Morgunblaðið - 13.02.1996, Page 6

Morgunblaðið - 13.02.1996, Page 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ - FRÉTTIR Bátarall undir- búið til að meta þorskstofninn UNDIRBÚNINGUR er í fullum gangi hjá Hafrannsóknastofnun- inni að því að taka upp bátarall sem yrði notað með svipuðum hætti og togararall stofnunarinnar til rannsókna á þorskstofninum við ísland. Að sögn Jakobs Jakobsson- ar, forstjóra Hafrannsóknastofn- unarinnar, er stefnt að því að rall- ið fari af stað ekki seinna en í aprílbyijun. Þetta kom fram á fundi sem Fiskifélag íslands hélt á Hótel Sögu í gærkvöldi, þar sem rætt var um það hvort þorskstofninn væri á uppleið á íslandsmiðum. „Starfshópur hjá Hafrannsókna- stofnuninni hefur unnið í sam- starfi við netasjómenn og val á bátum í rallið stendur nú yfir,“ segir Jakob í samtali við Morgun- blaðið. „Við munum á næstu dögum og vikum efna til samstarfs við netasjómenn um það hvemig skyn- samlegast er að framkvæma þetta, hvar netin eigi að liggja, hve mörg net og hvaða möskvastærðir eigi að notast við og allt það sem lýtur að hinum praktísku hliðum ralls- ins. Við stefnum á að rallið fari af stað ekki seinna en í aprílbyij- un.“ Jakob segir að rannsóknir af þessu tagi þurfi helst að standa í nokkur ár til að samanburður fáist frá ári til árs svo unnt sé að meta stofnstærðarsveiflur. „Spádóms- gildið verður því mikilvægara sem rallið stendur í fleiri ár,“ segir hann. „En vissulega förum við ofan í saumana á niðurstöðunum strax eftir eitt ár og það verður mjög spennandi að sjá hvernig það kem- ur út og hvort það þarf að breyta einhveiju eða bæta eitthvað fyrir næsta ár.“ Morgunblaðið/Ásdís JAKOB Jakobsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunarinnar, og Gunnar Stefánsson, formaður fiskveiðiráðgjafamefndar Hafrann- óknastofnunarinnar, á fundinum í gærkvöldi. Björk á 12 þúsund manna tónleikum í Peking í Kína í kvöld BJÖRK Guðmundsdóttir er nú á tónleikaferð um Austurlönd og Eyjaálfu. Hún hefur lokið tón- Ieikahaldi í Japan, en heldur í kvöld fyrstu tónleika sína af þrennum í Kina. Björk Guðmundsdóttir lét vel af tónleikaferð sinni þar sem hún var stödd í kvöldverðarboði hjá sendiherra íslands í Kína, Hjálm- ari W. Hannessyni, í gærdag. Hún hafði þá nýlokið skoðunar- ferð meðal annars að Kínamúrn- um með Sindra syni sinum, sem er með henni í tónleikaferðinni. Hún sagði að þótt múrinn hafi verið merkileg sjón hafi hann bara verið „berin á kökunni", og vísaði þá til landslagsins sem hún sagði ægifagurt. „Fjöllin héma eru hrikaleg og minna mig á Vestfirðina,“ sagði hún, „bara tíu sinnum stærri, hvassir fjallstind- ar. Það var gaman að skoða múrinn en landslagið er ógleym- anlegt.“ Björk segir að hún hafi síðan aflýst frekari skoðunarferð um Beijing, en þau Sindri farið upp á hótel til að lesa og hvíla sig. Björk segir að Beying sé skemmtileg borg, sérstaklega hvernig gamli og nýi tíminn rek- ist á. „Ef maður gengur eftir götu og beygir til vinstri kemur Gaman að skoða múrinn en lands- lagið ógleymanlegt maður í hverfi þar sem fólk er að sjóða sér kattasúpu á moldar- gólfi, en ef farið er til hægri þá er þar einhver með farsíma að panta sér Yves Saint Laurent- jakkaföt,“ segir hún. Sjö tónleikar í Japan Tónleikaferð Bjarkar um Asíu og Eyjaálfu hófst í Japan 31. jan- úar, en þar í landi lék hún á sjö tónleikum, í Tókýó, Nagoya, Fukuoka og Osaka. Hún segir að staðirnir sem hún hafi leikið á séu flestir í stærra lagi og tals- vert stærri en þegar hún hafi farið tónleikaferð til Japans eftir að Debut kom út. „Ég hef gert það áður að leika á stórum stöð- um, þó mér sé meinilla við það, en það er þá til þessað ég hafi efni á að fara til staða eins og Beijing," segir hún og bætir við að vinsældir hennar í Japan virð- ist ámóta og í Bretlandi, að minnsta kosti ef miðað sé við tónleikastaði. í kvöld leikur Björk í um 12.000 manna tónleikastað, Beijing Stud- ents Gym, og á morgun eftir tón- leikana í Beijing heldur hún til Hong Kong eins og áður er getið, leikur á tónleikum þar á Q.E. leik- vanginum fimmtudag og föstu- dag. 21. febrúar leikur Björk í Bangkok í Tælandi og í Singap- ore 23. og 24. febrúar, en þá er ferðinni heitið til Ástralíu þar sem hún heldur ellefu tónleika. Tilnefnd tilfjölda verðlauna í gær kom út fjórða smáskifan af breiðskífu Bjarkar, Hyper- ballad. Umboðsmaður hennar í Bretlandi, Derek Birkett, spáir laginu velgengni á vinsældalist- um, en bætir við að það verði visast ekki mikið spilað í næstu viku, því þá stendur fyrir dyrum Brit-verðlaunahátíðin og þá leika breskar útvarpsstöðvar lítið ann- að en breska tónlist. Björk er tilnefnd til einna Brit-verðlauna, sem besta alþjóðlega söngkonan, en þau verðlaun hlaut hún ein- mitt á síðasta ári. Hún er einnig tilnefnd til tvennra Grammy- verðlauna, helstu tónlistarverð- launa Bandaríkjanna, sem veitt verða 28. febrúar nk., og til al- þjóðlegu danstónlistarverðlaun- anna, sem veitt verða í lok mars. Andlát Loftf erðaeftirlitið BJARNI S VEINB J ARN ARSON BJARNI Sveinbjamar- son, framkvæmdastjóri í Útilífí í Glæsibæ, varð bráðkvaddur sl. sunnu- dag, 54 ára að aldri. Hann var fæddur í Reykjavík 14. mars árið 1941. Hann lauk verslunarprófi frá Samvinnuskólanum að Bifröst og var á fram- haldsbraut Samvinnu- skólans þegar hann hóf rekstur verslunarinnar Útilífs árið 1974 ásamt bróður sínum Hauki Sveinbjarnarsyni, Valdimari Ömólfssyni og Arnóri Guðbjartssyni. Bjarni kvæntist eftirlifandi eiginkonu sinni Maríu Tómasdóttur 14. ágúst 1965 og eignuðust þau þijá syni, Tómas Björn, Arnar Orra og Únnar. Snæ. Foreldrar Bjarna eru þáu S.vein- björn Jónsson og Elín- borg Ólafsdóttir. Bjarni var yngstur fjögurra systkiná, en auk bróðurins Hauks átti hann tvær systur, Sigríði og Ernu. Bjarni hafði mikinn áhuga á allri útivist og lagði stund á ijölmarg- ar íþróttagreinar um ævina, t.d. körfubolta, knattspyrnu, skíði, seglbretti, köfun og fjallgöngu, en seinni árin lagði hann einkum stund á golf og skíðagöngu auk þess sem hundarækt varð mikið áhugamál þeirra hjóna. Ekki fallist á sam- starfsaðila Flugleiða LOFTFERÐAEFTIRLITIÐ hefur til- kynnt Flugleiðum að ekki sé lengur hægt að heimila vöruflutninga MK- Airlines milli Belgíu og íslandS fyrir fýrirtækið. Jens Bjamason, fram- kvæmdastjóri Loftferðaeftirlits, seg- ir að ástæðan sé sú að vafí leiki á því áð öryggisstaðlar MK-Airlines séu sambærilegir við gildandi örygg- isstaðla hér á landi. Einar Sigurðs- son, blaðafulltrúi Flugleiða, segir að skipt verði við annað flugfélag ef MK-Airlines aflar sér ekki tilskilinn- ar viðurkenningar. Jens segir að eftir að Danir hafi gert athugasemd við ósk Flugleiða um að MK-Airlines flygi milli íslands og Danmerkur hafi Loftferðareftirlit- ið farið að kanna fyrirtækið og kom- ist að áðurnefndri niðurstöðu. Flug- leiðir fengju 30 daga frest til að finna nýja samstarfsaðila eða leggja fram ný gögn. MK-Airlines er skráð í Gana en starfar i Evrópu. Einár tók fram að flugfélagið hefði heimild til að fljúga innan Evrópu, a.m.k. Belgíu og Bretlands, og hefði m.a. flogið fyrir breska flugfélagið British Airways. „Við hlítum hins vegar auðvitað gildandi reglum hér á landi. Flugfélagið hef- ur væntanlega 30 daga frest til að laga sig að nýjum kröfum. Ef flugfé- lagið aflar sér ekki viðeigandi viður- kenningar eða hefur ekki áhuga á því verðum við að skipta við annað félag,“ sagði Einar og lagði áhersla á að engin breyting yrði á þjónustu Flugleiða. Hann sagði að ef á þyrfti að halda yrði væntanlega ekki erfitt að finna nýjan samstarfaðila enda færu mörg fraktleigufélög um Ost- ende-flugvöll. Guðjón kjör- inn prestur á Staðarstað GUÐJÓN Skarphéðinsson guðfræð- ingur var kosinn prestur að Staðar- stað á Snæfellsnesi um helgina. Hann hlaut 68% atkvæða og bind- andi kosningu. Guðjón fékk 153 atkvæði, en séra Bragi Benediktsson, prestur á Reyk- hólum, fékk 69 atkvæði. Einn seðill var auður og tveir ógildir. Á kjör- skrá voru 262 og greiddu 225 at- kvæði eða 86%. I desember greiddu sóknarnefndirnar í prestakallinu at- kvæði um umsækjendur og hlaut Guðjón þá einnig flest atkvæði. Guðjón sagðist vera þakklátur fyrir þennan góða stuðning sem sóknarbömin á Snæfellsnesi hefðu sýnt sér með þessu kjöri. Hann sagðist hlakka til að flytja til ís- lands og hefja störf sem prestur á Staðarstað, en hann hefur átt heima í Danmörku sl. 14 ár. I » Kristinn Jens fékk flest at- f kvæði í Saurbæ i SÉRA Kristinn Jens Sigurþórsson, I prestur á Þingeyri, hlaut flest at- kvæði í kosningu um embætti sókn- arprests á Saurbæ á Hvalfjarðar- strönd sem haldin var á laugardag. Séra Kristinn Jens hlaut 128 at- kvæði. Næstur kom Þórarinn Björnsson með 105 atkvæði, séra Önundur Björnsson hlaut 77 at- kvæði, Guðrún Edda Gunnarsdóttir 12 atkvæði og séra Ingólfur Guð- mundsson hlaut ekkert atkvæði. | 88% þeirra sem voru á kjörskrá ■ greiddu atkvæði. „Ég er mjög sáttur við mína út- komu og vona að náist sátt um hana í prestakallinu,“ sagði séra Kristinn Jens í gær. Hann kvaðst vilja færa stuðningsmönnum sínum 'bestu þakkir fyrir stuðninginn. Þar sem enginn umsækjenda fékk meira en helming greiddra atkvæða er I kosningin ekki bindandi. Dóms- og kirkjumálaráðherra skipar prest i | embættið að fenginni tillögu biskups íslands. Ekkert fordæmi er fyrir því síð- ustu 40 árin að ekki hafi verið farið eftir úrslitum kosninga þó að enginn hafi fengið bindandi kosningu. Þegar sóknarnefndir greiddu at- kvæði um umsækjendur um prests- embættið í Saurbæ fyrr í vetur fékk . Þórarinn Björnsson flest atkvæði, séra Önundur varð annar og séra Kristinn Jens þriðji. Sóknarbörn á | Hvalfjarðarströnd kröfðust prests- * kosninga með undirskriftasöfnun. i

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.