Morgunblaðið - 03.02.1996, Side 43

Morgunblaðið - 03.02.1996, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 1996 43 FRÉTTIR Ráðstefna um sj álfboðavinnu OPNUÐ verður sýning 5. febrúar nk. á Snorrabraut 27 sem ber yfir- skriftina: Ungt fólk og sjálfboða- vinna. Tilgangur sýningarinnar er að kynna þann heim sem ungu fólki opnast í sambandi við sjálfboðastarf erlendis og er sett upp í sambandi við ráðstefnu sem haldin er á vegum samtakanna Alþjóðleg ungmenna- skipti (AUS). AUS er aðili að al- þjóðasamtökunum ICYE (Internat- ional Christian/Cultural Youth Exc- hange). Á ráðstefnunni munu koma fulltrúar samtakanna frá 15 Evr- ópulöndum til að ræða stöðu þess- ara mála í heiminum á hveiju landi fyrir sig. Forseti íslands, frú Vigdís Finn- bogadóttir, mun flytja ávarp við opnun sýningarinnar. Auk forseta munu ávarpa samkomuna Sarah Adams, framkvæmdastjóri Verk- efnastjórnar Samtaka um sjálf- boðavinnu, fulltrúi frá AUS og full- trúi ráðstefnugesta sem allir verða viðstaddir opnunina. Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson KATLA ásamt starfsstúlkum sinum í hinni nýju hársnyrtistofu. Hárhús Kötlu í ný húsakynni ■ PIZZA 67 bregður á leik með hressum krökkum á aldrinum 4 til 10 ára sunnudaginn 4. febrúar. Lína Langsokkur ætlar að vera veislustjóri frá kl. 15 til 16 og bjóða upp á pitsur, kók og blöðrur eins og í alvöru afmæli. Skilafrestur lita- spjalda rennur út 10. mars og verða veitt verðlaun fyrir bestu myndirnar og þær síðan birtar í Sjónvarpspés- anum þann 28. febrúar. Þátttöku- skilyrði eru að barnið sé á aldrinum 4 til 10 ára (bæði árin meðtalin), hafi litað á litaspjaldið, að spjaldið sé merkt barninu og heimilisfangi þess og spjaldinu sé skilað niður á Pizza 67, Hafnargötu 30, Keflavík. Akranesi. Morgunblaðið. HÁRHÚS Kötlu á Akranesi hefur flutt sig um set í bænum og opnað nýja hársnyrtistofu í Stillholti 14. Katla Ilallsdóttir er eigandi stofunnar og hefur hún starfrækt hárgreiðslustofu á Akranesi í tæp tíu ár. Nýja stofan er í hinum nýja þjónustukjarna sem er að vaxa upp við Stillholtið með til- komu nýja stjórnsýsluhússins. Hárhús Kötlu hefur umboð fyrir snyrtivörumerkin Joico, Matrik og Image. Á biðstöfu hársnyrtistofunnar er aðstaða fyrir myndlistarsýning- ar og sýnir Bjarni Þór Bjarnason listmálari verk um þessar mundir. Fræðslunámskeið um stöðu konunnar FÉLAG íslenskra háskólakvenna og Kvenstúdentafélag íslands standa fyrir fræðslunámskeiði um stöðu konunnar í þjóðfélaginu fyrr á öld- um og verður fyrsta erindið í röð þriggja erinda flutt mánudags- kvöldið 5. febrúar. Námskeiðin eru undir stjórn Jóns Böðvarssonar, íslenskufræðings og ritstjóra. í fyrsta erindinu, á mánu- dagskvöldið kemur, fjallar Elsa Hartmannsdóttir BA í sagnfræði um hjónaskilnaði á íslandi frá upp- hafi byggðar til ársins 1800. 12. febrúar talar síðan Guðbjörg Gylfa- dóttir BA í sagnfræði um ógiftar konur í Reykjavík á síðari hluta 20. aldar og 19. febrúar flytur Jón Böðvarsson erindi sem hann nefnir Spjall um kvenskörunga. 26. febr- úar talar síðan Guðmundur Gunn- arsson arkitekt um hýbýli fyrr á tímum. Fræðslunámskeiðin eru opin fé- lögum og öllum öðrum sem áhuga hafa og stendur skráning yfir hjá Brynju, í síma 552-9060 og Geir- laugu, í síma 568-5897. Hugvitsmenn stofna landssamtök STOFNFUNDUR landssambands hugvitsmanna verður haldinn laug- ardaginn 3. febrúar í fyrirlestrasal Hins hússins við Aðalstræti í Reykja- vík (gamla Geysishúsinu á horni Aðalstrætis og Hafnarstrætis) og hefst fundurinn kl. 14. Texta í drögum fyrir landssam- bandið um tilgang, markmið og að- ild að landssambandinu er að finna á bakhlið. Drög að lögum landssam- bandsins munu liggja frammi á stofnfundinum. í drögum að lögum hins nýja landssambands hugvitsmanna er stefnt að því að leggja áherslu á fræðslu og miðlun þekkingar sem auðvelda störf hugvitsmanna og tengja störf þeirra betur en verið hefur verðmætum hugvitsmanna og þörfum markaðarins. Með nýju landssambandi hugvits- manna standa einnig vonir til þess að hægt verði að ná betra og virk- ara sambandi við hugvitsmenn á landsbyggðinni qg fyrirtæki, stofn- anir og félagasamtök, sem vilja vinna með landssambandi hugvits- manna að markmiðum þess. ■ VETTVANGSFRÆÐSLA á fuglum verður við Olíustöð Skelj- ungs, Skeijafirði, sunnudaginn 4. febrúar. Kl. 13.30-16 verða þar reyndir fuglaskoðarar með Ijarsjár (teleskóp) og annað það sem til þarf að auðvelda mönnum að greina ýms- ar tegundir fugla. Mikill íjöldi fugla er á þessum slóðum um þessar mund- ir. OLÍUSTÖÐ Skeljungs í Örfirisey á fyrstu árum starfseminnar. Olíustöð Skeljungs í Öfirisey 25 ára TUTTUGU og fimm ár eru liðin í dag, laugardag, frá því olíustöð Skeljungs hf. í Örfirisey var tekin í notkun. Það var 3. febrúar 1971 sem olíu var í fýrsta skipti landað á fyrri geyminn af tveimur sem félagið lét reisa í eynni. Landað var gasolíu úr sovétskipinu Petr Aleks- eev sem lestaði í Tuapse við Svarta- haf. Móttöku olíunnar önnuðust Stefán L. Kristjánsson og aðstoðar- maður hans, Hannes Tómasson, en Stefán hefur alla tíð haft umsjón með móttöku og afgreiðslu á oliu í stöðinni. Framkvæmdir við olíustöð Skelj- ungs í Örfirisey hófust vorið 1970, en þá voru reistir tveir 7.700 rúm- metra birgðageymar, vestan við ol- iustöð Olíufélagsins hf. Fyrri geym- irinn var tilbúinn til notkunar í lok janúar 1971, en sá síðari í apríl. Þessir tveir geymar eru einu geym- arnir í olíustöð Skeljungs hf. sem standa á hinni raunverulegu Örfíris- ey, öll síðari viðbót stendur á upp- fyllingu sem gerð var 1975-85. Fyrstu árin voru birgðageymar Skeljungs hf. í Örfirisey aðeins tveir, báðir undir gasolíu, samtals 15.400 rúmmetrar, en nú eru birgðageymar félagsins í eynni tólf talsins, samtals um 70.000 rúm- metrar og á þeim tíu mismunandi tegundir af olíu. Tilkoma olíustöðvarinnar í Ör- firisey var merkur áfangi í sögu Skeljungs, segir í frétt frá félaginu, en á þessum tíma var birgðarýmið í olíustöð félagsins í Skeijafirði orð- ið of lítið og nýju sovétskipin, svo- kallaðir stórrússar, en Petr Aleks- eev var einmitt einn af þeim, kom- ust trauðla inn á Skeijafjörð. Það var því brýn nauðsyn fyrir fyrirtæk- ið að koma upp nýrri innflutningsol- íustöð á öðrum stað. Nábýlið og samstarfið við olíustöð Olíufélags- ins hf. í Örfirisey hefur ávallt verið með ágætum. STEFÁN L. Kristjánsson afgreiðsiumaður hefur starfað við olíu- stöðina í Örfirisey frá því hún var tekin í notkun fyrir 25 árum en hjá Skeljungi mun lengur eða í samtals 39 ár. Englaspil í Ævintýra- Kringlunni HELGA Arnalds kemur í heimsókn í dag, laugardaginn 3. febrúar, kl. 14.30, með brúðuleikhúsið sitt Tíu fingur. Hún flytur brúðuleiksýning- una Englaspil en Helga hefur sjálf samið þáttinn og hannað brúðurnar. Leikstjóri er Ása Hlín Svavarsdóttir. Englaspil fjallar um vinátt- una en jpar koma við sögu púki og engill, sem er svo loft- hræddur að hann þorir ekki að fljúga. Leikritið er ætlað 2 til 8 ára börnum og eru þau látin taka virkan þátt í sýning- unni. Miðaverð er 500 kr. Ævintýra-Kringlan er á 3. hæð í Kringlunni og er opin frá kl. 14 til 18.30 virka daga og á laugardögum er opið frá kl. 10-16. Innsetning prófasts Borgfirðinga BISKUP íslands, herra Ólafur Skúlason, setur nýjan prófast í Borgarfjarðarumdæmi, sr. Björn Jónsson, inn í embætti sitt næstkomandi sunnudag. Athöfnin verður í Akranes- kirkju og hefst kl. fjögur síð- degis. Innsetningin verður í upp- hafi guðsþjónustunnar og tek- ur sr. Ragnar Fjalar Lárusson prófastur í Reykjavíkurpróf- astsdæmi vestra þátt í athöfn- inni. Sr. Björn Jónsson, próf- astur, þjónar fyrir altari ásamt biskupi. Biskup predikar. Sr. Björn Jónsson var Iqör- inn prófastur af prestum próf- astsdæmisins og fulltrúum leikmanna. Sr. Björn þjónaði fyrir Keflavík og vígðist þang- að þegar frá prófborðinu 1952 en síðustu árin hefur hann þjónað Garðaprestakalli á Akranesi. Hann tekur nú við af sr. Jóni Einarssyni, prófasti og kirkjuráðsmanni sem and- aðist sl. haust. Kökubasar LAUF LAUF, Landssamtök áhuga- fólks um flogaveiki, heldur kökubasar í dag, laugardaginn 3. febrúar, fyrir framan Hag- kaup í Kringlunni til styrktar félaginu. Kuffs er Itfglaður og áhyggjulaus náungi sem erfir heilt lögreglulið. Meö Christian Siater í aðalhlutverki. Kl.20:55 Sakleysi (The Innocent). Mynd John Schlesinger méð Anthony Hopkins, Isabellu Rosselini og Campell Scott. Kl. 22:55 Köttur í bóli bjarnar (The Devil's bed). Lostafullur darraðadans blekkinga. Kl.00:45 STOÐ 3 O G Þ U • $ I M I 5 33 563 3

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.