Morgunblaðið - 13.02.1996, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ
KRISTMUNDUR
ANTON JÓNASSON
Kristmundur
Anton Jónasson
(Toni) fæddist í
Reykjavík 21. des-
ember 1929. Hann
lést á heimili sínu á
Vesturgötu 73 í
Reykjavík 3. febr-
úar síðastliðinn.
Útför hans fór
fram frá Dómkirkj-
unni í Reykjavík 12.
febrúar síðastlið-
inn.
ANTON, eða Toni eins
og margir þekkja
hann, ólst upp í vesturbænum í
Verkamannabústöðunum sem voru
þá fremsta nýjung í sögu húsnæðis-
mála íslenskra launþega. Hann var
sonur hjónanna Jónasar Jóhanns
Kristmundssonar, sjómanns og vél-
stjóra, síðar verkamanns, og Maríu
Magnúsdóttur, ræstingakonu. An-
ton átti tvö systkini, Sóleyju, sem
lést á yngri árum, og Magnús Inga,
bifvélavirkja. Anton hóf ungur að
vinna fyrir sér eins og algengt var
á þessum tímum. Jónas Jóhann,
faðir þeirra systkinanna, fékk olíu-
reykeitrun og gat því ekki lengur
starfað á sjó og við það minnkuðu
tekjur fjölskyldunnar. Þetta hefur
vafalaust ýtt undir systkinin að
leggja hönd á plóginn við að vinna
fyrir viðurværi fjölskyldunnar.
Anton hóf um 14 ára aldur störf
og nám sem framreiðslumaður og
starfaði hann fyrst á Hótel Borg
1944 hjá Hansen. Síðan hefur hann
störf í Tjarnarkaffi 1947-51 og
hafði hann þá kynnst verðandi eig-
inkonu sinni, Helgu
Svölu Nielsen. Þau
eignast sitt fyrsta
barn, Örlyg, 1947 (nú
skólastjóri Fullorðins-
fræðslunnar í Reykja-
vík), þá Jónas 1950
(nú flutningabílstjóri í
Reykjavík) og lok
Ómar 1953 (nú flutn-
ingabílstjóri og verk-
taki á Hornafirði).
Anton og Helga Svala
skildu 1957. 1963
eignast Anton dóttur-
ina Eddu, en barns-
móðir hans var Svan-
hildur Arný Siguijónsdóttir.
Anton kvænist síðan Kristínu
Ottósdóttur og eignast þau börnin
Anton Ingibjart 1975, (nú sendibíl-
stjóri í Reykjavík), Steinberg 1977
(nú starfandi í Bandaríkjunum) og
Hreiðar Hálfdán 1981 (nú við skóla-
göngu, búsettur hjá móður sinni í
Bandaríkjunum). Kristín átti fyrir
soninn Ásmund B. Þórðarson (nú
verktaki í Reykjavík) og dótturina
Guðrúnu Benediktsdóttur (nú hár-
greiðslumeistari í Hafnarfirði) sem
nú urðu stjúpbörn hans.
Anton nam til framreiðslumanns
hjá Jóni Arasyni í Ijarnarkaffi, en
þeir fara svo báðir í Þjóðleikhús-
kjallarann við opnun hans 1952,
þar sem Jón var yfirþjónn.
Anton starfar síðan um langa
hríð í Þjóðleikhúskjallaranum, sem
rekinn var af Þorvaldi í Síld & fisk
og starfa þar til 1958 er Þorvaldur
opnar hið nýja veitingahús Lidó,
vann hann þar um tíma við opnun
staðarins en var áfram viðloðandi
ÁRMANN
GUÐNASON
Ármann
Guðnason fædd-
ist í Reykjavík 21.
júní 1911. Hann lést
5. febrúar 1996.
Foreldrar hans
voru Guðni Guðna-
son og Sóldís Guð-
mundsdóttir. Systk-
ini hans eru Sigur-
mundur, f.
Halldór (dó ungur)
Lilja Halldóra, f.
1920. Ármann
kvæntist Steinunni
Tómasdóttur 12.
júní 1937 og eiga
þau tvö börn, Huga Steinar og
Guðrúnu. Þau ólu einnig upp
elsta barnabarn sitt, Hugrúnu.
Samtals á Ármann 7 barnabörn
og 4 barnabarnabörn.
Útför Ármanns fer fram frá
Hallgrímskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 15.
ÞÁ ER elsku afi minn dáinn. Hann
var mér bæði faðir og afí enda var
ég alinn upp að stórum hluta hjá
honum og ömmu. Hann var mér
miklu meira en bara það, því hann
var líka vinur minn og mín helsta
stoð og stytta öll þessi ár. Ég tók
afa mér til fyrirmyndar í mörgu
enda var hann einstakur á svo
margan hátt. Hann var bæði lifandi
og eljusamur maður sem hafði mik-
inn lífskraft að bera. Ég kynntist
Reykjavíkurborg snemma á ferða-
lögum mínum með afa á gamla
vörubílnum hans. Við fórum víða
og hann þekkti marga. Alls staðar
var hann velkominn með sínar
hressilegu umræður um stjórnmál
og annað sem honum var hugleikið.
Áhugamálin voru mörg. Hann var
mikill frímerkjasafnari og póst-
kortasafnari, fastagestur í heitu
pottunum í Laugardagslauginni þar
sem hann stýrði oft eldheitum um-
ræðum um þjóðmálin. Hann var
frammari og var fastagestur á vell-
inum árum saman. Það
er svo margt sem ég á
að minnast úr æsku
minni sem tengist afa
og það eru allt góðar
minningar. Hann var
alveg einstaklega góð-
ur við mig og seinna
við syni mína. Það er
óhætt að segja að hann
sé sá sem mest áhrif
hefur haft á okkur. Við
vorum miklir vinir og
eftir að ég varð fullorð-
in voru það hann og
amma sem alltaf hjálp-
uðu þegar á bjátaði.
Besta hrós sem ég hef fengið var
þegar amma sagði mér hvað honum
fannst um mig; ef afa líkaði það
sem ég gerði gat ég verið stolt.
Minningarnar sem streyma gegnum
hugann eru efni í heila bók og þær
eru allar mjög skýrar og lifandi,
einskonar lífskraftur sem mun
fylgja mér gegnum allt lífið. Þótt
afi ætti hart líf að baki var hann
mjúkur og kærleiksríkur og sveik
aldrei orð sín. Hann missti föður
sinn 11 ára og þurfti að fara vinna
fyrir sér. Það stoppaði hann ekki
og eftir margra ára sjómennsku og
önnur verkamannastörf byijaði
hann með eigið fyrirtæki. Hann
seldi brotajárn til Bretlands og ís-
lendingum kol eftir að stærri fyrir-
tækin hættu. Hann mætti til vinnu
á hvetjum degi alla mína æsku og
vann sig upp með þrautseigju og
dugnaði. Hann og amma bjuggu á
Hrísateig frá því 1945, en afi
byg'gði húsið í félagi við annan. Þar
liggja rætur fjölskyldunnar. Það er
alveg á hreinu að betra lífsnesti fær
barn ekki en íslenskt alþýðuheimili
með útvarpsdagskrána í eyrunum
frá morgni til kvölds. Það virtist
vera sama hvað var efst á baugi,
afi hafði áhuga á öllu. Hann átti
kindur þar til það var bannað í
borgarlandinu. Hann var fyrsti
maður á bryggjuna á Húsavík þeg-
MINNINGAR
Þjóðleikhúskjallarann. Þá er Anton
næst við opnun Þorvalds á Hótel
Sögu og svo við opnun Hótels Holts
en var enn viðloðandi Þjóðleikhús-
kjallarann að mestu, en fer að lok-
um til Hótel Loftleiða við opnun
þess og er þar yfirþjónn, en Hótel
Loftleiðir var einnig rekið af Þor-
valdi.
Þá hefur Anton eigin rekstur
Nýgrills hf. í Breiðholti með Guðna
Sigfússyni, mági sínum, eiginmanni
systur hans Sóleyjar, er lést síðar,
og Sigurði Guðjónssyni, fram-
reiðslumanni, en þau selja Antoni
síðar hluti sína. Rak Anton veit-
ingahúsið og söluturninn Nýgrill
áratuginn 1970-80 ásamt seinni
eiginkonu sinni, Kristínu Símoníu
Ottósdóttur. Anton og Kristín
skildu 1983.
Anton hættir veitingarekstri upp
úr 1980 og vinnur um tíma ýmsa
launavinnu en vann síðastliðin 12
ár í mötuneyti hjá verktakafyrir-
tækinu Veli hf. Reyndist fyrirtækið
honum mjög vel og átti hann þar
ávallt vísan stað, þótt hann yrði frá
vinnu um hríð vegna þess sjúkleika
sem hijáði hann allra síðustu árin.
Þetta var Antoni mikill styrkur því
fátt líkaði honum verr en að vera
án starfa.
Af ofangreindu má lesa að Anton
hefur fylgt helstu þróun í veitinga-
rekstri síns tíma og má að nokkru
lesa úr sögu hans sögu helsta ís-
lensks veitingahúsareksturs þessa
tíma, þar sem Þorvaldur í Síld &
fisk var oftar en ekki fremstur í
flokki.
Er Anton hóf eigin rekstur þótti
grillsteikhús það sem hann rak
fremst í flokki slíkra á sínum tíma.
Þá var veitingahúsið rekið í því
hverfí sem var að fæðast til lífs á
þessum tíma, Breiðholti. Það má því
segja að Anton hafí fylgt og hrærst
í nýjustu straumum veitingahúsa-
rekstur hvers tímabils ævi sinnar.
ar hann heimsótti móður mína og
fór gjarna í róðra á trillu sijúpföður
míns. hann keypti bæði Morgun-
blaðið og Þjóðviljann því hann vildi
fá allar hliðar á málunum, ekki
vera heilaþveginn, en auk þess
missti hann varla nokkurn tima af
útvarpsfréttunum áratugum sam-
an. Eftir að hann veiktist og var
stundum ekki hugað líf reis hann
hvað eftir annað á fætur og dreif
sig í að gera það sem hann átti
eftir; hann vildi ekki deyja frá hálf-
kláruðum málum og það var oft
viljinn meira en getan sem stjórn-
aði. Sl. sumar heimsótti hann mig
með móður minni til Svíþjóðar. Það
var honum mikið kappsmál að kom-
ast þangað og stór upplifun. Daginn
áður en hann dó talaði hann um
að drífa sig austur til sonar síns
og tengdadóttur. Hann langaði til
að sjá hestana þeirra. Þegar amma
sagði mér að hann væri farinn að
missa áhugann á póstkortunum
vissi ég að nú var ekki langt eftir.
Það kom mér því ekki á óvart að
heyra um lát hans. Það gleður mig
að ég og synir mínir skyldum getað
komið og fylgt honum í hinsta sinn.
Það er mikil sorg fyrir okkur öll
að hafa hann ekki lengur, en minn-
ingin um hann mun lifa með okkur.
Elsku afi minn, það er ekkert sem
ERFIDRYKKJUR
P E R L A N sími 562 0200
Hnii
liiiiiiarUrtii
ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 1996 35
---------------------------------srfL
Anton undirbjó hinsta daginn og
náði að kveðja nokkra vini með
þeim orðum að hann væri á förum
héðan endanlega. Laugardaginn 3.
febrúar kvaddi svo Anton lífið á
hljóðan hátt og störfum hans og
lífí hér á jörðu á meðal okkar var
lokið.
Orlygur Antonsson.
Síðustu vikurnar í lífi föður okk-
ar Antons, eða Tona eins og flestir
þekktu hann, vissi hann að líf hans
hér á jörðu var brátt á enda runnið
og undirbjó hann á ýmsan hátt
brottför sína héðan og kvaddi jafn-
vel vini, ættingja og atvinnurekend-
ur sína með þeim orðum að hann
væri á förum héðan úr þessu jarð-
lífí. Anton átti ekki von á að brott-
för hans yrði án kvala, en hún varð
þó hljóðlát og mild, miðað við að-
stæður, á heimili hans í faðmi son-
ar síns Jónasar og tengdadóttur
sinnar Sonju, en Anton var mjög
heimakær og ekki féll honum spít-
alavist hjá óskyldu fólki.
Anton sýndi í lífi sínu á skýran
hátt hver maður hann var, og hvað
hann vildi framar öðru, þótt hann
væri á ýmsan hátt dulur á tilfinn-
ingar sínar. Börnin hafði hann
ávallt í fyrirrúmi hvað sem á bját-
aði og hann var mjög heimakær.
Starf hans fólst í opinberu starfi
framreiðslumannsins innan um
skemmtana- og veitingahúsalífíð og
Anton var vinsæll meðal viðskipta-
vina og samstarfsmanna. Er starfí
var lokið vildi Anton vera fjarri öllu
veitingahúsalífi og kaus heimilislíf
og heimilismat. Hvernig til tekst
að skapa það líf er svo lífssaga
hans og reyndar að meira eða minna
leyti hvers manns.
Þótt Anton vildi lifa áfram með
okkur sagðist hann þó nokkuð sátt-
ur við það líf sem hann hafði lifað
og að hann hefði gert flest sem
hann vildi gera í lífí sínu. Það má
vafalaust alltaf deila um hvort hver
einstaklingur kunni að lifa lífínu
eða hvort hann lifði lífínu „rétt“ en
í okkar huga er enginn vafi á að
Anton kunni að deyja ef yfirhöfuö
er hægt að segja að nokkur kunni
það. Við synir Antons og dætur
getum verið stolt af því hvernig
faðir hann reyndist okkur og hann
gaf okkur gott fordæmi, sem við
ávallt berum innra með okkur svo
lengi sem við lifum. Við getum því
verið stolt af hvernig hann lifði líf-
inu gagnvart okkur og við getum
verið stolt af því hvernig hann dó.
Við börn og stjúpböm Antons
neitum því að kveðja föður okkar
Anton endanlega. Til þess lifír hann
alltof sterku lífí innra með okkur
og það líf viljum við styrkja og næra.
Ég stend til brautar búinn
min bæn til þín og trúin
er einkaathvarf mitt,
ó, Guð, mín stoð og styrkur
ég stari beint í myrkur
ef mér ei lýsir ljósið þitt.
Það blessað ljós mig leiði
og leiðir minar greiði
þótt ópi grand og glys.
I blíðu’ og hreggi hörðu
um hraun og slétta jörðu
án þín er búið böl og slys.
Ég stend til brautar búinn,
mín bæn til þín og trúin
er hjartans huggun mín,
minn veiki vinaskari
ég veit, þótt burt ég fari,
er, Herra Guð, í hendi þín.
(M. Joch.)
Örlygur Antonsson, Jónas
Antonsson, Ómar Antonsson,
Ingibjartur Antonsson, Stein-
berg Antonsson, Hreiðar
Hálfdán Antonsson, Edda
Antonsdóttir, Guðrún Bene-
diktsdóttir.
getur aðskilið okkur og þau sterku
bönd sem eru á milli okkar. Þú lifir
með okkur áfram. Ég þakka þér
fyrir okkar hönd allan þann kær-
leika og lífskraft sem þú hefur gef-
ið okkur.
Guð vaki yfir sál þinni.
Þín Hugrún.
Elsku langafi minn er dáinn,
þessi maður sem var og mun alltaf
verða besti ættingi minn. Hann var
alltaf mjög glaður og skemmtileg-
ur. Ármann gerði eiginlega meira
en hann gat vegna heilsu sinnar,
kom hann til dæmis til Svíþjóðar
síðastliðið sumar og eru það góðar
minningar fyrir mig og fjölskyldu
mína, en við erum búinn að búa í
Svíþjóð síðustu 5 árin.
Þetta var líka góður tími í lífi
Ármanns.
Mér finnst svo skrýtið að hugsa
til þess að hann sé farinn, en finnst
mér það samt mjög gott að hann
dó á friðsælan hátt. Ég kynntist
fótboltanum mjög snemma og var
það í gegnum Armann, hann var
mjög áhugasamur um fótbolta.
Þið sem sátuð oft í heitu pottun-
um í Laugardalslauginni munið al-
veg örugglega eftir honum, því var
hann mjög mikið í Laugunum áður
fyrr og gat hann talað um allt frá
pólitík til fótbolta. Nú er hann far-
inn og kemur ekki aftur, en í huga
mínum mun hann alltaf lifa. Eg-fc.
þakka honum fyrir góða samveru
fyrir mína hönd og Ármanns bróður
míns.
Rúnar Hreinsson.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og vinar-
hug við andlát og jarðarför föður okkar, tengdaföður, afa og lang-
afa,
SIGURÐAR GÍSLA GUÐMUNDSSONAR,
Lundum,
Stafholtstungum.
Sérstakar þakkir til starfsfólks A-deildar Sjúkrahúss Akraness.
Guðrún M. Sigurðardóttir, Ingólfur Helgason,
Ragna J. Sigurðardóttir, Sigbjörn Björnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför eiginkonu minnar, móður okkar,
stjúpmóður, tengdamóöur og ömmu,
INGU WÍUM HANSDÓTTUR,
Brekkulandi 3,
Mosfellsbæ.
Sérstakar þakkir flytjum við starfsfólki
deildar 11E í Landspítalanum og
Heimahlynningu Karítasar.
Bjarni Hólm Bjarnason,
Arnþór H. Bjarnason, Lovisa Guðmundsdóttir,
Anna Hlín Bjarnadóttir,
Berglind H. Bjarnadóttir, Þórarinn Gestsson,
Kristín Bjarnadóttir, Jónmundur Kjartansson
og barnabörn.