Morgunblaðið - 13.02.1996, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR B
36. TBL. 84. ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Meðferð stríðsglæpamanna í Bosníu
Holbrooke kynn-
ir vinnureglur
Sar^jevo, Mostar. Reuter.
Suður-Kórea býður
Japan birginn
Heræf-
ing við
umdeild-
ar eyjar
Seoul. Reuter.
STJÓRNVÖLD í Suður-Kóreu
sögðust í gær ætla að efna til
heræfinga við tvær smáeyjar, sem
Japanir hafa gert tilkall til, og
fjölga í lögregluliði sínu á eyjun-
um. Suður-Kóreumenn kalla eyj-
arnar Tokdo en Japanir Takes-
hima og þær eru í Japanshafi, um
það bil mitt á milli ríkjanna.
Talsmaður varnarmálaráðu-
neytisins í Seoul staðfesti að æf-
ingarnar yrðu annaðhvort í þess-
um mánuði eða í mars en bætti
við að svipaðar æfingar hefðu
farið fram á þriggja mánaða fresti
nálægt eyjunum.
Ein suður-kóresk fjölskylda býr
á eyjunum, auk 26 manna lög-
regluliðs. Suður-kóreska lögregl-
an sagðist ætla að senda þangað
þyrlu með átta lögreglumenn til
viðbótar.
Mótmæli við sendiráðið
Háskólanemi var handtekinn í
gær við sendiráð Japans í Seoul
eftir að hafa klifrað yfir girðingu
til að reyna að afhenda sendi-
herranum mótmæli eftir að Jap-
anir höfðu ítrekað kröfu sína til
eyjanna. Til átaka kom þegar um
200 háskólanemar reyndu að ráð-
ast inn í sendiráðið en lögreglan
stöðvaði þá.
Hundruð annarra Suður-
Kóreumanna efndu til mótmæla
í almenningsgörðum í Seoul og
kröfðust þess að stjórn landsins
sliti sljórnmálasambandi við Jap-
an. Kim Yoon-hwan, formaður
stjórnarflokksins, aflýsti í gær
þriggja daga för til Japans. Hóp-
ur stjórnarliða á japanska þing-
inu hætti við för til Seoul eftir
að Kim Young-sam, forseti Suð-
ur-Kóreu, aflýsti fundi með þeim.
RICHARD Holbrooke, aðstoðar-
utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
sagði í gær að náðst hefði samkomu-
lag um vinnureglur í málum meintra
stríðsglæpamanna í Bosníu. Hann
kvaðst ekki viss um viðbrögð leið-
toga Bosníu-Serba en Slobodan Mi-
losevic Serbíuforseti, sem Holbrooke
ræddi við í Belgrad á sunnudag,
hefði stutt hugmyndina. Atlants-
hafsbandalagið (NATO) greindi frá
því í gær að tveir yfirmenn úr her
Bosníu-Serba, sem Bosníustjórn lét
handtaka vegna meintra stríðs-
glæpa, hefðu í gærkvöldi verið flutt-
ir úr fangelsi í Sarajevo til Haag í
Hollandi þar sem stríðsglæpadóm-
stóll Sameinuðu Þjóðanna (SÞ) hefur
aðsetur.
Christian Chartier, talsmaður
stríðsglæpadómstólsins, sagði að yf-
Meintir stríðs-
glæpamenn fluttir
frá Sarajevo til
Haag
irheyra ætti mennina og kanna hvort
forsendur væru fyrir því að ákæra þá.
Framvegis munu stjórnvöld í
Bosníu láta stríðsglæpadómstólinn
hafa lista með nöfnum þeirra sem
grunaðir eru um glæpi og sönnunar-
gögn verða að fylgja með. Mun dóm-
stóllinn-ákveða hvort umræddir menn
verði handteknir.
Holbrooke fór til Balkanskaga á
sunnudag til að reyna að finna lausn
á deilunum um stríðsglæpamenn er
virtust geta kollvarpað Dayton-frið-
arsamningunum. Stjómvöld í
Sarajevo létu handtaka tíu Bosníu-
Serba sem grunaðir eru um stríðs-
glæpi. Fjórum hefur verið sleppt en
hinir eru enn í haldi og mennimir,
sem vom fluttir til Haag í gær-
kvöldi, voru þeirra á meðal. Að sögn
Holbrooke hyggst stjórnin í Sarajevo
þegar í stað hlíta niðurstöðum dóm-
stóls SÞ. Bosníu-Serbar hættu sam-
starfi við aðila friðarsamninganna
vegna handtökunnar.
Javier Solana, framkvæmdastjóri
NATO, er nú í Bosníu. Hann sagði
í Mostar í gær að bandalagið myndi
ekki una því að gerðar yrðu árásir á
starfsmenn Evrópusambandsins í
borginni. Þar var í liðinni viku skotið
á brynvarðan bíl Þjóðveijans Hans
Koschnicks, sem tók að sér að stýra
borginni til bráðabirgða.
Reuter
Arafat
sver emb-
ættiseið
YASSER Arafat, formaður
Frelsissamtaka Palestínu (PLO),
sór embættiseið sem leiðtogi
sjálfsljórnarsvæða Palestínu-
manna í gær, þremur vikum eft-
ir yfirburðasigur í kosningum.
Arafat lagði hægri hönd á Kór-
aninn og sagði: „Ég sver við nafn
almáttugs guðs að vera trúr hei-
malandinu, virða stjórnarskrána
og lögin, hvika hvergi frá hags-
munum palestínsku þjóðarinnar
og fá vonum hennar framgengt
og guð er mitt vitni.“
Shimon Peres, forsætisráð-
herra ísraels, hringdi í Arafat
til að óska honum til hamingju
og í skeyti frá skrifstofu hans
var Arafat titlaður forseti, en
ekki formaður.
Arafat fékk 88% akvæða í
fyrstu kosningum Palestínu-
manna 20. janúar og var kjörinn
leiðtogi bráðabirgðasljórnar og
88 manna löggjafarráðs sjálf-
stjórnarsvæðanna. Samkvæmt
friðarsamningunum við Israela
verður bráðabirgðastjórnin við
völd þar til lokasamkomulag
næst um stöðu Vesturbakkans
og Gaza-svæðisins í viðræðum
sem hefjast í maí. Arafat hefur
lofað að stofnað verði palestínskt
ríki.
Reuter
HÁSKÓLANEMAR í Seoul kveikja í japanska fánanum til að mótmæla kröfu Japana
til tveggja eyja í Japanshafi.
Major varar við fleiri
sprengjutilræðum IRA
Heitir því að greiða fyrir fyrir friði
hvað sem á dynur
JOHN Major, forsætisráðherra Bret-
lands, sagði í gær að skæruliðar írska
lýðveldishersins
(IRA) gætu
sprengt fleiri
sprengjur í kjölfar
sprengj utilræðis-
ins í London á
föstudag og hét
því um leið að
vinna að því að
haldnar verði
kosningar á Norð-
ur-írlandi til að greiða fyrir friðarvið-
ræðum. Major sagði í sjónvarpsá-
varpi í gærkvöldi að á Norður-írlandi
ríkti „nýr andi, andi friðar“.
Major flutti sérstakt ávarp á þingi
í gær og minntist mannanna tveggja,
sem létu lífið í sprengingunni á föstu-
dag. 100 menn særðust og talið er
að tjónið af völdum sprengingarinnar
nemi 150 milljónum punda (um 15
milijörðum króna). Forsætisráðherr-
ann sagði að IRA þyrfti að lýsa yfir
vopnahléi að nýju áður en ráðherrar
stjórnar sinnar ræddu við fulltrúa
Sinn Fein, stjórnmálaarms IRA, og
sama ætti við um ráðherra írsku
stjórnarinnar.
Fundur með Bruton
Hann tilkynnti einnig að hann
hygðist halda fund með John Bruton,
forsætisráðherra írlands, í London.
Fundurinn yrði sennilega haldinn í
næstu viku og ætlunin væri að finna
leið til að bjarga friðarviðræðunum.
írska stjórnin fagnaði í gær fyrir-
heiti Majors um að halda ótrauður
áfram að reyna að tryggja frið þrátt
fyrir sprengjutilræðið.
írska dagblaðið Irish Times greindi
frá því í gær að um eitt sprengjutil-
ræði hefði verið að ræða, sem ætlað
væri að fá bresk stjórnvöld til að
breyta áætlunum sínum um Norður-
írland. IRA hygðist ekki hefja átök
að nýju.
Major sagði að hann myndi halda
áfram að leita lausnar á málefnum
Norður-írlands, sama hvað á dyndi.
Rússar og NATO
Juppé vill
ræða sátt-
mála
Moskvu. Reuter.
ALAIN Juppé, forsætisráðherra
Frakklands, hvatti Rússa í gær
til að styðja umbótastefnu Borís
Jeltsíns forseta í baráttunni fyrir
kosningarnar í júní. Jeltsin
hyggst skýra frá því á fimmtu-
dag hvort hann fer fram.
Juppé lagði til í viðtali við
dagblaðið Izvestíju að Atlants-
hafsbandalagið gerði sérstakan
sáttmála við Rússa, sem yrði
samfara því að fyrrverandi
kommúnistaríki yrðu tekin í
bandalagið. Juppé fer í heimsókn
til Rússlands á morgun.
■ Hóta árásum/20
Miijor ávarpar
Brota og fra