Morgunblaðið - 03.02.1996, Blaðsíða 46
t6 LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Vönduð, ekta, sígild ullarteppi,
_ , . - það er okkar sérgrein
Opið laugardag
kl. 10-16
____ Gæði í hverjmn þræði!
(XiL)
Góð greiðslukjör!
Raðgreiðslur til allt
að 36 mánaða
Friðrik Bertelsen
FÁKAFENI9 • SÍMI568 6266
Control" kuldaskórnir
frá Baffin í Kanada
Sólinn er ísprautaður í einu
lagi úr „thermo“-plasti sem
harðnar ekki í kulda.
Bolurinn er úr olíuverkuðu
leðri, innri skórinn, sem er
úrtakanlegur, er m.a.
samsettur úr „Fleetek“
og er mjög kuldaþolinn
(-5-50C). Stærðir 42-44.
Verð 13.700.
„Trapper" kuldastígvél
Bolurinn er úr „thermo“-
plasti og innri skórinn, sem
er úrtakanlegur, er byggður
upp á sama hátt og í
„Control“. Stærðir 41 —45.
Verð 7.700.
Einnig úrvals útilífs
„Fleece"-undirfötin frá
„Obermeyer" í Bandaríkjunum.
Polartec * I00 — síðerma tre/ja með renndu hálsmáli.Verð 2.900.
Síðar buxur. Verð 2.500.
Polartec * 200 - með „Lycra“-blöndu „Stretch"
- sfðerma treyja með renndu hálsmáli. Verð 4.200.
Síðar buxur. Verð 3.500.
Fyrirliggjandi i stærðunum
S - M - L og XL,
rautt og svart.
Upplýsingar í síma 557 3296 í dag og
á morgun, sunnudag, frá kl. 12.00—18.00.
S. Einarsson — heildverslun
Rosenthal _ jjegflr l’W velnr 8!0Í
• Brúökaupsgjafir (7) V
• Tímamótagjafir
• Verö við allra hæfi
Hönmm oggæði í sérflokki Laugavegi 52, sími 562 4244.
I DAG
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
STAÐAN kom upp í úr-
slitaskákinni á Hoogovens-
mótinu í Wijk aan Zee í
Hollandi. Úkraínumaðurinn
sterki Vasílí Ivantsjúk
(2.735) hafði hvítt og átti
leik, en Búlgarinn tvítugi,
Veselin Topalov (2.700)
var með svart. Skákin var
tefld í síðustu umferð og
ívantsjúk dugði jafntefli tii
að tiyggja sér sigur. í þess-
ari stöðu var Topalov að
enda við að leika 36. —
Rg6-e5??, en eftir 36. —
Hf2! 37. Del hefði staðan
verið nokkurn veg-
inn í jafnvægi. 36. —
Dxb6 37. Be4! var
hins vegar varhuga-
vert. Nú fann ívant-
sjúk leik sem dugði
til sigurs, en er þó
ekki sá besti:
37. Be4+ - Hxe4
38. dxe4 - Rf3?
(Svartur gat reynt
að þreyja þorrann
með skiptamun und-
ir) 39. Hxf3 - Hxf3
40. Dg2 með þre-
faldri hótun. Svart-
ur getur gert við þeim í bili
með 40. — Df8, en þá kem-
ur 41. Rd7 - Df7 42. Re5.
En sumir lesenda hafa vafa-
laust séð glæsilegasta og
besta leikinn sem vinnur
heilan hrók: 37. Dxf4! —
Hxf4 38. Be4+ og eftir 38.
- Hxe4 39. Hg7+ - Kh8
40. Hxg8-f— Kh7 41. Hlg7
er svartur mát! 38. — Rg6
39. Hxg6 er einnig vonlaust
með öilu.
Hvítur leikur
og vinnur
Arnað heilla
ÉG vona að ekki hafi verið
mikil leðja á gangstígnum.
HÖGNIHREKKVÍSI
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Netfang: lauga@mbl.is
Til hamingju
Verslingar
MIG langar að vekja at-
hygli á frábærri sýningu
Verslunarskólanema á
söngleiknum „Cats“. Þar
er vel að verki staðið og
öllum sem að standa til
mikils sóma. Eg hvet fólk
til þess að fara og njóta
skemmtunarinnar. Einn-
ig langar mig að nefna
sérlega glæsilegt skóla-
blað sem er nýkomið út
og er þess virði að þvi
sé gaumur gefinn, bæði
að efni og útliti.
Steinunn.
Tillaga um
forseta
ÞÓRA hringdi og er með
tillögu um forsetaefni,
Friðrik Ólafsson, skák-
meistari og núverandi
skrifstofustjóri Alþingis.
Hann er ekki stjórnmála-
maður en er þó í návígi
við stjórnmálin og fylgist
þ.a.l. vel með gangi
mála. Friðrik yrði glæsi-
legur fulltrúi lands og
þjóðar þar sem hann er
vel gefinn maður og
kemur mjög vel fyrir.
Góður
þeytingur
ANNA hringdi og vildi
lýsa ánægju sinni með
þáttinn Þeyting sem tek-
inn var upp í Vík í Mýrd-
al. Sérstaka athygli vakti
hvað konumar voru
glæsilegar í íslenska
búningnum og einnig hve
unglingarnir sem spiluðu
voru snyrtilegir og fal-
lega klæddir (ekki hver
í sinni „múnderingu"
eins og oft er). Einnig
var barnakórinn yndis-
legur á að hlýða. Gaman
er að sjá fólk koma svona
vel fyrir í sjónvarpi.
Anna vill þakka þessu
fólki. Það var augnayndi
og til sóma.
Tapað/fundið
Hálsmen tapaðist
GULLHÁLSMEN, Jerú-
salemkross, með fjórum
bláum steinum tapaðist
síðastliðið sunnudags-
kvöld, líklega við Kirkjú-
stræti. Finnandi vinsam-
legast hringi í síma
552 2858. Fundarlaun.
Armband týndist
GULLARMBAND með
múrsteinsmynstri tapað-
ist 30. janúar. Armband-
ið gæti hugsanlega hafa
týnst á Hagamel eða á
Njálsgötu. Finnandi vin-
samlegast hringi í síma
552 2936. Fundarlaun.
Næla týndist
NÆLA merkt Félagi ís-
lenskra hjúkrunarfræð-
inga tapaðist 31. janúar
sl. í Skipholti, nálægt
Áklæði og gluggatjöld-
um, Radíóbúðinni, við
Skúlagötu 10, Kleppsveg
62 eða í nágrenni við
Hrafnistu í Reykjavík.
Finnandi vinsamlega láti
vita eða skili nælunni til
Félags íslenskra hjúkr-
unarfræðinga að Suður-
landsbraut 22, sími
568 7575.
TAKK, Karen mín. Ef
gaurarnir samþykkja þetta
ekki, lem ég þá bara í
klessu með heimabakaða
brauðinu þínu.
TAKTU þá bara. Banka-
stjórinn var að segja mér
upp áðan.
Víkveiji
YÍKVERJA hefur borizt at-
hugasemd frá Hrefnu Ingólfs-
dóttur, blaðafulltrúa Pósts og síma,
vegna skrifa hans síðastliðinn
laugardag: „Víkverji gamli er enn
við sama heygarðshornið og sendír
Pósti og síma tóninn í pistli sínum
laugardaginn 27. janúar. Að þessu
sinni vakti það furðu Víkverja að
símnotendur fá ekki að sjá tvo síð-
ustu stafina í þeim símanúmerum
sem þeir hafa hringt í, þegar þeir
fá sendan sundurliðaðan reikning.
Þessi háttur hefur verið hafður á
frá því þessi þjónusta var fyrst
boðin 1992. Var það gert að kröfu
tölvunefndar sem þannig taldi sig
vera að vernda friðhelgi þess sem
hringt er í en þetta mun vera regla
víða erlendis. Reyndar á þetta ekki
að koma blaðamanni Morgunblaðs-
ins á óvart þar sem þetta atriði
hefur komið fram þó nokkrum
sinnum í fréttum blaðsins á liðnum
árum. Póstur og sími hefur frá
upphafi haft búnað til þess að skrá
númer að fullu og í náinni framtíð
verður hægt að veita þeim sem
gerir alvarlegar athugasemdir við
skrifar...
símreikninginn sinn ítarlegri upp-
lýsingar um hvert hann hringdi og
hvað hvert símtal kostaði."
xxx
HREFNA heldur áfram: „Ann-
að mál sem hvildi þungt á
þeim sem skrifaði undir
nafni Víkverja þennan dag var út-
lit hússins sem stendur við Thor-
valdsensstræti 2. Hann rakti
merkilega sögu hússins en benti á
að nú hefði húsið verið múrhúðað
og svo virtist sem það hefði hlotið
lítið viðhald. Til fróðleiks skal Vík-
veija bent á grein í Mbl. 8. sept.
1995 en þar stendur: „Árið 1941
eignaðist Sjálfstæðisflokkurinn
þetta hús. Þá var því breytt, mikið
byggt við það- og það múrhúðað
að utan.“ Póstur og sími keypti
húsið 1968 og var það þá mjög illa
farið. M.a. þurfti að endurnýja
gólf og eldhús og nýlega var gert
við þakið. En ef færa ætti húsið í
upprunalegt horf yrði það gífur-
lega kostnaðarsamt. Vafalaust
myndu margir gagnrýna það að
símnotendur um allt land yrðu látn-
ir grfeiða fyrir það. En hugmyndin
er góð.“
xxx
HVAÐ fyrri athugasemd Hrefnu
varðar, hefur hún að þessu
sinni gripið Víkveija í landhelgi.
Auðvitað hefði átt að beina gagn-
rýninni að tölvunefnd frekar en
Pósti og síma. Hvað þá síðari varð-
ar, skiptir auðvitað engu máli að
Sjálfstæðisflokkurinn hafi eyðilagt
húsið við Thorvaldsensstræti, þótt
það sé honum auðvitað til lítils
sóma. Það, sem máli skiptir, er að
Póstur og sími á húsið núna og sú
skylda hlýtur að hvíla á fyrirtæk-
inu, líkt og öllum öðrum eigendum
gamalla og sögufrægra húsa, að
halda eign sinni við og sýna henni
tilhlýðilegan sóma. Sú tíð er liðin
að almenningur sætti sig við að
gömul hús séu látin drabbast niður
þar til eigandinn hefur þá afsökun
fyrir að rífa þau að þau séu ónýt.
Abyrgð Pósts og síma sem opinbers
fyrirtækis og eiganda húseignar við
eitt af aðaltorgum miðborgarinnar
er enn meiri en ella.