánudag.
Útburðarkrafan byggist á dómi í
máli sem jarðardeild ríkisins höfðaði
gegn Björgvini í kjölfar sölu á jörð-
inni til annars aðila um að Björgvini
bæri að víkja . Þessi dómur var stað-
festur í Hæstarétti í nóvember.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Til Eyja í
stað Skot-
lands
FIMMTÁN manns voru sam-
tímis að spila golf á golfvell-
inum í Vestmannaeyjum í
veðurblíðunni upp úr hádeg-
inu í gær, en í janúar var
hægt að spila golf þar í þtjár
vikur af fjórum. í hópnum
voru nokkrir áhugasamir
golfarar frá Reylgavík sem
hoppuðu til Eyja til að spila
golf, en þeir höfðu á orði að
þar væri nú eini möguleikinn
á því að fá útrás fyrir golf-
bakteríuna þar sem golfvellir
í Skotlandi og annars staðar
í norðanverðri Evrópu væru
á kafi í snjó. Þarna voru á
ferðinni þrír starfsmenn
Flugmálastjórnar og Iéku
þeir 18 holur og þrjár að auki.
Á myndinni eru þeir saman-
komnir, talið frá vinstri: Hall-
grímur Hallgrímsson, Þórður
Pálsson, Ingibergur Einars-
son, starfsmaður Flugmála-
sljórnar í Vestmannaeyjum,
sem slóst í hópinn, og Björn
O. Matthíasson.
Landanir úr erlendum
skipum gætu skapað
um eitt þúsund stðrf
munurinn liggur mest í minni
loðnulöndun. Arið 1994 lönduðu
erlend fiskiskip hér alls 265 sinn-
um eða að meðaltali eitt skip
hvem virkan dag. Um helmingur
skipanna landar í Reykjavík eða
Hafnarfirði. Talið er að hver lönd-
un skili 15 milljónum króna í tekj-
ur og er vinnsla aflans þar mikil-
vægust, eða um 11,5 milljónir
króna. Þjónusta ýmiss konar veg-
ur mun minna og er áberandi hve
lítið þessi skip taka af kosti hér.
í skýrslunni er farið yfir ýmsa
þætti viðskipta, sem þessum lönd-
unum tgngjast. Þar er áætlað að
erlendir sjómenn hafi eytt tæpum
fimm milljónum króna í hárskurð,
20 milljónum í bílakaup, mest
Lödur, 27 milljónum í flugfarmiða
vegna áhafnaskipta og loks 53
milljónum í lífsins lystisemdir.
ÁÆTLAÐ er að landanir erlendra fiskiskipa hafi skapað hér um 580
störf árið 1994. Með skipulögðum aðgerðum er talið að tvöfalda megi
afla sem útlendingar landa hér og skapa þannig um eitt þúsund störf.
Þetta kemur fram í skýrslu um
þjóðhagslegan ávinning þessara
landana, sem gerð er af Aflvaka,
samstarfsverkefni Hafnarfjarðar-
hafnar og Reykjavíkurhafnar.
Miðað er við að afli sem útlending-
ar landa hér verði ýmist unninn
hérlendis eða fluttur óunninn út.
Talið er að þannig myndu skapast
um eitt þúsund störf og heildar-
tekjur landsmanna af þessari
starfsemi gætu þá numið allt að
átta milljörðum króna.
Endanlegar tölur um landanir
á síðasta ári liggja ekki fýrir, en
ljóst er þó að erlend skip lönduðu
þá mun minna af fiski beint til
vinnslu hérlendis en árið áður, en
Mjólkur-
lítrinn
hækkar
um 4
krónur
VERÐ á mjólkurvörum til
neytenda hækkar í dag frá
3-6,5%, og þannig hækkar
t.d. verð á nýmjólk úr 64
krónum lítrinn í 68 krónur,
eða um 6,25%. Verð á ný-
mjólk hefur ekki hækkað síð-
an í desember 1990, en hins
vegar hafa orðið verðbreyt-
ingar á öðrum mjólkurvörum
síðan þá.
Verð til bænda hækkar
Verðlagsnefndir búvara
ákváðu í gær nýtt verð á
mjólk til bænda, afurðastöðva
og neytenda og hækkar verð-
ið til bænda um 4,74%. Að
sögn Guðbjöms Ámasonar
hjá Landssambandi kúa-
bænda em ástæður hækkun-
arinnar til bænda fyrst og
fremst 18% hækkun á kjam-
fóðri, 15% hækkun á fiski-
mjöli, 5% hækkun á olíu og
þá hefur orðið hækkun á við-
haldi og aðkeyptri þjónustu.
Auk þess hækkar launaliður
bænda til samræmis við við-
miðunarstéttir.
Hækkun á umbúðum
Hjá afurðastöðvum hefur
orðið 20-30% hækkun á um-
búðum frá útlöndum, en auk
þess hafa m.a. launahækkan-
ir hjá starfsfólki afurðastöðv-
anna áhrif á hækkun
mjólkurverðsins til neytenda.
Tryggingasvik og bankarán
Þremur sleppt en
rannsókn stendur enn
Canada
3000 leyft
að taka
farþega
SAMGÖNGURÁÐUNEYTIÐ hefur
veitt kanadíska flugfélaginu
Canada 3000 leyfí til að taka far-
þega um borð tvisvar í viku hér á
landi á leið sinni til Kanada. Ekki
liggur hins vegar enn fyrir nein
niðurstaða um ósk félagsins að fá
einnig að taka farþega um borð á
leiðinni til Evrópu.
Eins og fram hefur komið í frétt-
um hefur Canada 3000 í hyggju að
hafa viðkomu á Keflavíkurflugvelli
8 sinnum á viku í sumar og nær
þetta leyfi því aðeins til um fjórð-
ungs ferða þeirra. Að sögn Halldórs
Blöndal, samgönguráðherra, stend-
ur ekki á íslenskum stjómvöldum
hvað aukna tíðni varðar, en hann
bendir á að samkvæmt loftferða-
samningi íslands og Kanada sé
Flugleiðum einungis heimilt að
fljúga tvisvar í viku til Halifax.
Ferðalög
á sunnudögum
SÚ breyting hefur orðið á
sérblöðum Morgunblaðsins
að umfjöllun um ferðamál
sem verið hefur hluti af Dag-
legu lífi/Ferðalögum á föstu-
dögum færist í sérblað á
sunnudögum frá og með þess-
ari helgi.
ÞREMUR mönnum, sem verið
höfðu í gæsluvarðhaldi vegna
gruns um fjársvik og aðild að
bankaráni, var sleppt úr haldi síð-
degis á miðvikudag, en Rannsókn-
arlögregla ríkisins taldi ekki efni
til að fara fram á framlengingu
gæsluvarðhalds yfír þeim. Fjórði
maðurinn er enn í haldi.
í frétt frá RLR kemur fram,
að rannsókn þyki hafa leitt í Ijós
að fjórmenningamir hafi staðið
saman að því á árunum 1993-
1995 að svíkja fé út úr fjórum
tryggingafélögum, Trygginga-
stofnun ríkisins og sjúkrasjóðum
stéttarfélaga, í formi bóta fyrir
líkamstjón og bifreiðatjón. Menn-
imir hafi sett á svið umferðarslys
og önnur óhöpp. Tryggingafélögin
hafi þegar greitt vel á annan tug
milljóna í bætur vegna þessara
atburða, en ennþá liggi ekki fyrir
endanlegar tölur vegna greiðslna
frá Tryggingastofnun og sjúkra-
sjóðunum. Þær muni þó skipta
milljónum.
Skipulögðu bankarán
Rannsókn fjársvikamálsins er
vel á veg komin, að sögn RLR.
Við þá rannsókn komu fram, m.a.
við húsleitir, upplýsingar og gögn
sem vöktu grunsemdir um að
mennimir ættu aðild að ráninu,
sem framið var í útibúi Búnaðar-
bankans við Vesturgötu.
„Fyrir liggur að þeir skipulögðu
og undirbjuggu á sl. ári að fremja
vopnað bankarán, þar sem m.a.
átti að nota skotvopn og stolnar
bifreiðar með stolnum númeraplöt-
um, klæðast dökkum samfesting-
um og hettum og komast undan
eftir fyrirfram skipulögðum flótta-
leiðum, - allt með mjög líkum
hætti og við ránið sem framið var
í útibúi Búnaðarbanka íslands við
Vesturgötu þann 18. desember
sl-,“ segir í frétt Rannsóknarlög-
reglunnar.
Rannsóknarlögreglan segir að
mennimir hafi hrint í framkvæmd
hluta af áætlun sinni og rannsókn
hafi beinst að því að upplýsa að
hve miklu leyti undirbúningurinn
hafí tengst ráninu sem framið
var. Rannsókn málsins verði hald-
ið áfram.